Tíminn - 15.05.1964, Side 2
FIMMTUDAGUR, 14. maí.
NTB-Haag. — Ráðherrafuiidi
NATOs lauk í dag. Yar látinn
í ljós uggur vegna þróunarinn-
ar í Kýpur.deilunni og sambiið
Glikklands og Tyrklands, en
jafnframt tilkynnt, að Dirk
St'kker, firamkvæmdastjóra NA
TO, hafi verið falið að reyna
að sætta þessar tvær NATO
þjóðir.
NTB-Aswan. — Krústjoff for-
saótisráðherra og Nasser forseti
sprengdu báðir þunnan vegg,
sem skildi Níl frá kílómetra
löngum nýbyggðum skurði, þsg
ar fyrsta stig Aswan-stíflunnar
var tekið í notkun í dag.
NTB-New York. — Tyrk-
neski varaforsetinn á Kýpur,
dr. Fadil Kutchuk, segir í bréfi
ti! U Thants, framkvæmdastj.
SÞ ,að Grikkir hafi drepið rúm
Iega 400 Tyrki og sært 700, síð
an bardagar hófust á eyjunni i
desember s. 1.
NTB-París. — Franski kom-
múnistaflokkurinn hóf í dag
flokksþing sitt með því að ráð-
ast harkalega á kínverska kom
múnista, og var þeim árásum
vel fagnað af áheyrendum.
NTB-Saigon. — Robert Mc
Namara, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sem nýkominn
er úr heimsókn sinni til Suð-
ur..Vietnam, hefur beðið John-
son forseta um að auka hern-
aðarlega og fjárhagslega aðstoð
Bandaríkjanna við Suður-Viet-
nam.
NTB-London. — Rúmlega 200
þús. brezkir kjósendur tóku
þátt í aukakosningum í fjórum
kjördæmum í dag. Er úrslitum
kosninganna beðið með mikilli
eftirvæntingu.
NTB-Washington. — Itíkis-
stjórn Bandaríkjanna mun
koma á nákvæmu opinbcru eft-
irliti með sölu á matvörum og
lyfjum til Kúbu-
NTB-London. — Harold Wii-
son, formaður brezka Verka-
mannaflokksins mun iiklega
eiga viðræður við Nikita Krúst-
joff þegar hann kemur í heim-
sókn til Moskvu 30. maí. Hann
mun dvelja þar í fimm daga.
NTB-Stokkhólmi. — Mikil
hætta var á því í dag, að stór-
flóð brytist út í Tornedalnum
á landamærum Svíþjóðar og
Finnlands. Unnu verkfræðingar
baki brotnu í dag til þess að
reyna að koma í veg fyrir hugs-
anlegt flóð.
NTB-London. — Bretar munu
bráðlega auka herstyrk sinn í
Aden.
NTB-Las Vegas. — Sex létu
lífið, þegar herþota af gerð
inni F-105 hrapaði lil jarðar i
gærkvöldi í nánd við Las Veg-
as í Bandaríkjunum.
NTB-Stokkhólmi. — Belgísku
konungshjónin luku í dag 3ja
daga heimsókn sinni í Svíþjóö
Herdeildir hægrisinria fóru langt inn á landsvæði Pathet Lao-kommúnista:
700 hægrisinnar drepnir
NTB-VIENTIANE, 14. maí.
Herlið Pathet Lao-kommúnista
veitti herdeildum undir stjórn
hægrisinna í Laos hræðilega út-
reið, þegar þær gerðu djarfa inn
rás inn á landsvæði Pathet Lao.
Hófst innrásarferð herdeildanna
fyrir tveim mánuðum.
Að sögn þeirra, sem af lifðu
þessa herferð, misstu herdeildir
hægrisinna um 25% af hermönn
um sínum eða um 350, er þeir
flúðu gegnum Mið-Laos til heima-
stöðva sinna fyrir sunnan Krukku
sléttu, en sú leið er um 80 km.
löng. Um 300—400 óbreyttir borg
arar, sem flúðu með herdeildum
hægrisinna, voru einnig drepnir.
Hermenn hægrisinna segja, að
hermenn Pathet-Lao-kommúnista
hafi drepi marga hinna óbreyttu
borgara með vélbyssuskothríð af
mjög stuttu færi. Herdeildunum
og borgurunum var hvað eftir
annað veitt fyrirsát á flótt.i
sínum og margir drepnir í hvert
sinn.
Upphaflega voru 1400 hermenn
í herdeildum hægrisinna og voru
þær sendar frá Thathom, sem
ligggur norðaustur af Vientiane,
fyrir um tveim mánuðum
Þær fengu mat, meðul og skotfæri
loftleiðis. Gerðu herdeildirnar
margar djarfar árásir á herstöðv
ar Pathet Lao-kommúnista og á
vegi þá, sem notaðir voru til
þess að senda Pathet Lao-herlið
inu vistir. Vestrænir hermálafull
trúar í Vientiane segja, að her-
deildirnar hafi farið langt ínn á
landsvæði Pathet Lao-kommúnista
og truflað mjög alla umferð á
Fr^mhald á 15. sfðu.
Barnaverndarnehdhefur 4
starfsmenn en þarf 24
GB-Reykjavík, 14. maí.
Á fundi borgarstjórnar í dag
urðu nokkrar umræður um tvær
tillögur Alfreðs Gíslasonar, báðar
sprottnar af ársskýrslu Barna-
verndarnefndar Reykjav. 1963.
Hin fyrri er svohljóðandi:
„Borgarstjórnin viðurkennir nauð
syn þess að efla starfsemi Barna
verndarnefndar Reykjavíkur, svo
sem á er bent í ársskýrslu nefndar
arinnar 1963, og æskir tillagna
hennar um aukningu starfsliðs og
annað, er þurfa þykir til bættra
starfsskilyrða." Hafði flutnings-
maður orð fyrir tillögunni og
nefndi réttmæti hennar til sönn
unar, að allir væru sammála um
pytsemi þessarar nefndar, en
ef borið væri ^aman við Kaup-
mannahöfn, kæmi í ljós, að þar
væri 6—7 sinnum fjölmennara
starfslið í þjónustu barnaverndar-
nefndar en í Reykjavík, miðað
við fólksfjölda. Hér hafi barna
verndarnefndin lengi haft aðeins
LEÓ HÆSTUR
NETABÁTANNA
AA-Vestmannaeyjar, 14. maí.
f frétt um aflahæstu Vestmanna
eyjabátana frá áramótum féll nið
ur Leó, sem varð þriðji í röðinni
með 1198 lestir, en hann var um
leið aflahæstur netabátanna í
Eyjum. Það er athyglisvert, að
þrír af 8 aflahæstu bátunum
hérna Ófeigur II. Leó og Eyja-
berg eru allir smíðaðir eftir
sömu teikningu, og auk þess er
Halkíon, sem varð aflahæstur fyr
ir 2 árum af sömu gerð og
Dofri, sem er mikill aflabátur.
Bátarnir eru allir smíðaðir í Aust
ur-Þýzkalandi.
2 starfsmenn, nú væru þeir orðnir
4, en ættu að vera 24—28, í
samanburði við Kaupmannahöfn,
þar sem 270 manns störfuðu ein-
göngu að sams konar verkefnum,
sem 4 menn gerðu í Reykjavík.
Kristján Benediktsson kvaðst
sammála flutningsmanni um mik
ilvægi þess að bæta öll starfs-
skilyrði barnaverndarnefndar, því
að í skýrslu nefndarinnar væri
greint umbúðalaust frá því, hvern
ig þessi mál stæðu, og að rétt
væri að spyrja sjálfa nefndina
þess, hverra umbóta væri þörf.
Ennfremur las Kristján úr erindi,
sem Örn Helgason, starfsmaður
nefndarinnar, hafði flutt í Félagi
sálfræðinga í vetur urn þessi
mál, en það birtíst nýverið í
tímaritinu Menntamálum.
Birgir ísl. Gunnarsson tók í
sama streng og bar fram tillögu
þess efnis, að vegna skorts á sér
menntuðu starfsliði nefndarinnar
yrði reynt að leita liðsinnis við
starfslið skyldra stofnana, sem
sé geðverndarnefndar, ungbarna-
eftirlitsins og fræðslumálaskrif-
stofunnar.
Alfreð Gíslason féllst á þá
breytingu, að reyna að samhæfa
alla þessa starfskrafta, og var
tillaga hans samþykkt samhljóða
með þeirri breytingu.
_Hin tillaga Alfreðs hljóðar svo:
„í tilefni þeirra ummæla í skýrslu
barnaverndarnefndar Reykjavik-
ur 1963, að „mörg börn á fræðslu
skyldualdri hætta að sækja skóla
án lögmætra ástæðna og án þess
að rönd verði við reist við núver-
andi aðstæður", og að sum þess
ara barna séu „mjög fákunnandi,
jafnvel ólæs“, óskar borgarstjórn
in nánari upplýsinga um tilgreind
atriði og felur fræðsluráði ná-
kvæma rannsókn þessa vandamáls.
Skal fræðsluráð, að athugun lok-
inni, sendá borgarstjórn skýrslu
um málið ásamt tillögum til úr-
bóta.“ Kvað flutningsmaður alls
ókunnugur þessu máli en sér
hefðu komið þessi ummæli skýrsl
unnar mjög á óvart og óskaði frek
ari upplýsinga.
Auður Auðuns kvað skólana
ekki skylda, ef ítrekaðar áminn-
ingar hefðu ekki borið árangur,
til að knýja börn til að sækja
skóla. Hins vegar furðaði hún
sig á því, að mjög mikið væri
um ólæsi barna, og að þau kæm
ust upp í unglingadeild án þess
að vera læs. Því væri rétt að
fræðsluráð tæki þetta mál til
athugunar.
Úlfar Þórðarson taldi skýrslu
sýna, að innan við 2% bama gætu
ekki lokið prófi, og efaði hann
mjög ummæli skýrsiunnar um ó-
læsi, brögð að því hlytu að vera
hverfandi.
Framhald á 15. síðu.
UNDEN
víttur!
NTB-Stokkhólmi, 14. maí.
Stjórnarskrárnefnd sænska
þingsins samþykkti í dag harða
gagnrýni á fyrrv. utanríkis-
ráðherra, Östen Unden, fyriir,
að hann hafi ekki gert eitthvað
raunhæft ti'l þess að hindra, að
Stig Wennerström fengi að-
gang að leynilegum skjölum
frá því árið 1961, þair til hann
var handtekinn á s.l. sumri.
Ákvörðunin um að sam-
þykkja þessar vítur, var tekin
með hlutkesti, en samkvæmt
sænsku stjórnarskránni skal
hlutkesti ráða, ef jöfn atkvæði
verða í þingnefnd. Höfðu borg-
aralegu flokkarnir 10 menn í
nefndinni og sósíal-demókrat-
ar-10.
Þingmenn stjómarinnar
höfðu aftur á móti heppnina
með sér, þegar varpað var hlut-
kesti um, hvort samþykkja
skyldi sams konar vítur á Sven
Framhald á 15. sfðu.
FRA BOLUNGARVIK
KRJUL-Bolungarvík, 14. maí.
Hér fer veður heldur batnandi,
en er kalt, frost á hverri nóttu
og gróður því mjög í hættu. Bátar
eru flestir hættir eða að hætta
róðrum, og flestir eru þeiir búnir
að taka net og nætur í land.
Standa nú yfir þrif á bátunum, og
þeir cru að útbúa sig á sfldveiðar,
hver á eftir öðrum.
Fyrsti síldveiðibáturinn héðan,
Hugrún IS7, mun leggja út í dag
eða kvöld til síldveiða suður undir
Jökli, en hinir fara jafnhraðan og
þeir verða tilbúnir. Ætlunin er, að
veiða síld og flytja hana hingað
til vinnslu.
Sauðbuiður er nú almennt haf-
inn, og hefur hann gengið
allsæmilega fram að þessu,
byggð, en snjóföl í fjöllum.
Skólaslit barna- og unglinga-
skólans fóru fram 1. maí s.l., eins
og að vanda. 158 nemendur voru
skráðir í skólana þetta skólaár.
Tuttugu og fjórir luku fullnaðar-
prófi frá barnaskólanum, og stóð-
ust allir prófið, og má það teljast
einsdæmi í langan tíma í sögu
skólans. Hæsta einkunn við fulln-
aðarpróf hlaut Jóhanna Hálfdánar
dóttir með 9,3, og var það jafn-
framt hæsta einkunn yfir skólann.
Önnur hæsta einkunn var 9,1,
og hana hlaut Árný Eiíasdóttir,
nemandi í 5. bekk barnaskólans.
Verðlaun voru veitt eins og að
undanförnu, og voru þau gefin af
fyrirtækjum hér í þorpinu og Li-
ons-klúbb Bolungarvíkur. Nú
bændur eru yfirleitt uggandi yfir stendur yfir kennsla smábarna og
voi-kuldunum, því jörð er alauð íjverður út maí.
í Bogasalnum, Eiríkur Smith, sitjandi fjaerst, ræðir við fréttamenn.
(Ljósm.: TÍMINN).
Eiríkur Smith sýnir
BÓ-Reykjavík, 14. maí.
Eiríkur Smith opnar málverka-
sýningu í bogasal Þjóðminjasafns.
ins á morgun, föstudag, kl. 20,30.
Eiríkur sýnir 22 olíumálverk,
flest frá síðasta ári, en þetta er
sjötta málverkasýning hans. Síð-
ast sýndi Eiríkur í Listamanna-
skálanum 1961. Málverkunum eru
gefin nöfn, sem benda til, að lista-
maðurinn sæki innblástur til nátt-
úrunnar, enda sagði Eiríkur frétta
mönnum í dag, að hann gerði það
og hefði málað þannig lengi i
seinni tíð.
Þetta er í fyrsta sinn að Eiríkur
sýnir í oogasalnum, en hann var
mjög ánægður með skilyrðin þar.
Líka er betta fyrsta sýning hans
að vorlagi.
Málverkin eru öll til sölu
2
T í M I N N, föstudagur 15. maf 1964.