Tíminn - 15.05.1964, Qupperneq 3
TÍMANS
Einu sinni var stúlkan í
' MYNDINNI hæst launaða kvik
myndaleikkona í heiminum með
föst laun sem samsvöruðu ca.
sex milljónum króna á ári o“
jafnháa upphæð fyrir að lána
nafn sitt sem vörumerki.
En í dag er hún algjörlega
óþekkt frú Charles David, sem
býr í Neauphle-le-Chateau ná-
lægt París, og hún tekur eng-
an þátt í skemmtanalífi París.
ar lengur.
Stúlkan er Deanna Durbin,
gift Frakkanum Charles David,
fyrrum kvikmyndaleikstjóra.
og hafa þau nú bæði dregið sig
í hlé og lifa rólegu lífi. Það
kemur fyrir, að kvikmynda-
framleiðendur koma heim vil
þeirra með girnileg tilboð um
að leika í nýjum kvikmyndum
— en þeim verður ekkert á-
gengt, því að Dcanna Durbin
vill ekki hefja kvikmyndaleik á
ný.
Á MYNDINNI sjáum við
Deanna Durbin þegar hún var
á hátindi frægðar sinnar, klædd
sem jólatré!
Vestur-þýzka leikkonan Mar-
ion Michael, oftast kölluð hín
vestur-þýzka Birgitte Bardot,
hefur krafizt að fá sex milljón
ir franka, eða um 50 milljón
íslenzkar krónur i skaðabætur
vegna þess, að andlit hennar
skemmdist svo í bílslysi, að
hún getur ekki lengur kysst f
nærmyndum í kvikmyndum sín
um.
Hún hefur þegar fengið í?0
þúsund franka í skaðabætur
vegna slyssins, sem varð í sept
ember 1959. Og nú krefst hún
hundrað sinnum hærri fjár
upph. vegna þess, að atvinnu-
möguleikar hennar hafi minnk-
y $
að af völdum slyssins.
— ,,Síðan slysið varð hefui
andlit hennar verið í slíku ásig
komulagi, að það hæfir alls
snéri við, á meðan hún reyndi
að skríða heim til sín, og drap
hana. Þetta gerðist á hálftíma.
38 vitni komu eftir á til lög-
reglunnar og sögðust hafa séð
allan atburðinn. Ekki einn ein-
asti hafði hugrekki til þess
reyna að bjarga konunni.
Margir skemmtilegir kaflar
eru í endurminningum Charlie
Chaplins, sem koma á markað
inn bráðlega. Hér er ein saga
af tiltækjum hans meðan hann
dvaldi f Bandaríkjunum.
Einn af beztu vinum hans
var Douglas Fairbanks jr., sem
bjó í höllinni „Pickfair“ ásamt
Mary Pickford. Doug elskaði
þennan stað og var einkum stolt
ur af kjallara sínum, sem hafði
að geyma margar sjaldgæfar
víntegundir.
Dag nokkurn hringdi Chaplin
til hans, sagðist vera sendi-
herra erlends ríkis og sagði, að
þjóðhöfðingi sinn, sem koma
átti í heimsókn til Hollywood,
væri mikill aðdáandi þeirra
hjóna ,og væri þá ekki sízt
hrifinn af þeim lýsingum, sern
hann hafði fengið af hiirum
fræga kjallara Dougs.
Doug var auðvitað stoltur af
þessu og sagði, að Hans Hátign
væri meira en velkominn —
og einn fagran dag kom síðan
konungurinn með glæsilegu
fylgdarliði. Og bæði konungur
inn og fylgdarliðið var Charlie
sjálfur og félagar hans, svo
vel dulbúnir, að Doug lét al-
gjörlega blekkjast.
Hinn konunglegi gestur skoð
aði sig um í kjallaranum og
fékk hið bezta og elzta vín að
drekka og það var fyrst, þegcr
„konungurinú“ og fylgdarlið
hans ætlaði að kveðja, að Chap-
lin lét vita af því hver hann
væri.
Og það liðu margir dagar
þar til Doug gat fyrirgefið vini
sínum þetta bragð.
„Beatles-æðið“ er auðvitað
notað út í æsar af viðskipta-
mönnunum og hér er hið nýj-
asta — Beatler-kjóll!
Þessi kjóll er framleiddur í
Danmörku og fæst í flestum
litum. Verðið er tæpar 500 kr.
íslenzkar og er lítil hætta á að
hann renni ekki út.
Brezku bítlarnir fá auðvit-
að sinn hluta af gróðanum, eða
um 10 kr. íslenzkar fyrir hvern
metra, sem framleiddur er.
ekki í nærmyndum. Þér getið
skilið hversu alvarlegt þetta
er fyrir kvikmyndaleikkonu,
einkum þó í ástarsenum“ —
sagði lögfræðingur hennar í
réttinum í Aix en Provence i
Provence í Frakklandi. Og
hann lagði fram vitnisburði um,
að Marion Michael hafi verið
mjög eftirsótt í ástaratriði í
kvikmyndum áður en slysið
vildi til.
Hvergi býr fólk jafn nálægt
hvort öðru og í New York.
Hvergi er fjarlægðin miJIi
mannanna þó meiri en þar.
Jafnvel svo mikil, að 38 mann
eskjur urðu vitni að því að
28 ára gömul kona var elt urn
göturnar og stungin til bana —
án þess að einn einasti þeirra
gerði neitt til þess að bjarga
henni.
Kitty Genoveses hét hún og
hún hrópaði: — Hann ætlar að
drepa mig, hjálp, hjálp! En eng
inn vildi heyra hróp hennar —
hugleysið var of mikið.
Þessu morði hefur verið
lýst i mörgum bandarískum
blöðum, m. a. ,,New York
Times“. Það skeði í einu af
„betri“ hverfum borgarinnar,
Kew Gardens, en Kitty bjó
þar. Maður nokkur elti han.i
þegar hún var á leið heim lil
sín. Hann stakk hana fyrst einu
sinni með hníf og flúði síðan
Kvikmyndagagnrýnendur
Danmörku hafa veitt sín ár-
legu verðlaun, Bodil-verðlaur!-
in. Bezta danska mynd ársins
var kjörin ,,Gata án enda“ sem
gerð er af sjónvarpsmanninuir
Mogens Vemmer. Fjallar húo
um gleðikonur í Kaupmanna
höfn og er byggð á raunveru
leika, því að handritið er byggi
á 25 tíma langri segulbandsupp
töku á viðtölum Vemmers við
ungar gleðikonur í höfuðborg
Fyrir bezta kvikmyndaleik
fékk Laila Anderson „Bodil“
fyrir Ieik sinn í ,,Guðrún“, sem
gerð er eftir hinni frægu skáld
sögu Johannes V. Jensens með
sama nafni. — Bezta banda-
ríska kvikmyndin var kjörin
„Dr. Strangelove“, og bezta
evrópska kvikmyndin ,,814“ —
hin fræga mynd Fellinis.
Á MYNDINNI sjáurn við ai
atriði úr myndinni „Gata án
enda“.
Nylon úlpur
Nylonúlpur 100% nylon kr.
! 585.00.
i Póstsendum.
KJARAKAUP
Njálsgötu 112.
Drengjaskyrtur
Drengjaskyrtur mislitar kr.
105.00 og 125.00.
Póstsendum.
KJARAKAUP
Njálsgötu 112.
Kvensíðbuxur
Kvensíðbuxur kr. 290.00.
Póstsendum.
KJARAKAUP
Njálsgötu 112.
12 ára telpu
langar til að fá vinnu á góðu
sveitaheimili.
Upplýsingar í síma 34064.
Barngó&ar
systur
11 og 12 ára, óska eftir að kom-
ast í sveit. — Sími 34502.
Bíla & búvélasalan
Til sölu
Rafstöð: Vatnsaflstöð ásamt
rörum.
Tætarar.
Ámoksturstæki : Deutz,
Færiband (fyrir hey).
Blásarar (fyrir súgþurrk).
Saxblásarar.
Dráttarvélar.
VANTAR!
Jarðýtu og ýtuskóflu.
Bíla & búvelasalan
v/Miklatorg. Sími 2-31-36.
Sérleyfisferðir
Reykjavik, Hrunamannahreppur,
iaugardaga og sunnudaga kl. 1.
Reykjavjk, Skelðahreppur,
3 ferðir vtkulega kl. 1.
Reykjavík, Laugardalur, Geysir,
Gullfoss og Reykjavfk.
Selfoss, Gullfoss, Geysir,
Laugardalur, Reykjavlk
alla daga kl. 1.
Bifrelðastöð ÍsÞnds
siml 18911.
Ólafur Ketilssoin.
T í M I N N, föstudagur 15. maí 1964.