Tíminn - 07.07.1964, Qupperneq 8
Jóhann Þorstelnsson, varaformaSur StangavelSifélagslns og Vlktor Gontar, tengdasonur Krúst|offs vlS vetSar I Móhyl f ElllSaánum í gær.
(Tímamyndir, GED.
ONNUR DOTTIR
KRÚSÉFFS DRÓ
LAX Á LAND
ÚR ELUDAÁM
Gontar hellsar konu slnnl, Júlíu, vlS komuna hingað aðfaranótt sunnudags. Helena stendur til hliðar
vlð þau. (Tímamynd, GE).
Nú er sfcammt stórra högga
í milli í heimsóknum á íslandi,
og Fhilip prins yarla farinn af
landinu, er hingað koma tvær
dætur voldugasta einvalda
heimsbyggðarinnar, því þótt
Krustjoff hafi ekki eins mörg-
um þegnum á að skipa og f jand
vinur hans, Mao tse tung í
Kína, er hann ólíkt betur bú-
ian til valds og víga. En menn
bera sjaldan utan á sér vald,
hefð og tign, nema þá einstaka
gamall og giktveikur lávarður,
og þegar við horfum á dætur
Krústjoffs ganga niður tröpp-
umar frá Sólfaxa aðfaranótt
sunnudagsins, eru þær lausar
við þann myndugleik, sem
skiljanlegt væri að fylgdi með-
limum þessarar voldugu fjöl-
skyldu.
Áreiðanlegt fréttablað, eins
og Morgunblaðið, segir að vísu
á sunnudaginn, að allar þrjár
dætur Krustjoffs komi hingað,
en þær komu nú ekki nema
tvær, Júlía kona Viktors G-on-
tar, óperustjóra í Kiev og
Helena, yngsta systirin, sem
enn er ógift. Júlía fór fyrir
þeim systrum niður tröpp-
urnar. Hún er lágvaxin og
þéttvaxin eins og margt rúss-
neskt kvenfólk, sem hefur
þennan húsmóðurlega prests-
maddömuvöxt, sem vekur einna
helzt matarást manna. Báðar
hafa þær svip foreldra sinna,
þótt vart sé hægt að segja að
þær líkist meira öðru foreldr-
inu en hinu. Þegar Júlía tek-
ur utan um einn af mörgum
blómvöndum, sem þeim eru
færðir við komuna, sést að
hún er mjög handsmá, og
raunar bera hendur hennar því
vitni, að hún hefur ekki
skemmt þær á erfiði. Helena
systir hennar er ívið hávaxn-
ari og grönn vexti. Og óhætt er
að spá því að hún giftist, af
því hún býður af sér góðan
þokka, þótt sjá megi á svip
hennar, að veldi föður hennar
hefur haft meiri áhrif á hana
en eldri systur hennar, sem
sýnilega er ákveðin í því að
vera einungis kona óperustjóra
í Kiev.
Við höfðum rætt lítillega við
Viktor Gontar óperustjóra
•meðan beðið var eftir að vélin
kæmi. Hann er mjög alúðiegur
maður og virðist óragur að
tala. Og á meðan hann bíður
eftir því að túlkurinn þýði það
sem hann segir, hefur hann
þann sið að halla undir flatt
og horfa kankvís á viðmælanda
sinn, eins og allt þetta tal og
spumingar og fyrirhöfn blaða-
manna sé einhver óskaplegur
misskilningur. Þannig brynjar
hann sig fyrir þessum kapítal-
istum og hugsanlegum skæru-
hemaði þeirra. Talið berst að
því, hvort hann geti sofið hér
á Islandi, þar sem ekki dimenir
á nóttunni.
— Jú, hann getur sofið, segir
Jakob Vladimir og túlkar, —
en hann sefur ekki nema sex
tíma, því að hann hefur svo
mikið að gera við að drekka
kaffi og brennivín.
— Eruð þér samt ekki við
góða heilsu?
— Jú, honum líður alveg
prýðilega, segir túlkurinn, en
hann er með of háan blóðþrýst-
ing, og á að sofa átta tíma á
sólarhring.
— Kannski sé of bjart fyrir
hann.
— Nei, hann er orðinn vanur
birtunni, segir túlkurinn eftir
Gontar, sem hallar nú töluvert
undir flatt. Viktor Gontar er í
gráum sumarfötum undir
blárri regnkápunni og orðinn
gráhærður af að stjórna óper-
unni, alveg eins og Guðlaugur,
sem stendur þarna hjá honum
og bíður, af að stjórna Þjóð-
leikhúsinu. Við tökum eftir' því
að buxnaskálmarnar á sumar-
fötum Gontar eru eins þröng-
ar og kapítalistar þora frek-
ast að hafa þær. Kannski
menn séu almennt famir að
spara efnið í skálmarnar austur
þar, en til skamms tíma þótti
það einungis flottræfilsháttur
að vera í buxum með þrengri
skálmar þar í landi en t.d. tíðk-
ast hjá sjóliðum brezka flot-
ans. Nú spyrjum við Gontar
hvort hann telji mögulegt að
við fáum viðtal við konu hans
þegar hún stígur út úr vélinni. ,
Túlkurinn segir að hann viti
það ekki. Slíkt sé alveg undir
henni komið. Hún verði að ráða
því sjálf.
— Við þekkjum ekkert til
svona blaðamennsku, segir
Gontar. — Heima eru blöðin
ekki að þessu nuddi.
— Hvað mundi verða sagt ef
pressan á íslandi segði ekki frá
þessari heimsókn? spyrjum við.
— Það mundi þykja mikið fá-
læti.
Túlkurinn þýðir, og Gontar
hallar undir flatt og setur totu
á munninn og þegir Svo var
flug\'élin allt í einu komin.
Það var hráslagalegt veður
og rigning, þegar Júlía og Hel-
T í M I N N, þriðjudagur 7. júlí 1964.