Tíminn - 23.07.1964, Page 16
(Tímamynd-GE)
Sótthreinsað
í Brúarfossi
StteSa af hlerum, sem notaSir eru undir mjölpokana.
(Tímamynd, PB).
EJ-Reykjavík, 22. júlí.
MIKILL straumur var af fólki
til Maríu Andrésdóttur í Stykkis-
hólmi, elzta borgara landsins, scm
hélt upp á 105 ára afmæli sitt í
dag. Komu bæði börn hennar, ætt-
ingjar og kunningjar víðs vegar af
landinu og mikið af vinum og
kunningjum í Stykkishólmi og ná-
grenni. Auk þess barst henni mik-
ill fjöldi heillaskeyta hvaðanæva
að af landinu.
FEKK HEIMSðKNIR VÍDA AD
Á105ÁRA AFMÆU SlNU
ÆTLUÐU TIL
FÆREYJA EN
LENTU Á
EGILSSTÖÐUM
HF-Reykjavik, 22. júli.
Um sexleytið í gær lagði
Lúfðrasveit Reykjavfkur af
stað til Færeyja með tveim-
ur flugvélum frá Flugvélum
frá Flugfélagi íslands. —
Klukkan sjö í dag var þó
hópurinn þó ekki kominn
léngra en til Egilsstaða, því
þar neyddust vélarnar til að
lenda, vegna þoku. Verður
farið frá Egilsstöðum strax
og veður leyfir
Það var Bæjarstjórn Þórs-
hafnar og Hafnar Horn-
orkester, sem buðu Lúðra-
sveit Reykjavíkur til Fær-
eyja ,en Hafnar Hornorkest-
er var hér í fyrrasumar. Ætl
unin er að Lúðrasveitin
leiki í Sörvogi á Vogar,
Þórshöfn og í Klakksvík,
auk fleiri smærri staða, eins
og Vestmanna og Kvivik.
Meðal annars leikur Lúðra-
sveitin á Ólafsvökunni í
Þórshöfn Ætlunin var, að
Lúðrasveitin héldi heim-
leiðis þriðja ágúst, en það
getur breytzt, ef lengi verð-
ur tafið á Egilsstöðum.
Indverskur her í Reykjavík!
HF-Reykjavík, 22. júlí.
TVÆR framandlegar flugvélar
lentu á Reykjavíkurflugvelli í gær
— þar sem ekki var hægt að lenda
á Keflavíkurflugvelli. Þetta voru
Caribou-vélar frá indverska flug-
hernum á leið frá Kanada til Ind-
lands. — Vélarnar eru smíðaðar í
Kanada og voru menn úr indverska
flughernum að sækja þær til Ind-
! lands. Indverjarnir héldu til Kefla
víkur í morgun og þaðan ætla
þeir að fljúga til London og áleið-
is heim. Enn ein flugvél, herflug-
vél frá bandaríska hernum, neydd
ist einnig til að lenda á Reykjavík-
urflugvelli I gærkvöldi, og hélt hún
til Keflavíkur í morgun. Sú vél var
i að koma úr eftirlitsferð. Indversku
| vélarnar verða aðallega notaðar
I til flutninga á mönnum og vistum
I og kannski eiga þær eftir að gera
sitt gagn í Himalayafjöllum, þar
* sem Indverjar heyja við og við
landamærabardaga við Kínverja.
María Andrésdóttir, sem hefur
I verið rúmliggjandi undanfarið, býr
| nú hjá dóttur sinni, Ingibjörgu, og
[ dótturdóttur. Aðalheiði, í Stykk-
! ishólmi. f dag streymdi fólk til
hennar til þess að óska henni til
hamingju með daginn og húri hef-
ur fengið mikinn fjölda heilla-
skeyta víða að af landinu.
María, sem gerð var að heiðurs-
borgara Stykkishólms á 100 ára
afenæli sínu, kom þangað um 1940.
Hún fæddist í Flatey, dóttir hjón
anna Sesselju og Andrésar Andrés
Framh. á bls 15
og hindraöi humarveiöina
EJ-Reykjavik, 22. júlí.
Humarveiðin fyrir
cr algerlega að stöðvast um þess-, einhvers konar slý leggst á trollið
Snðurlandi ar mundir, aðallega vegna þess, að I og dragnótina, þegar hún er dreg-
in eftir botninuni, þannig að hún
lokast að neðan og verðnr mjög
þung í meðförum. Sýnishom hef-
ur verið sent AtvinnudeQd Há-
skólans til rannsóknar. Niðurstöð-
ur hennar Iiggja ekki fyrir enn
þá, en þó er talið, að hér sé um
einhverjar dýratægjur að ræða,
sem hafi borizt hingað til lands
með óvenjusterkum suðlægum
straumum.
Blaðið náði í dag tali af Ingvari
Gíslasyni, útgerðarmanni í Vest-
mannaeyjum, og sagði hann, að
fyrst hefði orðið vart við þetta
slý austur á Breiðamerkurdýpi,
en síðan hefði þetta færzt vestur-
eftir og væri nú komið vestur á
Framh. á bls 15
Betri meðferð á mjöttnu á Norðfírði
EJ-Reykjavik, 22. júlí.
Síldarframleiðendur fyrir aust-
an eru alltaf að taka tæknina
meira og meira í notkun og auka
þannig vinnuhagræðinguna. Nú
hefur síldarbræðslan á Norðfirði
íekið upp nýja aðferð við
geymslu og flutning á sfldarmjöli,
mh mjög sparar notkun vinnu-
afls við útskipun og annan flutn-
ing.
Þessi nýja aðferð felst í því, að
smíðaðir hafa verið sérstakir
hlerar. sem mjölpokarnir eru
geymdir á. Koma pokarnir á
færíbandi út úr verksmiðjunni og
er þeim staflað upp á hlerana.
Lyftarar aka síðan fullhlöðnum
hlerunum inn í síldarmjölskemm-
urnar og er þeim þar staflað upp.
! Fer mjög vel um mjölið í skemm-
j unum, ef þessi aðferð er notuð,
i og vel loftar um það, þannig að
j engin hætta er á að hitni í mjöl-
j inu, eins og kom fyrir á Eskifirði
i nýlega.
Við útskipun aka l.vftararnir
hlerunum með mjölinu út úr
skemmunni, og er mjölið flutt á
hlerunum niður í lest. Þessi að-
ferð sparar mjög vinnuafl, bæði
við flutning á mjölinu og við út-
skipun.
Þessi aðferð við flutning og
geymslu á mjöli mun hafa verið
tekin upp fyrst hér á landi af síld-
i arverksmiðjunni á Kletti, en hún
j og verksmiðjan á Norðfirði eru
þær einu, sem nota aðferðina.
KJ-Reykjavík, 22. júlí.
í dag var unnið að því að flytja
hveiti það, sem skipað hafði verið
upp úr Brúarfossi, um borð í
skipið aftur. vegna skordýraeyð-
ingarinnar, sem fyrir dyrum stend
ur Skordýr fundust utan á pok-
unum, en munu ekki hafa verið 1
hveitinu sjálfu. að því er blaðinu
j var tjáð í dag Ekki hefur enn
fengizt úrskurður skordýrafræð-
I ings um, hvers konar kvikindi
! þetta eru, sem borizt hafa hingað
með kornvörunni, en aftur a móti
lað þau séu algjörlega skaðlaus.
4