Tíminn - 11.09.1964, Page 7

Tíminn - 11.09.1964, Page 7
Úfgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURiNN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar Þórannf. Þórarinsson (ábl. Andrés Kristjánsson. Jón Hel?ason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Frétta stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Steingrimur Gíslason Ritstjórnarskrifstofur 1 Eddu-húsinu simar 1B300- 18305 Skrit stofur Bankastr 7 Afgr.slml 12323 Augl simi 19523 Aðrai skrifstofur, simi 18300 Askriftargjald kr 90.00 a mán innan lands — ! lausasöiu kr 5,00 eint - Prentsmiðjan EDDA h.l Afhjúpunín Það hefir að vonum vakið mikla athyglí, að siðastl. miðvikudag var birt samtímis tilkynning i Þjóðvil.ianum og Pravda, þess efnis, að farið heíðu fram ; Moskvu við- ræður milli fulltrúa frá Kommúnistaflokki Govétríkj- anna og Sameiningarflokki alþýðu- Sósíalistaflokk-num. Sagt er í tilkyningunni, að rætt hafi verið um átiugamál beggja flokkanna á hinn vinsamlegasta hátt. Ástæðan til þess, að þessi tilkynning vekur athygli, er ekki sú, að mönnum hafi ekki verið kunnugt um, að Sósíal istaflokkurinn væri í beinum tengslum við kommúnista- flokkinn í Moskvu og tæki við ráðum og fyrirmælum þaðan, líkt og fyrirrennari hans, Kommúnistaflokkur ís- lands gerði. Það, sem athygli vekur. er það, að þetta er í fyrsta sinn opinberlega viðurkennt af Sósíalistaflokkn um sjálfum. Hingað til hafa foringjar hans keppzt við að halda því fram að Sósíalistaflokkurinn væri allt annar flokkur en gamli kommúnistaflokkurinn var Sósí- alistaflokkurinn væri ekki kommúnistaflokkur og hann hefði engin tengsl við kommúnista í Moskvu. Með yfir- lýsingunni, sem birtist í Pravda og Þjóðviljanum á mið- vikudaginn hafa foringjar Sósíalistaflokksiris loks af- hjúpað sig og viðurkennt það eins fullkomlega og verða má, að flokkur þeirra er kommúnistaflokkur, sem sækir ráð og fyrirmæli til Moskvu. Það er þessi afhjúpun, sem vekur mikla og óskipta at- hygli á íslandi. Það vekur jafnframt athygli, hvernig sendinefnd Sósíal istaflokksins hefur verið valin. í benni eru fulltrúar úr öllum hinum helztu stríðandi klíkum í Sósíalislaflokkn- um. Erindið til Moskvu hefur bersýnilega verið að ræða um klofninginn í flokknum, og fá ráð og fyrirmæli um. hvernig brugðizt yrði við honum, þetr.a var einnig gert í tíð Kommúnistaflokksins gamla. Forkólfar Sósíalistaflokksins hafa nú sjáltir staðfest það, sem þeir hafa neitað áður, að flokkur þeirra cr kommúnistaflokkur, sem sækir ráð og tyrirmæli til Moskvu. Þeir, sem kunna að hafa verið í vafa um það áður, þurfa ekki að vera það lengur Forkólfarmr sjálfir hafa lagt gögnin á borðið. Svona semja Bretar Bretar hafa undirritað milliríkiasamning, sem snertii víðáttu brezkrar landhelgi. Sá samnmgur ber þess glögg merki, að brezka stjórnin heldur öðru vísi á málunum en íslenzka ríkisstjórnin, þegar hún semur um landhelgi þjóðar sinnar. í samningnum, sem brezka ríkisstjórnm hefur gert um landhelgi Bretlands, er ákvæði skýlauss uppsagnar réttar.Bretar geta sagt samningnum upp með tveggja ára uppsagnafresti eftir að 20 ár eru liðin frá ut/dirritun hans. í samningunum, sem íslenzka ríkisstjórmn hefur gerl um landhelgi íslands við Bretland oe Vestur-Þvzkalnd. eru hins vegar engin uppsagnarákvæði Þa? má heita nær einsdæmi. nema um hreina na-:ð ungarsamninga sé að ræða. að ekki séu uppsagnarákvæði í milliríkjasamningum. Landhelgissamningarr.ir /ið P.ret land og Vestur-Þýzkaland er eitt örfárra undantekninga í þessum efnum. Það segir betur en flest annað hversu skeieeglega oe dyggilega var hér haldið á íslenzkum málstað, eða hitt bó heldur. Eitt af stefpumálum hans er aS efia samvinnufélögin Eduardo Frei Montalva SÍÐASTLIÐINN föstudag fóru fram forsetakosningar í Chile, en úrslita þeirra hafði verið beðið með mikilli eftir- væntingu um alllangt skeið, þar sem horfur voru taldar á, að sigurinn gæti fallið í skaut frambjóðanda, sem var studdur af mjög vinstri sinnuðum flokk um m.a. kommúnistum. Salva- dor Allende Gossens. Sigur hans myndi hafa verið talinn mikill ósigur fyrir Bandaríkin og stefnu þeirra í málum Suð- ur-Ameríku, þar sem hann lýsti sig m.a. hliðhollan stjórn Castros á Kúbu. Seinast fór fram forsetakjör í Chile 1958 og bar þá sigur úr býtum Jorge Alexandri, er verið hefur forseti síðan Hann var frambjóðandi hægri manna og hefur stjórnað í anda þeirra. Stjórn hans hefur þótt heiðar leg á suður-ameríska vísu Ekki var hún þó vinsælli en svo, að frambjóðandi hægri manna var frá upphafi talinn vonlaus í kosningunum nú. Þess vegna óttuðust menn, að Allende. sem hafði hlotið næstflest at- kvæði í kosningunum 1958 og er vinsæll maður. myndi sigra nú. Helzta vonin til að fella hann, þótti sú, að þægri menn brygðust frambjóðanda sínum og kysu í staðinn frambjóð anda kristilega flokksins, Ed- uardo Frei Montalva, er hlotið hafði flest atkvæði í kosriing- unum 1958. Flokkur hans hafði mjög eflzt síðan og Frei unnið sér auknar vinsældir. Seinustu mánuðina stóð því kosninga baráttan milli þeirra Allende og Frfei. Úrslitin urðu þau. að Frei sigraði svo glæsilega, að andstæðingarnir hafa fúslega viðurkennt sigur hans, en það er ekki algengt í Suður-Ame riku Það hefur ef til vill átt þátt í þessari viðurkenningu, að þeir Frei og Allende hafa átt sama sæti á þingi og meta hvorn annan persónulega og létu það óhikað í ljós í kosn 'ngabaráttunni ÞÓTT hægri menn i Chile fagni þvi, að Allende féll. var það á margan hátt súr bitj fyr ir þá að þurfa' að styðja Frei Stefnuskrá hans eða flokks hans er yfirleitt róttæk. Hann hefur lofað að vinna að skipt ingu stórjarða, bættum kjörum hinna bágstöddustu. eflingu samvinnufélaga, auknum trygg ingum og öðrum félagslegum umbótum Hann hefur lofað að þrengja aðstöðu bandarísku hringanna, sem eiga miklai eignir í Chile í utanríkismál um mun hann einnig breyta verulega um stefnu, þótt hann leggi ríka áherzlu á góða sam vinnu við Bandaríkin Hann hefur t.d lýst yfir því. að hann vilji taka upp stjórnmálasam band við Sovétríkin og kommún istarikin í Austur-Evrópu. en nú hefur Chile aðeins verzlunar sambönd við þessi ríki Þá hefur Frei lýst yfir því, að hann vilji ýmsar endurbætur á samstarfi bandalags Ameríku ríkja. M.a. vilji hann g.iarnan stuðla að þvi. að Kúba verði aftur þátttakandi í því, en þó aðeins þannig, að Castro verði óháður komnninistaríkjunum. Frei hefur lengi sýnt það. að hann vseri maður félagslega sinnaður. Síðan á unglingsár u:n hefur hann haff þá skoðun. að kommúnisminn ætti góðan iarðveg í Suður-Ameríku. nema honum væri mætt með annari hugsjón, er félli almenningi betur í geð. Að dómi hans er kristindomurinn þessi hugsjón. en þá á hann ekki við kristin dóminn sem tæki yfirstéttar ínnar til að gera almenning sljóan, heldur sem lifandi jafn- réttisstefnu og bræðralags stefnu, eins og Kristur kenndi hann. Fyrir nær 30 árum eða rúmlega tvítugur að aldri. stofnaði hann félagsskap nokk urra manna, er höfðu sagt skilið við flokk hægri manna, og mörkuðu sér stefnuskrá á félagslegum og kristilegum grundvelli. í félagsskap þess- um voru einkum ungir menn úr efnuðum fjölskyldum og ungir prestar Kristilegi flokk urinn var stofnaður upp úr þessum samtökum árið 1957 og náði Frei þá kosningu sem þingmaður í höfuðborginni en áður átti hann sæti á þingi sem óháður, en þá var hann kosinn í afskekktu kjördæmi. Árið 1958 var hann frambjóðandi kristilega flokksins í forseta kosningunum, eins og áður seg ir. Síðan hefur flokkur hans stöðugt eflzt og vann svo mik inn kosningasigur á síðstl. ári að hægri mönnum varð ljóst, að eini möguleikinn til að fella Allende. var að styðja Frei Frei samdi þó ekki neitt við þá og er þeim algerlega oháð ur. Síðan kristilegi flokkurinn var stofnaður, hefur Frej oft komið til Evrópu og kynnt sér starf kristilegn flokkanna þar en flokkm hans er á flestan hátt mun róttæka-i en þeir enda aðstæður aðrar í, Chile en í Evrópu. Fyrír styjöldina; dvaldi hann eitt ár í Róm sen| fulltrúi fyrir sérstök samtök Suður-Ameríkumanna þar FREl er 53 ára gamall. For- eldrar hans voru innflytjend ur frá Sviss og komst faðir hans í góð efni í Chile Frei var þó látinn ganga í skóla fyrir efnaminni ungmenni og er talið. að stéttamunurinn sem hann kynntist á þessum árum, hafi haft veruleg áhrif á hann. Hann lauk lögfræðiprófi, en hefur síðar kynnt sér hag fræði, m. a. áætlunarbúskap. Síðustu árin hefur hann verið prófessor við katólska háskól- ann í Santiago. jafnframt þing mennskunni. Þót Frei sé sæmilega efnað- ur, hefur hann jafnan lifað fá breyttu lífi og borizt lítið á I-Iann hefur mjög gagnrýnt yf- irstéttina fyrir óhóf hennar í lifnaðarháttum. Hann er gift ur og sjö barna faðir. Hann hefur þegar ákveðið að setjast ekki að í forsetahöllinni, sem honum finnst alltof íburðarmik il. heldur ætlar hann að búa áfram í sömu íbúðinni og hann býr í nú. Hann er sagður góð- ur heimilisfaðir og skemmtileg ur heim að sækja. í tómstund um les hann eða fer í göngu ferðir og er sagður þekkja vel flestar gönguleiðir í skógun- um utan við höfuðborgina. Hann er sagður góður starfs- maður og kynna sér vel mála- vöxtu. Margt bendir til. að þegar Frei tekur við forsetaembætt inu 4. nóv. næskornandi komi nýr maður til sögu í Suður: Ameríku. Ef honum tekst vel, er ekki ósennilegt, að fleiri kristilegir floki «r- eigi eftir að rísa upp i Suður-Ameríku. Þ.Þ. TÍMINN, föstudaginn 11. september 1964 7

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.