Tíminn - 11.09.1964, Side 13
Rudolf Serkin heimsækiv ís-
land um þessar mundir og
itífeur fyrir landsmehn enn á
ný.
Sú er þetta ritar minnisi
fyrstu heimsóknar lista-
■mannsins ningað er hann og
tengdafaðir hans Adolf Buach
léku fiðlusónötur Beethovens,
blaðalaust. Þótt kynr.in af
þessum listamönnum hefðu
ekki náð lengra en að kynn-
ast samleik og túlkun peirra
beggja á þessum verkum
hefði það eitt nægt til þes.s
að slíkur leikur hefði aldrei
gleymzt.
Nú er Serkin kominn aftur
til að leika fyrir íslendinga
þroskaður og harðnaður lista-
maður en alltaf jafn stórbrot
inn í listtúlkun smni.
Að þessu sinni lék hann á
vegum Tónlistarfélagsins
5. þ. m. efnisskrá, með ovana
legu skemmtile^u tilviki frá
því venjulega eða „Bagatell
um“ Beethovens op. 119
Þessar 11 smáhendingar urðu
í höndum listamannsins. röð
hinna ólíklegustu smátónsmíða
ógleymanlega framsettar
Sónata í A-dúr eftir Schu
bert býr yfir mörgum töfrum
höfundar, en Schuberts-lengdin
lætur sig heldur ekki vanta.
í höndum meðal-píanóleikara
gæti þetta verk auðveldlega
orðið þurr blaðalestur, en
Serkin þekkir leiðir Schu
berts og færir hlustanda á
vit þeirra töfra, sem t.d. hin
hugstæða melódía 'okakafl-
ans gefur tilefni til.
Tilbrigði og Fúga op. 24
eftir Brahms um stef Han-
dels er stórfengleg tónsmíð
sem krefst ó'hemju átaka og
tækni af píanóleikaranum
Þessu verki brá Serkir. upp
líkt og stórri freskó-mynd þar
sem hvert tilbrigði leiftraði
og breiddi, úr sér. Fúgan í
því „tempói“ sem píanóleikar
inn markaði í upphafi var
eftirminnilegur endir þessa
volduga verks.
Sem píanóleikara er vegur
Serkins nú eflaust, hvað mest
ur er að þroska lýtur. Um
tækni hans er óþarfi að fjöl
yrða og öll hans túlkun felur
í sér svo sterkt persónnlegt
framlag til þeirrar kúltiver-
uðu listtjáningar, sem gerir
leik hans allan svo sérstakan
og heillandi.
Viðtökur áheyrenda voru
sérlega innilegar og gaf lista
maðurinn tvö aukalög, þrátt
fyrir stranga efnisskrá.
Unnur Amórsdóttir
MINNING
Jóhannes Einarsson
JÓHANNES EÍNARSSON í Ey-
vík í Grímsnesi var fæddur 30.
ágúst 1864, dáinn 3. apríl 1963,
rúmlega 98 og hálfs árs.
,,Af honum stóð gustur geðs
og gerðar þokki stór“,
eins og dr. Jón forni segir um
Björn í Ögri.
Jóhannes var fæddur í Eyvík og
þar dvaldist hann full 90 ár af
sinni löngu ævi, en á næsta bæ
Ormsstöðuni, bjó hann í 8 ár og
tíjó þá á báðuro jörðuúum og
hafði þá stærsta bú sveitarinnar.
Foreldrar hans voru Einar Einars-
son. bóndi í Eyvík, og kona hans,
Guðrún Sigurðardóttir, systir
þeirra bræðra, Kolbeins, síðast
bónda í Seli í Grímsnesi, og Sig-
urðar, föður Sigurmundar læknis
sem var læknir í Laugaráshéraði,
voru ðll þessi systkin framúrskar-
andi dugleg og þau Guðrún og Kol
beinn ein af mestu sveitarstólpum
Grímsneshrepps á sinni tíð og það
eftir að Guðrún rnissti mann sinn
og bjó með sonum sínum tveim,
Jóhannesi og Sigurði, síðar bónda
á Hömrum og verzlunarmanni á
Stokkseyri og símstjóra þar, hin-
um mesta afbragðsmanni. Árið
1899 fór Jóhannes að búa í Eyvík
og kvæníist þá konu sinni, Guð-
rúnu Geirsdóttur frá Bjarnarstöð-
um, uppeldissystur sinni, mjög
glæsilegri konu. Þau eignuðust 6
böm, 5 syni og 1 dóttur: Einar, vél
stjóra í Reykjavík, kvæntan Karó-
línu Guðmundsdóttur, Kolbein,
bónda í Eyvík, kvæntan Steinunni
Magnúsd. frá Haga, hann er dá-
inn. Jóhann, bónda í Króki, Grafn-
ingi, dó barnlaus. Guðmund, fyrr-
ura bónda í Króki, kona hans er
Guðrún Sæmundsdóttir. Albert,
ráðsmann 6 Vífilsstöðum og Guð-
rúnu, húsfreyju á Brjánsstöðum í
Gríimsnesi, átti fyrir mann Jón
Þorleifsson, ágætan mann, nýlát-
inn, öll mesta imyndarfólk svo og
börn þeirra.
Hjá foreldrum Jóhannesar var
talinn allmikili auður á þeirra tíð-
ar mælikvarða — Eyvíkurauður —
og á milli aðeins tveggja að skipta,
bræðranna Jóhannesar og Sigurð-
ar, enda hallaðist hvergi, þótt þeir
tækju við V*r sagt, að þeir Ey-
víkurbræður hefðu lánað peninga,
jafnvel kaupmönnum í Reykjavík.
svo sem þeim „Sturlubræðrum“
Friðrik og Sturlu. Birni Kristjáns-
syni og ef til vill fleirum. Áttú.þéir
Jóhannes og Sigurður sitt gullúr-
ið hvor sem var gjöf frá Sturlung-
um, voru það minjagripir, sem
báru vott um vinfengi þeirra.
Þegar ég lít til baka á hina
löngu ævi þessa aldna vinar míns,
fannst mér bera mest á þessu í
lífi hans og einkenna hann mest
fram yfir flesta aðra:
1. Hvað hann var á undan flest-
um bændum í nýjum framkvæmd-
um svo sem túnasléttun, vatnsveit-
ingum og heyhlöðubyggingum.
2. Hvað hann fóðraði allar skepn
ur vel og var góður við þær; aldr-
ei fór hann svo af baki reiðhesti
sínum. að hann kiappaði honum
ekki og stryki honum Enginn sá
magra skepnu hjá Jóhannesi,
hvorki vetur né sumar. Um og eft-
ir síðustu aldamót voru margir
sauðir í hinum forna Grímsnes-
hreppi, sem þá náði yfir Grímsnes
og Laugardalshreppi — margir
áttu frá einu og upp í 200, og þar
mun Jóhannes hafa verið með
þeim hæstu. Bar oft mikið á sauð-
unum í réttunum þá daga og ekki
sízt Eyvíkursauðum gömlu, 4—6
vetra með fallega fjármarkinu, heil
hamrað bæði. Þessi fallegi og vel
með farni fénaður 11 kýr og á
fim,mt;a .hundrað sauðfjár,- -þar^ áf
200 sauðir og 15—20 hross gaf
mikið af sér til að lifa á.
3. Jóhannes þótti ágætur heim-
ilisfaðir og hjúasæll. Var til þess
tekið, hvað hann var góður við
konu sína, sem lá mörg ár í rúm-
inu. Gerði hann allt til að létta
henni þrautirnar sem bezt. Mikill
höfðingi heim að sækja og hafði
yndi af gestum og veilti vel, var
sjaldnast ný áfengisverzlunar-
bianda, heldur hálfrar aldar og
eldra koníak og viskí og þrátt fyr-
ir margan snafsinn, entist honum
þetta eitt yfir gröf og dauða. Geri
aðrir betur, sjálfur var hann
allra mesti hófsemdarmaður í öllu.
4. Áhugi hans á öllum framfara-
málum var óslökkvandi allt fram í
háa elli, var hann sískrifandi vin-
um sínum um þessi áhugamál sín
— einkum vegamái —, sótti ., oft
syslufundi á fyrri árum itil að
túlka þau, þótt ekki ætti hann sæti
í sýslunefnd. Sýnir þetta bezt á-
huga hans.
5. Miðbik ævinnar beitti hann sér
allmikið í hreppsmálum o. fl. og
var þá ekki alltaf sammála öðrum
og fór þá einatt sína leið og var
þá oft nokkuð harður, en allra
manna var hann sáttfúsastur, það
þekkti ég af eigin reynslu.
Jóhannes missti konu sína 1914.
en bjó áfram með börnum sínum
til 1920, eftir það dvaldi hann hjá
Kolbeini syni sínum og dóttur hans
til dauðadags eða i 43 ár.
Meðan hann bjó með móður
sinni fékk hann verðlaun úr sjóði
Kristjáns X., en síðar vann hann
úr Ræktunarsjóði.
Þegar hann varð níræður, gerðu
sveitungar hans hann að heiðurs-
borgara og átti það vel við. Með
Jótíannesi í Eyvík er fallinn í val
inn einkennilegur höfðingsmaður
og að mörgu leyti einn af merk-
ustu bændum þessa lands. Myndin,
sem hér fylgir, er tekin af honum
95 ára. Vertu sæll, vinur þakka
þér samleiðina. Við sjáumst síðar.
Böðvar Magnússon.
Trúlofunarhringar
afgrelddtr samdægurs
SENOUM UV ALLT LAND
HALLO0R
Skólavörðustig t
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
AKUREYRl
SKÓ
handa allri fjölskyldunni, eftir árstíðum. við
hæfi á öllum aldri, og mismunandi verði,
fáið þér hjá oss.
Fyrirspurnum svarað greiðlega.
Sendum gegn póstkrötu.
Sími 1700.
SKÓDEILD K.E.A.
Akureyri.
SKIPTING EIGNA
Framhaid ai 5 siðu
þá virðist konan vera heldur
verr sett, en annars væri, þegar
farið er beint í lögskilnað með
þessum hætti. Annars vegar
er það, að lögskilnaður gefur
báðum hjónum leyfi til þess, að
ganga strax í hjúskap að nýju
og sé gengið út frá því, að
maðurinn hafi framið brotið,
þá er honum með lögskilnaði
strax gert býsna auðvelt, að
ganga í hjónaband með hinni
konunni, þeirri sem hann hefir
framið brotið með. Svo er það,
að löggjafinn gerir aðeins ráð
fyrir því, að greiddur sé fram
færslueyrir með konu meðan
skilnaður á borði og sæng
varir, sem sé, það er ekki gert
ráð fyrir neinum greiðslum til
konunnar, einmitt þegar maður
inn kann að hafa br.otlð af
I sér...)mndai}ioIcsH Biv gúd&i
Þar sem um svona mál er að
ræða er fjárhagshliðinni oft
komið í rétt horf með því að
maðurinn greiðir af sínum
hluta í eignum búsins, ef ein-
hverjar eignir eru fyrir hendi,
sanngjart meðlag með kon-
unni. Oft er þetta líka gert
við skilnað á borði og sæng,
sérstaklega ef konan er að
berjast við að halda íbúðinni.
Rannveig Þorsteinsdóttir.
FEÐGAR Á FERÐ
Framhald r/f 9. síðu
án ára kvnntist hann fiðluleik-
aranum Adolf Busch og tókst
þegar með þeim mikil vinátta,
fóru þeir snemma að halda tón-
leika saman, Busch bauð unga
manninum að búa á heimilinu,
og þegar nazistar hrifsuðu völd
in og síðar sjálfstæði Austurrík-
is, flýði Buschfiölskyldan land
og Rudolf Serkin með þeim.
Fyrst settust þau að í Sviss, og
þar giftust þau Rudolf Serkin
og Irene Busch, einkadóttir
fiðluleikarans. Arið sem stríð-
ið brauzt út fluttust þau til
Bandaríkjanna og komu sér upp
nýju heimili í hæðunum hjá
Bratteboro í Vermontríki. —
Börn þeirra eru fimm, og son-
urinn Peter fæddist 1947. Hann
fór ellefu ára á Curtis-tónlist-
arskólann í Philadelphia, og
kennarar hans þar voru Lee
Luvisi, Mieczyslav Horzowsfci
og faðir hans, og eins og hann
lék hann fyrst opinberlega tólf
ára gamall. Fyrir tveimur árum
léku þeir fyrst saman áður-
nefndan konsert fyrir tvö pí-
anó, þá í nokkrum stórborgum
Bandaríkjanna, og einnig með
hljómsveitum í París og Brux-
elles. Enginn efast um að tón-
listargáfur gangi að erfðum, og
þvf ekkert undrunarefni þótt
Peter Serkin búi yfir slikum
hæfileikum, úr því hann er son
ur R. Serkin og dóttursonur
Adolf Busch, tveggja heims-
kunnra snillinga, sem íslending
ar þekkja af eigin raun. Ekki
er nema von, að Peter eigi all-
langt ófarið til að komast þar
með tærnar, sem faðir hans
hefur hælana, en hann er ó-
umdeilanlega á góðri leið.
Þegar þessir feðgar eru hér á
ferð dettur manni í hug aðrir
feðgar, sem báðir eru á sama
sviði og dregur frekar saman
með þeim en sundur í listinni,
einn fremsti fiðluleikari heims,
hinn rússneski David Oistrakh
og Igor, sonur hans. En um
heimsókn Serkin-feðganna
hingað til Edinborgar og túlkun
þeirra, einkum föðurins, á
hinum dásamlegu píanókonsert-
um Mozarts, sem hann samdi
alls 23 um sína daga, því að
píanóið var hans hljóðfæri,
þá skildi ég það, sem Ásgríenur
heitinn Jónsson listmálari sagði
við mig fyrir mörgum árum, að
ekkert tónskáld jafnaðist á mð
Mozart, og engir gestir hefðu
verið kærkomnari á heimið að
Bergstaðastræti 74 en þeir vin-
irnir Adolf Busch og Rudolf
Serkin, þegar þeir komu hing-
að 1946 og heimsóttu málarann
og fluttu honum „eine kleine
Nachtmusik" eftir eftirlætistón
skáldið.
Við seljum
OpeJ Kad statton 64.
Opel Kad station 63.
Wolksv 15. 63
Wolksv 15. 63
N.S.U Prinz 63 og 62.
Opel karav 83 og 59
Simca st. 63 oe 62.
Simca inon 63
yGAMLA BÍLASALAÍlV
RAUÐARé
SKÚLACATA SS — SfMt IHlí
vElahkein GERNING
Vanli
menn.
Þægileg.
FTJótleg
Vðnduð
vinna
ÞRIF —
Sfrfi 21857
og 40489.
TÍMINN, föstudaainn 11. september 1964
13