Tíminn - 17.09.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 17.09.1964, Blaðsíða 5
mSTJÓRI: HAíLUR SÍMONARSON Á úrtökumóti Bandaríkjanina fyrir Ólympíuleikana í Tokíó ! um lielgiina, setti Rex Cawley nýtt heimsmet í 400 m. grinda- hlaupi, hljóp á 49.1 sek., sem er broti úr sekúndu betra en eldra metið, sem landi hans Glen Davis átti og ítalinn Morale hafði síðan jafnað. Annar í hlaupinu var Bill Hard in á 49.8 sek, sem er bezti árangur hans í grindinni. Bill er 'Onur Glen Hardin, sem varð Ólympíumeistari í 400 m. grindahlaupi í Berlín 1936 og átti þá heimsmetið 50.6 sek.„ sem þótti ótrúlegur árangur. Bill Hard'in fetar nú í fótspor föSur síns, en hvort honum tekst að verða Ólympíumeistari í Tokíó, er önnur saga, ein annað sæti hans á sunnudaginn tryggði honum þátttökurétt í bandaríska liðið á Tokíó-leik- unum. Úrslit í ensku knattspyrn- unni á mánudag og þriðjudag urðu þessi: 1. deild: Aston Villa-Sunderland 2—1 Wolves-West Ham 3—2 Nottom. For.-Burnley 3—1 2. deild: Leyton Orient-Bury 1—0 Charlton-Crystal Pal. 1—2 Coventry-Jlerby County 0—2 [pswich-Northampton 0—0 Rotherham Portsmouth 1—0 Swansea-Swindon Town 4—0 Úlfarnir unnu þarna sinn fyrsta sigur i átta leikjum, bik- armeistara West Ham. en það nægði ekki til að bjarga Cullis eins og sagl er frá annars stað ar á síðunni Coventry tapaði þriðja leiknum í röð og við það komust Kotherham og Derby upp fyrir Coventry — en Der ov hefui fvívegis sigrað nýja 2 deildarliðið undanfarna daga STUTTAR FRÉTTIR • Á frjálsíþróttamóti í Kiev á mánudaginn, stökk Ter Ovan- esian 8.14 metra í lanigstökkí — og verður þvf hættulegur fyrir Ralph Boston í Tokíó. Þetta er fyrsta keppni Ovan- esian síðan snemma í sumar, en hann hefur verið frá keppni vegna meiðsla. • Tvö sovézk met voru sett á sama móti, Zoa Skotsova hljóp 800 m. á 2:03.7 mín. og Romuald Klim kastaði sleggju 69.67 metra. • 89 finnskir íþróttamcnn munu keppa i Tokíó. Flestir keppa í frjálsum íþróttum eða I 17, en 12 leikmetin verða í körfuknattleiksliðinu. Með far-1 arstjórum, þjálfurum, læknum og fleiri, verður finnski hóip- urinn í allt 122. Það er erfitt að sjá lið sitt fá á sig mörk og þess vegna fékk markvörður EIK í Noregi óvænta aðstoð frá þjálf- ara sínum Andersen í leik í bikarkeppninni norsku ný- lega. Knötturinn var að renna yfir marklínuna, þegar Andersen spyrnti frá cins og myndin sýnir. Eftir leik- inn sagði hann. „Knötturinn hitti marksúluna“ og dóm- ari leiksins varð að láta það nægja. Og hér heima minn- ir þetta okkur á atvik, sem skeði á Mclavellinum fyrir nokkrum árum, þegar Akurnesingar voru upp á sitt bezta. Þeir léku þá við þýzkt lið og unnu með niklum mun 5-0 og í leiknumvar knötturinn í sjötta sinn að renna yfir marklínu Þjóðverjannaa, þegar reinn úr fararstjórn liðsins hljóp í veg fyrir hann og spvrnti frá. Dómarinn í leiknum, Þorlákur Þórðarson, gat ekki annað en vísað hinum þýzka skapmanni. frá markinu og láta leikinn halda áfram. — Ljósmynd NTB. IBR 20 ára Um þessar mundir eru liðin 20 ár síðan íþróttafélögin í Reykjavík mynduðu með sér heildarsamtök og stofnuðu íþróttabandalag Reykjavíkur. Samkvæmr íþróttalögunum frá 1940 var svo ákveðið, að landinu skyldi skipt í íþróttahéruð eftir sýslum og bæjarfélögum eða eftir hentugum staðhátt- um. Voru ekki önnur heildarsamtök en Í.S.Í. og nokkur sér- ráð í Reykjavík. Komu þessir aðilar fraip fyrir hönd íþrótta- félaganna í Reykjavík og sérstaklega kom stjórn Í.S.Í. frarn fyrir þeirra hönd, bæði gagnvart bæjaryfirvöldum og ríki. Íí/s. - , A's, -, /.... Bandaríska frjáls- íþróttaliöiö í Tokíó BANDARÍSKA frjálsíþróttaliðið, sem keppir í Tokio verður þannig skipað, en talið er að það muni hljóta meginhlutann af verðlaun- um í frjálsum íþróttum á leikun- um. 100 m.: Bob Hayes, Trenton Jackson, Mel Pender og Gerry Ash worth kemur sem f.iórði maður í 4x100 m. boðhlaupssveitina. 200 m.: Paul Drayton, Richard Stebbing, Henry Carr. , 400 m.: Mike Larrabee, Ulis Williams, Ollan Cassell. i 800 m.: Morgan Groth, Tom I Farrell, Jerry Siebert. ! 1500 m.: Dyrol Burleson, Tocn j 0‘Hara, Jim Ryan. 3000 m. hindrunarhlaup: George j Young, Vic Swolak. Jeff Fish- , back. í 5000 m.: Bob Schul, Bill Dell- I inger, Oscar Móore. Framnalo a síðu 13 íþróttanefnd ríkisins skipaði 1942 þá Steinþór heitinn Sigurðs- son, Erling Pálsson og Pál S. Pálsson í nefnd til að semja upp- kast að lögum og undirbúa stofn- un Í.B.R. Var siðan boðað til stofn fundar 24. ágúst 1944 og endan- lega gengið frá stofnun bandalags- ins 31. ágúst. í fyrstu stjórn voru kosnir Gunnar Þorsteinsson, hæstaréttar- lögmaður, formaður, Baldur Möll- er, Gísli Halldórsson, Guðjón Ein- arsson og Baldur Steingrímsson Stjórnuðu þessir menn bandalag- inu fyrstu 2 árin á meðan það var að vaxa úr grasi. Strax á fyrst ári réðist stjórnin i það stórvirki, að kaupa íþróttahús bandaríska hersins við Suðurlands braut, Íþróttahúsíð við Hálogaland. rramnald a -iðu u Ný bók á íslenzku um sjálfsvörn Fyrir skömmu var gefin út bók legý Bók þessi, sem nefnist sem kennir fólki að verjast árás- SJALFSVÖRN er byggð á hinni um. Nú á dögum, þegar líkams- fornu japönsku sjálfsvarnarglímu árásir eiga sér stað svo að segja JU-Jutsu, sem í Japan hefur verið daglega, getur slík bók orðið gagn stu"duð dldum samam Sjálfsvam- arglima þessi er stunduð 1 dag 1 fjölmörgum löndum, sérstaklega Cullis rekinn frá Úlfunum Framkvæmdastjórar enskra knattspyrnuliða eiga ekki allt- af sjö dagana sæla — en sjald- an hafa jafn óvænt tíðindi átt sér 9txð úr þeirri átt og í gær er fréttist, að Stan Cullis, fram- kvæmdastjóra Wolverliampton VVanderer: hefði verið sagt upp starft sínu hjá félaginu. Úlfunum hefur gengið illa að undanförnu og eru neðstir í 1 deild, en að það skyldi verða til þess. að Cullis. sem er einn frægasti ‘ramkvæmdastjóri o Englandi. skyldi missa atvinnu sína. kemui algeriega » óvart Eigendm iðsins koma saman á fund á mánudag, og efJir aann var Oullis tilkynnt að <é lagið óskaði ekki lengur eftir starfskröftum hans. Stan Cultis hefur i 30 ár verið hjá Úlfunum, fyrst sem leikmaður og fyrirliði tiðsins um langt árabil — og þá vai hann einnig cnskur landsliðs- maður (31 ieikur) og fyrirliði Englands — og síðar sem fram- kvæmdastjóri, þar sem hann gerði Úlfana að einu frægasta knattsipyrnuliði Englands og undir hans stjórn vann liðið Sinn fyrsta sigur í 1. deild. 1954 og síðan eiinnig 1958 og 1959, og auk þess bikarkeppn ina 1949 og 1960. En nú þegar um tíma gengur illa, hafa eig- endur félagsins gleymt þessu öllu og fórnað Cullis. Ólíklegt er þó, að hann hverfi úr ’knatt spyrnunni. Cullis er ekki nema 47 ára að aldri og er liklegt, að mörg félög á Englandi muni á næstunni keppast um að fá notið hæfileika hans. Þess má geta, að fyrir tveimur árum skrifaði Cullis bók, sem hann kalláði; „Allt fyrir Úlfana“, og vissulega vann hann Úlf- unum allt — og gerði Wolver- hampton að miklu liði. Því má einnig bæta við hér, að tveir framkvæmdastjórar hafa sagt af sér síðustu dagana. þeir Jackie Milburn hjá Ips- wich og Eddie Booth frá Iludd- ersfield. mikið í Bandaríkjunum og ýmsum , Evrópulöndum. í bókinni eru fjöl- ' margar og greinilegar skýringar j myndir, ásamt greinargóðum texta ; og á fólk að geta lært brögðin án j þess að kennari sé nærstaddur, ■ þó það væri að sjálfsögðu æski- legast. Fyrir utan það að sjálfsvarnar glíma þessi veitir fólki ágæta lík amsáreynslu getur hún einnig ver j ið afar nytsöm, ef árás á sér stað, | því þeir sem ná valdi á hennni ! munu reyna það að hún er afar jsterkt varnarvopn, enda geta jafn j vel afllitlir karlmenn og konur, sem hana kunna, ráðið við fíl- elfdustu karlmenn. Má því segja að bók þessi sé mjög nauðsynleg nú á tímum, þar sem dæmin sýna að fólk er oft illa leikið af árásar seggjum, og vorkennir engin slík- um seggjum þó þeir fái ærlega ráðningu. Bókaútgáfan Bangsi gef ur bókina út og er verð hennar kr. 67.50 með söluskatti. i 'ÍMINN, fimmtudaglnn 17. september 1964 — 5;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.