Tíminn - 17.09.1964, Blaðsíða 7
Otgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Kristján Benedlktsson Ritstjórar: Þórarlnn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Steingrimur Gíslason.
Ritstjórnarskrifstofur I Eddu-húsinu. símar 18300—18305 Skrif-
stofur Bankastr ? Afgr.siml 12323 Augl. siml 19523 Aðrar
skrifstofur, slml 18300 Áskriftargjald kr 90,00 á mán innan
lands - ! lausasölu kr 5,00 elnt. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Efling síldariðnaðarins
Það verður áð telja mjög ánægjuieg tíðindi, að stjórn
síldarverksmiðja ríkisins hefur ákveðið að leita eftir
því við ríkisstjórnina, að hún megi þegar hefjast handa
um að bæta aðstöðu til síldariðnaðar austan Melrakka-
sléttu, þar sem reynslan síðustu ár hefur sýnt, að mest
þörf er fyrir það, og hraða svo framkvæmdum, að gagn
verði að á næstu síldarvertíð.
Þessar framkvæmdir fela í senn 1 sér að auka verulepa
afköst síldarverksmiðjanna og auka þróarrými, svo og
gera ýmsar aðrar umbætúr við löndun síldar og geymslu
afurða. Þetta er brýn nauðsyn, og hefur reynslan síðuscu
sumur sýnt, að ríkisstjórnin hefði átt að taka .>etur á
þessum málum fyrr og halda áfram þeim framkvæmdum
sem gerðar voru í tíð vinstri stjórnarinnar, en Sjálfstæðis
flokkurinn barðist þá hatramleg gegn. Nú hefur hann von
andi lært nokkuð af reynslunni, en sú kennsla hefur
orðið dýrari fyrir þjóðina alla en ástæða var til
Allt frá því að sumarsíldin fór að verulegu leyti ið
veiðast fyrir Norðaustur- og Austurlandi hefur Fram
sóknarflokurinn beitt sér eftir megm fyrir byggingu síld
arverksmiðja þar og bættum löndunarskilyrðum Fyrstu
stórátökin í því efni voru gerð í stjórnartíð vinstri stjórn-
arinnar, mjög fyrir forustu Eysteins Jónssonar. Sjálfstæð
isflokkurinn barðist þá hatramlega gegn þeim fram-
kvæmdum, eins og mörgum öðrum atvinnuaukningar-
framkvæmdum í verstöðvum úti á landi og iallaði þetta
„pólitíska“ fjárfestingu, sem væri tordæmanleg í alla
staði og voru höfð um þetta mörg orð og ill.
Það kom hins vegar á daginn, að þessar ráðstafanir
björguðu tugmilljónum fyrir þjóðarbúið og hefur svo
verið á hverju sumri síðan.
Sjálfsagt hefði verið að halda uppbyggingunni þarna
áfram, eins og nauðssyn síldveiðanna krafðist, sn þegar
núverandi ríkisstjórn tók við, varð háskaleg stöðvun
Stjórnin gerði ekkert fyrstu árin, og löndunarvandræðin
austan Melrakkasléttu bökuðu þjóðinni stórtjón Allar
tillögur Framsóknarflokksins á Alþingi og öðrum opin-
berum vettvangi voru hundsaðar, og heimamenn fengu
lélega áheyrn hjá stjórnarvöldunum.
En reynslan er harður skóli, og hun hefur haldið áfram
að sýna og sanna, hvað gera beri. Loks virðist svo. sem
ríkisstjórnin ætli að sjá eitthvað að sér, þótt æint, sé,
og er þess að vænta, að hún taki tillögur. síldarverk-
smiðjustjórnarinnar vel, og framkvæmdir hefjist f igar.
Þær eru mikilvægt spor í rétta átt, en að sjálfsögðu verð-
ur að halda áiram, að gera meira og betur og koma víð-
ar við.
Meðferð sláturfjár
Það er viöurkennd staðreynd, að meðferð sláturfjár í
göngum, réttum og við flutning á slaturstað er ekki nógu
góð og veldur jafnvel töluverðu tjóni á afurðum. Á
þessu verða að fást verulegar umbætur. Bændur hata
að vísu erfiða aðstöðu vegna fólksfæðar og anna, en
hér er svo mikið i húfi, að kosta verður öllu sem unnt
er til úrbóta. Er góð meðferð bændanna sjálfra heldur
ekki nóg. þar verður líka að bætast víð mikil vandvirkni
i störfum í sláturhúsum. Margir eiga hér nlut að ináli,
en fiárhagslegir hagsmunir bændn eru mestir. Er því
astæða til að hvetja þá. svo og starfsfólk sláturhúsa. að
eefa góðan gaum að varnaðarorðum lýralækna og peina
=°m með sölu afurðanna og vinnslu fara.
Á efstu myndinni sést Jósep
P. Kennedy, faðir h'ins látna
forseta, sitja í hópi barnabarna
sinna á 76. afmælisdegi sínum.
Barnabörnin eru orðin nokkuð
mörg og allfríður hópur. Er
nokkur Bandaríkjaforseti' þarna
á meðal? Eða dómsmálaráð-
herra og stjórnmálaskörung-
ar? Svo ætti að vera, ef Kenin-
edy-ættin gengur ekki úr sér.
Á myndinni hér til liliðar er
svo einn sonur Kennedys
gamla, sá frægasti þeirra, sem
nú er uppi, Robert fyrrum
dómsmálaráðherra en nú fram-
bjóðandi deinókrata í~ Píew
York til öldungadeildar. Ilann
dregur ekki af sér við áð gera
hosur sínar grænar fyrir kjós-
endunum. Hér er hann að taka
við CHALAH, risastóru brauði
af sérstakri gerð, sem Gyð-
ingar hafa bakað frá aldaöðli
og hefur trúarlega þýðingu.
Gamli maðurinn, sem gaf Ro-
bert brauðið, á 35 barnabörn.
Neðs-t er mynd af Moise
Tshombe forsætisráðherra í
Kongó. Hann lætur aðdáendur
sína bera sig hér á gullstól'i
meðal lýðsins, sem fagnar hon-
um vel eftir töku borgarinnar
Albertville, sem verið hafði
þrjá mánuði í höndum upip-
reisnarmanna. Tshombe virðist
kunna aðdáun sinna manna vel.
T í M I N N , fimmtudaginn 17. september 1964 —
t;