Tíminn - 22.09.1964, Side 13
GAMLA FÓLKIÐ
r n ii i siftu
-i. Borgaritjóri mun hafa skipað
ráðgefandi nefnd um velferðar-
mál aldraðs fólks. Hvað líður
störfum þeirra nefndar og hverj
ar eru tillögur hennar?
Próf. Þórir Kr. Þórðarson svar-
aði fyirspurninni. Kom fram í svar
inu, að unnið væri að málefnum
aldraðs fólks á vegum borgarinnar
á svipuðum grundvelli og undan-
farin ár. Nefndin, sem um getur í
4. lið, hefði rætt málefni gamla
fólksins á breiðum grundvelli. —
Hún hefði þegar haldið 10 fundi,
en engar tillögur gert ennþá.
Birni Guðmundssyni fannst svör-
in benda til hægagangs í málinu
og í sama streng tók frú Soffía
Ingvarsdóttir.
FLOTAÆFINGAR
Framhald af 8. síðu
sem við áttum að fylgjast með.
(Um kvöldið sáum við tvær
nýjar amerískar kvikmyndir,
ágætar myndir og lék Jack
Lemmon aðalhlutverkið ®>áð-
um, í hinni fyrri á móti Kim
Novak og hinni síðari, „Irma
la douce“ ásamt Shirley Mac
lain og var það hin ágætasta
mynd.)
Ekki sváfum við allir vel
um nóttina. Ég svaf á næsta
þilfari fyrir neðan flugbrautina
og það lék allt á reiðiskálfi við
flugtak og lendingar, sem voru
stanzlaust svo til alla nóttina.
Sofnuðu sumir lítið þrátt fyrir
langan og erfiðan dag og auma
fætur eftir allt labbið.
Við fórum snemma á fætur
í morgun og hlýddum á fyrir
lestur K. Masterson aðmíráls,
yfirmanns 2. flota Bandaríkj-
anna og „Nato Striking Fleet
Atlantinc" en það er einmitt
sú flotadeild, sem við fylgjumst
með og leikur hún meginlilut-
verk þessara sameiginlegu æf-
inga. Þessi deild skiptist í
þrjár undirdeildir, „Striking
Force“, (Árásarflota), „Anti
submarine Force“, (Kafbáta-
varnarflota), og „Support
Force“, (Birgðaflota). Daginn
áður hlýddum við á McCorm-
ick, aðmírál, yfirmann „Antis-
ubmarine Force“, en hann
hefur aðsetur sitt um borð í
Vespunni, sem er flaggskip
þeirrar deildar. Einnig fengum
við yfirlit um hlutverk annarra
deilda þessa sameiginlega flota.
Að fyrirlestri þessum lokn-
um tókum við saman föggur
okkar og stigum að nýju um
borð í þyrlurnar. Var flogið
með okkur um borð í „USS Ind
ependance", sem er flaggskip
„Striking Force“. Það er
miklu yngra skip en „Vespan“
og stærra og fullkomnara, 60
þúsund lestir. Er við höfðum
borðað hádegismat stigu all
margir okkar að nýju upp í
þyrlurnar og var flogið með |
þá til annarra skipa í flota-1
deildinni, þ. á. m. til „USS j
Newsport News“ sem er!
stærsta og fullkomnasta beiti j
skip heimsins, 10—12 þús. j
tonn að stærð. Fóru þrír í i
hvert skip og voru látnir síga j
í reipi niður úr þyrlunum og í
þótti ýmsum glæfralegt. Aðrir!
settust við skriftir og skoðuðu
„Independance“, sem er feikna
legt skip.
Independence var tekið til
notkunar 1959. Það er eitt
stærsta herskip sem smiðað hef
ur verið og kostaði hvorki
meira né minna en 200 millj-
ónir dollara eða 86 þús. millj-
ónir ísl. króna.
Áætlað er að við verðum
hér um borð næstu tvo daga
og fylgjumst með æfingunum,
en við höfum átt þess fremur
lítinn kost ennþá að komast í
nána snertingu við þær en 1
reynt hefur verið að búa okk
ur sem bezt undir þær til að j
fá sem gleggstan skilning á því '
sem við eigum eftir að sjá.
Rússar hafa mikinn áhuga á
þessum æfingum, rússnesk her
skip hafa nálgast og könnun-
arflugvélar hafa verið á flugi
öðru hverju yfir flotanum og
hefur þeim verið heilsað og
þeim fylgt af þotum frá flug-
móðurskipunum. —Tjélcá
SJÖTUG
Framhald af 9. síðu.
værð og léttleiki í lund eru ómet
anlegir eiginleikar og hafa kann-
ski orðið samferðamönnum hennar
á lífsleiðinni til eneiri blessunar
en hún hefur sjáif hugmynd um.
Það hefur heldur aldrei verið ein
kenni Hólmfríðar að hreykja sér
eða þykjast meiri en aðrir.
Þó nokkuð margir munu hugsa
hlýtt til þessarar lítillátu og lífs-
glöðu konu á sjötugsafmæli henn-
ar. þótt fundum beri ekki saman,
en hún á heimili hjá Aðalsteini
syni sínum á Korpúlfsstöðum. Og
þess mundum við vilja óska henni,
gaenlir sveitungar hennar að vest-
an, að ævikvöldið verði henni eins
hlýtt og ljúft og hún á skilið. Þá
verður það henni unaðsríkt.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
P.s.: — Hólmfríður var ekki
heima á afmælisdaginn, en tekur
á móti gestum á heimili sonar síns
Aðalsteins á Korpúlfsstöðum á
laugardaginn 26. þ. m.
TÍMINN, brfðjudaginn 22. september 1964