Tíminn - 29.09.1964, Síða 2
Mánudagur, 28. september:
NTB-Brazilía. — Adib Shih-
akli, fyrrverandi forseti Sýr-
lands, var skotinn til bana á bú-
garði sínum í Goias ríkinu, um
200 km. frá höfuðborg Brazi-
líu, Brazilia. Samkvæmt fyrir-
liggjandi upplýsingum var það
hár, velklæddur útlendingur,
sem gekk rólegur inn í búgarð
hans, skaut á hinn fyrrverandi
forseta og hvarí síðan jafn
hljóðlega á braut og hann kom.
Víðtæk leit fer nú fram að
drápsmanninum. Shihakli var
55 ára gamall og var forseti
Sýrlands frá júlí 1953 til febr-
úar 1954. Var honum steypt
af stóli með byltingu og flýði
hann þá til Brazilíu og keypti
þar búgarð. Fyrstu árin hafði
hann lífvörð um sig, en leysti
hann upp fyrir 2 árum.
NTB Lundúnum. — Bretlands-
stjórn skýrði opinberlega í dag
frá þeim réttindum, sem hún
veitir fiskveiðibátum frá Frakk
landi, Belgíu, Hollandi, Vestur-
Þýzkalandi, Póllandi, og Nor-
egi í sambandi við það, að á
miðvikudaginn færa Bretar
fiskveiðilögsögu sína úr 3 sjó-
mílum í 12 sjómílur eða sex
sex. Hin nýja 'fiskveiðilög-
saga er í samræmi við samn-
inginn, sem 16 riki undirrit-
uðu á fiskveiðiráðstefnunni í
Lundúnum í marz s.l.
NTB-Stokkhólmi. — Mikla at-
hygli hefur vakið í Svíþjóð og
raunar víðar orðrómur um, að
gríski skipakóngurinn, Staros
Niarcþos hafi í hyggju að
selja allan flota sinn, sem er
70 skip samanlagt 2,6 milljón-
ir smálesta að stærð. í fregn-
um þessum, sem taldar eru
komnar frá skipaeigendum í
Osló segir, að skipakóngurinn
vilji fá 260 milljónir dollara
fyrir flotann.
NTB-Nicosíu. — Kýpur-stjórn
lagði formlega til í dag, að
Kýpurmálið verði tekið fyrir
á Allsherjarþingi S.þ., sem
hefst 10. nóvember.
NTB-Bonn. — Jafnaðarenenn
hlutu í dag mikinn aukinn
stuðning í hinum mikilvægu
kosningum í Nordreihn West-
falen og Niedersachsen á
sunnudag. Jók flokkurinn fylgi
sitt um 5,9%.
NB-Washington. — Hinn nýi
yfirmaður NATO, ítalinn Man-
lio Brosio, kom í dag f þriggja
daga heimsókn til Bandaríkj
anna, þar sem hann mun eiga
viðræður við ráðamenn um
stjórnmál og hermál.
NTB-Hartford. — Johnson,
Bandaríkjaforseti sagði í dag í
ræðu í Hartford í Connecticut,
að kosningarnar í nóvember
rtæðu um valið milli styrkrar
utjórnar og hættulegrar
irtjórnar.
MIKID RÆTT UM
WARREN-SKYRSLUNA
BG—Reykjavík, 28. september.
Einstaklingar, útvarpsstöðvar og blöð víðs vegar um lieim
ræða í dag Warren-skýrsluna. Eru undirtektir noxkuð misjafn
ar. Bandarísk blöð, íjem mörg gáfu út aukablað um ikýrsluna,
Iáta nær öll í Ijós ánægju með verk og niðurstöðu nefndarinn
ar, en blöð í Evrópu, og þá eínkum þau óháðu, táta hins vegar
í ljós efa um, að allur sannlcikur sé fram kominn með skýrslu
þcssari. Hér fara á eftir umsagnir nokkurra aðila hafðar eftir
norsku fréttastofunni NTB.
Thomas Buchanan, sem skrif-
aði hina mikið umtöluðu bék.
Hver myrti Kenedy, og sem er
þeirrar skoðunar, að Osvald
hafi ekki einn getað verið morð
ingi forsetans, heldur aðeins
handbendi hægr'sinnaðra ófga
manna, sem staðið hafí að sam
særi gegn forsetanum, segir,
að skýrslan styðji þá ályktun
hans, að Oswald hafi hvorki ver
ið algerlega saklaus. né einn
sekur.
Borgarstjórinn í Dallas, Erik
Jonsson, segir, að hann voni, að
skýrslan verði til að kveða nið-
ur þennan orðróm, að fjand-
samleg afstaða manna í Dallas
hafi leitt til morðs á Kennedy,
forseta. Bendir hann á, að
■MMUKHnnMM
Warren-nefndin hafi ekki fund-
ið neina sönnun fyrir því að
hægri-æsingaöfl i Dallas, né
eitthvað sérstakt hatur á for-
setanum, hafi leitt til þess, að
Oswald hafi jnyrt Kennedy.
John Stemmons, forseti borg-
arráðsins í Dallas segir, að
Warren-skýrslan sé fullnægj-
andi svar við illum orðrómi um,
að borgin sé full af haturshóp-
um.
Ríkissaksóknarinrt, Henry
Wade, er sammála nefndinni í
því, að mikið af sögum þeim
og orðrómi, sem komst á kreik
eftir morðið, stöfuðu af röng-
um upplýsingum, sem blaða-
mönnum hefðu verfð látnar í
té.
Móðir Oswalds heldur enn
fast við það, að sonur hennar
hafi verið saklaus og fullyrðir,
að hún geti gert alla skýrsl-
una að viðundri, en hvemig,
vildi hún ekki segja.
Kona Oswalds hefur ekkert
viljað segja um skýrsluna.
Lögregluforingjar í Dallas,
sem deilt er á í Warren-skýrsl-
unni, vilja heldur ekki láta
hafa neitt eftir sér.
Edwin Walker, sem er mikill
hægrimaður, deilir mjög á
skýrsluna og segir að tilgang-
urinn með henni sé að leyna
einhvers konar ramsæri.
Information, hið danska,
óháða dagblað, segir, að skýrsl-
an varpi ljósi a nokkur atriði,
sem áður voru óskýr, en hins
vegar hafi nefndinni ekki tek-
izt að skýra mörg önnur. Við
því hafði blaðið ekki búizt,
Allir hópuöust um Kjarval
á haustsýningunni í Höfn
Aðils — Kaupmannahöfn, 28. ■'ept.
Blöð í Danmörku eru öll sam-
mála um, að listin, sem fram Pcm
ur í verkum Jóhannesar Kiarval
á haustsýningunni í Chanotten-
borg, sé stórkostleg. Hann íiaf’.
fyrst og fremst gætt sýninguna
lífi með 43 málverkum sínum, sem
skipi þar heiðurssess. Kjarva! var
sjálfur viðstáddur opnun sýningar
innar á laugardag og var allan
tímann umkringdur sýningars’jór
um, blaðamönnum og teiknurum,
en sýningargestir stóðu og virtu
fyrir sér verk hans með óbiand-
inni aðdáun. Gífurlegur fjöidí nef
ur komið til þess að sjá sý iinguna.
Extrabladet segir m.a. að aðrir
listamenn falli í skugga fyrir Kjar
val, enda sé sýningin fyrst og
fremst hans. Verkum hans er kom
ið fyrir í heiðursalnum og tveim
næstu hliðarsölum, þar sem land
lagsmyndir hans og fantasíur njóta
sín vel.
Síðan segir blaðið: ..Hann er
alls staðar sjálfur í verkum sínum
með nákvæma tilfinningu fyrir
myndrænum eiginleikum nlut-
anna, og af þeim eiginleikum eætu
ungu listamennirnir mikið lært.
Öll er grein blaðisins óslitin lcf-
gjörð um meistarann og henni
lýkur með þessum orðum: „Þegar
maður sér, hvernig hann málar
þessi Kjarval skilur maður vc-1 að
landsmenn dýrki hann eins og
hálfgerðan guð, enda er hann,
með fullri virðingu fyrir Ásgrími
Jónssyni og Jóni Stefánssyni, sá
íslenzki málari, sem mestum háefi
leikum er gæddur.“
Tjónið í Valby 300 milljónir
NTB-Kaupmannahöfn, 28 sept.
I dag var skýrt írá því í Kaup-
mannahöfn, að samanlagt tjón af
völdum sprengingarinnar i gas
stöðinni í Valby nemi sem svar
ar um 300 milljónum íslenzlo'a
króna, þar af er tjónið á gasxtöð
Borgin annðst útför
borgarlögmannsins
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt, að óska þess við ’jöl-
skyldu Tómasar Jónssonar bo.rgar |
lögmanns, að Reykjavíkurborg
annist útför hans, sem gerð verð
ur frá Dónikirkjunni miðvikudag
inn 30. sept. n. k. og hcfst kl.
14.00 Hefur fjölskyldar, fallizt
á þá tilhögun.
Skrifstofa borgarstjóra verður
lokuð eftir hádegi þann dag.
EJ—Rcykjavík, 28. sept
Á föstudagskvöld samþykkti
bæjarstjórn Kópavogs endanlega
breytingn á lögreglusamþyskt
bæjarins, • því skyni að heimila
sölu úr kjörbúðarbíltim séu beir
staðsettir a.m.k. 450 metra frá
næstu verzlun. Þessi samþykkt
þarf síðan að fá samþykkl dóms-
málaráðuneytisins, en í næstu viku
Inni sjálfri talið nema um 180
inilljónum íslenzkra króna.
í dag var haldið áfram að
hreinsa til á sprengingarsvæðinu
og gera við miniháttar skemmd-
ir, sem urðu á byggingum. Eng
in bygging hefur skemmzt ivo
mikið, að nauðsynlegt sé að rífa
hana, en íúns vegar hafa þök
raskast svo mjög a mörgum
byggingum, að mikilla etidur
bóta er þörf.
Enn er ekki ljóst, hver orsök
sprengingarinnar var, on rann-
sókn einskorðast nú um bað,
hvort ónýt loka í dæluhúsinu,
hafi leitt til þess, að ?vo mikill
gasstraumur hafi komið þa: út
að sjálfkviknun hafi orðið.
Þá er einnig talið hugsa.úegt,
að neisti frá verkfærum hafi
getað valdið sprengingi.nni.
Kaupmannahafnarblaðið írfor-
mation krefst þess í dag, að allar
viku ætti kjörbúðarb;I!inn að geta
hafið starf sitt að nýju.
Blaðið aáði í Ingólf ólafssun,
kaupfélagsstjóra KRON. og sagði
hann að kjörbúðarbíllinn færi af
stað aftur, strax og dómsmálaiáðu
neytið hcfði samþykkt lagabreyt
inguna. Um fjarlægðarlakmörkin
sagði hann, að það hefði lítil áhrif
á fyrri staðsetníngar kjerbúðar-
bílsins.
gasstöðvar landsins verði nú rann
sakaðar nákvæmlega og athujað,
hvort fullkomið öryggi sé tyrir
hendi í þeim.
Sunnudaginn 27. sept. Fremur
óhagstætt veður var á síldarmið
unum s.l. sólarhring 4 — 5 vind-
stig. Samtals 18 skip með 14.650
mál og tunnur.
Skálaberg NS 200 tn. Gullberg NS
1000 tn. Sigurvon RE '000 mál.
Vattarnes SU 700 mál. Gjalar VE
1050 mál. Loftur Baldv. EA i000
mál. Guðbj Kristján Í3 400 tn Sig.
Bjarnason EA 700 mál Vonin KE
900 tn. Heimir SU i200 tn Sigl
firðingur SI 1400 tn. Guðbjörg ÍS
900 mál. Garðar GK 900 mái -\rr
ar RE 1000 mál Siguroáll GK
600 mál Grótta RE 700 tn Akra-
borg EA 550 tn. Bjarmi II EA
400 mál.
Mánudaginn 28. sept. Mjög gott
KJORBILLINN SAMÞYKKTUR
Eins og áður segir var Kja.val
viðstaddur cpnun sýningannnar.
þar sem sýningarstjórum h:-fði
loks tekizt að telja hann á að
fljúga snöggvast til Kaupmanna-
hafnar. Meðal gesta var sondi-
herra íslands, Stefán Jóhann Stef
ánsson, sem Kjarval 'aðn’aði að
sér, er þeir hittust.
Fréttamaður Tímans hafði og
þá ánægju að hitta Kjarval, sem
allan tímann var umkringdci að-
dáendum.
Kjarval var kátur og ótrúlega
unglegur í útliti.
Hann spaugaði, sagði sögur og
útskýrði ineð miklu hadapati og
listamannslegum handasveiflum,
sem dró allra athygli að horium,
Sýningargestir störðu á máiverk
hans í þögulli aðdáun og se’T. ís-
lendingur varð maður bæði hrif
inn og stoltur af því að vera sam-
landi hans.
veður var á síldarnúðunum s.l.
nótt og góð veiði 65 — 70 mflur
ASA frá Dalatanga. SíldT. er
blönduð. Samtals fengu 38 -kip
48.750 mál cg tunnur.
Óskar Halldórsson RE 900 má’ Ól.
Magnúss. EÁ 1000 mál. Viðey RF
1750 tn. Jón Kjartansson SU 1700
Snæfugl SU 1000 tn Heiga Guð-
mundsd. BA 1700 mál Gulherg
NS 1150 mál Ól. Tryggvason SF
1400 tn. Arnfirðingu’" RE l. 00
mál Ólafur bekkur OF 700 rál
Heimir SU 1000 tn Oddgeir ÞH
1200 mál Grótta R 1000 t. Sig Jóns
son SU 900 tn. Sigurpáli GK 1000
mál. Vonin KE 1300 ’n. Sig Bja.na
son EA 1400 mál. Faxi GK Þí00
mál. Seley. SU 850 mál. Náttíari
ÞH 400 mál Páll Pálsson GK 'UO
tn. Víðir H GK 1200 tn. Inuiber
Ólafsson II GK 1400 mál .Mána-
tindur SU 8C0 tn. Guðrún Jónsd.
ÍS 1100 mál Steingrímur tröili SU
1150 tn. Hannes Hafstein EA 1500
mál Akraborg EA 1250 má! k>rá
inn NK 650 mál Súlan F,A ?ö0
mál. Helgi Flóventss ÞH • 00
mál. Siglfirðingur S3 1400 nál
Bjarmi II EA 1200 mál Guð-
björg ÍS 700 mál Gulifaxi VK
1000 mál Hamravík KE 800 mál
Snæfell EA 1000 mál Grnrar SU
1800 tn.
TÍMINN, þrlðjudaglnn 29. september 1964 —