Tíminn - 29.09.1964, Side 15
WARREN-SKÝRSLAN
Framhald af 1. síðu.
an sannleikann um þennan
hryllilega atburð"'.
Nefndin hafi verið skipuð til
þess að segja þennan sannleika
bandarísku þjóðinni og öllum
heiminum."
„Þetta var skylda okkar gagn
vart heiðri þjóðar okkar og öll-
um mönnum alls staðar, sem
bera virðingu fyrir þjóð okkar,
en þó uim fram allt gagnvart
minningu Kennedys, forseta“,
sagði Johnson, Bandaríkjafor-
seti.
Eins og kunnugt er hefur verið
geysilega mikið rætt og ritað um
morðið á Kennedy forseta, allt
fram á þennan dag.
Fylgzt hefur verið með störfum
Warren-nefndarinnar af miklum
áhuga og fyrir löngu kvisast út,
hver niðurstaða hennar yrði.
Þótt skýrslan eigi að geytna all-
an sannleikann í þessu máli virð-
ast deilur um, hver hafi verið hinn
raunverulegi morðingi, hver hafi
verið tilgangur þess o. s. frv., vera
jafn hatrammar nú og þær voru
strax eftir morðið. Margir hafa
framkvæmt sína eigin rannsókn
eftir þeim gögnum, sem fyrir lágu
og gert grein fyrir niðurstöðum
sínum. Ber þar hæst ítarleg
skýrsla bandaríska rithöfundarins
Thomas G. Buchanan, sem nú er
komin út í bók, er nefnist: Hver
myrti Kennedy. Ræðst hann þar
harkalega á hina „opinberu skoð-
un“ uim, hver hafi myrt forsetann,
sem nú er komin á blað með
skýrslu Warren-nefndarinnar. —
Ekki eru tök á að rekja röksemdir
Buchanans, en þess eins skal get-
ið, að lokaályktun hans er í al-
gerri mótsögn við niðurstöðu hinn
ar stjórnskipuðu nefndar, þ. e.: —
Oswald gat ekki hafa verið morð-
ingi Kennedys.
Þessar og aðrar ályktanir, til-
gátur, sögusagnir og fullyrðingar
sem fóru eins og eldur í sinu um
Bandarjkin og raunar heim allan,
tekur Warren-nefndin einnig fyr-
ir í skýrslu sinni.
Segir hún að í þessu sambandi
sé flest byggt á misskilningi. Hér
skulu aðeins nefnd nokkur dæmi
um tilgátur, sem Warren-nefndin
fjallar um í skýrslunni.
Tilgáta: Banaskot forsetans kom
frá járnbrautarbrúnni fyrir fram-
an bifreið forsetans.
Nefndin: Skotin, sem lentu í
hnakka og höfði fosetans og
særðu Connally, ríkisstjóra, komu
aftan frá og að ofan. Engar skýrsl-
ur og engir vitnisburðir eru til um,
að skotum hafi verið hleypt af frá
nokkrum öðrum stað en bóka-
geymslubyggingunni.
Tilgáta: Skothylki úr riffli fund
ust á járnbrautarbrúnni.
Nefndin: Ekki hefur neins kon-
ar skothylki fundizt á brúnni, né
komið fram neitt vitni, setn segð-
ist hafa fundið slíkt.
Tilgáta: Meira en þrem skotum,
e. t. v. fimm eða sex var skotið á
forsetann og Connally, ríkisstjóra.
Nefndin: Yfirgnæfandi fjöldi
vitnisburða bendir til, að þrem
skotum hafi verið hleypt af og tvö
þeirra hafi hæft Kennedy. Vitnis-
burðir sérfræðinga benda og á-
kveðið til, að annað þessara 2ja
skota hafi einnig hæft Connally.
Sum vitni hafa haldið því fram, að
þau hafi heyrt fleiri skot, en eins
og nákvæmlega er greint frá í
þriðja kafla skýrslunnar, heyrði
mikill meiri hluti vitna aðeins þrjú
skot.
Tilgáta: Sárið á hálsi forsetans
var eftir kúlu, sem kom framan
að forsetanum, samkvæmt áliti
lækna í Parkland-siúkrahúsinu.
Nefndin: Læknar á Parkland-
sjúkrahúsinu héldu því upphaflega
fram að sárið á hálsinum væri ann
að hvort eftir kúlu á innleið eða
útleið, en þeir gerðu ekki neinar
rannsóknir í þessu sambandi. En
þegar niðurstöður kiafningar lágu
fyrir, féllust læknarnir á, að sár-
ið væri eftir kúlu á útleið.
Tilgáta: Oswald gat engan veg-
inn vitað um leið þá, sem forset-
inn og fylgdarlið hans átti að fara,
áður en hann (Oswald) kom til
vinnu að morgni hins 22. nóvem-
ber.
Nefndin: Skýrt var frá leiðinni
í báðum dagblöðum Dallas þann
19. nóvember og var leiðin því
kunn a. m. k. 72 klukkustundum
áður en Oswald skráði sig til vinnu
þann 22. nóvember.
Tilgáta: Það er vitnisburður fyr-
ir hendi um, að riffill hafi fund-
izt á þaki bókageymslunnar eða á
brúnni.
Nefn-din: Enginn annar riffill
fannst á þessum stöðum, né á
neinum öðrum stað. Skotin, sem
hæfðu Kennedy og Cennally kotnu
úr rifflinum, sem fannst á 6. hæð
bókageymslunnar.
Tilgáta: Oswald gat ekki haft
tíma til allra þeirra ferða, sem
hann er sagður hafa farið frá því
hann yfirgaf bókageymsluna og
þangað til hann mætti Tippit, lög-
reglumanni.
Nefndin: Tímaprófanir sýna, að
Oswald gat farið allra þessara
ferða á þeim tíma.
Tilgáta: Jack Ruby og Oswald
sáust saman á The Carousel Club.
Nefndin: Allar staðhæfingar um,
að Oswald hafi sézt í félagi með
Ruby eða einhverjum öðrum í
The Carousel Club, hafa verið
rannsakaðar. Ekki er hægt að
leggja trúnað á neina þeirra.
Þetta er aðeins lítill hluti þeirra
spurninga, sem Warren-nefndin
svarar í skýrslu sinni.
Ef þessar tilgátur eða hugleið-
ingar eru athugaðar kemur í ljós,
að flestar þeirra ber Buchanan
fram í skýrslu sinni.
Um það verður sjálfsagt lengi
deilt, hvort nefndin hefur gefið
fullnægjandi svör við þessum og
öðrum spurningum, en hitt stend-
ur, að niðurstaða skýrslunnar er
sá sannleikur, sem bandarísk yf-
irvöld láta sögunni í té. \
Gripinn kverkataki
undir stýri
Rvík, 28. sept.
Laust eftir kl. 9 í kvöld, varð
leigubílstjóri fyrir líkamsárás,
þegar hann var að fara yfir gatna-
mót Miklubrautar og I.önguhlið-
ar. Tveir farþegar voru í bílnum
og annar mjög drukkinn. Hann
missti séneverbrúsa á gólfið og
skvettist úr honum, en bílstjórinn
fann að þessu. Farþeginn reidd-
ist þá svo, að hann greip bílstjór-
ann kverkataki og sveigði hann
aftur á bak, en hinn farþeginn
kom þá til og hjálpaði bílstjór-
anum, sem kallaði í talstöðina og
bað um hjálp. Bíllinn var frá
Bæjarleiðum, og þar heyrðist kall-
ið en stöðin hringdi til lögregl-
unnar, sem sendi menn á vett-
vang. Bílstjórinn er með áverka
eftir fantatakið og finnur til í
baki. Árásarmaðurinn verður
geymdur og kærður til sakadóms
fyrir þetta hrottalega >ig hættu-
lega tiltæki.
METÁR
Framnald aí l. sfðu.
þúsund tunnur upp í samningana.
Mjög erfiðlega gengur með söltun
fyrir austan, þessa dagana, vegna
fólkseklu.
í frystingu höfðu á miðnætti
laugardagsins farið 35.484 upp-
mældar tunnur, en i fyrra 33.424,
og í bræðslu 2.042.458 mál, en á
sama tíma í fyrra 1.149.566 mál.
Raufarhöfn er enn hæsta lönd-
unarhöfnin með 421.159 mál og
tunnur. Aðrar helztu löndunar-
hafnír, eru: — Siglufjörður 282.-
829, Vopnafjörður 221.494, Seyðis-
fjörður 408.071, Neskaupstaður
345.625, Eskifjörður 183.249 og
Reyðarfjörður 137.601
MI N N, þrlSjudaglnn 29. september 1964 t-*
MYNDAVÉLUM STOLIÐ
Framhalé al 16 stðu
sem hún stóð við Fiskverkunar-
stöð Halldórs Snorrasonar á
Gelgjutanga. í Herratízkuna á
Laugavegi var enn eitt innbrotið
framið í nótt, en þar hefur oft
verið brotizt inn upp á síðkastið.
Núna var stolið þaðan karlmanns-
ullarfrakka grágrænum að lit,
3—4 karlmannavestum með rú-
skinni að framan og prjónuðu
baki, einum Ijósum poplíns-
frakka og einum tweed-jakka núm
er 39. Frá Herratízkunni hefur
leiðin legið í verzlunina Hrund,
sem er í sama húái og þar var
brotin rúða í útihurð, en horfið
frá við svo búið.
Gleraugnaverzlunin Fókus var
fyrir barðinu á innbrotsþjófum í
nótt, og stolið var þaðan fjórum
myndavélum; tveim Biloxar 1x56
(önnur í svörtum kassa) og tveim
Bella 66 og 44. Dýrasta vélin kost-
aði kr. 1055.00, en sú ódýrasta
585.00 kr. Farið var inn í Fókus
bakatil.
Farið var inn á afgreiðslu
Fálkans (vikublaðsins), en ekki
var vitað til að neinu hefði verið
stolið þaðan.
Og svo var það útbrotið. Það var
nú ekki úr „Steininum“ heldur
út úr húsinu Aðalstræti 16 (Upp-
salir). Var brotin þar vírrúða að-
faranótt sunnudags, og farið var
út um gluggann.
Rannsóknarlögreglan biður þá, er
-kynnu að geta gefið upplýsingar
um framangreinda atburði, að
hafa samband við sig hið allra
fyrsta.
RÉTTAÐ í NJÓSNAMÁLI
«
Framhald af 1. síðu.
Jegerov, en þau voru í októ-
ber látin laus í skiptum
fyrir tvo bandaríska njósn-
ara, sem Rússar höfðu
handtekið. Er fylgzt með
þessu njósnamáli með mik-
illi eftirvæntingu í Banda-
ríkjunum,
' ■ ;----—»;--—— -----
VÍÐAVANGUR —
framtfð landbúnaðarins. Stefán
svarar m.a.:
„Ég held, að þeir hafi rétt
fyrir sér, sem telja eitt mesta
vandamál íslenzks landbúnað-
ar fjármagnsþörfina hjá frum-
býlingunum. . Ef bændur hér
hefðu sömu lánakjör og stéttar-
bræður þeirra búa við víða er-
lendis, þá væri hér öðru vísi
umhorfs. Þá gengi betur hjá
þeim, sem við jörðunum taka,
áð eignast þær. Hagstæð lán til
langs tíma — það er það, sem
vantar í okkar landbúnaði. En
það ríður á að búa svo vel að
íslenzkum sveitum, að þeir,
sem þar starfa, séu ekki með
hálfan hugann við það, hvernig
þeir geti þaðan losnað.“
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 5. síðu.
Crystal Palace—Bury 0:2
Derby—Portsmouth 4:0
Middlesbro—Ipswich 2:4
Newcastle—Preston 5:2
Northampton—Cardiff 1:0
Norwich—Leyton Orient 2:0
Rotherham—Charlton 3:2
Southampton—Coventry 4:1
Swansea—Manch. City 3:0
SwindoB—Huddersfield 4:1
Newcastle og Norwich eru
efst með 14 stig, Rotherham,
Bolton og Derby hafa 13 stig.
f Skotlandi vann Rangers
sinn fyrsta sigur í deildakeppn-
inni, sigraði Airdrie, neðsta lið
ið, sem öllum Ieikjum hefur
tapað hingað til, með 9:2. St.
Mirren tapaði enn, nú fyrir Fal-
kirk á útivelli, 2:0, og er næst
neðst með 1:0. Kilmamock sigr
aði Dunfermline með 1:0 og
hefur því sigrað í öllum leikj-
um sínum hingað tiL ^ ,
VÉLAHREEN GERNING
Vanii
menn
Þægileg
Fljótieg
Vönduð
vlnna
ÞKIF -
SimJ 21857
oe 40469
RYDVORN
Grensásvep 18 sfmi 19945
RySverfum bílana með
Tectyl
Skoðum oo stillum bílana
fliótl oo vel
BÍLASKODUN
Skúlaíiöti; 37. Sími 13-100
Trúlofunarhringar
afgrelddli samdægurt
SENDUM UM ALLT LAND
HALIDÖR
SkólavörSustig í
PILTAR,
EFÞlD EIGIÐUNIWSTUNA \ >
ÞÁ Á ÉO HRINÓANA //vÁJ
fyar/d/} tem/7Í(sio/7\
/4eWsfréet/6 \1
H JÓLB ARÐA VIÐGERÐIR
Opið aUa daga
(líka laugardaga og
sunnudaga)
frá kl. 7.30 tll 22.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h. t
Skipholti 35 Reykjavik
sími 18955.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir til barna, tengdabarna, ættingja og
vina, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og;
skeytum á sextugsafmæli mínu 22. sept. s. 1.
Stefán Sigurðsson, Ártúni.
Ég þakka ‘hjartanlega öllum er sýndu mér vináttu á
sjötugsafmæli mínu, 31. ágúst síðastliðinn, með gjöfum,
heimsóknum, skeytum, og samtölum Sérstakar þakkix
færi ég frænda mínum Halldóri Þoigrímssyni og konu
hans, Blönduósi.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnhildur Sigurðardóttir, Brekku.
Innilegar þakkir til allra þeirra er glöddu mig með
veizlu blómum og skeytum og gerðu mér daginn ógleym
anlegan.
Guð blessi ykkur >
Runólfur Sigtryggsson
Suðurlandsbraut 89.
Fósturfaöir minn,
Þorsteinn Þorsteinsson *
frá Hjörtsey,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju iaugardaginn 3. október kl.
10,30.
Hjörleifur Sigurðsson.
Eiginmaður minn
Tómas Jónsson :
borgarlögmaður
verður jarðsunginn frá Dómkirkiunni miðvikudaginn 30. september
kl. 2 e.h.
F. h. barna, tengdabarna og barnabarna
Sigríður Thoroddsen.
Hjartkær elglnmaður minn,
Valur Hlíðberg WfPfFi’frf? .fp
vélstjóri, -^rp i
lézt í Landspítalanum 28. september.
Sigríður Tómasdóttlr.
Faðir okkar,
Einar Gíslason 1
Garðsstíg 1, Hafnarfirði, andaðist 26. þ. m. að Hrafnistu.
Gísli Einarsson,
Sigurjón Einarsson.
15