Tíminn - 07.10.1964, Qupperneq 8

Tíminn - 07.10.1964, Qupperneq 8
T í M I N N , miðvikudaginn 7. október 1964 — Áfmæliskveðja til Snorra Sigfússonar Á áttræðisafmæli Snorra Sig- fússonar, fyrrv. skólastjóra og námsstjóra, streymdu að honum 'heillaóskir hvaðanæva að, enda hefur honum orðið gott til vina á löngum og giftudrjúgum starfs- ferli. Snorri Sigfússon er Svarf- dælingur að ætt og uppruna, og hefur ætíð haldið lifandi sam- bandi við átthaga sína, þótt starfs- vettvangur hans hafi löngum ver- ið annars staðar. Vinir Snorra í Svarfaðardal minntust þessara fornu og nýju kynna á áttræðis- afmæli hans og sendu honum af- mæliskveðjur, en þar sem Snorri var erlendis á afmælinu, var mér falið að koma kveðjunum á fram- færi við hann, þegar hann kæmi heim. Hafa nú allir, sem hlut eiga að máli, leyft mér að láta þær koma fyrir almenningssjónir. Nokkrir vinir Snorra í Svarfað- ardal létu gera minjagrip, sem er silfurbakki og á hann grafnar árn- aðaróskir og mynd af gamla bæn- um á Grund, sem var æskuheim- ili Snorra. Björn Halldórsson let- urgrafari gróf myndina á bakk- ann, og er það snilldarvel gert eins og sjá má á mynd þeirri, sem hér er birt. m AfmæliSkvæðið, sem hér fer á eftir, orti Haraldur Zophoníasson skáld á Jaðri. Þessum fáu línum um vinar- kveðjur Svarfdælinga til Snorra Sigfússonar vildi ég svo láta fylgja síðbúnar hamingjuóskir frá samtökum Svarfdælinga í Reykja- vík og þakkir fyrir starf hans í þágu þess félagsskapar. Kristján Eldjárn. Sraorri Sigfússon áttræður. Lúta nú í lotning ljúfar dísir svipúðgum Svarfdælingi, flytja fegurstu fyrirbænir og biðja blessunar barnavini. Brosbjartur og brátiginn í heiðurshásæti á heilladegi situr nú sannur sæmdarmaður, aldinn að árum, en ungur þó. Ungur ég segi, því andinn framsækni vakir víðskyggn enn og velsjáandi allt er til úrbóta og auðnu stefnir lýð ,og landi og líf bætir. Langt er nú síðan þú lékst þér, frændi, á gömlu Grund við „gilið'- djúpa, þar sem „lækurinn“ landi spillti, garða braut og grónar lendur. Sýndir þú Snorri snemma, að værir fallinn til forustu framar öðrum. Voru framsýni og fyrirhyggja, orð og athafnir einkennandi. Á Tjörn og Völlum, með traustum hjúum, einnig á háum Hólastóli vel og vandlpga fyrir verkum sagðir, réttsýnn, röggsamur í ráðsmannsstöðu. Óx þér árla útþrá í brjóst, ötull, áræðinn og ýturhygginn vildir af víðri veröld líta annað og meira en allur fjöldinn. Hleyptir heimdraga frá hrímlandsströnd, í söngvinahópi yfir sollinn mar. Fögur ljóð og lög léku á tungu. Gerðir frægðarför til frænda vorra. Settist síðar með sömu frændum skarpur á skólabekk, skjótur til náms. Vizku og vísdóm í veganesti fluttir heim aftur til fósturjarðar. Byrjaðir að bragði börn og ungmenni upp að fræða til orðs og gerða. Þegna þjóðar til þroska að leiða gerðir að alhliða ævistarfi Fjölvís þér forlög fyrr á ævi vísuðu veg til Vestfjarða. Varst ótrauður um árabil fræðari og forsjá Flateyringa. Réðstu í móti og reifst niður heimsku, fordóma og hindurvitni. Hefur ætíð og ævinlega miðlað málum til mannheilla Mannræktarmaður menntaslyngur, þín fræðslustörí frjó og göfug í nútíð og framtíð með niðjum þjóðar um ísland endilangt ávöxt bera. Þakkar þjóðin öll á þessum degi skýrum, skeleggum skólamanni. Sendir þér, Snorri, sínar beztu ástarkveðjur þín ættarbyggð. djúp Er nú á nírætt nökkva þínum gunnreifur hrindir, hin góðu regin standi við stjórnvöl og stýri fleyi heilu í höfn til hinztu varar. Veit ég, þér veita hin vísu goð: að andskyggn áfram í öðru lífi sæll að eilífu sitja megir við Mímisbrunn menntafræða. Haraldur Zophoníassoti „ÚRKYNJUD" UST NÚ EFTÍRSÓTT UM ALLAN HEIM - TIL SÝNIS HÉR GRAFLIST eða svartlist er sú listgrein, sem við þek'kjum allt of lítið til á sýningum hér- lendis. Þeir eru undarlega fá- ir íslenzkir listamenn, sem leggja þesas listgrein fyrir sig. En þessa dagana gefst tæki- færi til að kynnast verkum eins hinna sérkennilegustu svartlistarmanna á meginlandi Evrópu, þýzka málaranum Hap Grieshaber, sem sýnd eru all mörg verk eftir í Handíða- og myndlistaskólanum, Skipholti 1 til næstu helgar, fjörutíu tré ristumyndir. Einu sinni áður hafa fáeinar myndir eftir þenn an listamann sézt hér opinber- lega, á samsýningunni „Þýzk svartlist á 20. öld“, sem hald- in var hér í Listarnannaskál- anum 1953. Hap Grieshaber er óvenjuleg ur persónuleiki og sérstæður listamaður. Verk hans voru flokkuð undir svonefnda „úr kynjaða list“ þegar nazistar brutust til valda í heimalandi hans, og fór hann að vissu leyti huldu höfði á meðan veldi þeirra stóð. Sem listamað ur gat hann ekki starfað. opin- berlega, hann stundaði hvaða vinnu, sem til féll, þar á með- al blaðasölu. En „neðan jarð- ar“ prentaði hann flugrit gegn kúgurum sínum. Um skeið var hann þvingaður til vinnu í kola námunum. Grieshaber var upphaflega prentari að iðn, en ungur fékk hann áhuga á svartlist, og eink- um tréristum sem hann síðar einbeindi sér meira að en nokkur listamaður annar, og enda urðu þau verk hans ein- stæð. Átthagar hans í grennd við Stuttgart hafa líka alið kunnari listamenn á þessu sviði en önnur héruð Þýzka- lands. Grie'shaber hafði sér- menntað sig á skólum í Stutt- gart og London áður en hann var sviptur frelsi sem listamað ur. En það var ekki fyrr en og að stríði loknu, sem hann eftir að veldi nazista hrundi sat helgað sig list sinni á ný Tréristumyndir hans eru ein stæðar fyrir það. hve stórar bær eru, því enginn svartlist- armaður hefur ráðizt í að gera svo stórar tréristumyndir. — Meðalstærð þeirra er lxl metri, og ekki var hægt að fá öllu stærri myndir en það á sýninguna hér. En Grieshaber hefur gert allt að þriggja metra háar myndir. En ekki eru til það stórar svartlistar- pressur, að hann geti þrykkt myndir sínar í þeim. Og segir hann sjálfur, að hann verði að vinna það verk „á þann frum- stæða hátt að þrykkja myndirn ar af blokkinni með trésleif, öllum fagurkerum og kopar- stungusöfnum til hrellingar". Sú aðferð veldur því, að hann gerir aðeins fáeinar prentanir af hverri mynd Flest verka hans eru samt tréristulitmynd ir, og verður hann að rista þær með mörgum blckkuim. Myndir hans eru ekki list listarinnar einnar vegna, heldur hafa þær boðskap að flytja, hann tekur ákveðna afstöðu til lífsins og vill örva hug áhorfandans til að vakna og taka afstöðu líka. Þó er talsverður munur á myndum hans af mönnum og dýrum. Hinar fyrrnefndu eru miklu grófgerðari, en dýra- myndirnar aftur á móti iðu- Framhald . a dðu i3 Listamaðurinn á íslonzkan hest, en þessi mynd ei úr myndaflokki, sem hann nefnir „Páskareið".

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.