Tíminn - 16.10.1964, Page 1
Framsóknarmenn leggia fram frumvarp um álögurnar í ár
Tekjuskattur lækki um 7 þús.
á mann og útsvörin um
20%
TK-Reykjavík, 15. okt. — Ákveðið hefur veriS í þingflokki Framsóknar-
flokksins að leggja fram frumvarp til laga um lækkun skatta og útsvara
einstaklinga, sem lagðir hafa verið á á þessu ári. Frumvarpið verður
lagt fram í neðri deild og verður framsögumaður þess Einar Ágústs-
son. Frumvarpið mun kveða á um þessi meginatriði:
-Ar Allur tekjuskattur lagður á einstaklinga á árinu 1964 skal lækk-
aður um 7 þús. krónur á hvern gjaldanda, en tekjuskattur lægri en 7
þús. kr. falli alveg niður.
Ár Öll tekjuútsvör, sem lögð hafa verið á einstaklinga á þessu ári,
skulu lækkuð um 20%.
Ár Jöfnunarsjóður sveitarfélcfga skal bæta sérhverju sve'itarfélagi þann
tekjumissi, sem af útsvarslækkuninni hlýzt, en ríkissjóður leggi Jöfn-
unarsjóði til það fjármagn, sem hann þarf í þessu skyni.
Sérstök rannsókn fari fram á skattaframtölum ársins 1964 og henní
beint fyrst og fremst að framtölum, sem sérstaklega þykja varhugaverðjí
en auk þess fari fram úrtaksrannsókn á 3% framtala bókhaldsskyfdra
aðila og 2% annarra framtala, dltir reglum, er Hagstofan setur.
■Á Þá eru í frumvarpinu ákvæCi um að 7 manna þingkjörin nefnd
geri tiílögur um framtíðarskipan skatta- og útsvarsmála og leggi þær
fyrir yfirstandandi þing.
SÍÐUSTU FRÉTTIR KLUKKAN 1: 236 ÞINGMENN 168 0G 2
Horfur eru á sigri
Verkamannaflokksins
NTB.-London, 16. október. dæmum af 630 í Bretlandi, og
Klukkan rúmlega 1 i nótt hafði þá Verkamannaflokkur-
var lokið talningu í 407 kjör-'inn fengið 236 þingmenn.
íhaldsf lokkurinn 168 þing-
menn, Frjálslyndir 2 og aðrfr
flokkar 1 þingmann. Allt frá
LeiStegar brezku stjórnmálaflokkanna þriggja, f.v.: Harold Wilson, leiðtogi Verkamannaflokksins; Alec
Douglas-Home, leiðtogi íhaldsflokksins, og Jo Grlmond, leiðtogi Frjálslynda flokksins. MYNDIN er tekln í
M-nsion House nýlega, en þar sátu þelr miðdegisverð i boði borgarstjóra Lundúna í sambandi við söfnun i
minningarsjóð um Kennedy forseta.
því talning hófst var fram-
gangur Verkamannaflokksins
greinilegur, og rafeindaheili
Reuters spáir því, að flokkur-
inn fái 26—29 þingmanna
meirihluta.
Snemma í nótt hafði Verka-
mannaflokkurinn unnið 45
þingsæti, ihaldsmenn tapað
42 og frjálslyndir tapað 2, og
eftir því sem teið á nóttina,
vann Verkamannaflokkurinn
fleiri og fleir þingsæti. Meðal
þeirra þingmanna íhalds-
manna, sem féllu í kosning-
unum, var póstmálaráðherr-
ann, J R. Bevins. Þingmenn
haldsmanna unnu þingsæti
! sín yfirleitt með mun minni
meirihluta atkvæða en í kosn-
ingunum 1959.
Talning atkvæða byrjaði strax
og kjörstöðum var lokað klukkan
Framh. ð 15. sfðu
HAROLD WILSON