Tíminn - 16.10.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.10.1964, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 16. október 1964 TJMINN 9 GUNNAR BERGMANN Heimspeki gagnleg bæði ungu fólki og stjórnmálamönnum Eln af nýbyggingum Edlnborgarháskóla, skýrð eftir David Hume (David Hume Tower), skozka heimspekingnum, sem Páll S. Árdal reit doktorsritgerð um og veitti fulla uppreisn æru. Nær stendur svo heimspekingurinn dr. Páil, sem nú hefur vinnustofu á tíundu hæð turnsins. (Ljósm.: GB). lífið sé í rauninni sálfræðirit, sem heimspekingar þurfi ekki að gefa mikinn gaum, hún birti sálfræðiskoðanir manns á 18. öld sem séu auðvitað úreltar. En það sem ég leitast við að sýna fram á í doktorsritgerð minni er það. að dómur seinni tíma manna séu á misskilningi byggðir, fullyrðingar Hume’s um eigin rit hafi ekki verið annað en bragð hans til að fá fólk til að kaupa síðustu bók- ina. Einnig, að það séu ákveðn ar hugmyndir í bókinni um til finningalífið. sem séu ómiss- andi til að skilja það sem Hume segir um siðfræðileg efni, bækurnar séu raunveru lega hugsaðar saman, þannig að Hume sé að sýna fram á, hvaða sess megi skipa gildis mati sem hluta af tilfinninga lífi manna. Hann fjallar mikið um kenndir svo sem ást og hatur, og þetta tvennt eru frum stæðar tilfinningar, sem að mín um dómi gildismat sprettur upp af. Ég held því fram i ritgerð minni, að miðbókin sé nauðsynleg til að skilja kenn ingar Hume’s um gildismatið. sem sé ein hlið á tilfiuninga lífinu, en samt beri þetta ekki að telja sálfræðikenningar. heldur byggist allt á heimspeki legri innsýn. — Úr því þú talar um, að menn hafi rugiað saman reit um heimspeki og sálarfræði. langar mig til að spyrja, hevr sé munurinn á þessu tvennu — Að áliti flestra brezkra heimspekinga hefur sálfræðingN ur það hlutverk að reyna að uppgötva, hverjar séu orsakir ýmissa fyrirbæra i tilfinninga lífinu. Aftur á móti eru heim spekingar að reyna að grafast fyrir um eðli hugtakanna, sem við notum. Tökum t.d. afbrýði semi. Sálfræðingurinn mundi helzt leita að orsökum fyrir að menn verða afbrýðissamir. En ef heimspekingurinn fær áhuga á afbrýðissemi, þá reyn ir hann að sýna fram á, hvaða skilyrðum þarf að vera fuli nægt til að rétt sé að kalla eitthvað afbrýðissemi. Það sé ekki aðeins heiti á einhverju, , sem gerist innra með mannin • um, heldur þurfi að vera viss ar aðstæður fyrir hendi til að rökrétt sé að kalla einhvem afbrýðissaman. Setjum svo, að maður sé einhvers staðar stadd- ur með konu sinni og annar maður sýni henni of mikið Framh. á 7. síðu. | í hópi kennara við Edin- borgarháskóla eru tveir fs- lendingar, að vísu menn á létt asta skeiði, en þótt Pitkin próf essor mundi taka svo til orða, að þeir væru nú bara rétt ný- byrjaðir að lifa lífinu; þá vilj um við ekki, fyrir æsku sakir þeirra, láta dragast úr hömlu að sækja þá heim. því grun höfum við um, að þeir geti miðlað söguþyrstum ferðalang nokkrum fróðleik. Þegar ég fékk heimilsfang Hermanns Pálssonar háskóla kennara, Royal Terrace Mews, fannst mér það að vísu dá- skrýtið en vildi þó ekki taka það of bókstaflega að óreyndu. Samt kom það á daginn, er ég hafði loks fundið staðinn eftir langa leit, að hann ber nafn með rentu, maðurinn býr í hesthúsi! Raunar er nokkuð um liðið síðan fákar voru leidd ir að stalli, en samt tíðkaðist fram á þessa öld, að heldra fólk Edinborgar færi ferða sinna um í hestvögnum um borgina. Á þessum stað, þar sem Hermann býr, eru nokk ur hús sambyggð, tvílyft, og voru hestur, aktygi og vagn geymt niðri, en á loftinu var heyhlaða. Enn sem komið er býr Hermann aðeins í heyhlöð unni, sem þau hjónin hafa inn réttað mjög smekklega, en eft- ir er að innrétta sjálft hest- húsið. Þessi hús voru eftir- sótt til íbúðarkaups, enda er staðurinn ljómandi skemmti legur uppi í brekku Calton- hæðarinnar miklu, þar sem sér vítt yfir hina fögru borg. Her- mann Pálsson var fyrsti ís- 'enzki kennari við Edinborgar- háskóla og hefur nú kennt þar íslenzk fræði í fjórtán vetur Hann varð þar á undan fyrstur nútíma íslendinga til að nema írsku, gelísku og forn keltnesk fræði, og hefur ritað þó nokkr ar bækur og þar á meðal ís lenzkað þjóðsögur frá frlandi og kvæði frá Suðureyjum Þeg ar ég ámálgaði að fá viðta) handa Tímanum, bað hann mig að hafa sig afsakaðan því ekki væri svo langt um liðið síðan þar hafi birzt viðtal við sig, og nú væri hann nýkominn heim an af Fróni. Það væri nær fyrir mig að fara til dr. Páls Árdals og eiga viðtal við hann. Eg kvaðst hafa ætlað að gera það hvort eð var og spurði hvernig honum líkaði heima í saman- burði við að dveljast með Skot um og hvort hann hefði fylgzt eitthvað með nýjum menning arstraumum eins og t.d. sjón varpinu á íslandi. „Það situr ekki á mér að vera að fetta fingur út í það, sem er að ger ast heima. Mér finnst ég vera með yngri mönnum. Og þó hef ur hugsunarháttur breytzt svo ceiknarlega mikið heima, að það sem þóttu sjálfsagðar lyggðir í mínum ungdómi, er nú í margra augum heldur gamaldags mórall. Ótrúlega mörgum þykir það nú ekkert tiltökumál að svíkjast undan skatti, að það er mörgum metn aðarmál og hreystidáð, en þótti fremur löstur í minni sveit. Og annað kemur mér í hug, þessu skylt að vissu leyti, það er í sambandi við sjónvarpið og þó ætla ég alls ekki að fara að tala um sjónvarp. Menn heima sá ég og heyrði halda því fram alveg blákalt, að auð vitað ættum við að taka amer íska sjónvarpinu fegins hendi á meðan við þyrftum ekki að borga neitt fyrir það! Eg get ekki annað sagt en það sé orð- ið meira en lítið bogið við siðferðiskennd landa minna sem hugsa þannig, meta allt í krón um og dollurum. Ekki svo meia um það.“ Hermann var all bóndalegur á hlöðutröpp unum þegar ég hafði kvatt hann og horft um öxl, og mig langar til að heimsækja hann næst þegar ég verð þar á ferð, og sjá hvernig honum gengur að innrétta hesthúsið. Páll S. Árdal er enn ungur maður, og samt alllangur tími síðan hann lauk heimspekinámi þá ekki fyrr kominn úr tölu skólasveina en hann gerðist þar lærimeistari og vann jafn- framt að því verki að skrifa doktorsritgerð, er hann nú full gildur doktor í heimspeki. Eg fór á hans fund m. a. til að ganga úr skugga um það, hvort heimspeki ætti virkilega erindi við fólk á miðri 20. öld. — Hafa aðrir íslenzkir stúd entar en þú tekið sér fyrir hendur að nema heimspeki hér en þú, dr. Páll? — íslenzkum stúdentum hef ur farið jafnt og þétt fjölgandi hér síðustu árin, þeir eru nú líklega mitt á milli 10 og 20. Sumir þeirra taka eitthvað í heimspeki sem undirbúnings eða aukagrein svo sem hluta af húmanískum fræðum, en sára fáir stúdentar, hérlendir eða erlendir. velja heimspeki sem aðalnámsgrein. Við erum að- eins tveir íslenzkir stúdentar, sem höfum lokið heimspeki prófi hér, hinn var Gunnar Ragnarsson, kom nokkuð á eft ir mér, og hann er nú kennari heima á íslandi. Og hér var i kynnisdvöl í fyrravetur Guð mundur Lárusson (skákmaður inn ungi), sem er annars við heimspekinám í Kaupmann hafnarháskóla. Af öllum þeim fjölda stúdenta. sem hér ljúka háskólaprófi á vori hverju, eru aðeins örfáir í heimspeki, lík lega að meðaltali fimm á vori, þó aðeins tveir vorið sem ég lauk prófi. en það var með al fæsta móti. Hins vegar er mikið hér um kennslu í heimspeki. við erum mjög margir kennar ar hér í þeim fræðum, það er gömul siðvenja í skozkum há- skólum, rótgrónari hér en i flestum löndum öðrum, að flestir stúdentar nemi þó nokk uð í heimspeki, hver svo sem sérgrein þeirra er. Þetta er áþekkt forspjallsvísindakennsl unni svonefndu í Háskóla ís- lands, nema að hér er öllum kennt miklu meira í heimspeki einkum þeim, er nema húman- ísk fræði. Þetta er sérstakt um skozka háskóla og mjök frá- brugðið því, sem tíðkast í Eng landi. Heimspekin hér skiptist raunar í tvær deildir, rökfræði frumspeki og siðfræði. — Hvað valdir þú fyrir sér grein innan heimspekinnar, eða um hvað fjallaði doktors ritgerð þín? — Eg byrjaði að skrifa um efni, sem ég hætti svo við. Þá tók ég mig til og fór að kryfja til mergjar nokkra þætti í heimspekikenningum David Hume, sem er frægasti heimspekingur í sögu Skot- lands og var uppi á Úr þessu varð til doktorsrit- gerð mín, sem nefnist „David Hum’s Theory of Value“ eða „kenning Hume’s um gildi“. Eg vann lengi að ritgerðinni, var farinn að kenna, þegar ég byrjaði á henni og tók mér nægan tíma til að velta efn- inu fyrir mér. — Hverjir eru aðalþættir kenningum þessa manns? — Það, sem ég reyni að sýna fram á í ritgerð minni er það, að ákveðinn hluti af verkum Hume’s hafi ekki verið metinn að verðleikum. Þannig er mál með vexti, að ungur að árum reit Hume mikið verk, er nefn ist „Treatise of Human Nature" eða „ritgerð um mann legt eðli“. Allt verikð er í þrem bókum. Hin fyrsta er um þekk ingarfræðileg efni og hafa heimspekingar mikið rætt um hana og ritað. Önnur bókin heitir „The Passions,“ það er ástríðurnar, kenndirnar, fjallar um tilfinningalífið. Þeir sem ritað hafa um heimspeki Hume’s, hafa gefið þeirri bók furðu lítinn gaum. En þriðja bókin í þessu mikla ritverki hans snýst um siðfræðileg efni Heimspekingar seinni tíma, sem ritað hafa um þetta verk Hume’s, hafa haldið því fram. að önnur bókin sé nauðsynleg til að skilja fyrstu bókina, en ekki þá þriðju. Ástæðuna fyrir þessu má rekja til þess. að Hume gaf fyrri bækurnar út saman, en fannst þeim 'ekki nógu vel tekið Þegar hann gaf svo út þá þriðju, lét hann i veðri vaka, trúlega mest í augl lýsingaskyni fyrir henni að ekki væri nauðsynlegt að kunna skil á öllu í fyrri bókun um til að skilja efni þeirrar þriðju Þetta hafa menn tek ið of bókstaflega og margir talið, að bókin um tilfinninga

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.