Tíminn - 16.10.1964, Page 3

Tíminn - 16.10.1964, Page 3
FÖSTUDAGUR 16. október 1964 TÍMINN urs og vesturs. Sem stendur lítur Jf út fyrir það, að orsökin fyrir þess ari breytingu í Sovétríkjunum standí í sambandi við misklíð Sov étríkjanna og Kína. f Washington er talað um það, að Leonid Bresjnev, sem tekur við ritarastöðunni, sé þekktari á Vest urlöndum en Aleksej Kosygin, sem verður forsætisráðherra. Báð ir eru álitnir sannir fulltrúar stjórnmálastefnu Krústjoffs. Johnson forseti áformaði að hitta Krústjoff í byrjun ársins 1965. Nú sjírður hann að öllum líkindum, tlH tKvega sér nýjar upplýsingar um fyrlrmenn Sovétríkjanna, áður en frekar verður af þessari hug- mynd. Hann hefur sagt í einni kosningaræðu sinni, að hann sé fús til að ferðast hvert sem er og tala við hvern sem er, ef það sé í þágu friðarins. í London hafa þessar fréttir frá Moskvu vakið mikið umtal og óróa meðal stjómmálamanna. Ekki hefur þar verið gefin nein skýring á þessum breytingum. Stjórnmálasérfræðingar þar benda á, að útnefning hinna tveggja nýju manna í stöður Krústjoffs virðist ekki ætla að hafa í för með sér neinar stór- vægilegar breytingar á utanríkis- pólitík Sovétríkjanna. Einnig telja þeir ótrúlegt, að mannabreyt ingar þessar hafi nokkur áhrif á afstöðu Sovétríkjanna til Kína. Fréttin um Krústjoff kom ráð- andi stjórnmálamönnum í Frakk landi algjörlega á óvart. Settur utanríkisráðherra, Louis Joxe átti einkasamtal við forsætisráð- herrann, George Pompidou, strax og fréttin hafði borizt til Frakk- lands. f París var mikill mann fjöldi á götunum og voru flestir að tryggja sér eintak af kvöld- blöðunum, sem ekkí höfðu misst af fréttinni. í Júgóslavíu kom fregnin utn forsætisráðherraskiptin einnig eins og þruma úr heiðskíru lofti. Fréttin vakti þó ekki neinn óróa í landinu, því' hinn nýi rítari, Bresjnev, nýtur mikils álits í Júgóslavíu. Ekki bindandi fyrir ASÍ né BSRB EJ-Reykjavík, 15. október. í BLAÐINU í dag var sagt frá niðurstöðum nefndai þeirrar, sem leita átti lausnar á þeim vanda- málum, sem skattaálagningin 1964 hefur skapað, en tillaga nefndar- in-nar var að veita eins konar kreppulán. ASÍ og BSRB áttu báðir full- trúa í þessari nefnd, en blaðið hefur sannfrétt, að þessi samtök telji sig á engan hátt bundin við nefndarálitið, enda sé það aðeins skoðun nefndarmanna, og muni j þessi samtök því halda áfram að . leita samninga um leiðréttingu á skattaálagningunni. Þórarinskvöld í tilefni af fimmtugsafmæli Þór- arins Þórarinssonar ritstjóra og al- þingismanns efna Famsóknarfélög- in í Reykjavík til skemmtikvölds (Þóarinskvölds) í Súlnasalnum á Hótel Sögu, fimmtudaginn 22. októ ber n.k. kl. 8:30 s.d. Boðsmiðar verða afhentir á skrifstofu Framsóknarflokksins, Tjarnargötu 26. Tryggið ykkur miða sem fyrst í símum 1—5564 og 1—6066. Sagði margt satt um sjálfan Stalín Krústjoff fæddist 17. apríl í þorpinu Kalinovka, sem er á landamærum Rússlands og Úkr aínu. Faðir hans var námu- verkamaður. Krústjoff naut ekki mikillar menntunar í æsku og fór ungur að vinna fyrir sér, fyrst sem fjárhirð ir en síðar sem iðnverkamað- ur. Þegar byltingin fór sem eldur í sinu um Rússland árið 1917 gekk hann í Rauða her- inn í borginní: Yuzkova (nú Donetsk) og gekk í kommún istaflokkinn árið 1918. Næstu þrjú árin tók hann virkan þátt í borgarastyrjöldinni, en starf hans þar var þó fremur stjórn málalegs eðlis en hernaðar- legs. Er stríðinu lauk, 1921, hvarf hann aftur að störfum sínum sem iðnverkamaður í Yuzkova. í órslok 1922 innrit- aðist hann í verkamannaskóla til að auka menntun sína og var í honum í þrjú ár. Jafn- framt náminu var hann ritari í kommúnistafélagi skólans. Er hann hafði lokið námi sínu helgaði hann stjórnmálunum í Yuzkova alla krafta sína. Um mitt árið 1927 varð hann for- maður flokksráðsins í Yuzkova og kosinn fulltrúi á tíunda flokksþing kommúnistaflokks Úkraínu. 1928 varð hann rit- ari flokksráðsins í Kíev, en ári síðar var hann vaiínn til þess að fara á Iðnháskólann í Moskvu, þar sem hann var rit- ari flokksdeildarinnar. í janú- ar, 1931, útskrifaðist hann úr skólanum og var hann þá kos inn fyrsti ritari flokksdeildar í einu hverfi Moskvu, og með limur flokksráðsins í Moskvu. Árin 1932—34 var hann ann ar, og síðar fyrsti rítari komm únistaflokksdeildar Moskvu- borgar og 1935 varð hann aðal- ritari flokksdeildarinnar í Moskvuhéraðinu* og því starfi gegndi hann til ársins 1938. 1934 var hann kosinn í mið- stjórn kommúnistaflokks Sov- étríkjanna og árið 1937 var hann fyrst kjörinn í æðsta ráð ið. Árið 1938 sendi Stalín hann til Ukraínu og gerði hann að aðalritara kommúnistaflokks- ins þar, en þar stóðu þá yfir umfangsmiklar „hreinsanir“. Árið 1939 var hann svo kjörinn í framkvæmdastjórn Kommún istaflokksins og var hann þar með orðinn einn af valdamestu mönnum Sovétríkjanna. Krústjoff var í Ukraínu þeg ar síðari heimstyrjöldin brauzt út, og stjórnaði innlimun hluta af Póllandi samkvæmt samn- ingunum við Þýzkaland, og svo, eftir innrás Þjóðverja flutning unum á iðnaðarfyrirtækjum frá Ukraínu austur á bóginn. Hann var í herráðinu sem hafði með að gera vestur og suðvestur vígstöðvarnar, stjórnaði skæru hernaði að baki þýzku víglín- unnar í Ukraínu og tók virkan þátt í bardögunum um Stalin- grad. Hann var aldrei í varnar málanefnd ríkisins í Moskvu. Eftir að þýzki herinn hafði verið rekinn út úr Kiev í nóvember 1943 tók Krustjoff í sínar hendur stjórnartaumana og stjórn flokksins í Ukraínu. Fyrir utan stuttan tíma frá marz til desember 1947, sem hann var forsætisráðherra Ukr aínu var hann aðalritarí flokks ins þar fram til desember 1949. Hann bætti efnahag Ukr aínu og bældi niður alla and- spyrnu gegn Sovétstjórninni. í desember 1949 var Krúst joff kallaður aftur til Moskvu til þess að verða þar aðalritari aftur í héraðsráði flokksins og meðlimur framkvæmdastjórnar flokksins. Á 19. flokksþinginu í október 1952 gaf hann skýrslu um skipulagningu og var tekinn í framkvæmdastjórn ina og miðstjórnina. Þegar Stalín dó í marz 1953 var Krustjoff áfram í hinni samvirku forystu, sem tók við stjórninni, en hann virtist ekki í fyrstu vera eínn af aðalmönn unum, sem leituðust við að ná völdum eftir Stalín. Á með- an Malenkov var gerður að forsætisráðherra var Krúst- joff falið að stjórna flokknum, og var gerður að aðalritara hans í september 1953. Næstu árin kom hann á mörgum viða miklum breytingum bæði í inn anríkis- og utanríkisstefnunni, sem urðu til þess að til átaka kom mílli hans og annarra flokksmanna. Á miðju ári 1955 var auðséð, að hann sótt ist eftir æðstu völdum og í júlí fór hann með Bulganin til Gen.'ar á fund æðstu manna, en Bulganin hafði tek- ið við forsætisráðherraembætt inu af Malenkov. Á lokuðum fundi á 20. flokks þinginu 25. febrúar 1956 lýsti hann yfir vanþóknun sínni á öllum gerðum Stalíns á síðustu árum ævi hans. Á árunum 1956 og 1957 fór hann nokkrum sinn um úr landi meðal annars í heimsóknir til Asíu og Stóra- Bretlands. Á miðstjórnarfundi í júní 1857 komust átökin milli fldcksleiðtoganna á hápunkt- inn og tilraun var gerð til þéss að bola Krústjoff frá völdum í flokknum, en hon- um tókst að ná stuðníngi og tryggja í staðinn að andstæð- ingar hans Molotov, Malenkov og Kaganovich yrðu reknir úr miðstjórninni. Þess í stað kom hann á stjórnartíð Zhuk- ovs, varnarmálaráðherra og nokkurra annarra þýðingar- minni manna. í marz 1958 tók hann við embætti forsætisráð- herra auk annarra starfa sinna og útlit var fyrir að honum mættí engin andstaða sem stjórnandi Sovétríkjanna. Krústjoff fór nú að taka enn virkari þátt í utanríkismál um. Hann fór tvisvar til Pek ing og að minnsta kosti einu sinni til allra höfuðborga kommúnistaríkjanna í austri. í september 1959 fór hann í opinbera heímsókn til Banda ríkjanna og ávarpaði allsherjar þing Sameinuðu þjóðanna og talaði um afvopnun. í maí 1960 tók Krustjoff þátt í ÞESSI MYND er tekin af Krústi- off (fremstur í miðið), þegar hann var fimmtán ára. Þá var hann iðnverkamaður og vann í vélaverksmiðju í Ukrainu. fundi æðstu manna í París, sem bar ekki neinn árangur. Þegar hann sá, að ekki myndi takast að fá vesturveldin til þess að ganga að því að gera friðarsamninga við tvö þýzk ríki —- og þar að auki frjálsa borg Berlín — lét hann skjóta niður bandaríska flugvél í nánd við Sverdlovsk og batt með því enda á fundinn. Enda þótt hann hefði allt frá nóv- ember 1958 lagt áherzlu á nauðsyn þess að samkomulag yrði gert um Þýzkaland á þann hátt sem hann sjálfur vildi, sneiddi hann hjó því að láta koma til alvarlegra átaka út af Berlín. í júní 1961 hitti hann Kennedy forseta í Vín, en ekkert samkomulag náðist um þýzka friðarsamninga. Svar hans við afstöðu Kennedys í Vín var að láta reísa Berlínar- múrinn í ágúst 1961. Krústjoff var tvígiftur, fyrst 1918 og í annað sinn 1929. Með fyrri konu sinni átti Krústjoff son, sem dó í síðari heimstyrj öldinni og eina dóttur. Með síðari konu sinni Nínu Petr- ovna átti hann son og tvær dæt ur. Honum voru veittar ýms- ar viðurkenningai Sovétríkj- anna þar á meðal Lenin-orðan, Lenin friðarverðlaunin og tit- illinn Hetja sósíalistaverkalýðs- ins. FALLIN STJARNA RISIN Alexei Nikolajevitsj Kosygin er 60 ára gamall og var áður varaforsætisráðherra. Hann fæddist í Leningrad og var faðir hans verkamaður. 15 ára gamall gekk hann í Rauða her inn, og 1927 gekk hann í Kommúnistaflokkinn. Kosygin lauk námi sínu við vefnaðar- stofnunina í Leningrad 1935, og stjórnmálaferill hans hófst fyrir alvöru þegar hann var kjörinn í miðstjórn flokksins árið 1938. Hann hefur veitt forstöðu ýmsum ráðuneytum, t. d. fjármálaráðuneytinu 1948, ráðuneyti því, sem fer með mál hins létta iðnaðar 1948— 53 og ráðuneyti neyzluvöruiðn aðarins 1953—54. Eftir síðari heimstyrjöldina var hann náinn samstarfsmað- Alexei Kosygin, forsætisráðherra ur Stalíns og var gerður að varaforsætisráðherra án emb ættis og kjörinn í framkvæmda stjórn flokksins. Þegar Molotov og Malenkov voru ásamt félögum sínum reknir á dyr árið 1957 hófst stjarna Kosygins ört að hækka. Hann var settur í framkvæmdastjórn miðstjórn- arinnar, en þaðan var hann fjarlægður árið 1953, og árið 1959 varð hann forsetí í GOS PLAN — þá stofnun Sovétríkj anna sem hefur með efnahags lega skipulagningu að gera, og sem slíkur fór hann með Krústjoff til Frakklands árið 1960. 5. maí 1960 lét hann af þessu starfi og var, ásamt An astas Mikojan, gerður að fyrsta varaforsætisráðherra. Síðan hefur hann verið talinn hinn raunverulegi stjórnandi iðnþróunar Sovétríkjanna, og fékk hann m. a. það verkefni að hafa eftirlit með öllum þeim ráðuneytum og deildum, sem starfa að iðnaðarmálum — að hergagnaiðnaðinum undan skildum. Á sextíu ára afmæli sínu 20. febrúar s. 1. var Kosygin gerð ur að Hetju vinnunnar, og hann fékk einnig Leninorðuna og gullorðu hamarsins og sigð arinnar fyrir störf sín. Kosygin er talinn einna fær- astur rússnesku leiðtoganna á sviði efnahags- og skipulags- mála. Þeir, sem honum hafa kynnzt, telja hann mikinn gáfu mann, slyngan og glöggskyggn an. í ytra útliti minnir Kosyg in ósjálfrátt á frumbýling, sem orðinn er auðugur, og hann er talLnn hafa meiri áhuga á efna hagsmálum en stjórnmálum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.