Tíminn - 20.10.1964, Blaðsíða 1
Þingvallahraun 90 alda gamalt
MB-Reykjavík, 19. okt.
„Um hvað reiddust goðnn þá
er hér brann hraunið, er nú stönd
um vér á“ spurði Snorri goði forð
"• i iiiTiiiii-iMBiíwiiwnm——pr
JATAD AÐ
LEIFUR VAR
ÍSLENZKUR
um, þegar deilt var um það á
Alþingi við Öxará, hvort kasta
skyldi fornri trú og taka við
kristni. Ekki hefur þessari spurn
ingu enn verið svarað, en nú hefur
verig rannsakað, HYENÆR hraun
ið brann, og síðan eru liðin um
níu þusund ár.
Frá þessu er sagt í nýútkomnu
hefti af Náttúrufræðingnum, en
í því er sagt frá svonefndum Kar-
bón fjórtán mælingum til aldurs
ákvörðunar á íslenzkum hraunum
og jarðvegi. Ekki verður hér skýrt
frá því, í hverju þessar mælingar
eru fólgnar að öðru leyti en því,
að mæld er geislavirkni kolefnis
í hlutunum af lífrænum uppruna,
eða öllu heldur hlutfallið milli
geislavirks og venjulegs kolefnis í
þeim. Mælingar þessar eru gerðar
erlendis og hafa allmörg sýnis
horn þegar verið send út til aldurs
ákvarðana.
Niðurstöður allra þessara rann
sókna eru birtar í þessu aýjasta
hefti Náttúrufræðingsins, sumar
í fyrsta sinni, þar á meðal er rann
sóknir á aldri Þingvallahrauns, en
Guðmundur Kjartanssoa sendi út
sýnishorn af jurtaleifum er hann
fann í þunnu moldarlagi undir
hrauninu við útfall Sogsias. Niður
Framh. á 7. síðu.
Mynd þessi er sú síðasta sem tekln hefur veri8 af Krústjoff. Hún er tekln
eftir sjónvarpssendingu á mánudag frá Krim. Hann er þarna aS tala
v!8 geimfarana þrjá er voru þá á lofti, en samtali hans lauk með orðunum:
„Nú rífur Mikoyan af mér símann". ÞaS eru síðustu orðin sem heimur-
inn heyrði frá honum.
NTB-Washington, 19. okt.
Bandarískir embættis-
menn viðurkenndu í dag, að
þeir hefðu haft rangt fyrir
sér, er þeir töldu Leif
Eiríksson vera Norðmann.
Hinn níunda október síðast
liðinn var Leifur Eiríksson
heiðraður í Bandaríkjunum
og í tilefní dagsins gaf
norska stjómin bandarísku
þjóðinni gamla víkingaöxi.
í tilefni dagsins gaf banda-
ríska utanríkisráðuneytið út
fréttatilkynningu, þar sem
sagði, að Leifur Eiríksson
hefði verið fæddur í Nor-
egi.
íslenzka ríkisstjórnin hef-
ur nú sent bandarískum yf-
irvöldum greinargerð, þar
sem færðar eru sönnur á
það, að Leifur Eiríksson er
fæddur á íslandi og að faðir
hans hafi flutzt á unga aldri
frá .Noregi til íslands. Ráðu
neytið hefur nú viðurkennt
opinberlega að þetta hafi
verið mistök og segíst vona,
að þetta valdi ekki neinum
leiðindum á íslandi.
Forustugrein norska blaðs
ins Verdens Gang fjallar í
dag um stríðið um Leif
Eiríksson. Segir í leiðaran-
um, að Norðmenn þurfi að
gæta þess í framtíðinni, að
tíleinka sér ekki það, sem
í raun og veru sé íslenzkt.
Blaðið segir orðrétt:
„í einstaka tilfellum er
mjög erfitt að greina á milli
þess, sem er íslenzkt og
sem er norskt. Svo er til
dæmis um hin frægu Eddu
kvæði. En það er staðreynd,
sem ekki er hægt að hrekja,
að Leifur Eiríksson er fædd
amhald á 2 síðu
Mikoyan er talínn hafa
rutt Krústjoff f rá völdum
Reykjavík — Moskva — NTB, 19. október.
Leonid Bresnév, hinn nýi aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, hélt í dag sína
fyrstu opinberu ræðu á Rauðatorginu í Moskvu í sambandi við móttöku geimfaranna
þýðingarmikíð hlutverk sem sátta-
semjari milli Moskvu og Peking
á bak við Krústjoff, en með bein-
um stuðningi Mikoyans og jafnvel
þriggja, og voru með honum hinir nýju stjórnendur í Kreml, sem nú komu í fyrsta sinn; með stuðningi Kosygins, núver-
fram opinberlega. 50.000 manns söfnuðust saman á torginu og hylltu Bresnév, sem | f ”amt f°rTawíð^fram3 að Rlikoyan
20 mínútna skrifaða ræðu og nefndi ekki Krustjoff á nafn. Myndir af Krustjoff höfðu allar hafi dvalið
verið rifnar niður og myndir af Bresnév og Kosygin settar upp í staðinn.
Anastas Mikoyan, forseti Sovét-
ríkjanna, sæmdi geimfarana heið-
ursmerkinu Hetjur Sovétríkjanna,
en traustar heimildir segja, að
Mikoyan sé maðurinn á bak við
hina nýju leiðtoga, og sá maður,
sem lét sparka Krústjoff.
Eins og menn muna, var Nikita
Krústjoff, fyrrverandi æðsti mað-
ur í Kreml, staddur á sumarsetri
sínu við Svartahaf á mánudaginn
í síðustu viku. Traustar heimildir
segja nú, að hann hafi ekki veiið
þar einn, heldur hafi Anastas
Mikoyan, núverandi forseti Sovét
ríkjanna, veríð hjá honum. Þegar
geimfararnir þrír voru komnir á
loft á mánudaginn 12. október,
þá talaði Krústjoff við þá í síma,
og var símtalinu útvarpað. Er
hann hafði rætt við þá um stund,
sagði hann allt i einu: — „Nú
rífur Mikoyan af mér símann“. —
Þetta er síðasta setningin, sem
Nikita Krústjoff sagði opinber-
lega. í dag er hann algerlega horf-
ínn og er ekki vitað hvar hann
er niðurkominn.
Krústjoff hraðaði sér síðan til
Moskvu til þess að skýra afstöðu
sína í deilunni við Kínverja og
tryggja aðstöðu sína í Kreml. En
hann kom of seint, og var spark-
að. Anastas Mikoyan hafði séð
fyrir því — sá eini, sem nú er
eftir í valdastöðu í Sovétríkjun-
um af þeim mönnum, sem tóku að
berjast um völdin eftir dauða
Stalíns.
Traustar heimildir segja, að
eítthvað hafi gerzt — enn er ekki
vitað hvað — um næst síðustu
helgi, sem andstæðingai Krúst-
joffs hafi getað notað sem vopn
í baráttunni gegn honum. Sömu
heimildir fullyrða, að Mr. Maurer
forsætisráðherra Rúmeníu hafi að
undanförnu haft með höndum
hjá Krústjoff við
Svartahaf til að slá ryki í augu
hans, svo að hann grunaði síður
í hvert óefni var komið, þegar
hann var kvaddur til Moskvu.
Á Rauða torginu í dag var það
Mikoyan, sem sæmdi geimfarana
heiðursmerkinu Hetjur Sovétríkj-
anna, en stjarna dagsins var
Leonid Bresnév, hinn nýi aðal-
ritari. Myndír af honum og Kosy-
gin voru alls staðar, en engin
mynd sást af Nikita Krústjoff.
Ræðu Bresnévs var útvarpað og
Framhald á 2. siðu.
EKIÐ UM LÁD OG LÖG
MB-Reykjavík, 19. október.
Það varð uppi fótur og fit niðri
við höfn í dag, er litlum bíl var
ekið niður eftir gömlu verbúðar-
bryggjunni og fram af henni út í
sjóinn. Bjuggust viðstaddir við
hinu versta, en undrun þeirra varð
mikil, er billinn sökk alls ekki,
heldur hélt ferð sinni óhindrað
áfram á sjónum, keyrði í stórum
boga um höfnina og upp á bryggj-
una aftur.
Myndin er tekin, þegar blaðamenn Timans fóru í ökuferS um höfnina í gærdag. KJ veifar GE, sem tók myndina.
Hér var kominn fjögurra manna
bíll af gerðinni Amphicar, sem
er þýzkur og hófst framleiðsla á
honum fyrir tæpum tveimur ár-
um. Bíll sá, sem hér er, er sýn-
ingarbíll, sem sýndur hefur verið
undanfarið á Norðurlöndum og
mun verða nokkurn tíma hérlend-
is. Enginn umboðsmaður mun enn
kominn hérlendis fyrir þessa teg-
und bíla, en þýzkur maður, Fred-
rieh Bresch er með bílinn hérlend
is Bíllinn getur náð 120 km. há-
markshraða á vegum, en 12 km.
á lygnu vatni, fullhlaðinn. Hann
kostar hingað komínn um 230
þúsund krónur. Bíll þessi er hinn
snotrasti í útliti og rúmgóður fyr-
ir fjóra menn. Hlutar bílsins eru
smíðaðir hjá ýmsum verksmiðj-
um, til dæmis er vélin frá Morris
verksmiðjunum og margir hlutir
eru framleiddír hjá Volkswagen
verksmiðjunum.
/- > /.