Tíminn - 07.11.1964, Page 7
LAUGARDAGUR 7. nóvember 1964
19
TÍMINN
SAMVI
HEFUR
KAPURINN
Hér fer á eftir meginefni
framsöguræðu Páls Þorsteins-
sonar fyrir. frumvarpi Fram-
sóknarmanna um samvrnnu-
búskap. Páll flutti ræðu þessa
í efri deild Alþingis 29. okt.
Þessi Old, sem vl8 lifum á, má
með sanni kallast öld tækni og
vélvæðingar. Tæknin stóreykur af-
köstin hjá atvinnuvegunum og
léttir störfin og gerir kleift að
lyfta Grettistökum, svo að þau
viðfangsefni, sem menn taka sér
fyrir hendur, verða stærri og
stærri í sniðum. En tækni verður
ekki beitt nema hún styðjist við
almikið fjármagn, 'bæði til stofn-
kostnaðar og reksturs. Þessi vél-
væðing atvinnuveganna hefur
valdið mjög örum breytingum,
bæði á atvinnulífinu og þjóðfé-
lagsháttum. Nýjar atvinnugreinar
eru settar á stofn og tækifærin
gefast fleiri og fleiir til að velja
sér starf hver við sitt hæfi og hinn
vinnandi maður getur því horft
til margra átta, þegar hann vill
velja sér starf. Af þessu leiðir það.
að landbúnaðurinn hefur nú i
sinni þjónustu hlutfallslega miklu
færra fólk heldur en hann hafði
við skulum segja um síðustu alda-
mót og allt fraoi eftir þessari öld.
En þrátt fyrir þetta vex fram-
leiðslan. Þessu veldur vélvæðingin
og tæknin. Það er talið eftir skýrsl
um, sem Hagstofan hefur gert,
að árið 1910 hafi 51% af þjóðinni
stundað landbúnað. Árið 1920 um
42.9%, árið 1930 35.8%, árið 1940
30.6%, árið 1950 19.9% og talið
er, að 1960 hafi um 15% af þjóð-
inni stundað landbúnað. Það er
vitanlega erfitt að draga glögga
markalínu, þegar þjóðinni er skipt
í atvinnustéttir, því að í sveit-
unum er og hefur nú jafnan verið
fleira fólk en það, sem eingöngu
vinnur að landbúnaði, en þessar
tölur sýna þó örugglega, hver þró-
unin er í atvinnuskiptingu hér
með þjóðinni.
Stóraukin framleiðsla
Þrátt fyrir þessa þróun hefur
framleiðsla landbúnaðarins vaxið
hröðum skrefum, svo að á síðustu
15 árum hefur mjólkurframleiðsl-
an um það bil þrefaldázt og fram-
leiðsla sauðfjárafurða nærri því
tvöfaldazt. Þessu veldur vélvæðing
landbúnaðarins, sem eykur afköst-
in og framleiðslumagnið. En þó
að vélvæðingin hjálpi mikið til
við framleiðsluna, eru samt sum
verk við landbúnaðinn, sem ekki
er hægt að vinna með vélum eða
þær geta ekki létt undir nema
að takmörkuðu leyti. Það er yfir-
leitt ekki miðað við það af hálfu
löggjafans, að búskapur hér á
landi sé á þessum tíma rekinn al-
mennt með miklu, aðkeyptu vinnu-
a£]i. Verðlagsgrundvöllur landbún-
aðarafurða er t.d. miðaður við það,
að það sé ekki nema lítið aðkeypt
rinnuafl, sem meðalbúið notar, en
idnnan hvíli að langmestu leyti
á bóndanum sjálfum og fjölskyldu
bans. Svipað er að segja um þau
’.kvæði. sem n-'ipsa hafa verið sett
um ræktun, þar sem miðað er við
að veita sérstakan stuðning til
ræktunar á jörðum, sem hafa
minna en 25 ha tún. 25 ha tún
gefur af sér allmikla uppskeru,
en sú túnstærð er þó ekki miðuð
við það að framfleyta á slíkri
jörð stórbúi með miklu, aðkeyptu
vinnuafli. Að langmestu leyti er
því búskapurinn einyrkjabúskapur.
En reynslan sannar, að einyrkja-
búskapur hefur mikla annmarka.
Starf einyrkjans er mjög bindandi.
Hann þarf ein nað leysa af hendi
margvísleg verkefni, sem hann er
misjafnlega vel fallinn til að vinna
og ef annað hjónanna á sveita-
heimilinu forfallast um skemmri
eða lengri tíma, getur það valdið
miklum örðugleikum, þegar ein-
yrki á í hlut.
Tímabært
Það er því fullkomlega júma-
bært að dómi okkar flm. þessa
frv., að leitað sé nýrra ráða við
þessum vanda. Og þá kemur mjög
til álita sú hugmynd, sem færð
er í búning í þessu frv., að leggja
grundvöll að aukinni samvinnu í
búskap. Við höfum fyrir okkur
dæmi um árangur samvinnuskipu-
lags á mörgum sviðum i þjóð-
iífinu. Við vitum, að samvinnu-
skipulagið hefur lyft Grettistökum
á sviðum viðskipta og afurðasölu.
Og það er kunnara en frá þurfi
að segja, að einstaka þætti hafa
bændasamtökin leyst með sam-
vinnuskipulagi, af því að þau sáu,
að verkefnin voru svo stór, að við
þau yrði naumast ráðið á annan
hátt, og þá hefur það tekizt mjög
greiðlega. Þessu til skýringar
nefni ég eitt dæmi. Þegar hinar
stórvirku jarðræktarvélar tóku að
ryðja sér til rúms fyrir svona
1% áratug eða svo, reyndist það
flestum einstaklingum í bænda-
stétt ofviða sökum kostnaðar að
kaupa þær og reka. Hins vegar eru
slíkar vélar og viðeigandi tæki
nauðsynleg við framkvæmdir í
sveitum. Þær hafa lagt grundvöll
að hinum stórstígu framförum í
ræktunarmálum. sem orðið hafa
á 1—2 áratugum, en þennan vanda
leysti bændastéttin mjög greiðlega
og ágreiningslítið á grundvelli lög-|
gjafar, sem sett var 1954 með1
stofnun ræktunarfélaga og sam- j
vinnu um kaup vélanna og rekstur. j
Og við höfum líka fyrir okkur í
dæmi þess, að bæði fyrr og síðar
hafa vissir þættir í bústörfunum
verið leystir með samvinnu og
verða ekki öðru vísi leystir. í
þessu efni má nefna fjallskilin,
sem framkvæmd eru eftir reglu-
gerð, sem sveitarstjórnir eða sýslu-
nefndir setja. Það má nefna nytj-
un ýmissa hlunninda, svo sem
veiðiskap, selveiði o.fl., sem verða
ekki nytjuð öðru vísi en minni
eða stærri hópur manna vinni
saman að þessum verkum. Og í
sujiium sveitum er það algengt, að
samvinnubúskapur þótt óformleg-
sé víðast hvar, sé stundaður þann-
ig að skyldfólk vinni saman við
bústörfin, og hefur þetta víða gef-
ið góða raun og sums staðar er það
svo, það get ég dæmt um af nokkr-
um kunnugleika, að þar sem vel
hefur tekizt, um samvinnu við bú-
skap á þennan hátt, þar eru yfir-
leitt styrkustu sveitarheimilin í
hverjum hreppi.
Lagalegur grundvöllur
Við leggjum fram þetta frv. til
þess að fá lagalegan grundvöll
undir stofnun samvinnubúa, en
það er ekki tilgangur frv. að beita
til þess valdboði eða þvingun. Það
er ekki stefnt að því með þessu
frv. að löggjafarvaldið knýi til
samvinnu í búskap eða að útrýma
einstaklingsbúskap. Við gerum ráð
fyrir því og teljum sjálfsagt, að
þótt þetta frv. verði lögfest og
það komi til framkvæmda, þá þró-
ist einstaklingsbúskapur og sam-
vinnubúskapur jafnvel hlið við
hlið og það hlýtur að fara eftir
vilja fólksins og aðstöðu á hverj
um stað, hvoru forminu verður
fylgt. En augljóst er, að samvinnu
búskapur hefur ýmsa kosti fram
yfir einyrkjabúskap og mun gera
sveitafólkinu kleift að losna við
annmarka, sem einyrkjabúskap
fylgja. Þar sem tveir bændur eða
fleiri starfa saman að búrekstri,
getur komizt á hagkvæm verka-
skipting, framkvæmdir orðið hlut-
fallslega meiri en hjá einyrkjum,
vélaaflið notazt betur og búin
orðið hlutfallslega stærri. Það má
þó telja enn mikilvægara, að með
samstarfi í búskap skapast öryggi,
sem nú vantar víða tilfinnanlega,
þannig að búið verður ekki í
öráðri hættu, þót einn maður
forfaliist, þar sem samst.arfs-
menn hlaupa þá undir bagga. Með
samvinnubúskaþ mun og gefast
kostur á meira frjálsræði til að
taka þátt í nútíma þjóðlífi en ein-
yrkjabúskapur leyfir.
Efni frumvarpsins
í I. kafla þessa frv. er það skil-
greint, hvað samvinnubúskapur er
samkv. frv., ef að lögum verður.
En það er samvinnubúskapur sam-
kv. lögum þessum, ef tveir bændur
eða fleiri saman reka í félagi sam-
kv samningi eitt bú, þar sem að-
ilar vinna saman við búið, vélar
og tæki vegna búrekstrarins eru
sameign og jörð og útihús eru til
sameiginlegra afnota vegna bú-
skaparins. Hér er það ekki gert
að skilyrði, að eignarhlutföll í
fasteigninni, þar sem búið er, séu
jöfn. Það er allvíða svo ástatt, að
öldruð hjón eiga stóra og kosta-
ríka fasteign, en vantar vinnuafl
til þess að nýta hana. f grennd við
þau eru svo ung hjón, sem vilja
stofna til búskapar, en vantar jarð-
næði. Þarna ætti að vera opin
leið samkv. frv., til þess að mynda
samvinnubú, þar sem eldri hjónin
gætu lagt fram meira af fasteign-
inni, en yngri hjónin meira af
starfsorkunni báðum til hagsbóta.
Samkv. II. kafla frv. geta tveir
bændur eða fleiri, sem búa á
sömu jörð, stofnað samvinnubú,
ef þeim þykir það henta. Enn-
fremur er svo kveðið á í III. kafla
frv., að nýbýlastjórn sé heimilt að
hlutast til um, að komið verði á
fót samvinnubúskap samkv. 1. þess-
um í byggðahverfum, sem reist
eru að tilhlutan nýbýlastjórnar
samkv. 1. um landnám, ræktun og
byggingar í sveitum. Þá gerum við
ráð fyrir, að hugsað verði fyrir
því, áður en mannvirki byggða-
hverfisins eru reist, að þarna sé
fyrirhugað á þessu svæði að reka
samvinnubúskap og þá mannvirk-
in sniðin með tilliti til þess.
Vörn gegn byggða-
eyðingu
IV. kafli frv. er nýmæli, sem
felur í sér ákvæði um það, að
sé hætta á, að byggð eyðist í sveit-
arfélagi að dómi Nýbýlastjórnar
og hlutaðeigandi sveitarstjórnar,
þar sem skilyrði eru góð til bú-
skapar frá náttúrunnar hendi, þá
sé Landnámi ríkisins heimilt, að
fengnu samþykki eða eftir ósk
hlutaðeigandi sveitarstjórnar að
stofna þar til samvinnubúskapar,
ef talið er, að með því verði komið
í veg fyrir eyðingu byggðarinnar.
Á undanförnum árum hefur mjög
verið rætt um jafnvægi í byggð
landsins og nauðsyn þess, að ríkis-
valdið stuðlaði að því að viðhalda
slíku jafnvægi.Þó að skemmra hafi
verið gengið í því efni, heldur en
við framsóknarmepn höfum lagt
til, þá er áreiðanlega mjög mörg-
um mönnum í þessu landi ljós
þörfin á því, að það mál sé tekið
föstum tökum. Við höfum nú ný-
lega átt þess kost að fræðast um
það, hvað frændur okkar, Norð-
menn, hafa gert á því sviði. Þeir
hafa tekið þetta mál miklu fastari
tökum og skiþulegar, heldur en
okkur íslendingum hefur enn
auðnazt að gera. Og þeim dylst
það ekki, hvaða gildi það hefur
fyrir norsku þjóðina og þjóðlífið
þar í landi, að halda öllum lands-
hlutum þar í byggð ,og stuðla að
jafnvægi í byggð landsins. Enda
er það svo, að landið okkar er sér-
eign þessarar þjóðar. En þessari
eign og réttinum yfir henni og
landhelginni fær þjóðin a.m.k.
bezt haldið með því, að hún geri
sér það ljóst, að hún á að nytja
þetta land ein. Landbúnaðurinn
er einnig líka sá ^tvinnuvegur,
sem dreifir byggðinni og bindur
þjóðina við landið umfram aðrar
atvinnugreinar. f þessum kafla, IV.
kafla frv., er gert ráð fyrir þvi,
eins og ég hef þegar gert grein
fyrir, að það sé heimilt samkv.
frv., ef að lögum verður, að stofna
til samvinnubúskapar, þar sem
skilyrði eru góð í því skyni að
koma í veg fyrir, að byggðarlag
fari í eyði og ef ráðizt er í fram-
kvæmdir samkv. þessum kafla
frv., þá gerum við ráð fyrir, að
ríkissjóður leggi fram í því skyni
10 millj. kr. árlega næstu 10 ár,
en framkvæmdir séu á vegum
Landnáms ríkisins.
Um fjárframlög samkv. frv. til
samvinnubúskapar að öðru leyti,
eru þau ákvæði, að samvinnubú
hafi sama rétt til lántöku í Stofn-
lánadeild landbúnaðarins og til
framlaga samkv. jarðræktarlögum
og 1. um Stofnlánadeild landbún-
aðarins, landnám, ræktun og bygg-
ingar í sveitum eins og aðilar að
búinu hefðu haft, ef þeir hefðu
búið hver út af fyrir sig á sér-
stakri bújörð. En auk þess skal
nýbýlastjórn heimilt, ef stofnun
samvinnubúa hefur í för með sér
sérstakan kostnað á byrjunarstigi
umfram venjulegan einkabússtofn-
kostnað að veita stofnendum óaft-
urkræft framlag eftir þvi, sem fé
verður til þess veitt á fjárl. Enn-
fremur skal Stofnlánadeild land-
búnaðarins heimilt að veita sam-
PÁLL ÞORSTEINSSON
vinnubúi stofnlán til þess að
standa straum af slíkum kostnaði,
ef Nýbýlastjórn mælir með því.
En að um þennan sérstuðning
verði sett nánari ákvæði í reglu-
gerð.
í frv. er svo'fyrir mælt, að ef
stofnað er til samvinnubúskapar
samkv. þessum ákvæðum, skuli
gerður um það stofnsamningur
milli aðila og sé honum þinglýst.
f 11. gr. frv. er svo nánar kveðið
á um það, hvaða ákvæði sé skylt
að setja í stofnsamning. Við gerum
ráð fyrir, svo sem sjálfsagt má
telja, að Teiknistofa landbúnaðar-
ins, Búnaðarfélag íslands og Bú-
reikningaskrifstofa ríkisins, hver
stofnun á sínu sviði, veiti aðstoð
við framkvæmd þessara laga/ Og
Nýbýlastjórn er með frv. beinlínis
lögð sú skylda á herðar að láta í
té eyðblöð undir stofnsamning og
leiðbeina við gerð samnings og
hafa eftirlit með framkvæmdum.
Það má telja eðlilegt, að leggja
þessa skyldu á herðar þeirrar rík-
isstofnunar, sem hefur þegar það
hlutverk með höndum að hafa
eftirlit með stofnun nýbýla, bæði
einstakra býla og byggðahverfa,
ennfremur eftirlit með eyðijörð-
um, og greiða fyrir því, að jarðir
verði byggðar, og hefur til umráða
nokkurt fjárframlag til þess að
veita einstaklingum slíka fyrir-
greiðslu.
jTrúlofunarhringar
afgreiddii samðægurs
SENDUM UM ALLT LAND
HALLDÓR
uSkólavörðustíg 2
INGÖLFSSTRÆTl 11
Símar 15014 11325
19181.