Tíminn - 07.11.1964, Síða 12
Laugardagur 7. nóvember 1964
345. tbl. 48. árg.
Skólastjóri mót-
mælir bæjarstjóra
MB-Reykjavík, 6. nóv.
f dag birtist í dagblaðinu Vísi
viðtal, er blaðið hafði átt við bæj
arstjórann I Hafnarfirði vegna
þess einstæða atburðar, er bæj
arritarinn þar kvaddi til lögreglu
til að reka út kennara, er var kom
inn til að hirða laun sín á þeim
degi, er lionum hafði verið sagt
að ná í þau. Var skýrt frá þess
Sýning opnuð
KJ-Rvík, 6. nóv.
Fiskasýning Hjálparsveit-
ar skáta í Hafnarfirði verð-
ur opnuð á morgun kl. 2
fyrir boðsgesti. Eins og sagt
hefur verið frá í blaðinu
eru á sýningu þessari flest
allar tegundir nytjafiska
sem veiðast hér við land,
og eru fiskarnir í stórum
og mikinm búrum á sýning
nnni- Sýningin er til húsa
í húsakynnum Hjálparsveit
arinnar við Reykjavfkur-
veg. Á Fiskasýningunni eru
tveir kópar, og hér á
myndínni er verið að gæða
öðrum þeirra á síld.
um atburði í Tímanum í dag. í
viðtalinu segir bæjarstjórinn 'að
ástæðan fyrir framkomu bæjar-
ritarans hafi verið sú, að honum
hafi ekki borizt skýrsla um for-
fallakennslu í skólanum og hafi
hann því ekki getað borgað laun
kennarans.
Eitthvað virðist bogið við þessa
fullyrðingu bæjarstjórans, eða
þær upplýsingar, sem undirmenn
hans hafa gefið honum, því síð
degis í dag hringdi Ólafur Þ.
Kristjánsson, skólastjóri Flens-
borgarskólans, til blaðins og bað
fyrir eftirfarandi yfirlýsíngu.
„Vegna greinar í dagblaðinu
Vísi í dag um þann atburð, er bæj'
arritarinn í Hafnarfirði kvaddi til
lögreglu til að fjarlægja úr skrif
stofu sinni einn af kennurum
Flensborgarskóla, Sverri Tómas-
son, er neitað var hinn 5. þ. m.
um greiðslu á launum sínum fyr
ir fasta stundakennslu í október-
Framh. á 23. síðu.
SAFNAÐ
KESTI
FB-Reykjavík, 6. nóv.
Þótt enn séu tæpir tveir mánuð
ir til áramóta er nokkuð farið að
bera á því, að börn og unglingar
séu farin að hlaða bálkesti fyrir
áramótabrennur sínar. Lögreglan
og slökkviliðið hafa farið fram
á það við blöðin, að þau minni
fólk á að allir þeir, sem hafa í
hyggju að halda áramótabrennur,
verða að sækja um leyfi til þess
hjá lögreglunni, eins og verið hef
ur á undanförnum árum.
Leyfi fyrir áramótabrennum eru
auðfengin svo fremí, að 'staðurinn
sé þannig valinn, að engum geti
stafað hætta af brennunni og ekki
hlotizt af henni tjón. Tveir menn
hafa verið tilnefndir til þess að
meta hvort hægt sé að halda brenn
ur á umbeðnum svæðum, o'g líta
eftir bálköstunum, en þeir eru
Stefán Jóhannsson aðalvarðsstjóri
hjá lögreglunni og Leó Sveínsson
brunavörður. Umsækjendur skulu
snúa sér til lögreglunnar með
beiðnir sínar í síma 1-48-19 allt
til 30. des. n. k.
f fyrra voru brerinur í höfuð
borginni um eða innan við 60
talsins. Þá var aðalbrennan á
Klambratúni, en nú hefur verið
breytt um stað fyrir hana og
verður hún því að þessu sinni
sunnan við Miklubraut og austan
Krfnglumýrar.
Framhald á bls. 23.
Upphaf aS áramótabrennu
Tfmamynd GE)
LEKTOR I FORNÍSLENZKU VIÐ KAUPMANNAHAFNARHÁSKÓLA:
Listinn mætti breytast
Aðils-Khöfn, 6. nóv.
Lektor í forníslenzku við Kaup
mannahafnarháskóla og aðalrit-
stjóri forníslenzku orðabókarinn-
ar, dr. phil. Ole Widding, skrif-
ar í dag í Berlingske Aftenavis
um „leynilistann”, þar sem skráð
eru þau handrit, sem afhenda á
fslendingum úr Árnasafni, og tel
ur hann, að ýmis þau rit, sem þar
séu nefnd, geti ekki talizt „ís-
lenzkur menningararfur".
Widding skrifar m. a.: —
„Ástæða er til þess að koma fram
AÐSTAÐA I RIFI
FYRIR 20 BÁTA
KJ-Reykjavík, 6. nóv.
Þá er farið að hilla undir að
veruleg útgerð geti hafizt frá
Rifi, og verður smiðshöggið á
þennan hluta hafnargerðarinnar
rekið nú á næstu vikum með því
að sanddæluskip á að dæla úr
höfninni um 20 þúsund rúmmetr-
:
um af sandi. Vantar þá aðeins i
að athafnamenn reisi þar fisk-
verkunarstöðvar og geri þaðan út |
báta sína.
Stjórn Rifshafnar, sem þeir ]
Pétur Pétursson, Sigurður Ágústs I
son, Halldór E. Sigurðsson, Gísli I
Jónsson og Skúli Alexandersson |
skipa, kallaði fréttamenn á fund
sinn í dag og skýrði frá aðdrag-
anda landshafnarinnar í Rifi og
framkvæmdum þeim sem unnið
hefur verið að allt frá því árið
1951 að Alþingi samþykkti með lög!
um byggingu hafnarinnar. Tveir1
Framhald á bls. 23
með ýmsar upplýsingar og spurn
ingar í sambandi víð listann, sem
birtur var í Berlingske Aftenavis
í gær. Það er fyrst og fremst
ástæða’til þess að íhuga, hvort þau
handrit, sem nefnd eru í listan-
um, falli innan þess ramma, sem
frumvarpið um afhendinguna af-
markar“. Widding fer síðan í
gegnum listann og bendir á, hvað
hann telji að sé innan ramma
frumvarpsíns, og það er alls ekk-
ert smáræði, segir hann. Því næst
skrifar Widding: — „En utan
þessa ramma eru nokkrir flokkar
norrænna handrita, sem mun auð
veldara er að taka afstöðu til“.
Widding nefnir síðan þau handrit,
sem hann telur að falli utan ramm
ans, og þá fyrst og fremst mörg
handrit, sem hann telur að ómót-
mælanlega tilheyri norsku mið-
aldabókmenntunum.
Eftir að hafa farfð rækilega í
gegnum listann, skrifar Widding:
— „Listinn er langur og að
mínu áliti eru þar ýmis handrit,
sem alls ekki ættu að vera þar,
Aftur á móti væri með góðu móti
hægt að koma fram með ýmis
handrít, sem samkvæmt ramma
frumvarpsins ættu að vera þar
níeð sama réttí og mörg þeirra
handrita, sem á listanum eru“.
Widding endar grein sína þann
ig: — „Enginn vafi leikur á
því, að birting þessa lista hlýt
ur að vera mikill léttir fyrír
alla þá, sem fylgst hafa með hand
ritamálinu af áhuga vegna þekk
ingar sinnar á handritunum og
innihaldi þeirra. Hingað til hef
ur verið erfitt fyrir marga að
mynda sér skoðun um öll þessi
handrft, en nú, þegar listinn er
Framh. á 23. síðu.
'Framkvæmdir vlð hafnargerðin a i Rlfi
Ljósm. Vitamálastjórnin)
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Revkjavíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur verður haldinn
fimmtudaginn 12. þ. m. í Fram-
sóknarhúsinu við Fríkirkjuveg og
hefst klukkan 20.30. Dagskrá: —
Venjuleg aðalfundarstörf. Mætið
stundvíslega. — Stjórnin.
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Keflavíkur
Framsóknarfélag Keflavíkur
heldur aðalfund á sunnudaginn
kl. 2 e. h. í Aðalveri. Á fundinum
mætir Jón Skaftason alþingismað
ur. Félagsmenn eru hvattir til
þess að mæta vel og stundvíslega.