Tíminn - 14.11.1964, Side 2
2
TÍMINN
LAUGARDAGUR 14. nóvember 1964
Föstudagur, 13. nóvember.
NTB-Saigotn, 5000 manns hafa
nú látið lífið í flóðunum í S.-
Vietnam og 130,000 manns eru
heimilislausir. Bandaríkjamenn
og Vietnam-búar, ganga ötul-
lega fram í björgunar og hjálp-
arstarfscminni, en eiga erfitt
um vik, vegna stöðugra árása
manna Viet-Cong á hjálpar-
sveitirnar. Óttast er, að farsótt-
ir gjósi upp á flóðasvæðunum
og bandarískiir veðurfræðingar
segja nýjan hvirflilvind vera á
leiðinni til S.-Vietnam.
NTB-Jerúsalem. Til bardaga
kom milli ísraelskra og sýr-
lenzkra hersveita við norður-
bakka Genesarets-vatnsins í
dag. Lyktaði bardaganum með
því, að hinar ísraelsku hersveit-
ir unnu bug á hinum sýrlenzku.
fsraelsmenn svörðu ekki árás-
inni, fyrr en S.þ. höfðu reynt
að stilla til frfðar, en það var
árangurslaust.
NTB-Róm^ Páll páfi gaf í dag
höfuðdjásn sitt til fátækra.
Höfuðdjásnið er þrefalt og bar
Páll páfi það við krýnmgu sína.
NTB-London. Brezki forsætis-
ráðherrann, Harold Wilson,
móttók f dag bréf frá hinum
franska starfsbróður sínum
Pompid'ou. Ekki hefur brezka
stjórnin viljað gefa neitt upp
um rnnihald bréfsins, en gizkað
er á, að í því segist franska
stjórnin muni halda áfram
smíði Concorde-flugvélarinnar
upp á eigin spýtur, ef Bretar
skerast úr leik. Er þetta svar
firönsku stjórnarinnar við fyrir-
sipurnum hinnar brezku um
kostnaðaráætlanir í sambaindS
við smiðina.
VALLARMÁLIÐ
Framhald ai l síðu.
um tíma, alþýðudómstól og þjóðar
vilja. Ef draga á ályktanir af bók
þessari, ber helzt að álíta að þýð
andi telji sig hafa sjálfan hrundið
Keflavíkur málinu af stað ti! að
sanna hve blöð geti verið miklir
dónar.
Að síðustu má svo ekki gleyma
því, að sá sem helzt hefur verið
orðaður við þetta mál, og mest
og lengst hefur orðið að sitju að
borði rannsóknardómarans hefur
krafið þrjú blöð, undanskilin Vís-
ir og Morgunblaðið, um hærra
ærufé en menn hafa áður metið
sig hér á landi. Þessar fjárkröfur
á hendur blöðunum komu um það
leyti sem málið lagðist í það dá,
sem það liggur nú í.
Um vélritun málsins er það að
segja, að auðvitað tók hún langan
tíma, enda er um tvær þvkkar
bækur að ræða, sem væntanlega
liggja nú á borðinu hjá saksókn
ara ríkisins. En þessari vélritun
lauk þó fyrir einum tveimur mán
uðum. Sjálfsagt er að yfirvald
taki sér umhugsunarfrest en það
fer nú að verða tímabært að vita
hvort einhverjir hafi verið hafðir
fyrir rangri sök og hvort hægt
verði að sættast á einhvprn við-
undandi æruprís, eða hvort menn
hafi misfarið fé, þótt ekki sé til
fleiri frystihús til að bæta skað-
ann.
NTB-Buenos Aires, 13. nóv.
Yfirvöldin í Argentínu reyna nú
eftir beztu getu að hafa upp á
Juan Peron, fyrrverandi forseta
landsins, en hann yfirgaf Madrid
í gær og haldið er, að hann muni
reyna að komast til Argentínu.
Sérstakur lögregiuvörður er hafð-
ur við opinberar stofnanir í land-
inu, eins og flugvöllinn og útvarp-
ið. Engin sönnun þess hcfur kom-
ið fram í dag, að Peron hafi yfir-
gefið Madrid, en lögreglan í Mad-
rid staðfesti þá fregn í gær.
Reykjaneskjördæm!
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Reykjaneskjördæmi verð
ur haldið að Hlégarði í Mosfells-
sveit, sunnudaginn 15. þ. m. og
hefst það kl. 9.30 árdegis.
Auk venjulegra þingstarfa
verða á þinginu flutt erindi um
helztu atvinnuvegi þjóðarinnar og
Jón Skaftason, alþm. flytur ræðu
um stjórnmálaviðhorfið.
Framsóknarmenn í Reykjanes-
kjördæmi eru hvattir til að fjöl-
menna á þingið.
Stjórnin
Þegar spánska lögreglan hafði
lýst því yfir, að Peron hefði yfir-
gefið landið, varð mikið uppnám
í Argentínu og fleiri suður-ame-
rískum löndum. Sérstakur fundur
var haldinn í ríkisstjórn Argen-
tínu og ákveðið að gera ýmsar
varnarráðstafanir, einkum vegna
þess, að Peron-fylgjendur og and
stæðingar sýndu á sér óeirðarsnið,
þegar fregnin um endurkomu Per-
ons barst til landsins. Peron á
marga stuðningsmenn í Argentínu,
eínkum hjá landssambandi iðnað-
armanna. Her landsins mun aftur
á móti berjast gegn honum.
Fulltrúi braziliska utanríkisráðu
neytisins sagði í dag, að Brazilía
mundi varla sleppa Peron inn í
landið, ef hann ætlaði að komast
þaðan yfir til Argentínu. Fulltrú-
inn sagði, að ef Brazilía gæfi Per-
on landvistarleyfi mundi það
skaða stjórnmálasambandið við
Argentínu og það vildu þeir helzt
forðast. Sagði fulltrúinn, að auð-
velt mundi verða að neita Peron
um landvistarleyfi, þar sem ekki
væri um hælí fyrir pólitískan
flóttamann að ræða.
Yfirvöldin í Lima segjast ekk-
ert geta sagt um pað, hvort Per-
Óska samkoinu-
lags við Frakka
on sé kominn til Perú, en láta jafn
vel í það skína, að hann sé alls
ekki óvelkominn þar. Utanríkis-
ráðuneytið í Chile hefur skýrt frá
því, að þar muni Peron verða ráð-
ið frá því að reyna að komast frá
Chile til Argentínu. Einkaritara
Perons, Manuel Algarve, sem í
gær var rekinn frá Chile, var í
dag neitað um landgönguleyfi í
Buenos Aires, en hann hafði þar
viðdvöl á leiðinni til Madrid.
NTB-Bonn, 13. nóvember.
Utanríkisráðherra V.-Þýzkalands
Gerhard Schröder, svaraði í dag
spurningum í vestur-þýzka þing-
inu. Hann sagði, að V-Þýzkaland
mundi reyna að finna einhverja
iausn á ósamkomulaginu við Frakk
land, en sagði um leið, að Vestur-
Þýzkaland væri fylgjandi stofnun
kjarnorkuflotr», NATO. Hann neit-
aði því, að ’andstaða Frakkiands
gegn kjarnorkufiotanum hcfði or-
sakað ákvörðunarfrest V-Þýzka-
lands í rnálinu. Fresturinn stafaði
af því, að nauðsynlegar umræður
hefðu ekki farið fram við hina
nýju brezku valdhafa.
Utanríkisráðherrann sagði, að
vestur-þýzku stjórninni væri ekki
kunnugt um það, að Frakkland
hefðl beðið um fjárhagsaðstoð til
eflingar kjarnorkuvopnum sínum.
Ríkisstjórninni væri heldur ekki
kunnugt um það, að Frakkland
hefði boðið Vestur-Þýzkalandi
sömu aðstöðu í kjarnorkuvæðingu
Frakka og landið mundi fá í kjarn
orkuflota NATO. Utanríkisráð-
herrann sagði, að Vestur-Þýzka-
Framhald a 15 siðu
★ Frumvarpið um útboð ríkissjóðs á verðtryggðum skuldabréf-
um var afgreitt óbreitt frá efri deild tii neðri deildar í gær.
★ Villa slæddist imi í frásögn af ræðu Ásgeirs Bjarnasonar í
fyrradag, þar sem rætt var um þátttöku ríkissjóðs í' greiðslu launa
héraðsráðunauta og þessu til leiðréttingar verða birt hér helztu at-
riði ÁB. um búfjárræktarfrumvarpið.
★ ÁB. minnti á lagasetningu búfjárræktarlaga frá 1931 og endur-
skoðun laganna 1948 og 1957.
★ Þessi löggjöf hefði verið önnur sú þýðingarmesta fyrir bænda-
stéttina, sú merkasta hefði verið jarðræktarlögin.
★ Efnahagsmálalöggjöfin frá 1960 hefði eyðilagt gildi búfiár-
ræktariaganna og jarðræktarlaganr.'a, þar sem vísitalan hefði þá verið
fastsett, en dýrtíðin verið hömlulaus.
★ Eðlilegt væri að borga laun héraðsráðunauta að % og einnig
ferðakostnað þeirra, þar sem hann hefði hækkað ár frá ári og orðið
mörgum búnaðarsamb. erfiður. Þar sem tekjur sambandanna væru
mjög takmarkaðar.
★Þessi endurskoðun búfjárræktarlaganna sem nú liggur fyrir
hefði fram farið, vegna þess að Búnaðarþing óskaði þess sérstakiega
út frá kafla laganna um ásetning og forðagæzlu.
★ Búnaðarþing fjallaði á 8.1. vetri um frv. milliþinganefndar
þeirrar er skipuð var árið áður. Nokkfar breytingar gerði Búnaðar-
þing á frv. nefndarinnar.
•k Stéttasamband bænda hefði á sl. hausti knúið fram breytingar
á búfjárræktarlögunum í sambandi við önnur hagsmunamál bænda.
★ Vert er að vekja athygii á því hvers virði höfuðstofnanir land-
búnaðarins eru foændum, eins og Búnaðarfélag íslands og Stéttasam-
band 'bænda.
Barnatónleikar
FB—Reyykjavík, 11. nóv
Sinfói.íuhljómsveit íslands efn
ir til barnatónleika í Hásklabíói
laugardaginn 14. nóv. og hefjast
þeir klukkan 15. Stjórnandi tón-
leikanna verður Igor Buketoff, en
kynnir verðui Lárus Pálsson leik
ari.
Á* efnisskránni er forleikurinn
að „Don Giovanni1' eftir Mozart,
og Lítið næturljóð eftir Mozart.
Þá verður flutt Rússneskt þjóð-
lag (piccolo) eftir Liadov, ballet-
músik úr „Orfeo“ (flauta) eftir
Gluck, Concertino (klarinett) eft
ir Weber, einleikari verður Gunn-
ar Egilsson, forleikur að 2. þætti
„Carmen“ (fagott) eftir Bizet og
lítil svíta eftir Bizet og að lokum
Þrumur og eldingar. polki eftir
Strauss.
Sinfóníuhfjómsveitin hefur áður
efnt til barnatónleika, og hafa
þeir verið mjög vel sóttir, og
börnin sýnt mikinn áhuga.
BÆNDURLOSNÁ VIÐÞUNGA-
SKA TT AF DIESEL-JEPPUM
í sumar var gefin út reglugerð
þess efnis, að bændur sem eiga
dieseljeppabifreiðir eigi kröfu
á endurgreiðslu á þungaskatti bif
reiðanna gegn framvísun vottorða
er sanni að bifreiðarnar hafl ver
ið notaðar næstliðið ár að mestu
eða að öllu leyti við framleiðslu
og jarðyrkjustörf, og að eigandi
sjálfur hafi rekið framleiðslu og
jarðyrkjustörf.
Af þessu tilefm átti blaðið tal
við umboðsmann Austin-Gipsy
landbúnaðarbifreiða Garðar Gísla
son h.f. og spurði þá nánar út í
þessa reglugerð
Deildarstjóri bifreiðadeildar
tjáði blaðinu að þrátt fyrir yfir-
burði diesel hreyfilsins hvað snert
ir eldneytiseyðslu, varahluti og
endingu þá virtist svo sem bænd
ur hefðu minni áhuga á land-
búnaðarbifreiðum með dieselvél.
Væri helzt líklegt að bændum
hefði ekki verið kynnt efni reglu
gerðarinnar, sem kveður á um
endurgreiðslu á þungaskatti til
þeirra, en endurgreiðsta þessi
næmi 8.500 krónum á hverja die-
seljeppabifreið. Það væri svo aft-
ur á móti annað mál að þunga-
skatturinn af smábifreiðum sem
nota dieselvélar er of hár í seman-
burði við þungaflutningsbifreiðar
og væri vonandi, að það misræmi
vrði leiðrétt af viðkomandi stjórn
arvöldum.
Ennfremur var olaðamanni Tím
ans boðið af þessu tilenfi að reyna
hina nýju gerð Austin Gipsy land
búnaðarbifreiðar.
Diesel hreyfillinn í Austin
Gipsy er framleiddur af hinum
vel þekktu B.M.C. verksmiðjum
með C.A.V. olíukerti og má geta
þess að leigubílstjórar í London
nota þennan hreyfil svo. til ein-
göngu í bifreiðum sínum og t.elja
að með tilkomu hans hafi kjör
þeirra batnað að mun vegna minni
eldneytiskostnaðar og minna við-
halds. Austin Gipsy bifreiðin er
mjúk í akstri, og gildir þar sama
hvort ekið er á vegum eða veg-
leysum, sem hefur mjög mikla
þýðingu upp til sveita þar sem
vegir eru misjafnir. Austin Gipsy
er flutt inn með trefjaplasthúsi, og
hafa húsin gefið góða raun hér.
T. d. er algjörlega óþarfi að leggja
í kostnað við að einangra þau,
þvi þau slaga ekki að innan Þá
er ótalin sá kostur þeirra, að
þau eru fislétt og þyngja því ekki
grind bílsins að óþörfu, eða setja
yfirvigt á bílinn þegar ekið er í
halla. Viðgerðir húsanna eru líka
einkar auðveldar.
Á nýjasta módelinu eru aðeins
örfáir smurkoppar í stýrisgangi
sem smyrja þarf í.
Að lokinni ökuferð sýndu um-
boðsmenn fyrirtækisins blaða-
manni varahlutabirgðir fyrirtækis
ins, og þar virðist vei vera hugs
að um viðskiptamanninn, og ávallt
ikappkostað að hafa á lager nægar
birgðir varahluta.
Eftir þessum upplýsingum að
dæma virðist liggja í augum uppi
að bændur muni hugsa sig um
tvisvar áður en þeir festa kaup
á landbúnaðarbifreiðum og velji
dieslehreyfil í stað benzínhreyfils,
þar sem bæði er miklum mun
mini eldneytiskostnaður, og svo,
að þeir fá þungaskatt dieselbíl-
anna endurgreiddar. á ári hverju.
Verð á Ausin Gipsy með diesel-
hreyfii er í dag 155 þús. með þeim
aukahlutum sem venjulega er tek
inn. M. a. svampsæti, miðstöð,
rúðublásari, þvottatæki á fram-
rúður o. fl.
V