Tíminn - 14.11.1964, Blaðsíða 7
UTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
RITSTJÓRI: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Skipulagðar
ingar
blökkumanna í S-Afríku
Kynþáttakúgunin í Suður-
Afríku tekur sífellt á sig
skuggalegri myndir. Að
sögn brezka stórblaðsins
The Sunday Times gefa
samtökin Christian Action
bráðlega út bók um þær
skipulögðu pynfingar, sem
eiga sér stað í fangabúðum
ríkisstjórnar Suður-Afríku,
og eru þar dregnar fram í
dagsljósið pyntingaraðferð-
ir, sem ekkert gefa eftir
aðferðum Gestapos á tím-
um nazista,
Sunday Times segir, að bók
þessi sé byggð á skýrslum, við
tölum og blaðagreinum, sem
Christian Action hefur safnað sam
an en samræmingu efnisins hefur
Lögregiuríkið Suöur-Afríka
frú Suzanne Cronje séð um. Frú
Cronje er blaðakona, fædd í Aust-
urríki, en gift Suður-Afríkubúa.
Með þessari bók sinni vil! hún
sýna fram á, að líkamlegar pynt-
ingar eru notaðar reglulega og af
föstum ásetningi í Suður-Afríku,
með velþóknun stjórnarinnar, sem
vopn í baráttunni gegn andstæð
ingum aðskilnaðarstefnunnar, og
hún bendir á, að pyntingarna: séu
framkvæmdar af sénþjálfuðum
rannsóknarmönnum, sem noti oft
ast svipaðar aðferðir. Ein þeirra
aðferða, sem oft er notuð, er að
hálfdrepa menn með síendurtekn
um raflostum.
Sunday Times tók eftirfarandi
dæmi úr bókinni, en sá, sem seg
ir frá, er maður, sem handtekinn
var samkvæmt 90 daga reglunni.
Þetta gerðist fyrsta daginn:
— Eg var handjárnaður og
seglpoka síðan troðið yfir höfuð
mér, svo að mér varð erfitt um
andardráttinn. Eg var Iátinn setj
ast niður og skipað að stinga
hnjánum upp á milli handjárn
aðra liandanna, og síðan var staf
stungið á milli, svo að ég gat
('kki hreyft mig. Þá var eitthvað,
sem mér fannst einna líkast vír,
vafið um litla fingur beggja
handa minn-a. Síðan fékk ég raf-
lost, sem komu með vissu milli-
bili. Þá tóku einhverjir í stafinn
og lyftu mér þannig upp, og um
leið og ég fékk nýtt raflost, þá
var ég látinn detta niður á bakið“.
— Þessa pyntingu varð hann að
þola þrisvar sinum í röð, en inn
á milli var gert smáhlé til spurn
inga.
f þessari nýju bók er einnig sagt
frá manni nokkrum, WiIIie Smith
að nafni, er eftir miklar barsmíðar
féllst á að gera „játningu“ Lög-
reglumennirnir fóru með hann
þangað, sem hann átti að hafa
geymt stolnar vörur. Þegar þangað
var komið festu þeir fótiárn með
keðjum um báða ökla W Smiths
Síðan festu þeir annað fót.iárn-
ið í stuðara á vörubíl einum og
og hitt fótjárnið í annan vöru
bíl. Einn lögreglumannanna fór
síðan inn í annan- bílinn og ók
honum af stað. I
,WilIie Smith æpti, a^V hann væri
að rifna í sundur," sagði eitt
vitnið. „Eftir pyntinguna gat
hann ekki talað“. Han-n 'ézt fjór-
um dögum síðar.
Frú Cronje fuliyrðir, að dóms-
málaráðherra Suður-Afríku hafi
neitað að láta rannsaka þær
ógeðslegu pyntingar, sem eiga
sér stað í Suður-Afríku, og verð
ur það því ekki skilið öðruvísi en
sem þegjandi samþykki.
í bók þessari er lýst ógrynni
pyntinga af verstu tegund, sem
notaðar eru í sífellt ríkari mæli
af mannskepnum þeim, sem með
völd fara í Suður-Afríku, og jafn
framt er bent á, að slíkar pynting
ar hafa ekki verið notaðar í sam-
bandi við hvíta fanga fyrr en á
þessu ári. Jafnframt er sagt frá
ýmsum tilraunum, sem lögreglan
í landinu gerir þessa stundina með
nýjar pyntingaraðferðir, svo sem
að dæla fangana fulla af vatni, þar
til þeir missa meðvitund.
Það væri hollt fyrir þá viðskipta
menn, sem harðast ern fylgjandi
viðskiptum við Suður-Afríbu. að
gera sér grein fyrir því, hvers
konar „menn“, það eru, sem þeir
eiga viðskipti við.
í Kópavog
Aðalfundur Félags
ungra Framsóknar-
manna í Kópavogi var
haldinn síöastliðið
þriðjudagskvöld í félags
heimilinu Tjarnargötu
26 í Reykjavík. Á fund-
inum mætti erindreki
Sambands ungra Fram-
sóknarmanna, Eyjólfur
Eysteinsson.
Sigurður Geirdal, formað
ur félagsins, setti fundinn
og bauð fundarinenn vel-
komina. Skipaði hann síðan
Grétar Kristjánsson sem
fundarstjóra og Daða Jóns
son sem fundarritara.
Sigurður Geirdal las síðan
fnndairgerð síðasta aðalfund
ar og var hún samþykkt sam
hljóða. Þá flutti formaður
Elías
skýrslu stjómar oig ræddi
um leið um húsmæðisað-
stöðu félagsins og starfs-
skilyrði. Ræddu fundar-
menn nokkuð um þau mál.
Að loknum þeim umræð-
um var gengið til kosninga
stjómar fulltrúairáðs og full
trúa á kjördæmisþing Kjör
dæmissambands Framsókn-
armanna í Reykjaneskjör-
dæmi, sem haldið verður í
Hlégarði á sunnudaginn.
Sigurður Geirdal, formað- H
ur, baðst eindiregið undan ffi
endurkosningu. Var Elías H
Snæland Jónsson kjörinn B
tiýr formaður. Aðrir í stjórn |
roru kosnir: — Magnús Leó- 1
póldsson, Valdimar Sæ- |
mundsson, Grétar Kristjáns I
son og Hildur Björnsdóttir. |
Vairamenn í stjórn voru |
kosnir: Sigrún Ingólfsdóttir, S
Reynir Ásgrímsson og Öm 1
Gúðmundsson. H
Þá voru kjörnir 4 fulltrú
ar félagsins á kjördæmis- i
þing. Þessir hlutu kosningu: |
— Elías Snæland Jónsson, 1
Sigurðui Geirdal, Hjörtur
Hjartairson oig Grétar Kristj-
ánsson, en til vara var kjör
inn Guðmundur Jónsson.
Einnig var kjörið 10 manna
fulltrúaráð.
Að kosningum loknum
urðu almennar umræður
um firamtíðarstarfsemi fé-
lagsins og stóðu þær þar til
fundi var slitið um mið-
nætti.
Fjölmenn bridgekeppni F U F
Mikil gróska er þessa
stundina . spilaklúbb Félags
ungra Framsóknarmanna í
Reykjavík., Heldur klúbb-
urinn spilakvöld vikulega,
á fimmtudögum. Björn
Eenediktsson stjórnar.
Nú fer fram 5 kvölda
hrað-sveitarkeppni, og er
spilað á níu borðum. Hafa
þegar verið spilaðar þrjár
umferðir. Staðan er þannig:
1. Sveit Baldurs Óskars-
sonar 685, 2. Sveit Bene-
dikts Guttormssonar 653,
3. sveit Hafsteins Ólafsson-
ar 643, 4. sveit Guðrúnar
Þorvaldsdóttur 640, 5. sveit
Runólfs Sigurðssonar 638,
6. sveit Rósmundar Guð-
mundssonar 626, 7. sveit
Björns Benediktssonar 623,
8. sveit Aðalsteins Sigurðs-
sonar 618, og 9. sveit Hall-
dórs Magnússonar 616.
í efstu sveitinni spila
þessir menn: Baldur Ósk-
arsson, Birgir ísleifsson,
Tryggvi Arason og Reynir
Snjólfsson.
Eftir er að spila tvö
kvöld í keppninni.
Timamynd-Kj
Frá bridgekvöldi FUF í Reykjavík.
LAUGARDAGUR 14. nóvember 1964
mmm
TÍMINN
mii