Tíminn - 14.11.1964, Page 15
LAUGARDAGUR 14. nóvember 1964
FUNDUR KOMMÚNISTA
Framhald af 16. síSu.
samningsviðræðna. Margir í
Moskvu álíta, að Rússar séu ekki
tilbúnir til að gefa eftir í ýmsum
málum gagnvart Kínverjum. Þeg-
ar sendinefndin hélt frá Moskvu
í’kvöld var blaðamönnum frá vest
urlöndum meinaður aðgangur að
flugvellinum. Eini framámaðurinn
í Sóvétríkjunum, sem víðstaddur
var brottförina, var forsætisráð-
herrann Alexej Kosygin. Nú eru
aðeins eftir í Moskvu sendinefnd-
ir frá Kúbu og Mongólíu.
Pravda segir í dag í leiðara um
utanríkismál, að stefna Sovétríkj
anna í uíanríkismálum verði
áfram að byggjast á vilja til þess
að láta þróast eðlileg sambönd við
helztu ríki kapítalista, eins og t.
d. Bandaríkin. Blaðið nefnir Ind-
land sem eitt af þeim löndum,
sem Sovétríkin vilji umgangast
með sátt og samlyndi. Þrátt fyrir
hið varfærnislega orðalag á grein
argerðinni um viðræðurnar halda
margir vestrænir stjórnmálamenn
í Moskvu, að viðræðumar hafi
ckki verið algerlega misheppnað-
»r.
Gert er ráð fyrir, að leiðtogar
Sovétríkjanna hafi leitað uppi álit
hinna ýmsu kommúnistaflokka á
missættinni milli tveggja stærstu
flokkanna og leiðtogar_ Kínverja
hafi reynt að komast að því, hve
samhent hin nýja sovézka stjórn
er í afstöðu sinni til Peking. Brott
för Krustjoffs og koma kínversku
sendinefndarinnar til Moskvu hef-
ur nokkuð linað á missættinní, en
ekki er útséð um það, hvort frið-
ur verður saminn. Pravda minnist
ekki einu orði í dag á alþjóðaráð-
stefnu kommúnistaflokkanna, þó
að það leggi mikla áherzlu á góða
sambúð þeirra flokka innbyrðis.
í dag var tilkynnt í Moskvu, að
Pavel Satjukov hefði verið settur
af sem ritstjóri málgagns komm-
únistaflokksins, Pravda, en við
hefði tekið Alexei Rumjantsov,
sem hefur verið ritstjóri ritsins
Kommunisti. Sathukov var míkill
stuðningsmaður Krustjoffs og er
hann þriðji stuðningsmaður hans,
sem vikið er úr stöðu eftir að
Krustjoff var settur af. Jafnframt
var tilkynnt í Moskvu í dag, að
aflétt hefði verið höftum þeim,
er Krustjoff kom á árið 1955 og
fólu í sér takmörkun á landareign
og bústofni bænda. Ríkja nú sömu
takmarkanir í þessum málum og
fyrir árið 1955, og leyfa þær nokk
uð stærri landareign og umfangs-
meira gripahald.
ÓSKA SAMKOMULAGS
land reyndi að komast að skyn-
samlegum samningum í Brussel
um kornverðið, án nokkurrar óþol
ínmæði eða þvingunar. Hann end
urtók síðan þá staðhæfingu stjórn
arinnar, að Vestur-Þýzkalandi bæri
engin skylda til að ákveða sig i
kornmálinu fyrir 15. desember,
eins og franska -itjómin hefur far-
ið fram á. Nóg væri að vestur-
þýzka stjórnin léti í ljós álit sitt
á málinu fyrir þann tíma.
Varaformaður Social-demokrat-
iska flokksins, Herbert Wehner,
spurði utanríkisráðherrann að því,
hvaða fleiri fáránlegar hugmyndir
De Gaulle mundi fá, sem hann
þröngvaði Vestur-Þjóðverjum til
að taka þátt í. Utanríkisráðherr-
ann svaraði því, að slík staðhæfing
um De Gaulle væri óviðeigandí og
bæri Wehner að taka orð sín aft-
ur. Síðar um daginn baðst Wehner
afsökunar á þessu frammi fyrir
þinginu.
Bandaríski varautanríkisráðherr
ann, George Ball, hélt í dag til
Vestur-Þýzkalands til viðræðna
um framtíð Vestur-Evrópu og
NATG. Varnarmálaráðherra Vest
ur-Þýzkalands, Von Hassel, er nú
í Washington, þar sem hann ræð-
ír við valdhafa um fyrirhugaðan
kjarnorkuflota NATO og þýzk-
bandaríska samvinnu í varnarmál-
um.
TÍSVB9NN
OLÍUSAMNINGUR
Framnaio at l síðu
kaup á olíuvörum frá Sovétríkjun-
um árið 1965 í samræmi við við-
skiptasamning á milli íslands og
Sovétríkjanna frá 1962.
Af hálfu Sovétríkjanna tóku
þátt í viðræðunum þeir I. Fedo-
rov, aðstoðarforstjóri V. 0. Sojuz-
nefteexport, A. Grachev, verzlun-
arfulltrúi, og V. Matachun, aðstoð-
armaður hans.
Viðræður af hálfu íslendinga
önnuðust forstjórar olíufélaganna,
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, Vil-
hjálmur Jónsson og Hreinn Páls-
son, ásamt aðstoðarmönnum sín-
um. Dr. Oddur Guðjónsson, við-
skiptaráðunautur, og Yngvi Ólafs-
son, deildarstjóri, fylgdust með
viðræðunum af hálfu viðskipta-
málaráðuneytisins.
Samningar hafa nú tekizt og
magn það, sem samið er um, er
sem hér segir: 100.000 tonn af
fuelolíu, 48.000 tonn af benzíni,
210.000 tonn af gasolíu.
Verðmæti umsamins vörumagns
er um 330—340 millj. kr.
Samningur var undirritaður í
dag og gerðu það af hálfu Sovét-
ríkjanna I. Fedorov, aðstoðarfor-
stjóri, og af hálfu viðskiptamála-
ráðuneytisins dr. Oddur Guðjóns-
son.
Viðræður þessar fóru fram með
vinsemd og gagnkvæmum skiln-
ingi“.
VÍDAVANGUR -
endurtekur sig. Við stöndum
aftur í sömu sporum og við
stóðum fyrir 40 árum. Aftur
vantar sex skóla. Um það eru
allir sammála. Um nauðsyn
þessara skóla er enginn ágrein-
ingur. Skilnimgur allrar þjóðar-
innar á þörf alþýðumenntunar
er nú fyrir hendi. Réttinn tii
lögboðinmr menntunar véfeng-
ir heldur enginn fremur en
önnur lögboðin mann réttipdi í
þjóðfélaginu. Minnumst þess
nú sem gerðist í þessum efnum
fyrir 30—40 árum og berum
saman aðstæðurnar. Er nú ekki
hægari eftirleikurinn? Vissu-
iega ætt)i svo að vera.“
Auglýsið í íímanum
I HádegisverSarmúsík
I kl. 12.30.
Hljómsveit
Guðjóns Pálssonar
B0RG
OPIÐ A HVERJU KVÖLDL
I KVÖLD
og framvegis
Hin nýja liljómsveit
SVAVARS GESTS og hinir
nýju söngvarar hennar.
ELLÝ VILHJÁLMS
RAGNAR BJARNAS0N
Borðapantanir eftir kl. 4
í síma 20221.
Munið
GUNNAR AXELSSON
við píanóið.
Opíð alla daga
Sími — 20-600
Nýr skemmtikraftur
söngvarinn og
steppdansarinn
POUL WHITE,
skemmtir í kvöld
og næstu kvöld með
aðstoð
EYÞÓRS-COMBO
111111
Tryggið yður borð síman-|
lega í síma 15327.
Matur framreiddur
frá kl. 7.
llllílli
OPIÐ I KVÖLD
Hljómsveit
FINNS EYDAL
og HELENA
Kvöldverður framreidduT
frá kl. 7.
Slml 11544.
Lengstur dagur
Heimsfræg amerísk Cinema-
Scope mynd um innrásina í
Normandy 6. júní 1944. 42
þekktir leikarar fara með að-
alhlutverkin.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5 og 9.
iMmmunuiTrmnmi
KCLBajEgsbÍD
Slml 41985
Islenzkur textl
Ungir læknar
(Young Doctors).
Viðfræg og snilldarvel gerð og
leikin, ný, amerísk stórmynd
með [sienzkum texta
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slrni 50184
Það var einu sinni
hintinsæng
Þýzk verðlaunamynd eftlr skáld
sögu Berdoffs, Can Can und
Grosser Zaphenstreich.
DALIAH LAVI
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð börnum.
Á Heljarslóð
Sýnd kl. 5.
T ónabíó
Strrr 11182
Erkihertoginn
og hr. Pimm
(Love is a Balí)
Víðfræg og bráðfndin ný
amerísk gamanmynd í litum og
Panavlslon
GLENN FORD
HOPE LANGE
Sýnd kl. 5 og 9
Hækkað verð
Hii
-siml
Siml 22140
| Heimur Sammy Lee
(The small world of Sammy
Lee)
Helmsfræg brezk kvlkmynd,
sem gerlst { skuggahverf' Lund
únaborgar. Talin með eftlrtekt
arverðustu myndum sem Bret
ar hafa gert á síðari árum.
Aðalhlutverk:
JULIA FOSTER
ANTHONY NEWLEY
Leikstjóri: Ken Huges.
Bönnuð börnum innan lá ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slmi (8916
Sagan af biindu
stúlkunni Ester
Costeilo
Hin frábæra ameríska úrvals-
kvikmynd
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Fangabúðirnar
á Blóðeyjum
Sýnd kL 5.
Bönnuð börnum.
.
í
ib
iÞJÓÐLEIKHtSIÐ
Forsetaefnið
Sýnlng í kvöld kl. 20.
Mjalihvit
Sýning sunnudag kl. 15.
Sardasfurstinnan
Sýning sunudag kl. 20.
Kröfuhafar
Sýning á Litla sviðiSu (Lindar-
bæ) sunundag kl. 2Ó.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13.15 til 20. Sími 1-1200.
JpLEÍkFÉIAGL
Brunnir Koiskógar
Saga úr
dýragarðinum
önnur sýning í kvöld kl 20.30
Vanja frændi
Sýning sunnudagskvöld kl 20.30
Sunnudaguri
New Ýork
83. sýning þriðjudagskvöld kl.
20.30.
Aðgöngumiðasalan t IðnC
opin frá kl. 14. simi 13191.
Slm> 50249
Sek eða saklaus
Ný afarspennandi frönsk
mynd úrvalsleikaramir
JEAM-PAUL BELMONDO
PASCALE PETIT
Bönrn fá ekki aðgang
Á þræiamarkaöi
sýnd kl. 5.
ssre
LAUGARAS
Símei a 20 76 ag 5 81 50
Á heitu sumri
eftir Tennessee Wlliiams.
Sýnd kL 9.
Játnlng ópium-
neytandans
með Vincent Priee.
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönuð innan 16 ára.
Miöasala frá kl. 4
Slm 11384
Káta frænkan
Bráðskemmtileg ný þýzk gam
anmynd
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BSti
Slmi 11475
KamiSiufrúin
aðalhlutverkið leikur
GRETA GARBO
Sýnd kl. 7 og 9.
Prinsinn og betlarinn
Sýnd kl. 5.
HAFNARBÍd
Slmi 16444.
Sá síðasfi á listanum
Mjög sérstæð sakamáitmynd
Bönnuð lnnan 16 ára.
Sýnd kl 5, 7 og 9.