Tíminn - 24.12.1964, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 24. desember 1964
i
Hér á síðunni eru myndir frá fjórum borgum, sem eiga það sameiginlegt með öðrum borg-
um, að þar líður að jólum. Borgir þessar eru Berlín, Moskva, London og Washington. Hér að
neðan er myndin frá Berlín. Hiin sýnir gamla vini. Maðurinn er frá Vestur-Berlín en konan frá
Austur-Berlín. Fundir þeirra hafa orðið mögu'egir vegna þess að Berlínarmúrinn hefur verið
opnaður fyrir jólin. Myndin til hliðar cr tekin á Rauða torginu í Moskvu. Sjötíu og átta ára
gamall Svisslend'ngur, Max Daetwyler, er einn á göngu með hvítan friðarfána. Hann hefur
fcrðazt um allan heim með þennan fána og berst gegn notkun kjarnorkuvopna. Vopnuð lög-
regla fjarlægði hann af Rauða torginu.
Myndin til vinstri er tekin af jólaösinni í Petticoat Lane í
London. Sagt er, að aldrei hafi verið verzlað eins mikið í Bret-
landi og fyrir þessi jól, og gefur myndin nokkra hugmynd um
það, enda munu vart fleiri komast fyrir á þessum fræga mark-
aði í East End. Og frá Washington fengum við senda myndina
ner að neðan, sem sýnir Johnson, Bandaríkjaforseta vera ah
kveikja fimm þúsund rauð ljós á jólatrénu við Hvítahúsið. Á
bak við forsetann sér í Udall, innanríkisráðherra en lengst til
hægri stendur Humphrey varaforseti.