Tíminn - 29.12.1964, Qupperneq 1
285. tbl. — Þriðjudagur 29. desember 1964 — 48. árg,
Bíla leitað á
Hellisheiði
Strætisvagnarnir
festust
Ófært með öllu
Hafnarfjörð
Bíla fennti í kaf
með fólk
Ringulreið á aðal-
götunum.
Umferiin stöðvaðist
Þessa mynd tók Kári Jónasson um sjöleytið í gærkvöldi á Öskjuhlíðinni. Sést glögglega á henni hve myrk hríSin var þá, enda var varla stætt í
verztu hrinunum og ekki sá út úr augunum fyrir hríðinni.
BROTIZTINNISTOKKSEYRARKIRKJU
Á JÖIUNUM 00 STOLIÐ MESSUVlNI!
MB—Reykjavík, 28. desember
Nóttina milli annars og
þriðja í jólum var brotizt inn
í kirkjuna á Stokkseyri og stol
ið þaðan þremur flöskum af
messuvíni- Öðru mun ekki
hafa verið stolið, en þ|ófurinn |
eða þjófarnir hafa skemmt i
hurð og óhreinkað kirkjuna.
Mál þetta er í rannsókn, og hafa
nokkrir menn verið yfirheyrðir,
en enginn úrskurðaður í gæzlu- \
varðhald enn sem komið er.
Ekkert hefur enn þá komið fram,
sem bendir til þess að aðkomu
menn hafi verið þarna að verki,
en lögreglan á Selfossi, sem hefur
rannsókn málsins með höndum,
biður alla þá, sem upplýsingar
geta gefið um grunsamlegar
mannaferðir á Stokkseyri eða
í grend við hana þessa nótt, að
gefa henni upplýsingar. I án þess að nota til þess verkfæri.
Útidyrahurð kirkjunnar mun Millihurð, milli fordyris og kirkju
! ekki hafa verið rammlega læst, að skips var hins vegar læst og fór
minnsta kosti hefur þjófnum tek þjófurinn því upp á kirkjuloftið.
izt að komast ínn um útidyrnar' Svalir eru beggja vegna meðfram
kirkjuskipinu og virðist svo sem
þjófurinn hafi rennt sér niður
eftir stoð, ofan í kirkjuna. Þar
hefur hann lagt leið sína að altar
Framhald s bts ih
MB-Reykjavík, 28. desember.
Síðdegis í dag skall hríðarveður
á í Reykjavík og í kvöld má segja,
að blindbylur hafi verið kominn
um allt sunnan og vestanvert land
ið, og var búizt við að illviðrið
myndi ná yfir landið allt í nótt.
Búizt er við að eitthvað bloti í
nótt við ströndina hér suðvestan-
lands, en óvíst að þar verði um
neina hláku að ræða. Veðrinu var
spáð þegar í morgun, en margir
virðast hafa haft aðvaranir veður-
stofunnar að vettugi, sumir jafn-
vel lagt upp með ungbörn í fólks-
bðum á heiðarvegi, og má það
teljast ótrúlegt ábyrgðarleysL Hér
í Reykjavík varð algert umferðar-
öngþveiti í kvöld, og bðar voru
klukkustundum saman að brjótast
milli Kópavogs og Reykjavíkur og
margir urðu að yfirgefa bða sína.
Allir vegir á Suður- og Vestur-
landi munu kolófærir og bðl frá
vegagerðinni reynir í nótt að brjót
ast austur yfir Hellisheiði tfl að
aðstoða bfla, sem óttast er að séu
fenntir á heiðinni.
Páll Bergþórsson veðurfræðing-
ur sagði blaðinu í kvöld, að telja
mætti víst að illviðrið myndi ná
um allt land í nótt og búast mætti
við slæmu veðri víða á morgun.
Ekki má búast við neinum blota,
nema rétt við ströndina suðvestan
lands, með morgninum er líklegt
að hann gangi í norðaustrið og
kólni að nýju og bjóst Páll við
éljagangi á morgun. Klukkan átta
í kvöld var farið að snjóa víða
norðanlands. Veðri þessu olli
lægð, sem dýpkaði mjög ört á
Grænlandshafi, en í kvöld var hún
hætt að dýpka og taldi Páll, að
mesti krafturinn væri úr henni.
Eins og nærri má geta urðu
allir vegir á Suður- og Vestur-
Framh. á bls. 14.
/ fyrsta, annað og......
tuttugasta og fyrsta sinn
NTB-Róm, 28. des.
Giuseppe Saragat, hinn 66 ára
gamli utanríkisráðherra Ítalíu, var
i dag kjörinn forseti ’.andsins.
-'.aragat, sem er leiðtogi jafnaðar-
manna ftalíu, var kjörinn fjórði
furseti Ítalíu af ítalska þjóðþing-
iuu en áður hafði það gert 20 mis-
heppnaðar tilraunir til að kjósa
forseta landsins. Antonio Segni,
brests, var formlega leystur frá
embætti í dag.
í þrettán daga samfleytt hafði
sem segir af sér vegna heilsu-
þingið gert tilraun til að kjósa
forseta, en flokkarnir gátu ekki
komið sér saman. Eftir nokkuð
stjórnmálavafstur síðdegis í dag
tókst að tryggja Saragat nægilega
mörg atkvæði. Við fyrstu tvær
tilraunir þingsins til að kjósa for-
seta, þurfti frambjóðandinn að fá
tvo þriðju hluta af greiddum at-
kvæðum til að ná kosningu, en
eftir það nægði almennur meiri-
hluti, það er 412 atkvæði, til að
ná kosningu.
Það fór fyrst að vænkast fyrir
þinginu, þegar leiðtogi sósíalista,,
Framhald á 14. síðu
Jólatrés-
fagnaður
Framsóknarfélögln í Reykjavík halda jólatrésfagnað í Glaumbæ sunnudaginn 3. janúar kl. 3. Stjórnandi
verður Jónas Jónasson. hljómsveit Ólafs Gauks leikur og að sjálfsögðu kemur jólasveinnlnn í helmsókn.
Aðgöngumiðar eru seldir í Tjarnargötu 26, sími 1-55-64.
Guiseppe Saragat
í