Tíminn - 29.12.1964, Side 2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 29. desember 1964
HWOT
Mánudagur, 28. desember.
NTB-Bern. Rúmönskum
sendiráðsstarfsmanni hefur ver-
ið vikið úr landi í Sviss fyrir
að hafa staðið í sambandi við
njósnara og gefið honum upp-
lýsingar fyrir þriðja landið.
Svissneska dómsmálaráðuneyt-
ið skýrir frá þessu í dag og
segir manninn þegar hafa yfir-
gefið Sviss.
NTB-Madrid. Spánskur her-
réttur hefur dæmt forstjórann
Carlos Alvarez í sex mánaða
fangelsi fyrir að hafa farið æru
meiðandi orðum um hernaðar-
yfirvöld landsins.
NTB-Tel Aviv. Jórdanskir
hermenn réðust í dag á ísra-
elskar varðsveitir á Budrus-
svæðinu og á svæðinu fyrir
austan Kassem. Varðsveitirnar
sneru til gagnárásar, en ísrael
mun hafa kvartað yfir þessu
við vopnahlésnefnd S.Þ.
NTB-Saigon. — Hersveitir
S-Vietnam unnu í gær einn
stærsta sigur sinn yfir liðs-
sveitum N-Vietnam. Að
minnsta kosti 87 hermenn Viet
Cong féllu í orrustunni og her-
menn ríkisstjórnarinnar náðu
undir sig meira magni af vopn
um en nokkru sinni áður. Bar-
daginn átti sér stað 145 km
suðvestur af Saigon. Samtímis
biðu hersveitir ríkisstjórnarinn-
ar ósigur á öðrupi stað 80 km
fyrir suðvestan Saigon.
NTB-Lagos. — Deild úr nig-
erianska hernum marséraði í
dag um götur höfuðborgarinn-
ar í Lagos, rétt áður en fyrir-
huguð mótmælaganga átti að
fara fram, vegna væntanlegra
kosninga í landinu. Tilgangur-
inn með hersýningunni var að
sýna íbúunum fram á það, að
herinn er reiðubúinn ef til ein-
hverra uppþota kemur.
NTB-Bonn. V-Þýzkaland mun
reyna að fá hlutdeild í yfirráð-
um yfir kjarnorkuvopnum
Frakka, sagði vestur-þýzki ráð-
herrann Heinrich Krone í dag.
NTB-Drammen. Mikill bruni
varð í dag í Drammen . Osló.
Stórt þriggja hæða hús brann
til grunna og tókst með naum-
indum að bjarga konu einni úr
eldinum.
NTB-Mataro. Fjórar konur
létu lífið og 23 farþegar særð-
ust, þegar járnbrautarlest og
áætlunarbíll rákust á í gær-
kveldi í Mataro á Suður-Spáni.
Allt voru það Spánverjar, sem
slösuðust.
NTB-Hongkong. Hæstiréttur
Kína náðaði í dag 53 stríðs-
fanga eftir því sem kínverska
fréttastofan Nýja Kína segir.
Ástæðan er sú, að þeir hafa
sýnt góða hegðun. 45 þeirra,
sem látnir hafa verið lausir,
voru áhangendur Chiang Kai
Shek.
NTB-Buenos Aires. Starfs-
menn við argentínsku járn-
brautimar fóru í dag í eins
klukkutíma verkfall til að
styðja kröfu sína um hærri
laun og betri vinnuskilyrði.
Öll starfsemi járnbrautanna
var lömuð í dag vegna þessa
verkfalls.
Helmingur fang-
anna enn á lífí
sem eru í haldi hjá uppreisnarmönnum á Paulís-
Wambasvæðinu
NTB-Leopoldville, 28. desember.
Tíu Grikkir, sem hvítir mála-
liðar hittu i dag fyrir sunnan borg
ina Paulis í Kongó, hafa skýrt frá
því, að minnsta kosti helmingur af
þeim 160 föngum, sem enn eru í
haldi hjá uppreisnarmönnum á
svæðinu Paulis-Wamba, séu á lífi.
Ekki skýrðu þeir frá því, hvað
orðið hefði af hinum helmingnum,
en flestir eru fangarnir trúboðar
og verzlunarmenn.
Hinir hvítu málaliðar sendu
upplýsingar um þetta til Leopold
ville í gegnum eigin senditæiki.
Þeir rákust á Grikkina tíu í ná
grenni þorpsins, Metchi, sem er
40 kim. fyrir suðaustan Paulis.
Skýrðu þeir m. a. frá því, að
Á sunnudag klukkan 2 söng
Lögreglukórinn í Reykjavík
jólalög í Neskirkju og á milli
las séra Frank M. Halldórsson
ritningargreinar. í kirkjunni
var um 600 manns, eða eins
margir, og hún rúmar. Lög-
reglumennirnir voru allir í
einkennisbúningum, og var há
tíðlegt að sjá þá á kórlofti
syngja jólalögin. Lögreglukór
inn er nýbúinn að syngja fiög
ur jólalög inn á plötu, sem kom
á markaðinn fyrir iólin. Stjórn
andi kórsins er Páll Kr. Páls-
son. (Tímamynd GE).
1 læknir, sem starfaði í Kongó á
vegum heilbrigðismálastofnunar
SÞ hefði verið drepinn af upp-
reisnarmönnuim í nóvemberlok.
Grikkirnir vissu ekki, hvað lækn
irinn hét.
Mótmælendatrúboðar, sem bjarg
að var frá Paulis til Leopoldville
26. nóvember síðastliðinn, skýrðu
frá því, að allir hvítir íbúar í
Wamba hefðu verið drepnir af
uppreisnarmönnum. Síðan hafa
borizt ýmsar fregnir, sem benda
til þess, að þar séu hvítir menn
á lífi. Uppreisnarmennirnir gera
sér far um að safna öllum hvít-
um föngum sínum saman í Wamba,
sem er í 95 km. fjarlægð fyrir
norðan Paulis. Spánskur sendi-
ráðsstarfsmaður í Leopoldville,
'hefur skýrt frá því, að 25 spánsk
ar nunnur séu einhvers staðar á
þessu svæði.
Eini Bandaríkjamaðurinn á
yfirráðasvæði uppreisnarmanna,
sem ekikert er vitað um, William
Chesney, er líklega í Wamba, eða
svo heldur bandarísika sendiráðið í
Leopoldville.
Evrópuráðið ræddi
tollamálin
KULDAR 0G FL0Ð ISVIÞJ0Ð 0G BANDARIKJUNUM
MANNSKAÐAR MIKLIR
AF VÖLDUM VEÐURS
NTB-San Fransisco, Stokkhólmur
og New York, 28. desomber.
í Bandaríkjunum og Svíþjóð
hafa orðið miklir mannskaðar yfir
jólin. Mikil flóð voru á Kyrra-
hafsströnd Ameríku og hefur
fiöldi manns látið lífið af völdum
þeirra. f dag var óveður á þessum
slóðum, blindbylur og snjókoma,
og bætti það ekki úr skák. Flóðin
hafa nú staðið yfir í viku og hafa
ríkin lengst í norðvestri orðið harð
ast úti af þeirra völdum. Þegar
hafa í kringum 40 manns drukkn
að og rúmlega 16.300 fjölskyldur
eru heimilislausar. Reynir Rauði
| Krossinn að aðstoða þetta fólk,
; sem misst hefur heimili sín,
bændabýli eða verzlanir í Kali-
fomíu, Oregon, Idaho, Washing
ton og Nevada. Tjón af völdum
flóðanna mun nú nema milljörð
um dollara.
Mikill kuldi í Svfþjóð yfir jól-
in orsakaði það, að alls drukknuðu
þar sjö manns. Margir ætluðu sér
að nota frídagana til að veiða af
ís og héldu að ísinn væri traustur,
þar sem þetta voru köldustu jól,
sem kornið hafa í Svíiþjóð í fleiri
ár. í flestum tilfellum barst ís-
Tannlæknar önnum
kafnir á jélunum
inn með áðurgreindum afleiðing-
um.
Á miðnætti síðastliðna nótt höfðu
555 manns látizt í umferðarslys
um á þjóðvegum Bandaríkjanna
síðustu 78 klutokutímana. Einu
sinni áður hefur jólaumferðin or-
sakað fleiri dauðaslys, það var
árið 1955, þegar 609 mann létust
í umferðinni. Fimm ríki í Amer
íku gátu státað af því í dag, að
enginn hefði beðið bana í um-
ferðarslysum þar yfir jólin, Al-
aska, Hawai, Maime. Montana og
Wasihington. Flestir létu lífið í
Kaliforníu, eða 59. í New York,
létust 36 og 35 í Michigan. í
Kanada misistu alls 57 manns lífið
í umferðarslysum yfir jólin.
E.J.-Reyikjavík, 28. desember.
Oft vill verða svo, að jólin
verði hjá mörgum mikil tann-
skemmdatíð, því að mikið -:-r um
sætindaát. Hér i borginni voru
tannlækningastofur opnar -i viss
um tímum alla hátíðisdagana, og
var nóg að gera hjá þeim að
venju.
Á aðfangadagsikvöld var tann-
lækningastofa Gunnars Skafta-
sonar opin kl 8—13 og kl 13.30—
16, og var oft á tíðum Yilt fullt,
en sanáhlé á milli. Vai það fólk
Ráðherranefnd Evrópuráðsins
hélt fund í París 18. og 19. des-
ember. Norski ráðherrann Halvard
Lange stjórnaði fundinum. Fulltrú
ar íslands voru ambassadorarnir
Pétur Eggerz og Pétur Thorsteins
son.
Ráðherrarnir ræddu um tolla-
viðræðumar, sem fram fara á
vegum GATT, og um viðskipta-
bandalögin í Evrópu. Þá fjölluðu
þeir um samstarf ríkjanna í Vest-
ur-Evrópu og Norður-Amerítou og
þann áhuga, sem fram hefur kom
ið á að þingmenn i þessum ríkj
um haldi með sér fundi. Rætt var
einnig um þróun mála í Austur-
Evrópu og hugsanlegar afleiðing-
ar þeirrari þróunar. Kotn glöggt
fram í umræðunum, að Evrópu-
ráðsríkin eru ekki sem slík aðili
að flokkamyndun á alþjóðavett-
vangi, en eru reiðubúin til sam-
starfs við önnur ríki innan þeirra
marka, sem stoínskrá Evrópuráðs-
ins setur.
á öllum aldri, simábörn og aldrað
| fólk.
Á jóladag hafði tannlækninga-
stofa Magnúsar R. Gíslasonar op-
ið kl. 9—12, á annan jóladag tann
lækningastofa Jóhanns Möller kl. |
13—17 og á þriðja í jólum tann- |
lækningastofa Kristjáns Ingólfs-
sonar kl. 14—16.
Talsvert af fólki kom á stof- |
j urnar alla þessa daga, og var mik
I ið um börn, en þau eru alltaf stór
j hluti þeirra, sem fara til tannlækn
i anna.
VILJA GREIÐA
HÖFUNDARLAUN
Fyrir notokru barst Ragnari Ó1 j
afssyni lögfræðingi smá peninga
sending eða a. m. k. tilkynning
um peninga. sem hann var beðinn
að koma til skila. Þetta voru höf- I
undarlp”- f-t> Þýzkalandi — fyrir
birti’ inhverju, efni eftir
Dai ' Isson skáld frá Akur-
eyri fvrir nokkuð löngu).
Ragna >iun vera að leita fyrir
sér, hver af ættingjum Davíðs
eigi að fá krónurnar frá þessum
heiðarlegu möánuim í Þýzkál. Upp
lýsingar um DÞ er að finna í rit-
gerðasafni Davíðs Stefánssonar.
Drætti
Sokið
NÚMER BIRT
12. janúar
Á þorláksmessudag var
dregið i happdrættinu.
Vegna skilagreina, sem eru
á leiðinni utan af landi,
verða vinningsnúmer ekki
birt fyrr en þriðjudaginn 12.
janúar.
Happdrættið þakkar vel-
unnurum sínum og stuðn-
ingsmönum veittan stuðn-
ing.
Happdrætti Fram-
sóknarflokksins.