Tíminn - 29.12.1964, Side 16
Slökkviliðsmenn eru hér að bera í land skipverjann á Páli Pálssyni GK 360 frá Sandgerði. Skipverjlnn, Kristó-
fer Kristjánsson, hafði kafnað af reyk, er eldur kom upp í bátnum. (Altar myndirnar hér á síðunni tók Ijós-
myndari Tímans GE).
ELDUR í PÁLI PÁLSSYNI
Þriðjudagur 29, desember 1964
- MADUR KAFNAR í REYK
KJ—Reykjavík 28. des.
Um sexleytið á aðfangadags
morgun kom upp eldur í vél-
bátunum Páli Pálssyni frá
Sandgerði, þar sem hann lá
við Grandagarð ásamt öðrum
bátum. Eftir einnar klukku
stundar slökkvistarf réðust
slökkviliðsmenn til niður-
göngu í bátinn, og fundu þá
látinn mann þar um borð.
Skipverji á Goðanesinu, en það
lá rétt hjá Páli Pálssyni, veitti at-
hygli reyk um klukkan sex á að-
fangadag, sem lagði úr Páli Páls-
syni, og hugðist þegar kalla á
slökkviliðið. Varð hann að klifra
eftir ísuðum kaðli, sem lá milli
skips og bryggju, til þess að kom-
ast í land, og er það vel af sér
vikið. Slökkviliðið kom innan
stundar á staðinn og var þá eldur
í bátnum og mikill reykur. Eftir
um klukkustundar slökkvistarf
komust slökkviliðsmenn loks niður
í bátinn og fundu þeir þá meðvit-
undarlausan mann liggjandi í
einni kojunni í lúkar bátsins. Var
þegar farið með manninn á Slysa-
varðstofuna, en það var um sein-
an, því maðurinn hefur kafnað
vegna reyksins í lúkarnum. Eng-
in brunasár voru þó á manninum,
sem hét Kristófer Kristiánsson
til heimilis að Grettisgötu 64. Var
hann vélstjóri á bátnum, nálægt
fertugur að aldri.
BRUNINN í
HÖFNINNI
Meðal margra bruna, sem
urðu í Reykjavíkurhöfn um
jólin, var bruni í mótorbátnum
Jóni Bjarnasyni. Eldur kom
upp í bátnum á annan jóladag
um klukkan sjö, og lá báturinn
þá við Grandagarð. Eldur hafði
verið skilinn eftir á olíuvél í
lúkar bátsins, þegar hann var
yfirgefinn, og varð vélin gló-
andi rauð. Kviknaði í þiljum
við vélina, en slökkviliðinu í
Reykjavík tókst að ráða niður-
lögum eldsins á skömmum
tíma, en skemmdir urðu þó
nokkrar í lúkamum. Myndin
hér til hliðar var tekin þegar
slökkviliðið var komið á vett-
vang. (Tímamynd G.E.).
Hann varð heldur hissa skipverjinn
á Marzinum, þegar hann kom rétt
fyrlr 10 á sunnudagskvöldið og ætl- j
aði um borð, en hitti þá fyrir heil- j
an hóp slökkviliðsmanna. Á mynd- |
ELDUR í MARZINUM
Marzinn lá við Togarabryggjuna
í Reykjavíkurhöfn, þegar eldurinn
kom upp, og eru eldsupptök
ókunn. Sióréttur mun fjalla um
brunann.
Inni hér að neðan sést svo reykjar KJ-Reykjavík, 28. des. | vaktmaður um borð í bv. Marz at-1 skipsins, og kallaði hann á slökkvi-
kófið upp úr Marzinum. Um áttaleytið í gærkveldi veitti I hygli reyk, sem lagði úr lúkar I liðið í Reykjavík.
Er slökkviliðið kom á staðinn,
lagði mikinn reyk upp úr lúkar
skipsins, og var áðstaða slökkvi-
starfsins hin erfiðasta, enda tók
það upp undir tvo tíma að ráða
niðurlögum eldsins. Notuðu
slökkviliðsmenn grímur við starf
sitt, en urðu þó að hörfa úr lúkarn
um vegna hita þar niðri.
Marzinn átti að fara á veiðar
klukkan tíu og voru skipsmenn að
tínast um borð, þegar slökkvistarf-
ið stóð sem hæst. Enginn var þó
niðri í lúkarnum, þegar eldurinn
kom. Skemmdir urðu af vatni, hita
og reyk, en þó mun skipið fara á
veiðar k r gamlársdag, að því er
Tryggvi Ófeigsson eigandi skipsins
tjáði Timanum í dag.