Tíminn - 14.03.1965, Síða 3
SUNNUDAGTJR 14. marz 1965
TÍMINN
3
í SPEGLITÍMANS
ton vaxmyndasafn. Er þetta
eins konar sagnfræðilegt safn,
sem sýnir helztu atburði í sögu
Bandarikjanna og merkustu
menn þeirra. Myndin hér að
neðan, af frú Kennedy og börn
um hennar er meðal vaxmynd-
anna. Þar er einnig mynd af
Leifi Eiríkssyni, þegar hann
finnur Vínlandið.
•k
Refur einn í Englandi lék
heidur betur á 32 veiðihunda
og 18 veiðimenn nú nýlega.
Hundarnir voru alveg á hælum
refsins, eftir að hafa hlaupið
i tæpa tvo kilómetra. Refurinn
hljóp þá að stað einum, sem
notaður var fyrir úrgangstjöru
frá tjöruverksmiðjunum f
Yorkshire. Hann þekkti örugga
leið í gegnum þetta tjöruhaf,
en hundamir voru of ákafir
og hlupu beint út í tjöruna og
festust!
Veiðimennimir urðu þegar
aff hætta eftirförinni og það
tók þá margar klukkustundir
að ná hundunum upp og
þvo af þeim tjöruna með sér-
stakri olíu frá tjöruverksmlðj-
unum.
*
Næstelzta prinsessa Hollands
Margriet, opinberaffi nýlega
trúiofun sína og manns af borg
aralegum ættum, Pieter van
Vollenhoven. Foreldrar hennar
veittu henni blessun sína, og
Margriet mun fá að halda erfða
rétti sínum til krúnunnar, þótt
hún hafi ekki náð sér í mann af
konungsættum. Myndin af
Margriet og Pieter var tekin
nú á dögunum í garði Soest-
dijk-hallar.
Elzta prinsessan og ríkisarf-
inn, Beatrix, er ekki eins hepp-
in og yngri systirin. Hún er
ennþá ógift, en hefur oft verið
nefnd við ýmsa unga menn af
borgaralegum ættum. Foreldr
ar hennar hafa aftur á móti
alltaf skipað henni að slíta
þeim samböndum, — virðast
þau staðráðin í því að finna
prins handa henni. Það er því
kannski ekki furða, að Beatrix
brast í grát, skömmu eftir að
tilkynnt var um trúlofun yngri
systurinnar, sem fékk að njóta
þess frelsis, sem henni er neit
að um.
Þessar laglegu stúlkur leika í kvikmyndinni „Secret Wars.” Sú eina, sem eitthvað er þekkt, er stúlkan lengst til vinstri. Hún
er ítölsk og heitir Maria Grazia Buccella, og er þetta fyrsta stóra hlutverk hennar. Þaff tók hana þrjú ár að fá sæmilega stórt
hlutverk, og það var ekki. fyrr en hún fékk að leika í einni James Bond-kvikmyndinni, að kvikmyndaframleiðendur fóru raunveru-
lega að taka eftir henni.
Skurðlæknir einn í Valpar-
aiso í ChUe skar nýlega upp
mann, sem kvartað hafði und-
an verkjum í maga. í maga
mannsins fann hann heila kóka-
kóla-flösku! Þegar læknirinn
spurði sjúkling sinn nokkru síff
ar að því, hvernig í ósköpunum
flaskan hefði komizt þangað,
varð fátt um svör, en sjúklingur
inn taldi þó líklegast, að hún
hefði lent í maga hans, þegar
hann átti í miklum slagsmál-
um skömmu áffur.
Hið nýjastr. frá Bandaríkjun
um er „loftvogarhnappar” í
skyrtuermarnar. Hnappar þess-
ir eru gerðir úr ofni, sem
skiptir Iit eftir því, hvernig
veður er, svo að menn þurfa
aðeins að líta á hnappana til
þess að sjá, Iivers konar veð-
urfar er í vændum.
Þessi Iitli Land-Rover er sa eini sinnar tegundar, sem til er í heiminum, og hann var sérstaklega
gerður fyrir Abdullah prins, son Husseins Jórdaníukonungs, en litli prinsinn, sem hér sést aka
blfreið sinni, er einungis 3ja ára. Bifreiðin er knúin tveim 12 volta batteríum, og getur farið 18
km. á klukkustund.
★
Maður nokkur í Nyköbing,
Ragnar Jörgensen, formaffurr
klúbbs frímerkjasafnara þar í
borg, skrifaði fyrir nokkru
★
★
bréf til sjálfs sín og sendi það
umhverfis jörðina.
Nú er það komið til hans á
ný — eftir 150 daga ferð um-
hverfis jörðina, — með póst-
stímplum frá Buenos Aires,
San Fransisco, Auckland, Tókíó
og Cape Town. Bréfið var sent
frá Nyköbing 10 .október í
fyrra, en þá var \ 25. sinn
haldið upp á „dag frímerkisins.’
Nú eru brezkir þingmenn í
örgu skapi út af dönsku tyggi-
gúmmíi cinungis vegna þess að
utan á pökkunum eru myndir
af frekar léttklæddum yngis-
meyjum úr síðustu James
Bond-kvikmyndinni, „Goldfing-
er’. Richard Crankshaw, einn
af þingmönnum Verkamanna-
*
flokksins, vill láta banna inn-
flutning á þessum pökkum.
★
S»gt hefur verið um ákveðma
bflategund, sem hefur f|utzt
hingað eins og aðrar bílateg-
undir, sem ‘ramleiddar eru f
heiminuin, að þegar frost sé,
þá beri bíliinn heit'ið Marteinn
Lúter. Og kynni einhver að
að spyrja, hvaða samhengi sé í
þessu, þá er því til að svara,
að þeir, sem hafa fundið upp
þessa frost-nafngift á bíltium,
minna á, að Aarteinn Lúter
sagði eitt sinn: „Hér stend ég
og get ekki annað“.
*
Ákveðið hefu verið að kvik-
mynda skáldsöguna „Vesturfar
amir” eftir Wilhelm Moberg.
Það er Svensk Filmindustri,
sem ætlar að gera kvikmyndina
og forstjóri félagsins, Kenne
Fant, ætlar að reyna að fá
Max von Sydow og Bibi And-
erson til þess að leika aðal-
hlutverkin.
★
Maria Scheii hin þekkta
þýzka kvikmyndaleikkona, leik
ur um þessar mundir Nóm í
leikriti Ibsens, Brúðuheimilið,
í Theater am Kurfiirstendamm
í Berlín, og eru gagn-
rýnendur sammála um, að leik
ur hennar sé herfilegur. Aftur
á móti leikur hin svo til ó-
þekkta systir hennar, Immy
Schell, einnig í Ieikhúsi i Ber-
lín, Renaissance Theater, og
fær geysigóða dóma. Hún leik-
ur í gamanleikritinu „Sostell
ich mir das vor”.