Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 1
■■■aHBR
Þessa mynd fékk Tímlnn símsenda i gær. Hún er tekln eftir sjónvarpssendingunni og sýnir Leonov geimfara svífa utan geimfarsins,
er sýnist að mestu hyítt j sjónvarpinu og hann er einnig hvítur að sjá. Efst er lúgan sem hann fór út um og liggur taugin þaðan og í
búning hans um hálsmáltð.
GEIMKAPP-
HLAUPID
NÆR TIL
ISLANDS
Sjá baksíðu
Hert eftir
lit dregur
úr siysum
Sjá bls. 1
MADURINN STIGUR UTI
GEIMINN í FYRSTA SINN
NTB—Moskvu, fimmtudag.
Sovétríkin unnu í dag nýjan glæsilegan sigur í geimnum, þegar einn þeirra tveggja
geimfara, sem skotið var upp í morgun með geimfarinu Voshkod 2, fór út úr geim-
farinu og dvaldi utan þess í 10 mínútur, meðan geimfarið fór með 8 km. hraða á sek-
úndu. Geimfarinn fór síðan inn í geimfarið aftur og varð ekkert meint af ferðinni.
Þessari frækiför var sjónvarpað til jarðar, og gátu sovézkir borgarar fylgzt með öllu.
Voshkod (sólarupprás) 2 var
skotið upp kl. 6 í morgun að
íslenzkum tíma, og innanborðs
voru tveir geimfarar, Pavel
Beljajev, offursti, sem er yfir-
maður geimfarsins, og Aleksei
Leonov, liðsforingi.
Sagt var í Moskvu í dag, að
geimfarið myndi fara a.m.k.
13 hringferðir umhverfis jörð-
ina. Samkvæmt tilkynningu
frá Tass mun geimfarið fara yf-
ir Sovétríkin í 13. ferð sinni
um kl. 12.14 að íslenzkum
tíma, og er því hugsanlegt, að
Voshkod 2 lendi þá einhvers
staðar i Sovétríkjunum.
Hápunktur geimferðarinnar
var þegar Leonov fór út úr
geimfarinu og dvaldist utan
þess í 10 mínútur. Áður en
hann fór út, var hann í 10
mínútur í sérstökum aðlögunar
klefa til þess að venjast aðstæð
um þeim, sem biðu hans fyrir
utan geimfarið. Var hann þvi
samtals í 20 mínútur utan
stjórnklefans.
För Leonovs út úr geimfar-
inu og inn í það aftur, var
sjónvarpað nokkrum klukku-/\
stundum síðar. Fengu áhorfend
urnir að sjá hinn Ijóshærða,
unglega geimfara, þegar hann
opnaði lúguna á geimfarinu og
vó sig varlega upp úr því.
Hann var klæddur sérstökum
geimbúningi til varnar sólar-
hitanum og sérstökum hjálmi.
Fyrst kom efri hluti líkamans
upp úr geimfarinu, en hann
lyfti síðan fótunum upp. Þann-
ig hélt hann sér í geimfarið
andartak, en reisti sig siðan
upp og stóð uppréttur á geim-
farinu .Hann var festur við
geimfarið með línu, en virtist
annars svífa í loftinu. Skamma
stund sveif hann með höfuðið
næst geimfarinu. f sjónvarp-
inu virtist allt geimfarið hvítt
eins og það væri þakið snjó.
Geimfarið fór með 8 km.
hraða á sekúndu þá stund, sem
Leonov var utan þess. Tass
segir, að geimfarinn hafi farið
í allt að fimm metra fjarlægð
frá geimfarinu. Sérstök mynda
vél, sem fest var við geimfarið
tók myndir af Leonov, og önn
ur myndavél sendi sjónvarps-
myndirnar til jarðar. Leonov
athugaði geimfarið að utan,
tók nokkr'ar myndir af því og
gerði ýmsar athuganir á jörð-
inni og himinhvolfinu. Auk
þess gerði hann ýmsar aðrar
rannsóknir, sem skipulagðar
höfðu verið áður en geimfar-
inu hafði verið skotið á loft,
en Tass sagði ekkert nánar um,
hvers konar athuganir það hafi
verið.og erfitt var að sjá ná-
kvæmlega í sjónvarpinu, hvað
hann gerði. Er þó talið líklegt,
að hann hafi athugað, hvort
hægt væri að setja saman
gervihnött úti í geimnum úr
stykkjum ,sem áður væri skot-
ið upp í geiminn.
Jarðfirð geimfarsins var 495
km., og er það meiri hæð en
nokkur maður hefur farið í
áður. Geimferðabúningurinn,
sem Leonov var klæddur í, átti
að verja hann gegn hinum
geysilega hita sólarinnar, og
gera honum kleift að anda eðli
lega. Ef einhver þeirra agna,
sem eru á svéimi í geimnum,
hefði náð að gera gat á geim-
búninginn, þá hefði Leonov
brunnið upp á samri stundu og
ef strengurinn, sem tengdi Leo
nov við geimfarið, hefði slitn-
að, hefði hann haldið áfram
að svífa umhverfis jörðina eins
og lifandi gervihnöttur í um
tvær vikur en þá hefði hann
komið inn í andrúmsloft jarð-
arog brunnið upp til agna.
Segja sérfræðingar, að hann
hafi tekið á sig ótrúlega á-
hættu, þegar hana fór út úr
geimfarinu .
Beljajev offursti, yfirmaður
á Voshkod 2, er elztur þeirra
Rússa ,sem farið hafa í geim-
ferðir. Geimfararnir tveir,
höfðu stöðugt samband sín á
milli meðan Leonov var utan
geimfarsins, og þegar hann var
kominn inn í það aftur, sendi
kominn inn í það eftur, sendi
Beljajev eftirfarandi skeyti til
jarðar: — „Skipunin um að
yfirgefa geinúarið og fara inn
í það aftur, hefur verið fram-
kvæmd.”
Þegar Leonov var aftur kom-
inn inn í geimfarið, tók hann
sér smáhvíld. Því næst var lík-
amlegt ástand beggja geimfar-
anna athugað með aðstoð
tækja, sem sendu upplýsingar
til jarðarinnar. Reyndist allt
ástand þeirra eðlilegt. 19 gráða
hiti á Celcius er inni í klef-
anum og loftþrýstingurinn 760 !
millibarar.
Eftir að hafa hvílt sig.fengu
geimfararnir sér góða máltíð,
Framhald á 14. síffu i
>