Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 2
2 TIMINN FÖSTUDAGUR 19. marz 1965 FIMMTUDAG, 18. marz. NTB-London. — Skoðanakönn- unin í Bretlandi í dag sýndi að vinsældir Verkamannaflokks- ins hafa aukizt mikið. Hafði flokkurinn nú 9% meira fylgi en íhaldsflokkurisin, og er þetta helmingi meira en skoð- anakönnun sýndi fyrir einum mánuði. Bæði íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi fl'okkuirinn telja, að þetta auki mjög líkuinnar á, að kostningar verði Bretlandi bráðlega, jafnvel þegar i júní. Verkamannaflokkurinn, sem verið hefur við völd í fimm mánuði, hefur einunigis 4 þing- manna meirihluta, og talið er víst, að þess'i meirihluti minnki um helming þegar aukakosn- ingar hafa farið fram í tveim kjördæmum. Af hálfu ríkisstjórnarinnar er sagt, að Wilson hafi ekki í huga að ganga til kosninga í bráð, en íhaldsmenn og frjáls- lyndir efast um, að þessi yfir- lýsing sé rétt. NTB-Saigon. — Yfirmenn hers ins í Suður-Víetnam telja, að Víet Cong undirbúi nú meiri háttar árás á bandarísku her- stöðina Da Nang, þar sem 3.500 bandarískir landgönguliðar gengu á land nýlega, og þar sem Bandaríkjamenn hafa Hawk-eldflaugar. Segja tals- menn hersins, að Víet Cong hafi dregið saman mikið lið við Quang Tin, um 80 km frá Da Nang. NTB-Montgomery. — Blökku- niannaleiðtogino Dr. Mart'in Luther King og yfirvöldin í Momtgomery, Alabama, gerðu í dag með sér nýjan samning um ýmis atriði i sambandi við væntanlegar mótmælagöngur í Mongomery. í gær úrskurðaði sambandsdómstóll, að blökku- menn hefðu leyfi til þess að fara í mótmælagöngu þá. sem áætluð er, frá Selma til Mont- gómery, höfuðborgar Alabama. Lögreglan hefur stöðvað þessa göngu tvisvar sinnum, í fyrra s'innið með mikilli grimmd. NTB-Kario. — Lögreglan i Ka- iró, höfuðborg Arabíska' sam- bandslýðveldisins, stöðvaði í dag um 200 stúdenta, sem voru á leið til vestur-þýzka sendi- ráðsins þar í borg. í stað þess gengu stúdentarnir til aðal- stöðva Samhands Arabaríkja og hrópuðu ýmis slagorð til stuðnings einingu Arabaríkja. NTB-Washington. — Sagt var oþinberlega i Washington í dag, að bandaríska þingið muni fljótt afgreiða frumvarp Johnsons forseta um kosning- arrétt blökkumanna. Formaður laganefndarinnar sagði, að haldnir yrðu kvöldfundir um frumvarpið. NTB-Stokkhólmi. — Kona ein fæddi barn sitt í aftursæti leigubifreiðar, sem lent hafði í mikill bifreiðaþvögu. og gekk gekk fæðingin vel. Var það ekki minnst að þakka eigin- manni frúarinnar, sem aðstoð- iði við fæðinguna. Frá borgarstjórnarfundi í gærkveldi: Aukii umferðareftirlit stórfækkar slysunum Skýrslur logreglunnar sýna þetta óumdeilanlega ,en íhaldið hafnar tillögu um að byggja á beirri reynslu. AK—Reykjavík, fimmtudag. „Með tilvísunar til þeirrar stað- reyndar, að í des.mán. 1963 og 1964 urðu engin dauðaslys í um- ferðinni í Reykjavík, og verulega dró úr öðrum umferðarslysum, þrátt fyrir óvenju mikla umferð, skammdegismyrkur og því meiri slysahættu en í annan tíma, — og með því að þennan árangur má vafalaust þakka stórauk-nu eftir- liti umferðarlögreglunnar í des- ember, þá telur borgarstjórnin ein- sætt að auka eftirlitið á öðrum tím um ársins og felur borgarstjóra að sjá um, að það verði gert.” Borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins, Björn Guðmundsson og Kristján Benediktsson, fluttu þessa tillögu á fundi borgarstjórn- ar Reykjavíkur í kvöld, en borgar- stjómarmeirihlutinn taldi að aukn ing eftirlitsins væri mjög dýr, og að unnið yrði að þessum málum með sama hætti og áður, hafnaði sem sagt alveg að breyta til og auka umferðarslysavarnir á grund velli þessarar mikilvægu reynslu, sem fengizt hefur. Björn Guðmundsson sagði í framsöguræðu, að í tillögunni væri bent á óvéfengjanlegar stað- Erfítt ai vera smur frægs rnarns ag feta í fétspor hans GB-Reykjavík, íimmtudag. Peter Serkin píanóleikari, sem hingað er kominn til að halda tóh- leika fyrir styrktarfélaga Tónilst- Peter Serkin Tímamynd—GE. FUF-Reykjavík Jón Félag ungra Framsóknar- manna í Reykjt vík heldur al- mennan félags- fund að Tjarnai götu 26, þriðju íaginn 23. marz n. k. kl. 8.30. Fundarefni er: Utanríkisverzlun og marksmái Is- lendinga — Hvað er vænlegast til eflingar markaða íslendinga er- lendis? Framsögumaður verður Jón Skaftason, alþingismaður. Allt Framsóknarfólk er velkomið á fundinn. — Stjórn FUF. arfélagsins í Beykjavík í fyrsta sitnn. en vonandi ekki siðasta, á ekki langt að sækja músikgáfuna. Faðir. hans er einn; af fremstu píanóleikurum neims Rudolf Ser- kin, og í móðurætt er hann kom- inn af miklu tónl’istarfólki, Busch- ættinni, inóðurafi hans var himn frægi fiðluleikaú Adolf Busch, sem er Iátinn, en þeir tenigdafeðg- arnir Rudolf Serkin og Adolf Busch eru reykvískum tónleika- gestum kunnir al eigitn reynd. Ég sá það ekki fyrr en of seint. að þessi 17 ára píanóleikari hafði verið mér samferða í flugvélinni, frá Glasgow fyrradag, hefði máske annars tekið hann tali í flugvélinni, en Kom fyrst auga á hann, þegar forkólfar Tónlistar- félagsins, Ragnar í Smára og Björn í búðinm, tóku á móti honum opnum örmum i Flug- félagsskálanum og hurfu á brott með hann hið bráðasta. En ég hitti unga manninn snöggvast að máli í Hótei Sögu í dag, spurði1 hvort hann hefði áður komið til i íslands — Já, einu sinni, fyrir tólf ár- um, kom ég hingað með foreldrum mínum, en þá var ég bara fimm; Fundur Framherja í um kjaramálin Fundur í Fram ! herja, félagi launþega, verður haldinn að Tjarn argötu 26, sunnu dagin 21. þ. m. og hefst hann kl. 2 e. h. Fundar- efni: — Um- ræður um kjara málin og vænt- anlega kjarasamninga. Framsögu maður: Sigurvin Einarsson, al- þingismaður. Mætið vel og stundvíslega Nýir félagar velkomnir. — Stjórnin. i Tölur ársins 1964 voru, að af 50 slysum á hjólreiðamönnum varð Framhaid a 14. siftu reyndir, bæði um nauðsyn þess að auka mjög eftirlit umferðar- lögreglunnar og þann góða árang- ur, sem sannazt hefði af auknu eftirliti í tveimur desembermánuð- um undanfarinna ára, Nefndi hann síðan ýmsar mjög athyglis- verðar tölur þessu til staðfesting- ar, og má nefna, að af 50 hjól- raiðamönnum, sem slösuðust á árinu 1963, voru aðeins 3 í des. Af 52 slösuðum ökumönnum voru aðeins 3 í sama mánuði, af 92 far þegum aðeins 5 í des., og af 5 dauðaslysum á árinu, varð ekkert í desember. ára, og ég man sáralítið eftir því. — Hvernig er að vera sonur heimsfrægs píanóle Aara, feta í fótspor hans, velja sama hljóð- færið og hefja slíka göngu land úr landi? — Satt bezt að segja er enginn öfundsverður af því, mér finnst það býsna erfitt, ekki get ég borið á móti því. — Er ekki fjölskylda yðar hljóð færaleikarar af einhverju tagi? — Öll leikum við á eitthvert hljóðfæri, en mamma gerði það aldrei að starfi, og af okkur syst- kinunum sex, erum við aðeins tveir bræður, sem höfum gert tón- listina að lífsstarfi, John bróðir minn er hornleikari og að taka við starfi í sinfóníuhljómsveit. — Hvenær byrðuðuð þér að læra á píanó? — Árið eftir að ég kom hingað til íslands fyrst, sex ára gamall. — Og hvenær fyrst upp á tón- leikapallinn? — Þegar ég var ellefu ára, á tónleikum í Vermont-ríki, þar sem ég ólst upp framundir fermingar- aldur, en nú eigum við heima i New York-ríki. — Og hvenæi hélduð þér svo út í heim til að spila fyrir aðrar þjóðir? — Ég fór með pabba til Evrópu fyrir tveim árum og við héldum tónleika saman í París, Bruxelles og Genf. Svo fórum við aftur á Edinborgarhátíðina í fyrra og héld um tónleika þar saman. — Nokkuð óánægður með við- tökur fólksins eðf gagnrýnenda? — Mér hefur sjálfsagt verið tekið miklu betui en ég á skilið, segir ungi maðurinn af einlægri hæversku. — Gerðuð þér sérstaka ferð hingað til íslands eða er tónleika- ferðin lengri? — Þetta er fyrsta utanförin. sem ég fer án pabba. Ég fór til Þýzkalands og lék þar í átta borg- um með útvarpshljómsveitinni frá Framhald á 14. síðu Afrekinu fagnað Moskvu NTB—Washington, London og Moskvu, fimmtudag. Mikill fögnuður ríkti í Sovétríkjunum í dag, þegar fréttin um geimafrekið barst út, og afrekið hefur einnig vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Blöðin í New York tóku fram sínar stærstu yfirskriftir, og millj ónir manna um lieim allan heim fylgdust með Leonóv, þegar hann fór út úr geim- farinu. Geimskot Sovétríkjanna í rnorgun, aðeins fimm dögum áður en Bandaríkjamenn ætluðu að skjóta upp tveggja manna geimfari sínu, Gemini, hefur dregið verulega úr áhuga mana og hrifningu ráðamanna á fyrirhugaða geimskoti. Yfir maður Geimferðaráðs Bandaríkjanna sagði í dag, að ferð Voshkods 2 benti auðsjáanlega til þess, að sovézkum vísindamönnum hefði farið mjög fram frá fyrri geimferðum, og að það hafi leitt til þess, að Sovét- ríkin haldi enn yfirburðum sínum yfir Bandaríkin á þessu sviði. Yfirmaður Jodrell Bank- rannsóknastöðvarinnar, sagði í dag, að þessi geim- ferð væri enn ein sönnun þess að Sovétríkjunum hefði tekizt að standa við geim- ferðaáætlun sína, og myndu því að öllum líkindujn geta lent á tunglinu árið 1969 eða 1970. George Miller, formaður geimferðanefndar banda- rísku fulltrúadeildarinnar sagði í dag, að Sovétríkin hefðu tæplega gert neitt, sem Bandaríkjamenn hafa ekki áætlað að gera, en ját aði, að Sovétrfkin hefðu komizt fram úr Bandaríkj unum, þótt hann teldi, að tæknilega séð væri banda ríska geimferðaáætlunin betri en sú sovézka Einn þeirra geimfara. sem fór upp með Voshkod 1, K. Feoktistov. skrifaði t Izvestija í dag, að afrek Leonovs liðsforingja sann aði, að nú væri hægt að láta geimfara fara úr einu geimfari yfir í annað úti geimnum. Þá sagði hann að geimferðabúningur Leo- novs hefði sannað sitt góða gildi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.