Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 19. mara 1965 TÍMINN f SPEGLITÍMANS Greta Garbo, fyrrverandi kvikmyndaleikkona, vekur enn at- hygli hvert sem hún fer. Þessi mynd var tekin nýlega á flug- velfinum í San Juan, Puerío Rico, en hún kom við þar á leið sinni til baðstaðarins Little Dix Bay á Jómfrúeyjum. Fáir kannast við konuna Shirley Black, 35 ára gamla bandaríska húsmóður. En þeim mun fleiri kannast við Shirley Temple, en undir því nafni lagði hún heiminn að fótum sér þegar hún var barn. Og nú er Shirley Temple — Black — farin að leitr að nýju, að þessu sinni í sjón- varpi. Hefur hún sinn eigin sjónvarpsþátt í Bandaríkjun um. Shirley lék í fyrsta sinn í kvikmynd aðeins priggia ára gömul og vann strax hjörtu allra. Hún hlaut fern Oscar- verðlaun og varð maigfaidur milljónamæringur barn að aldri. 22 ára gömul sagði nún skilið við kvikmyndirnar enda hafði hún ba gengið í heilagt hjónaband. Eiginmaður bentiar heitir Charlés Black og er við- skiptamaður. Þau eiga þiiU börn, Susan 17 ára, Charles 12 og Lori 10 ára. „ Shirley og eiginmaður benr ar erun ú í Bretlandi og þaðan halda þau til Moskvu * Frami Catherine Spaaks inn an kvikmyndaheimsins hefur vakið litla hrifningu hjá fjöl- skyldu hennar, ekki sízt, þar sem hún hefur orðið frægust fyrir að klæðast litlu sem engu. Og nú er yngri systir hennar, Agnes, einnig farin að leika í kvikmyndum. Móðir systranna hefur slitið öllu sambandi við Catherine, en fylgist þeim mun betur með Agnes, sem * þegar hefur hlotið nokkurn frama og fékk meðal annars verðlaunin ,,Hinn gullni sitr ón“ á kvikmyndahátíðinni í Gardone við Garda-vatnið. í vor kemur út ný bók eftir Albert Schweitzer, sem nú er níræður að aldri. Bók þessi kemur út í New York og kall- ast „Saga pelikananna minna“. Mun þetta vera bók um ýmis skemmtileg atvik í sambandi við fugla þá, sem lifa umhverf is Lambaréné. Franska gagnnjósnaþjónust- an hefur gefið út handbók, þar sem segir, að í Frakklandi starfi mörg þúsund njósnarar, en í allri Evrópu og Ameríku a. m. k. 400.000. Flestir þess- ara njósnara vinna við að ná í ýmsar ieynilegar formúlur iðnfyrírtækja. Þótt Bandaríkjamenn séu iíklega manna duglegastir að fara til tannlækna sinna, þá er staðreyndin sú, að rúmlega 20 milljónir þeirra 110 milljóna fullorðinna manna og kvenna þar í landi hafa misst alla- tennur sínar 32 að tölu. Og 10 milljónir til viðbótar nafa annað hvort misst allar ienn ur sínar í efri- eða neðri gómi. Ástæðan mun vera matur sá, sem Bandaríkjamenn borða, að því er heilbrigðismálastjórn Bandaríkjanna segir. ¥ Venjulega er ndkið um óeirð ir í Rio de Janeiro þegar hin ar árlegu hátíðir standa yfir þar. En nú hefur lögregian lýst því yfir með miklu stolti, að aldrei hafi verið eins lítið um ólæti frá stríðslokum eins og á þessu ári. Þeir þurftu aðeins að handtaka 500 ólátabelgi. En síðar kom í Ijós, að lög reglan hafði fyrir hátíðina hand tekið 5000 manns, sem verið hafa með ólæti við hátíðir fyrri ára. * Þegar Caroll Baker var í Afríku nýlega í sambandi við töku kvikmyndar þar, bauð höfðingi Masai-fettbálksins í Mynd þessi af Nikita Krúst joff var tekin á sunnudaginn, þegar hann fór á kjörstað tii þess að kjósa. Er hann kom af kjörstað til íbúðar sinnar stóð hópur sov ézkra borgar^ fyrir utan og veifaði til hans og klappaði. Varð Krústjoff glaður, er hon um voru sýnd þessi vinarhót, eins og greinilega má sjá á myndinni. ★ Kenya 45 kýr fyrir hana, en þar er enn venja að kaupa sér eiginkonur, og kýr eru verð mætustu gripir Masaianna. En svo kom Anna Bowesfield, 22 ára einkaritari í þjónustu ríkis stjórnar Kenya, í heimsókn til kvikmyndastóðvanna, og höfð inginn gleymdi „Baby Do!]“ í snarheitum og bauð 100 kýr fyrir Önnu! En ekkert varð þó úr kaupunum. Venjulegt verð fyrir konu þar um slóðir eru fimm til tólf kýr. Claudia Cardinale leikur nú í sinni fyrstu bandarísku kvikmynd, „Blindfold". Meðleikari henn- ar er Rock Hudson og sjást þau hér á myndinni ásamt 1100 punda krókódíl. Kvikmyndin er tekin á Florida. 3 Á VÍÐAVANGI Niðurskurður, sem veldur vandræðum. Emgintn vafi er á því, að 20% niðurskurður ríkisstjórnarínn- ar á framlögum þe'im, sem AI- þingi hafði ákveðið til verk- legra framkvæmda, kemur sér víða mjög illa, ekki sízt úti um land og á stöðum, sem eru mjög vaxandi og þurfa á örrí uppbyggingu að halda. Má t.d. líta á hvernig þetta fer með einn yngsta bæ landsins, Kópa- vog, sem vex öðrum bæjum meira og hefur alveg óveinju- lega m'ikinn barnafjölda, sem sjá þarf fyrir skólahúsnæði. Blaðið hefur fengið upplýsing- ar um þetta. í Kápavogi þarf að byggja 4—5 kennslustofur áirlega til þcss að halda í horfi, og eru þó allar stofur tví- og þrísetnar. Greiðslur ríkisins til skólabygginga í Kópavogi áttu á þessu ári að vera um 5 millj. kr. samkv. ákvörðunum Alþing- is, bæði framlög til nýrra bygg- ingaáfanga og greiðslur vegna þess, sem búið er að byggja. Nú virðist eiga að skera eina milljón af þessu. Þetta þýðir einfaldlega, að byggingaáætlun skóla í Kópavogi raskast stór- lega, og bærinn lendir í vand- ræðum með skólahúsnæði þeg- ar á næsta hausti. Sömu sögu mun að segja úr mörgum öðr- um bytggðarlögum. Greiðslufail ríkisvíxla Verst kemur það þó við, er 20% eru skorín af greiðslum ríkisins til framkvæmda, sem búið er að vinna, t.d. skóla, sem bæir hafa lagt í mikið fé sjálfir umfram árlegt ríkis- framlag út á ríkisframlag, sem Alþingi liefur ákveðið, að greitt skuli í ákveðnum upphæðum á fimm árum. Þetta eru í raun og veru víxlar, sem ríkið hef- ur samþykkt og skrifað upp á að greiða á ákveðnum tíma. Nú tilkynnir þessi „samþykkjandi“ víxlanna, að hamn greiði ekki skuldina nema að hluta. Lög- fest upipáskrift dugar ekki einu sinni. Hver vill hæla slíku Við- skiptasiðgæði, sem ríkisstjórn- in hefur forgöngu um. Hvernig fer nú fyrir bæjum, sveitarfé- lögum og sýslufélögum, sem hafa reitt sig á þessar lögboðnu greiðslur og jafnvel tekið lán út á þær til brýnna fram- kvæmda? Víða hafa sýslufélög t.d. tekið lán út á lögbundið vegaframlag, og Sitja nú eftir með skuldina. Hvenær lýsir Bjarni „eftirsjá' sinni? Bjarni Benediktsson, forsæt- isráðherra og foirmaður Sjálf- stæðisflokksins segir svo í Reykjavíkurbvéfi Mbl. s.1. sunnudag, er hann ræðir um brotthvarf Gunnars Thorodd- sen úr sæti fjármálaráðhenra: „Að þcssu simni skal ekki fjölyrt um, hver eftirsjá er að Gunnari úr embætti fjármála- ráðherra“. Menn taka eftir því, að þetta er valið og hnitmiðað orðalag — sem segiir einmitt það, sem segja skal — ekki neitt. Bjarni lætur ekki hanka sig. Hann hefur ekki sagt, hvort eftirsjáin er nokkur eða engin. Menn eiga að skilja þetta á hvorn veginn sem þeim líkar. En þetta mun vekja for- vitni manna til þess að lesa það, sem Bjarni ritar vonandi Framhald á 12. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.