Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 12

Tíminn - 19.03.1965, Blaðsíða 12
TIMINN FOSTUDAGUR 19. marz 1965 TRÉSMÍÐI Vinn allskonar innan- húss trésmíði í húsum og á verkstæði. Hef vélar á vinnustað. Get útvegað efni. Sanngjörn viðskipti. Sími 16305. GOD TADA góð og mikil taða til sölu. Sími 19240. SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS Ms. Esja fer vestur til ísafjarðar þriðju- daginn 25. þ.m. Vörumóttaka á föstudag og árdegis á laugar- dag til Patreksfjarðar, Sveins- eyrar, Bíldudals, Þingeyrar. Suðureyrar og ísafjarðar. Farseðlar seldir á þriðjudag. RÍKISSKIP v/Miklatorg Sími 2 3136 heðo.fasan NORSKA DALA-GARNIÐ Norsk gæðavara 1 sérflokki. Allir litir, fjölbrevtt mvnsturval Dala-garmð fæst um aUt land. Dala-umboðið NYLON ÚLPUR 100% nylon í ytra og innra byrði, acrylmillifóður Stærðir: 6 — 16 og 44 — 50 Sölustaðin Kaupfélögin um land allt og SÍS Austurstræti tfe.í 50* íhe trazy worid of england's Verð kr 30.00 Sendum greiðsla tvlgir. Frímerkjasalan Lækjarqötu 6 A Ferðafélag íslands heldur kvöldvöku í Sigtúni, mánu- daginn 22. marz. Húsið opnað kl. 20. Fundarefni: 1. Frumsýnd verður lit- kvikmyndin „Surtur fer sunnan* , tekin af Ós- valdi Knudsen, texti dr. Sigurður Þórarinsson, music Magnús Bl. Jó- hannsson. 2. Myndagetraun, verð- laun veitt. 3. Dans til kl. 24. Aðgöngumiðar seldir í 1 bókaverzlunum Sigfúsar ; Eymundssonar og ísafold- ; ar. Verð kr. 50,00. Bók m/52 myndum af the Rolling Stones. Handbókband Bókamenn, munið Hand- bókbandið á Framnes- vegi 40. Úrval af góðu efni. Reynið viðskiptin. Einn sólarhringur m. Cliff Richard (33 myndir) Bókin kostar kr. 30.00 Sendum ef greiðsla fylgir. Frímerkjasalan Lækjargata 6 A. ERLENT VFIRLIT Framhald af 5. síðu. öðru ljósi en áður. Fyrstu fimm árin tapaði hann 20 millj. dollara á þessari útgáfu. Nú ber blaðið sig orðið. Það er gefið út í 1.1 millj. eintaka. Það einkennir mjög blöð Luce, hve vel er til þeirra vandað á allan hátt, hvað frá gang og rithátt snertir. enda eru flestar greinarnar, sem birt ast í þeim. einkum þó Time, verk margra manna. LUCE hefur ekki gefið blöð sin eingöngu út til að græða á þeim., Hann ætlar þeim ber sýnilega ákveðið hlutverk. Sum ir segja, að hann ætli blöðun um sínum að vera fulltrúar hinnar kapitalísku Ameriku, halda uppi fána hennar og kynna yfirburði hennar jafnt heima og erlendis. Skoðanir þær, sem koma fram í blöð- um hans, bera þess ótvírætt merki, að útgefanöinn er íhaldsmaður. Hann var fyrst hlynntur Roosevelt, en snerist síðan á móti honum og blátt áfram ofsótti þá Truman og Stevenson. Þá hefur það aldrei farið dult, að Luce teldi það hlutverk blaða sinna að vinna gegn kommúnismanum. Hann hefur þó gætt þess að dragast ekki of langt til hægri. Því lét hann Life lýsa fylgi við Johnson í seinustu forsetakosn ingum, enda þótt kona hans styddi Goldwater. Hann var góður kunningi Kennedys og taldi óhætt að treysta honum vegna þess, að hann væri kapi talisti. Luce er tvíkvæntur. Fyrri konu sinni kvæntist hann 1923, og eru tveir synir þeirra starf- andi við fyrirtæki föður sics. Þau skildu 1935 og giftist Luce nokkru síðar Clare Boo- the Brokaw, sem nú er þekkt undir nafninu Clare Boothe Luce. Hún hefur skrifað leik- rit, átt sæti á Bandaríkjaþingi og verið sendiherra Banda- ríkjanna í Róm. Hjónaband þeirra hefur verið gott, og hefur frú Luce vafalaust frem ur ýtt undir íhaldssemi manns síns en hið gagnstæða. Luce er mikill starfsmaðúr og hefur mikla yfirsýn. Hann þykir harður í horn að taka, ef því er að skipta, er þurr á manninn og gerir sjaldan að gamni sínu. Það háir hon um nokkuð, að hann er orðinn heyrnardaufur, en gerir tals- vert til að leyna því. Hann fylgist enn vel með rekstri og málflutningi blaða sinna og má hiklaust telja hann í röð áhrifamestu Bandarikjamanna, sem nú eru uppi. Slíkt er vald nlaða hans. P-P- hver setning gefur er hugþekk og vekjandi. Mér kæmi ekki á óvart, að þessi bók teldist dýrmæt eftir nokkra áratugi. En vandfarin er þessi leið, þetta form. Hugs un, speki og fegurð eru einu máttarsúlurnar. Þar eru engar vegglægjur, engar smáskorður. Heill þér, Gunnar. Raddir morgunsins gefa miklar vonir hugsandi fólki og fordóma- lausu, en eru hinum þröng- sýnu bjálki í augum. En vandi er að ganga í sporaslóð spek- inga og skálda Heilagrar ritn- ingar, þótt ekki sé annað haft í huga, sem hefur þekkzt hér áður á sama_ vegi í Ijóðagerð. Árelíus Níelsson. RADDIR MORGUNSINS Framhald af 8. síðu steina með sér inn í nýja veröld. Og hin beztu verk eru alltaf unnin af fáum sterkum höndum, — af hógværum mönnum, sem beygja sig niður yfir hina föllnu, hina særðu og veiku til þess að lyfta heiminum.” Myndi ekki sitthvað í þess- um hendingum hollt til íhug- unar íslenzku þjóðinni á þess- um tímum yfirlætis og sjálf- gleymsku? Annað valið af handahófi: I .. i Orin, sem flýgur af streng, i þínum , er ekki lengur í hendi þinni- því að hverri ör orða þinna! og hverri 3r verka þinna : er skotið aðeins einu sinni. Miðaðu vel og beindu orð- um pínum a~ háu marki og hugsaðu ekki um laun verka þinna því að líf þitt er í þjónustu óþekkts máttar. Og að lokum: Þegar þú leggur alla uppskeru þina í sigti tímans mun hönd örlaganna skilja hismið frá hveitinu. Raunar hefði ég ráðið skáld- inu frá að hafa niðurlagserind ið með. Það skerðir þá heild, sem fyrri hendingarnar skapa. En vizkan eða snekin. sem BOKASAFN j Framhald af 9. síðu i höggi við danska ráðamenn um að fá handritin heim, sem , réttmæta eign íslendinga, ef I við létum það við gangast, horfðum á það þegjandi, a,ð verðmætasta bókasafn landsins í einstaklings eign yrði selt af landi brott. Það myndi talið meira ei, broslegt, það yrði talið regin hneyksli og gæti torveldað okk ur sóknina í handritamálinu. Það kemur ekki til álita á þessu stigi málsins hvers kon- ar stofnun rís upp í Skálholti —Allt bendir til að það verðl myndarlegur skóli í einhverri mynd. Skjóta vil ég þó hér inn í að meginþorri þjóðar- innar mun þó vænta þess að það verði ekki strangtrúar- skóli í hálf katólskum stíl, eins og heyrzt hefur af vörum stöku manna. Loku er ekki skotið fyrir það, að þar verði biskupssetur í framtíðinni og vil ég engan dóm leggja á þær ráðagerðir. En einhvers konar mikils- háttar menningarstofnun verð ur það að vera. Og til þess að gefa slíkri stofnun hæfilega reisn, verður að koma þar mik ilsháttar og veglegt bókasafn. — Þótt einhveirjir nútíma- menn kveði upp' þann fávís- lega sleggjudóm, að það verði þar engum að gagni, þá munu síðari aldir segja upp staðfast ari dóm. Hér verður að hugsa í öld- um en ekki árum, eins og um allar framkvæmdir, sem í Skál- holti hafa verið gerðar og eiga eftir að verða að raunveruleika en augnabliksmenn mega ekki hafa þar úrskurðarvald. ísaf. 6 marz 1965. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum. Á VÍÐAVANGI Framhald aí 3. síðu einhvern tíma síðar um „eftir- sjá“ sína, enda gefur hann um það a.m.k. hálft loforð. Það verður vafalaust skemmtileg ritsmíð. Varnarræða Hafsteins Stjómarblöðin skýra svo frá neimsókn ióhanns Hafstein á þing iðnrekenda, að hann hafi sagt í upphafi ræðu sinnar, að nann hafi haft í huga að flytja iðeitns stutt ávarp á þinginu, en svo mikið haf‘ verið ritað um iðnaðarmál undanfarið, og mik- ið af bví illhörð gagnrýni á stefnu ríkísstjornarinnar i iðn aðarmálum, að hann teldi sig til neyddan aíí snúa ávarpinu upp i vamarræðu fyrir stefnu ríkisstjórnariiinar og aðgerðir i iðnaðarmálum. Varð þetta löng tala en ekki að sama skapi góð varnarræða. En svona er komið fyrir ríkisstjórninni, að tðnaðarmálaráðherrann neyðisf til að snúa kurteisisávarpi upp í nauðvöm fvrir stefnu sína.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.