Tíminn - 19.03.1965, Qupperneq 8

Tíminn - 19.03.1965, Qupperneq 8
 i TÍMINN FÖSTUDAGUR 19. marz 1965 Atriðl úr kvikmyndinni Kvikmynd Mai Zetter- ling sýnd í Cannes - HEFUR VAKIÐ MIKLA ATHYGU j SVÍÞJÓÐ Mai Zetterling, sem er ís- lendingum að góðu kunn, hef- ur nú gert kvikmynd sem mikla athygli hefur vakið í Svíþjóð og hefur verið valin til sýninga á kvikmyndahátíð- inni í Cannes í vor. Myndin ber nafnið „Álskande par“ og er hún byggð A skáldsögu, eða öllu heldur skáldsagnaflokki, Ágnes von Krusenstjema, „Fröknarna von Pahlen." Eins og allir blaðalesendur vita, er Mai Zetterling kunn eikkona af sænskum uppruna, þótt frægð hennar sé löngu í orðin alþjóðleg, enda hefur hún dvalizt langdvölum fjarri heimalandi sínu. Eins og svo margar kvikmyndastjörnur hef- ur hún freistað gæfunnar sem kvikmyndaframleiðandi og gét ið sér þar gott orð. Hingað til hefur hún mest haldið sig við stuttar heimild- arkvikmyndir, sem hafa mikið .] verið sýndar i sjónvarpi, en nú hefur hún lagt á brattann. j og árangurinn orðið góður. j Fyrir nokkru dvaldist Zett- f erling hérlendis og tók þá kvik l mynd af landi og þjóð. Sunv " ir voru óánægðir með það, sem .jj út úr þeirri mynd kom, töldu frúna hafa lagt helzt til mikla áherzlu á að sýna það sem mið- ur fer á sumum sviðum þjóð- lífs okkar. Mun þó mála sann- ast að þar hafi sannazt mál- tækin tvö: Glöggt er gestsaug- að og Sannleikanum er hver sárreiðastur. Að minnsta kosti fór meira fyrir hneyksluninni yfir að sjá ósómann á tjald- inu en áhuganum fyrir að upp ræta hapn hjá sumum, en nóg urp það. , Sænska hlaðið Stockholms- tidningen segir um hina nýju mynd Mai Zetterling, að ekki fari á milli mála, að lærifeð- ur hennar sóu Alf Sjöberg og Ingmar Bergman — og munu víst ýmsir segja, að þar sé ekki leiðum að líkjast .Ekki fer heldur hjá þvi að manni detti Ingmar Bergman í hug, þegar leikendalistinn í Álskande par er skoðaður, en aðalleikend- urnir eru: Anita Björk, Harri er Anderson, Eva Dahlbeck, Gunnel Lindblom. Gio Petré. Gunnar Björnstrand, Jan Malmsjö, Hans Straat og Bengt Brunskog. Stockholmstidning- en segir enn fremur, að þessi inynd sé ekki „Krusenstjerne mynd“ heldur hápunktur þeirr ar þróunar, sem hafi skapað frægð sænskra kvikmynda á ár unum eftir síðari heimsstyrj- öldina. Blaðið segir enn frem- ur, að ef til vill hafi Mai Zett- erling ekki tekizt fullkomlega að ná blæbrigðum ástands milli stríðsáranna, en engu að síður sé kvikmyndin meistaraverk, og minni hún stundum á Gull- ö]d‘Bunuels. nífnisiírnu in-(! Ekki eru samt óli blöð á , bessari skoðun. Talsvert er um „djarfar" senur í þessari mynd. eins og nærri má geta, því án þess hefði hún vart verið nefnd „hápunktur beirrar þróunar. sem skapaði frægð sænskra kvikmynda á árunum eftir síð- ari heimsstyrjöldina“ og sum- um Svíum þykir reyndar nóg um, eða að minnsta kosti ástæð una til hennar. Afton- sagði til dæmis eftir frumsýn- ingu myndarinnar nú um ára mótin, að hún ?é samansafn kynlífsóra og slái jafnvel út kvikmyndina 491. sem gerð er eftir samnefndri sögu en um þá mynd stóðu á sínum tíma hvað mestar deilur, er upp hafa komið um sænska kvik- mynd fyrr og síðar. Aðrir að- Framhald á 14 stðu í HLJÓMLEIKASAL Þrennir orgeltónleikar í sömu vikunni, með gjörólíkum við fangsefnum, eru sannarlega enginn hversdagsviðburður. en það stórvirki gerði Ragnar Björnsson að veruleika í s.l viku. Sú tilraun hans að kynna og túlka þriú gjörólfk tfmabil. sem á efnisskránni voru hefut eflaust orðið mörgum hlustend um ofurefli þótt sú mikla vinna, sem 'rarn var lögð verð skuldaði allt annað en hina tómu Dekki kirkjunnar. UpphafstónJeikarnir voru eðlilega Bach Fjórar Toccötur dásamlega ólíkir einstaklingar úr sömu fiölskyldu. en hver með sitt sterka persónulega svipmót. Næsta kvöld réði rómantík m ríkjum með þeim Regei Cesar Frank og Mulet, þriðja og síðasta kvöldið var svo helg að nútímanuro með verkum E. Bergman og Oliver Messiaen. Heildarsvipur þessara þriggja t.ónleika bar vitni um mjög mikla alúð flutningi og stranga vinnu organleikarans Rangars Björnssonar. Af Toccötunum fjórura varð sú doriska d-moll einna minn isstæðust oa Choralinn í a-moll eftir Cesar kYank. var glæsi legur í flutningi. og átti sterk ar stoðir i staðgóðri uppbygg 171 gu Þriðja og síðasta kvöldið hófst á Exultate Erik Berg- mans með breiðum og hrika legum inngangstónum. þar sem Ragnai sýndi mjög sterka per sónulega ínnlifun. og varð verk 'ð einkar áhrifamikið í túlkun hans 4ð ,'>Rum voru svo * oættir úr Hæðingu frelsar ans’ eftir Messiaen Þetta er 1 stuttu mán beillandi verk, að- cengilegt hverjum. sem vill hlusta og nefi>- óta) hliðar byggðar upp af einfaldasta efni við. Að auki bregður höf víða upp sérstæðrt og skemmtilegri orgel-tækni, sem Ragnar gerði með afbrigðum góð skil. Yfir registri hans er yfirleitt bjart. og tækni hans mjög haldgóð Þótt kirkjutónleikar. gefi ekki tilefni til að hylla listamann inn. svo sem gerist. á öðrum tón leikum. nát.tj vel merkja 6 venjulega stemmningu hins fá menna hóps nlustenda i kirkj unni þetta K'>ðld Ragnar er nú á förum af iandi burt að sinni og fylgja nonum allar góðar óskir f þá .*etsu og þakkar und irrituð honum þann stóra skerf til Kirkíutónlistar sem hann lét i -e með sínum þrem tónleikum vonandi bregðast á heyrendur udrei aftur svo urapallega sjalfum sér oa óðJ um og koma auga a ovar hin sönnu verðm.Bti er að finna. Unnur Arnórsdóttfr Nýr sproti á íslenzkum Ijóðbaðmi Raddir morpnsins Mikið hefur verið deilt um listgildi órímaðra ljóða. Og sumir virðast álíta, að rímið eitt veiti Ijóðum listgildi, svo að órímað ljóð sé í rauninni aðeins nafn andlausra orða. Svipað má segja um ljóðstafa- setningu íslenzkra kvæða, án þeirra ekkert Ijóð, sem nefnzt geti því nafni Sízt skal ég lasta rím og ljóðstafi. Þetta form hafa stór- menni andans á íslandi notað af snilld um aldaraðir. Samt hefur mig oft furðað á skrifum ágætra og viturra manna, sem ekki virðast geta viðurkennt skáldskap, nema hann sé í þessum hefðbundnu klæðum ríms og ljóðstafa. Nú hljóta þessir sömu menn að vita, hve andlausa flatneskju að hugsun og til- finningu er hægt að birta í rími og ljóðstöfum. Og þeim hlýtur líka að vera kunnugt, að sjálf Völuspá, eitt frægasta Ijóð íslenzkt er rím- laust ljóð og sama er að segja um sum fegurstu kvæði Jón- asar Hallgrímssonar, t.d. Sól- setursljóð hans, svo að eitt- hvað sé nefnt. Mér er einnig sagt, að ljóð- stafir séu nær eingöngu ís- lenzkt fyrirbrigði í framsetn- ingu Ijóða. Þótt slík framsetn- ing só fögur og enginn mundi vilja sneyða íslenzkt mál þess- um búningi, þar sem hann á við eða hefur verið notaður af snillingum, þá væri þó of mikið að synja fyrir, að öll útlend Ijóð séu skáldskapur og lista- verk, af því að Ijóðstafina vanti. Svo mætti gjarnan minna á það, að sum erlendra ljóða á íslenzku þýdd, hafa verið hin áhrifamestu á alla hugsun og list, þótt ekki hafi verið færð í íslenzkan búning ljóðstafa og ríms. Þar vil ég minna á ljóð Ritningarinnar: Sálma ísraels, Sæluboðanir Krists, Kærleiks- óð Páls postula. Allt eru þetta listaverk í ljóðum, flestum frægari, en skortir algjörlega þessi einkenni íslenzks kveð- skapar. Enginn mundi dirfast að rýra listgildi slíkra gim- steina anda og hugsunar, þótt slíkt atriði vanti og frægari skáld en Kristur og Páll mundu vandfundin í veröld- inni, enda ortu þeir Ijóð sín í búningi síns máls, þótt ann- að gæfi þar búningnum svip. Lengi hef ég þráð að sjá laufgaðan sprota þessarar aust rænu spekiljóðagerðar á ís- lenzku. Steinn Steinarr komst þar næst. En efniviður hans og aðferð var ekki af svipuð- um toga nema sjaldan. Ljóð Tagores, þýdd, voru næst þessu ljóðformi, þar sem segja mætti, að efnið bæri ytri búning ofurliði. Þá kom ijóð- þýðing á „Spámanni" Gibrans. En vart_ mun almenningur á nútíma íslandi hafa gefið sér tíma til að gaumgæfa svo fram andi boðskap og búning þótt heillandi sé. En nú hefur þýðandi Gibr- ans, Gunnar Dai sjálfur ort heila Ijóðabók - þessu nýja formi austrænna spekiljóða. Það má telja hana nýjan sprota á íslenzkum Ijóðbaðmi. Og þótt hann verki framandi við fyrstu sýn á þessum forna meiði Eddu. Óðs. dróttkvæða og rimna, þá hygg ég, að hér sé upphaf sem iengi verður minnzt. Ég veitti þessari bók satt að segja ekki sérstaka athygli, vissi ekki um gerð hennar fvrr en ég sá hana fordæmda í blöðum dagsins. Fordæming gagnrýnenda. minnsta kosti þeirra, sem mest baða út and- Iegum öngum nú og hróoa vej, vei, er yfirleitt tákn og kall um, að þar sé eitthvað nýtt og sérstætt og þá oftast einn- ig fagurt og dýrmætt á ferð. Og aldrei skil ég, hvernig þeir menn eru valdir til að dæma um listir annarra, sem ekki eru snillingar sjálfir á því Gunnar Dal sviði, sem þeir dæma. En slepp um því, þetta kann allt af hafa sitt gildi. Gagnrýnin er alltaf löngu gleymd, þegar skáldið hefur letrað sitt letur í hjört- un, svo hefur verið með Jón- as og Steingrím, Einar og Matthías og öll okkar beztu skáld. Þessi bók Gunnars Dal, Raddir morgunsins er austræn að formi og anda, en samt á ijúfu íslenzku ljóðmáli, rim- laus ljóð og ljóðstöfum bregð- ur fyrir ekki öðruvísi. Og sannarlega má sitthvað finna til foráttu. Öll frumsmíð stendur til bóta. Vel gæti manni orðið á að telja eitt- hvert ljóðið iítilsvirði við fyrstu sýn. En lesi maður það aftur og aftur, verkar einhver töframáttur, sem brýtur niður alla andstöðu og orðin syngja sig inn í vitundina líkt og biblíuljóð, spekirit. Það er næstum sama, hvar bókin er opnuð. Orðin líða fram hjá, fersk og hlý, líkt og morgunblær. Og þau gætu horfið án áhrifa, án samleiks við nokkurn streng. En lesir þú tvisvar sama kvæðið byrjar það að óma iíkt og töfrandi lag. Tökum t.d. þetta, valið um leið og bókin opnast af sjálfu sér: „Það er ekki fjöldinn, sem gerir bjóðir miklar, heldur hinir frjálsu, sterku menn, sem hefja sig til flugs á vængjum framtíðarinnar. Frá dauðum hugmyndum, steingervingum andans en flytja þó hina fornu horn- Framhald á 12. síðu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.