Vísir - 24.12.1936, Page 8

Vísir - 24.12.1936, Page 8
8 I VÍSIR „Já, mjög margar.“ „Jæja, en þessi er ný og harfa hefir þú ekkj heyrt. Fyrir löngu, löngu, þegar guðirnir dvöldu meðal mannanna eins og þeir gera enn í dag, ef við hefðim trú til að sjiá þá, var guðinn Shiv einu sinni á gangi með Parbati, konu sinni, í garði musterisins.“ „I Iivaða musteri? I Nandgaon?“ spurði barnið. Nei, langt í burtu. Líklega í Trimbak eða Hurdwar, en þangað verður þú að fara pílagrímsferð þegar þú ert orðinn stór. Jæja, i garðinum í skugga trjánna sat betlari, sem hafði dýrkað Shiv í fjörutíu ár. Hann lifði á gjöfum hinna guðhræddu og tamdi sér háleitar hugleiðingar nótt og dag.“ „Ó, heilagi faðir, var það þú,“ sagði bamið og leit upp undrandi. „Nei, eg sagði að þetta hafi gerst fyrjr löngu og þar að auki var betlarinn kvongaður.“ „Settu þeir hann á hestbak með blómsveig á höfði og bönn- uðu honum að sofna alla nóttina? Þetta gerðu þeir við mig þeg- ar brúðkaup mitt var haldið“, sagði drengurinn sem hafði kvong- ast fyrir nokkrum mánuðum. „Hvað gerðir þú?“ spurði eg. „Eg grét og þeir kölluðu mig ýmsum illum nöfnum, svo sló ég h a n a og síðan grétum við saman“. „Þannig fór ekki betlarinn að“, sagði Gobind, „því að hann var helgur maður og mjög fátækur. Parbati tók fyrst eftir hon- um þar sem hann sat nakinn á tröppum musterisins, er mann- fjöldinn gekk út og inn. Hún sagði við Shiv: „Hvað heldurðu að mennirnir segi um guðina þegar þeir launa þannig dýrkend- um sínum hollustuna? I fjörutíu ár hefir þessi maður sýnt okk- ur hollustu með bænum sínum og fyrir það ber hann úr býtum hvern dag lítinn skamt af hrisgrjónum. Hjörtu mannanna munu snúa sér frá guðunum ef þessu fer fram.“ Shiv svaraði: „Þessu skal verða gaumur gefinn.“ Hann kallaði á son sinn Ganesh með fílshöfuðið, sem musterið átti, og sagði við hann: „Sonur, hér sitnr betlari sem er hlásnauður. Hvað viltu gera fyrir hann?“ Ganesh hinn mikli með fílshöfuðið svaraði: „Sé það vilji þinn, skal liann fá fulla kistu silfurs innan þriggja daga.“ Shiv og Parbati fóru á brott að svo búnu. „En milli baldursbránna í garðinum hafði falið sig okurkari einn“ — barnið leit á kramin blómin í lófa sér. — „Já, hann faldist milli baldursbránna og hann hlustaði á samtal guðanna. Hann var maður ágjarn og samviska hans var svört. Silfurkist- una ákvað hann að eignast og fór þvi þangað sem betlarinn sat og sagði: „Bróðir sæll, hversu mikið færðu daglega frá hinum guðhræddu?“ Betlarinn svaraði: „Þvi er ekki auðsvarað. Stund- um nokkur hrísgrjón, stundum nokkra skildinga, sýrðan mangó- ávöxt eða þurran fisk.“ „Það er gott,“ sagði barnið og smjattaði. „Þá sagði okurkarl- inn við betlarann: „Vegna þess að eg hefi Iengi veitt þér athygli og fengið ást á þér vegna þolinmæði þinnar, ætla eg að gefa þér fimm silfurpeninga fyrir það sem þér kann að áskotnast næstu þrjá daga. Þú þarft ekki annað en undirrita samning." Betlarinn svaraði: „Þú ert ekki með öllum mjalla. Andvirði fimm silfur- neninga fæ eg ekki á tveimur mánuðum,“ og um kvöldið skýrði hann konu sinni frá þessu. En konurnar eru ekki jafn auðtrúa og karlmenn. Hún sagði: „Hefurðu nokkurn tima heyrt þess getið að okurkarl hafi tapað í viðskiptum Úlfurinn felur sig í sáð- gresinu til þess að komast vfir bráð sina. Örlög okkar eru í hönd- um guðanna. Taktu ekki af þeim ráðin, þótt ekki sé nema i þriá daga.“ Bellarinn fór aftur og sagði okurkarlinum, að hann tæki ekki boðinu. En þessi ágiarni maður sat allan daginn yfir betlaranum og tilhoð hans fór hækkandi fyrir þessa þrjá daga. Fyrst bauð hann tíu, svo luttugu, fimmtíu, hundrað silfurpeninga. Þannig hélt liann áfram vegna þess, að hann hélt að silfri guðanna mundi rigna yfir betlarann þá og þegar og að síðustu bauð hann silfur- neninga í þúsundatali þangað til komið var jafngildi hálfrar kistu silfurs. En þegar svo langt var komið lét kona hetlarans undan, samningurinn var undirritaður og silfrið var greitt. Stór hvítur uxi dró vagninn sem flutti silfrið til betlarans. Ennþá hafði betlarinn ekkert lemætt fengið frá guðunum, og hjarta nirfilsins sló nú hart af eftirvæntingu. Um hádegi hins þriðja dags gekk okurkarlinn inn i musterið til þess að fá njósnir af ráðagerðum guðanna og forvitnast um á hvern hátt gjöfin mundi koma. En meðan hann hafði yfir bænir Kveiktu a kertum mínuin - - (Jólavísur). Eftir Richard Beck. Kveiktu á kertum mínum, kertum, brunnum, draunui minna, bjarta nótt mcð blijsum þinum! Kveiktu á kertum mínum, kertum daufiim, trúar minnar, guðleg nólt með geislum þínum! Kveiktu á kertum minum, kyndli sanhleilcsástar minnar, Drottins nótt með djásnum þínum! Kveiktu á kertum mínurn, kærleiksglæðum sálar minnar, lífsins nótt með Ijósum þínum! sínar, færðust úr lagi tvær steinflísar i gólfinu og hæll lians fest- ist ó milli þeirra svo hann mátti sig hvergi hreyfa. Þá heyrði hann guðina ganga inn í musterið, eftir liinum dimmu súlna- göngum. Shiv kallaði til sonarins, Ganesh, og sagði: „Sonur, hvað hefir þú gert fyrir betlarann, sem átti að fá silfurkistuna?“ Ganesli vaknaði, en okurkarlinn hcyrði þruskið er hann rétti úr fílsrananum, hann svara'öi: „Faðir minn, helmingur fjárins er þegar greiddur en þeim held eg nú hér föstum er á að greiða hinn helminginn.“ Barnið hló dátt og sagði: „Og okurkarlinn greiddi betlaranum?“ „Yissulega. Þeir, sem ’guðirnir halda föstum, komast ekki lijá að greiða skuldir sínar að fullu. Peningarnir voru greiddir uin kvöldið, ekkert annað en silfur, á stórum vagni og þannig stóð Ganesli við loforð sitt.“ „Natliu! Hó, Nathu!“ Barnið varð órólegt. „Þetta er mámma.“ „Farðu þá, trítill,“ sagði Gobind. „Staldraðu samt andartak.“ Hann sncið breiðan renning af feldinum sínum og lagði yfir naktar lierðar barnsins, sem síðan hljóp i burtu. íí'Z ÍéSu

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.