Vísir - 16.09.1955, Blaðsíða 12

Vísir - 16.09.1955, Blaðsíða 12
VÍSIR er ódýrasta blaSiS og ]>ó baS fjöl- breyttasta. ■— Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Þeir, sem gerast kaupenður VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til máuaðamóta. — Sínsi 1660. Föstudaginn 16. september 1955 Fra íþrntiaþin!|i ÍSÍ : Veitt verði 1.8 milij. kr. tíl íþróttasjóðs á næstu fjárlögum Skorað es ÆSþissfgi ad löfýÉrestes 17 jfsísse s&aat iSSu sí ié(Ísi i’sieifg- Meöal tilíágna sem sam- Iþykktar voru á {þróttáþingi í. S. í. dagana 10.—11. sept. s. 1. var áskorun á Alþingi að heimila 1.8 millj. kr. til íþrótta- sjóðs á fjárlögum næsta árs, |þar eð íjár sé stórlega vant til bygginga fþróttamannvirkja >og reksturs þeirra. Ennfremur voru eftifarandi tillög'ur m. a. samþykktar; íþróttaþing Í.S.Í. haldið í Hlégarði 10.—11. sept. 1955 fagnar þeini framkvæmdum, sem íara nú fram að Laugar- vatni til öflunar húsnæðis og valla fyrir íþróttakennaraskóla íslands og skorar á Alþingi og ríkisstjórn að stuðla að því, að framkvæmdir geti haldið á- fram og að skólinn eignist sem fyrst rúmgóðar heimavistir svo að íþróttamenn geti fjölmennt á námskeið og’ til æfingadvala að skólanum. íþróttaþing Í.S.Í. haldið í Hlégarði í Mosfellssveit 10.— 11. sept. 1955 felur fram- kv'æmdastjórn Í.S.Í. i samstarfi við stjórn sérsambandanna að efna til leiðbeinenda- og leið- toganámskeiða í samvinnu við Iþróttakennaraskóla íslands. íþróttaþing' Í.S.Í. haldið í Hlégarði 10.—11. sept. 1955 samþykkir að skora á Alþingi að breyta lögum um skemmt- anaskatt þannig, að félags- heimilasjóður hljóti 50% skemmtanaskattsins, eins og' hann hlaut í upphafi við setn- ingu laganna 1947. íþróttaþing Í.S.f. haldið í Hlégarði 10.—11. sept. 1955 samþykkir að fela framkvæmda stjórn Í.S.Í. að leita samvinnu við stjórn U.M.F.f. og skólana um undirbúning og framkvæmd íþróttahátíðar 1957. íþróttaþing Í.S.f. haldið í Hlégarði 10.—11. sept. 1955 samþykkir að beina þeim til- mælum til aðila íþróttasamtak- anna að veita fréttamönnúm sem um íþróttamál fjalia á op- inberum vettvangi beztu fyrir- greiðslu og aðbúnað.' íþróttaþing Í.S.Í. haldið í Hlégar'ði í Mosfellssveit 10.— 11. sept. 1955 skorar á háttvirt Alþingi að lögfesta 17. júní sem þjóðhátíðardag íslendinga. Verðkunaljóð Skálholísnefndar. Nefnd sú, sem Skálholts- nefnd skipaði il þess að dæma um beztu hátíðarljóðin, sem nefndmm bárust, hefir nú lokið störfum. Eins og Vísir hefur áður get- ið, bárust alls 18 hátíðaljóð, og hefur dómnefndin ákveðið að veita fyrstu verðlaun séra Sig- urði Einai’ssyni í Holti, önnur verðlaun hlaut Þoi’steinn Hall- dórsson prentari, Fálkagötu 4 og þriðju vei'ðlaun Þoi’geir Sveinbjarnarson, sundhallar- forstjóri, Drápuhlíð 28. ÍSÍ vann happ- drættisbílinn. íþróttasamband íslands vann sjálft bifreiðina, sem cfnt var til happdrættis mn í vor, en vinningsnúmerið var meðal ó- seldra og’ innsiglaðra miða, þegar dregið var. Dreg'ið var í happdrættinu 25. júlí í sumar, og' kom upp númer 26588. Ákveðið var í fyrstu að dregið yrði 15. júlí, en drætti var frestað um 10 daga vegna þess, að þá var ekki komin skilagrein utan af landi. meitn til Maðurinn á myndinni heitir William Francis, og á heima í New York. Við sprengingu í fyrri heimsstyrjöld bilaði sjón hans svo, að sfflám saman varð hann alblindur. Fyrir nokltru lenti Francis í bílslysi, og þá brá svo við, að hann féklt sjónina á nýjan leik, — og hafði hann þá verið alblindm* í 10 ár. Kiipphkiip um víg- búnað Austurríkis. Eins konar kapphlaup virðist hafið um það, hver skuli búa Austurríki vopnum og hergögn um. Tilkynnt var í Moskvu í gær, að Rússar hefðu boðizt til þess að leggja austurríska hernum til vopn, hergögn og annan út- búnað. Áður hafði verið skýrt frá því, að vesturveldin hefðu gert austurrísku stjórninni sama tilboð, og virðist hún nú vera í vanda stödd. Fyrir skömmu samþykktu báða deildir austurríska þings- ins.að stofna her. Var enginn á- greiningur í deildunum um þetta mál. Hins vegar mun ekki vera um mikinn her að ræða, heldur miklu fremúr landvarna lið, sem óhugsandi væri, að færi með ófrið á hendur ná- grönnum sínum. Baiidbríkjastna á námskeið. Þrír fara fll ársdvalar og virssia við land- búnað, en IS á 3fa mánaða vélartámskelð Búnaðarfélagi fslands Iiefur borizf boð um að senda til Bandaríkjanna nokkm* ung bændaefni til ársdvalar þar. Eihhig hefur verið bóðið til þriggja mánaSa námsskeiða í viðgerðum búvéla og komast 12—15 menn að á því nám- skeiði. Búnaðarfélagið auglýsti .námsferðir þessar til umsókn- ar, og hafa 3 umsóknir borist frá ungum bændaefnum um ársdvölina, en urn 15 um véla- námskeiðið. Gert er ráð fyrir að þessir þrír umsækjendur, sem boðih er ársdvöl, fari vstur um ára- .mót og dveljist þar allt næsta ár á biíum í Bandaríkjunum. Mega þeir sjálfir velja um hverskonar búrekstur þeir óska að vinna við. Vélanámskeiðið er aftur. á móti ætlað fyrir menn, sem langa reynslu hafa í viðgerðum búvinnuvéla, og eru umsækj- endur aðallega af stórum við- gerðarverkstæðum víða af landinu, Munu þeir einnig fara úf um áramót og koma aftur í ápríl. Þeir munu einnig geta valið . uni hvéi’skonar vélavið-. gerðir.þeir fullkomna sig í, og vinna m-. a. ái viðgerðarverk- stæðum fyrii' dráttarvélar og áðrar 'búvélar, en einnig á vei'ksfæðuxxx, er gera við stærrí vinnuvélar. AfkvæM§rel5sla um ■ h\é kyikmyndahúsa. Félag kvikmyndahúseigenda ! í Reykjavík liefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu með- al bíógesta unx það, livort af- nema skuli hléin á kvikmynda- sýningum eða ekki. Atkvæðagreiðsla þegsi - mun fax-a fram í öllum bíóúm bæj- arins dágana 24.—30 þ. m. Hafa verið prentaðir at- ■ kvæðaseðiar í þesu skyni og munu þeir vei'ða afhentir með öllum seldum iniðum á sama tímabiii. Eins og kunnugt er, hafa ver- ið uppi miklar deilur um það, hvort hlé skuli vera': á -kvik- myndasýningum eða ekki. Kvikmyndahúseigendur vilja því reyna þessa leið til að :fá úr þ.essu máli skorið. Svikahrappur prettar fjölda manns í Svíþjóð. Ifai'ði íé «»&» verðmætí «ií sis- I»lií.i. Frá fréttaritara Vísis. — Stokkhólmi á Iaugardag. Ovenjulega ráðkænn svika- hrappur liefir a'ð undanförnu Siaft allskyns verðmæti út úr mönnum í Mið-Svíþjóð. Maður þessi hefir látizt vera ,,óperettusöngvari“, „tann- læknir“, ,,kvikmyndaleikari“ og ,,lögfræSingur“, og hefir honum tekizt að blekkja mik- inn fjölda fólks á ýmsum stöð- um. Hann hefir svo sem komizt undir manna hendur oftar en einu sinni, en tekizt að sleppa aftur. Þannig strauk hann til dæmis úr fanglsi í Karlstad þann 15. júlí, og mánuði síðar lék hann það sama í fangelsi, sem hann hafði verið settur í í Mora. Þar gerði hann sér lítið fyrir, sveigði járnrimla, sem voru fyrir glug'ga klefa þess, sem hann Ixafði verið settur í og komst síðan óxt um glugg'ann, enda þótt stærðin væri aðeins 16 sentimetrár á annan veginn og 43 sentimetx-ar á hinn. Fyrir nokkru fór hann inn í bílaverzlun í borg nokkurri og Ágæt laxveiði í Eiliðaam i ar. I gær var útriuuiinn veiði- tími £ laxveiðiám landsins, nema í nokkrum ám austan fjalls, 'þar sem veiðileyfi hafa verið framlengd til 20. þ. m. Þetta er eittvert mesta laxveiðiár um langan tíma, og er veiðin í ám hér sunn- anlands langt yfir meðallag. í Elliðaánum veiddust t. d. yfir 1600 laxar í sumar, en til sanianburðar má geta þess að í fyrra veiddust þar 1257 og vnr hað hó meira eii meðalár. Veiðimálaskrifstofan var í morgun að útbúa skýrslur mn veiðina í einstökum ám, en taldi sig' ekki tilbúna að gefa upplýsingar fyrir há- degi. Vélbátur sefckur við Eyjar. í gærkveldi sökk vélbáturinn „Halkion“ frá Vestmannaeyjum skammt fyrir vestau Þrídrang, en mannbjörg varð. Báturinn var á reknetaveið- um, og var á leið heirn af mið- unum, er mikill leki kom skyndilega að honum. Náði „Halkion“ sambandi við „Von- arstjörnuna“, og bað um að- soð. En áður en „Vonarsjarnan“ kom að „Halkion“, var hann sokkinn, eh skipshöfnin, 7 manns, bjargaðist í gúmmíbát. Tók „Vonarstjaman“ skipverj- ana síðan og flutti þá til Vest- mannáeyja. þantaði þar bíl. Sagðist hann aðeins þurfa að fai-a til borgai - stjórans, til að sækja peninga, sem hann, „lögfræðingurina“, ætti hjá bæjai'sjóðnum. Skömmu síðar kom hann aftur, gekk til eins sölumannsíns, bað um að sér væri afhentur bíllinn og ók leiðar sinnar. Sölumaður- inn fór síðan til eiganda verzl- unarinnar og sagði, að þar hefði fínn maður verið að gera kaup við þá. Já, sagði eigandin-n, hann kemur vonandi bráðum og borgar bílinn. Þá rann það upp fj^rir mönnum, að þeir höfðu verið prettaðir. Hann hefir komizt yfir 17,000 krónur með því að pretta tvo eða þrjá menn aðra, og' aðra eins fjárhæð hefir hann fengið „að láni“ hjá konum, sem hon- um tókst að töfra. En nú situr hann í fangelsi — þar til hann strýkur næst. Brunnsjö. •-----•------- Gruimonanbátw í sJúkrafltC'gji. í fyrradag var Grumman- flugbátur Flugfélags íslauds sendur í sjúkrafiug vestur í Stykkishólm. Bar nauðsyn til að koma konu í barnsnauð þegar í stað til Reykjavíkur og var óskað eftir að fá Grummanflugbát Flug- félags íslands til fararinnar. — Fór flugyélin eftir hádegið vestur og enda þótt aðstaða tii lendingar, einkum í norðanátt sé slæm, gekk lendingin og ferðin öll vel, Þegar hingað kom var konan flutt á fæðing- ardeild Landspítalans. Flugstjóri I ferðinni var Jóhannes Snorrason. ----*----- Bærinn styrkir hjúkrunarlieimilL Bæjai'stjórn sasnþykkti £ ’gær 250 þús. ki'óna lánveitingu til Afengisvarnafélagsins „Bláa bandið“, sem hyggst reka hjúkrunarheimili fyrir drykkjui sjúklinga að Flókagötu 29, en félagið hefur fest kaup á því húsi. Er búist við að hjúkrunar- heimilið geti tekið til starfa um næstu mánaðamót. Hefur fé- laginu áður tekizt að lán til þess að festa- kaup á húsinu, en skorti hins vegar fé til þess að útbúa heimilið nauðsynlegum tækjum, og í því skyni sótti það um framangreint lán til bæjar- sjóðs. Eins og kunnugt er gekkst bærinn á sínum tíma fyrir stofnun Áfengisvarnastöðvar, og mun hún halda starfsemi sinni áfram eftir sem áður, og mun nú fá til umráða nokkur sjúkrarúm fyrir áfengis- sjúklinga í nýju Heilsuvernd- arstöðinni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.