Vísir - 30.01.1956, Blaðsíða 3
lífeudagirm Jö i -i anúá» :lð56 ■.?
VtSIR
S
FRAMFARIR OG TÆKNI ♦
Tilraun gerð með nýtt
stafaborðvÁ ritvélum.
Talið auka afköst um 35 prósent.
Randaríkjastjóm ætlar inn-
an skamms að prófa notagildi
aaýs „stafalykils“ • ó • ritvéhun,
sem menn vona,' áð auki af-
köst þeirra, er nota ritvélar.
Eins og riieðfýlgjandi myndir
öera með sér, verður talsverður
munur á fyxirkomulagi ’staf-
anna á hinum nýjri vélum, en
„gamla lagið“ hefur verið ó-
foreytt frá því 1872, eða frá
upphafi ritvélanna. Maður sá,
sem hefur fundið upp á breyt-
ingu þessari, gerir ráð fyrir, að
ihún muni hafa í för með sér
35% áukningu afkasta.
Það er því ekki nema eðli-
legt, að Bandaríkjastjórn hafi
hug á að athuga þetta mál nán-
ar, því að ef vinnusparnaðurinn
'verður svona mikill eða af-
kastaaukningin, þá er það ekki
lítil fúlga, sem hún getur spar-
að árlega. í skrifstofum Banda-
ríkjastjórnar eru nefnilega
notaðar hvorki meira né minna
en 800,000 ritvélar, ogmeð 35%
áfkastaaukningu maetti faekka
þeim niður í 600,000,- án þess
að minna væri skrifað!
Breyting á stafaborðinu er
fólgin í að setja stafina sem
næst þeim fingrum, er hafa
mest að gera. Til dæmis verða
allir hljóðstafir í annari röð,
þai- sem fingumir hvíla jafnan.
Þetta hefur það í för með sér,
að fingur hægri handar, -— sem
gera venjulega mest — munu
framkvæma um 56% af vinn-
unni. Eins og stöfum er raðað
nú, verður vinstri höndin að
vinna um 57% af verkinu.
Um miðjan þennan mánuð
var byrjað á að láta 12 vélrit-
ara — bæði karla og konur —
æfa sig fjórar stundir á dag á
hinar nýju ritvélar. Þegar þau
verða búin að ná sama hraða
og á ritvélar með gamla fyrir-
komulagi, byrjar keppnin.
Hver maður í þessum hópi á
að keppa við annan í öðrum
hópi, og þess gætt, að þeir
keppi innbyrðis, sem eru sem
líkastir að skapferli, gáfum og
vinnuhraða. Síðarnefndi hóp-
urinn á að nota venjulegar rit-
vélar.
Tilraunin, sem á að standa í
um það bil 4 mánuði, verður
gerð undir stjórn dr. Earl
Strongs, sem er sérfræðingur
Pennsylvaniuháskóla í skrif-
stofustörfum.
Sá heitir August Dvorak, er
fann þetta nýja kerfi upp árið
1934. Hann mun hvergi nærri
koma, þegar keppnin hefst.
Minnstí rafgeym-
• r
ir t
Á siærð við frímerki.
Minnsti rafgeymir í heimi
hefur verið smíðaður nýlega
hjó Yardney Electric Corpora-
tion í New York. Rafgeymir
þessi er á stærð við frímerki og
er um 6 millimetrar á -þykkt.
Hin örsmáa sella í geyminum
vegur aðeins 4% gramm.
Zink og elektróður voru not-
aðar í geyminn, sem hefir %
ampere-stundar magn venju-
legs rafgeymis, sem er 16 sinn-
um stærri. Það er búist við, að
þess dverggeymir verði notað-
ur í tæki, sem menn bera á sér,
svo sem armbansúr, eða flytja
milli, og kumii að valda bylt-
ingu í gerð sumra ljósmynd-
unar_ og flugvélatækja. Raf-
geymirinn, segir félagið, getur
haldið rafknúnu úri í gangi í
heilt ár, án þess að hann sé hlað
ið.
Sóiareímif tíi ai breyta sjo
í drykkjarvatn.
Tilraunir Bandaríkjanna við að
smíða hentug tæki.
Innanrikisráðuneyti Banda-
rikjanna ætlar að gera tilraun
með „sólareimi“ — eimingar-
tæki, er fengi orku frá sólinni
og breytti söltu vatni í drykkj-
arvatn.
Ráðuneytið ver stórfé til þess
að athuga, hvernig hægt sé að
Kemur myghifyf
í stad íss?
í Bretlandi er nú verið að
reyna eitt af myglulyfjunum
svonefndu við geymshi á fiski.
Er jafnvel tekið svo til orða,
að ef efni þetta reynist eins og
menn geri sér vonir um, muni
verða um algera byltingu að
ræða á meðferð afla. Efni það,
sem hér er um að ræða, heitir
„Acronise“, og er skylt aureo-
mycini. Það kemur í veg fyrir,
að bakteríur geti lifað í fiskin-
um og ver hann því öllrim
skemmdum.
í Bandaríkjunum er talað um
hversu ágætlega efni þetta
reynist, og segir framleiðandi
þess þar, að nú þurfi ekki leng-
ur að geyma fisk í ís eða
frystiklefum til þess að forða
honum frá skemmdum.
Það virðist sannarlega ekki
úr vegi, að Íslendingar athugi
þetta atriði, og hefur þó svipað
efni verið prófað hér, sem látið
hefur verið í ís og gefizt vel.
Þjálkvoða -
nýtt byggingarefni.
Bandarísk efnaverksmiðja,
Bakelite Co. í New York, hefur
fundið upp og hafið framleiðslu
á hjól-kvoðu, sem — er hún
stroknar — er hið bezta efni til
uppfyllingar, og til einangrun-
ar og loftþéttunar.
Því er haldið fram, að rneð
notkun þessa nýja efnis megi
draga úr byggingarkostnaði
sumra skipa- og flugvéla-
hluta um allt að 50 %. Við fram-
leiðsluna eru notaðar sérstakar
tegundir bindiefna, en við
storknunina myndast örsmáar
loftbólur, og verður efnið trjá-
kennt og ekki ósvipað viði að
„innri gerð“, og má bora það
og saga að vild. Efnið er mjög
létt.
finna upp vélar, er breyti salt-'
vatni kostnaðarlítið í drykkjar-
vatn, og maður sá, sem hefur
teiknað „sólareiminn“, hefur
verið í þjónustu ráðuneytisins
í rúmt ár. Hann gerir ráð fyrir,
að eimingartæki sitt geti starfað
allan sólarhringinn, því að
þegar sól hnigi til viðar, og ekki
verði hægt að fá orku úr geisl-
um hennar lengur, muni lækk-
andi hitastig þétta þann eim,
sem sólarhitinn hefur myndað
um daginn og hann verða að
fersku vatni.
En Bandarikjamenn hafa
fleiri járn í eldinum í þessu
efni, því að fyrirtæki einu hef-
ur verið falið að smíða eiming-
artæki, sem kosta 2,5 millj. kr.
en það á líka að geta eimað
100,000 1. af fersku vatni úr
sjó á sólarhring. Er gert ráð
fyrir, að tonn af vatni úr því
tæki kosti um 150 kr. Við þettai
tæki þarf þó eldsneyti, en mennl
gera sér að sjálfsögðu vonir
um, að „dropinn“ verði munl
ódýrari, ef sólareimirinn gefurí
góða raun. {
Það eru nú næstum f jögur ár,
síðan innanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna fór að leita fyrir,
sér eftir tækjum, er gætu breytt
sjó í ferskt vatn me'ð litluin'
kostnaði, og hefur kostnaður-
inn smám saman farið minnk-
andi — enda hafa um 30 fyrir-
tæki fengið að spreyta sig á
þessu viðfangsefni með opin-
berum styrk — en enn hefur
ekki fengizt lausn, sem .er að
öllu leyti fullnægjandi, því að
kostnaðurinn er alltaf talsverð-
ur. j'
Flngnmenn Hitlers og
bandaríska lögreglan.
Framh.
Eftr öllum sólarmérkjum að
dæma, virtist víðtækt og vand-
léga undirbúið samsæri gegn
hagsmunum Bandaríkjanna
vera hér á uppsiglingu, þrátt
fyrir það þótt friður væri milli
Þýzkalands og Bandaríkjanna.
Það var hvorki meira né mirina
en samsæri til að draga úr
framledðslumöguleikum Banda-
rikjanna með tilliti til væntan-
legs stríðs milli þessara þjóða.
Eflaust stefndi þessi viðleitni
að því marki, að hægt væri að
greiða framleiðslu Bandaríkj-
anna „rothögg", ef svo mætti
segja, jafnvel meðan stjórn-
málaviðræður milli landanna
Eftir Bentösi Leeds.
ættu sér stað. Athafnir Kerlings
og félaga hans, meðan þeir voru
undir stöðugu eftirliti ríkislög-
reglunnar, benti til þess. Þessir
menn voru ekki hin venjulega
nj ósnaramanntegund, heldur
þreknienni, sem voru færir um
ákafa ; áreynslu, ef svo bæri
undir, sem sé efnilegir skemmd-
arverkamenn. En skemmdar-
verk af þessu tagi þýddu ekki
aðeins margra milljóna dala
eyðilegging á mannvirkjum og
lömun á varnargetu þjóðarinn-
ar, heldur einnig tjón á lífum
amerískra borgara.
Með þeirri óþrjótandi þolin-
mæði, sem einkennir starf rík-
islögreglunnar áður en látið er
til skarar skríða, fylgdu lög-
reglumennirnir hinum tor-
tryggilegu mönnum eftir eins
og skuggar þeirra. Haupt yngri
hélt sig dyggilega að starfi sínu
hjá sjóntækjaverksmiðjunni,
án þess að gefa neitt tilefni til
frekari gruns. Kökubakarinn
Neubauer fluttist til Austur St.
Louis og leigði sér herbergi í
matsöluhúsi, er stjórnað var af
gömlum þýzkum hjónum.
Hinsvegar hélt Kerling þeim
lögreglumönnum, er gættu
hans, á stöðugum þönum. Þeir
fylgdu honum eftir til Syra-
kúsu, New York, til gistihúss
eins þar í borg. Þai-na kom nýr
maður til móts við hann. Virt-
ist hami kominn um fertugt og
var þreklega vaxinn. Lögreglu-
mennh’nir voru fljótir að kom-
ast að því, hver hann var. Hann
hét Georg John Dasch og var
fæddur í Speyer við Rín, Þýzka-
landi.
Eftir að hafa sinnt herþjón-
ustu í þýzka hernum, gerðist
hann leynifarþegi á skipi 1922
og kom til Fíladelfíu. Hann
ferðaðist nokkrum sinnum aft-
ur til Þýzkalands —• 1923 sem
skipsþjónn, 1930 í sumarfríi
sínu, og síðar sama ár í bi;úð-,
kaupsferð; þá ferðaðist hann
líka um Frakkland, Sviss og
Austurríki. Eftir þetta vann
hann sem þjónn í gistihúsum í
New York, San Francisco og
Los Angeles. 1937, eftir fimmt-
án ára dvöl í Bandaríkjunum,
ákvað hann loks að senda fyrstu
umsókn sína um borgararétt-
indi.
Kerling tók sér far með lest
til New York morguninn eftir
og innritaði sig á gistihús ekki
allfjarri Pennsylvaníu járn-
brautarstöðinni. Tveim dögum
seinna yfirgaf Dasch starf sitt
og settist að í sama gistihúsi.
Haupt og Neubauer komu frá
Chicago nokkrum stundum
síðar og báðu um herbergi.
Einn maður til viðbótar bættist
I hópinn morguninn eftir. Hann
var fýldur á svip með langt nef
og' stakk við fæti.
Þessi náungi innritaði sig
sem Robert Quirin frá Syra-
kúsu, New York, sömu borg og
Dasch kom frá. Lögi-eglumenn-
irnir komust að því, að Quirin
var völundarsmiður og hafði
komið til Bandaríkjanna 1927,
þá nítján ára að aldri. Tveimur
árum seinna hafði hann skrif-
að undir yfirlýsingu um að
3§l iUíi ,ii&