Vísir - 07.01.1957, Blaðsíða 11

Vísir - 07.01.1957, Blaðsíða 11
Mánudaginn 7. janúar 1957. VISIR ir ,-gr 'i> t ffvemig var fyrir 10.000 árum? cgeymtr BeyrtdarmáBið. Franska heimskautarann- sóknastofnunin, sem skipulagði og stjórnar rannsóknaleiðangr- inum á suðurheimskautinu, er að undirbiia mikinn leiðangur til Grænlands undir forystu Paul-Eniile Victors næsta sum- ar, og fer leiðangurinn væntan- lega um fsland. Auk Frakkanna taka þátt í leiðangrinum vísindamenn frá Danmörku, Vestur-Þýzkalandi cg Sviss, en nokkur fleiri lönd Ieggja íram fjármagn og tæki til vísindarannsóknanna^ enda ' er búizt við miklum árangri undir stjórn hins kunna vís- indamanns, sem oft hefir kom- ið til íslands á ferðum sínum til Grænlands. Paul-Emile Victor var nýlega á ferð í Stokkhólmi og skýrði þar frá áformum í sambandi við hinn fyrirhugaða leiðangur. Fer hann til Grænlands næsta vor til að undirbúa komu leið- angursmanna til Port Victor í Diskóflóanum, en þaðan á vís- indaleiðangurinn að leggja upp. Rannsóknirnar eiga að taka tvö ár og eru í beinu framhaldi af rannsóknum Paul-Emile Victörs og manna hans á árun- um 1948—1953, sem á því tíma- bili dvöldu samfleytt á hájökli Grænlands í tilraunastöð sinni og rannsökuðu hábungu Græn- landsjökuls og þá aðallega til suðurs. Nú verður áherzla lögð á að rannsaka jökulbreiðurnar í norðurátt frá tilraunastöð Vic- tors, og verður það fyrsta verk leiðangursmanna, að leita að gömlu stöðinni og hinum 20 metra háa stálturni, sem þeir reistu til þess að auðveldara væri að finna hana. Leyndarmál í jökullögum. Eitt af mörgum verkefnum leiðangursmanna verður að mæla þykkt jökulsins og rann- saka jökullögin. Er það gert með því að grafa djúpar holur í jökulinn. Það eru einmitt jök- ullögin, sem gefa vísindamönn- um nokkra vísbendingu um veðurfars. og loftslagsbreyt- ingar á jöklinum og jörðinni yf- irleitt. Sagði Paul-Emile Victor, að með íslagarannsóknunum væri hægt að sjá loftslagsbreyt- ingar, sem hefðu átt sér stað frá deginum í dag 10.000 ár aftur 1 tímann og þar af leiðandi mætti nokkuð geta sér til um loítslagsbreytingar á komandi tímum. Bíil tii söiu Ford Junior, sendiferða- bíll til sölu i góðu lagi með nýrri vél og drifi, einnig gírkassa og gúmmíum. Verð kr. 13,000,00. Mjög hentugur fyrir mann er stundar vinnu langt frá heimili. j ; Jón Jónsson Skarði, Skarðsströnd simstöð. Þá vona leiðangursmenn að geta með mælingum sínum fengið allnákvæma mynd af landinu undir jöklinum, sem sums staðar er um 3000 metra þykkur og það stór, að ef hann bráðnaði allur myndi yfirborð sjávarins hækka um 10 metra og flæða yfir stóran hluta af dýrmætasta og byggilegasta landi jarðarinnar. Leiðangursmennirnir verða um 50 talsins. Verður þeim skipt í 15 hópa sem vinna hver á sínu svæði. Ekki er samt gert ráð fyrir að allir þessir menn hafi þar vetursetu en nokkrir verða skildir eftir til að gæta stöðva og áhalda og gera nauð- synlegustu athuganir. í landi stormanna. Franski leiðangurinn á suður- heimskautinu hefir búið sig til vetursetu. f hohum eru 14 menn undir stjórn Robert Guillard. Leiðangurinn hefir aðsetur á lítilli ej’ju, II de Patrie, fimm kílómetra frá ströndinni við Geologique höfða en þar var skársta afdrepið á þessum stormasama stað, þar sem nærri ómögulegt er að lenda eða geyma flugvélar vegna svifti- bylja. Leiðangursmennirnir hafa látið byggja sérstakan skála úr aluminium, sem þannig er gerð- ur, að hægt er að taka hann í sundur og draga síðan eftir jöklinum til stöðvarinnar, sem verður 400 kílómetra frá strönd inni. Stöðin verður kennd við hinn fræga franska vísindamann, dr. Charcot, sem fórst á skipinu „Pourqui pas?“ við Mýrar með allri áhöfn að undanteknum einum manni. Gnat-fiugvébr smíílalar í FinnSandi. Finnska ríkisstjórnin hefur nýlcga veitt Bretum levfi til framleiðslu Gnat orrustuflug- véla 1 Finnlandi. Eru Finnar að endurnýja hinar léttu orrustuflugvélar sínar og er heimildin tengd i þeim áformum. — Folland verksmiðjurnar brezku til- kynntu 31. des. s.l., að Gnat- flugvélarnar yrðu framleiddar í Finnlandi, en finnskir verk- fræðingar fengu þjálfun í verksmiðjum félagsins í outhampton. Verkfræðingar frá félaginu fara til Finnlands og starfa þar meðan framleiðsl- an er á byrjunarstigi. Upphaf þessa máls var, að Finnar keyptu 12 Gnatflugvél- ar af Bretum. Indverjar hafa einnig keypt flugvélar af þessari tegund frá Bretum og þær verða einnig framleiddar á Indlandi, með sérstakri heimild. SuezskurSur ei öllum opinn. Kairoútvarpið skýrði frá ,því aðfaranótt sunnudags, að birt hefði verið tilskipun frá Nasser þess efnis, að brezkum og frönskum skiprnn yrði ekki leyft að sigla um Suezskurð, fyrr en Sinaiauðnin öll og Gazaræman væri aftur á valdi Breta. Eins og kunnugt er hafa Israelsmenn ekki farið með herafla sinn allan úr Sinaiauðn- inni og þeir hafa lýst yfir, að þeir sleppi ekki Gazaræmunni. — Þessi nýjasta tilskipun Nassers er fordæmd í blöðum vestrænu þjóðanna, og þykir sýna ljóslega, að Egj>ptum verði aldrei treystandi til að fara með yfirráð Suezskurðar. Um frek- ari viðbrögð er ekki kunnugt, en gert ráð fyrir, að hert verði á kröfunum um, að þannig verði frá málum gengið, að alþjóða- eftirlit verði strangt með því, að öllum skipum verði leyfðar frjálsar siglingar um skurð- inn. Samstaða vesfurvefda í afvopnunarmálum. Blaðið Scotsman í Edinborg lýsir ánægju sinni yfir sam- stöðu vestrænu stórveldanna í afvopnunarmálunum, eins og svörin til Bulganins bera vitni um. í þeim kemur fr'am, að vest- rænu þjóðirnar eru einhuga um, að þessi mál beri að ræða og aígreiða á vettvangi Samein- uðu þjóðanna. Scotsman segir ekkert hafa komið fram, sem bendi til ann- ars en að mark Rússa sé sam- I komulag sem tryggi þeim á- hrifaaðstöðu á meginlandinu, varðandi Þýzkaland og Austur Evrópulöndin. Áfengi ekki veitt í Hvítahúsinu. Frétt frá Washington, sem nýlega birtist í norska blað- inu „Folket“ segir frá því, að Eisenhower, forseti, hafi á- kveðið, að eftirleiðis skuli all- ar samkomur, móttökuathafn- ir og véizluhöld, sem fram fara í Hvíta húsinu vera áfengislaus, en þ. e. gestum verður ekki boðið áfengi til neyzlu í neinni mynd. Það fylgir sögunni, að fregn þessi hafi vakið geysi athygli, og leikur það ekki á tveim tungum, að fordæmi forsetans mun hafa hin víðtækustu áhrif. Það sem þykir hæfa Hvíta húsinu verður brátt siður og venja annars staðar í landinu. (Frá Áfengisvn. Rvíkur). Bílar sátu víSa fastir í gær. Frá kl. 5 til 8 í gærkveldi gcrði kafaldsbyl og var snjókoina það mikil að bifrelðar áttu erfltt nteð að komast leiðar sinnar. Fjöldi bifreiða sat íastur á vegunum t.d. var umferð á Ilafn- arfjarðarveginum nærri stöðvuð um tima vegna bíla, seip sátu fastir á vegunum. MBle&ðbur&ur Vísi vantar unglinga til að bera biaðið í eftír- talin hverfi: Hagar Miklubraut Séleyjargata Sogamýri I Skjólin Langahlíð Skarphé&insgata Upplýsingar í afgr. — Sími 1660. Dagblaðið Vísir TILKYIVMG um yfirfærzlu vinnulauna Þeir, sem óska að ráða erlenda rnenn- til starfa hér- lendis og greiða þeim laun í erlendum gjaldeyri, þurfa að tryggja sér fyrirheit Innflutningsskrifstofunnar um yfirfærslu launanna, áður en ráðningarsamningar eru gerðir. Islenzkir atvinnurekendur, sem nú liafa erlenda menn í vinnu eða hafa þegar undii búið ráðningu þeirra, þurfa að senda beiðnir um „yfirfærsluloforð“ á laun- um þeirra án tafar. Skilríki um atvinnuleyfi þurfa að fylg'ja beiðnum um „yfirfærsluloforð“, en þau verða látin í té bréflega og- innihalda upplýsingar um, hvernig haga skuli um- sóknum um gjaldeyrisleyfi fyrir vinnulaunum jafn- óðum og nauðsyn krefur að yfirfæra þau. Einnig hvaða uppíýsinga og skilríkja verður krafist í því sambandi. Allar umsóknir skulu atvinnurekendur undirrita, en ekki hinir erlendu starfsmenn. Gjaldeyrisleyfi verða ekki veitt fyrir vinnulaunum til þeirra, sem ekki hafa í höndum „yfirfærsluvottorð“ frá Innflutningssbrif- stofunni á þar til gerðu eyðubláði. Reykjavík, 4. janúar 1957. Innflutningsskrifstofan. Hinar vinsælu þýzku útvarpsstengur eru nú komnar aftur. Einnig sjálfvirkar útvarpssterigúr fyrir 6 og 12 volt. Rafmagnsþurrkur 6 og 12 voltá. Smyrilí, Húsi Sameinaða Sími 6439 „Ferðin til tungls- ins“ sýnd á ný. A laugardaginn kl. 3 hófust á ný sýningar hjá ÞjóðleiMiús- inu á barnaleikritinu „Ferðin til tunglsins" eítir Gcrd von Bassewitz. Leikur þessi var sýndur fyrir nokkrum árum og urðu sýn- ingar þá 30 samtals. Hlut- verkaskipun er að miklu leyti- hin sama og þá, en leikstjóri er Hildur Kalman, hljómsveitar- stjóri Victor von Urbantschitsch og dansstjóri Erik Bidsted, sem einnig dansar með í leikritinu. ★ Nc-.v Vork Times birtir fregn uin, að egypzka stjórnin hafi beðið Bandaríkjastjórn að láta sig fá þegar mnráð yfir egypzku fé, sem fryst var f Bandarikjimum, er Egyptar tóku Súezskurðinn,— Fjár- liagur Egyptalands verður nú bágbornari með degi hverjum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.