Vísir - 06.05.1957, Blaðsíða 12

Vísir - 06.05.1957, Blaðsíða 12
Þ*Ir, itm gerast kanpendur VlSIS eftir 10« hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1869. VlSIS eí? «oy.“asra blaðið og þó það f}31- breyítssxa. — Uringið í sima 1689 «f tvnst áskrifendur. Mánndaginn G. maí 1 íi 57 Farþegar Loftleiða hafa vax- andi áhuga á Islaadi. iiíí a a h i‘ Vísir hefur spurt um horfur ú farþegaflugi hjá hoftleiðum og' fékk þær upplýsingar, að eftirspurn eftir fari með flugvél- um félagsins væri enn meiri en í fyrra, en annars hefur ailt verið í vexti hjá félaginu ár frá ári sem kunnugt er. Frá 11. þ. ni. koma hingað tlaglega tvær af fiugvélum fé- lagsins, önnur á vesturleið til New York, liin á austurleið til meginlandsins. Er flogið austur árdegis, en til New York að kvöldinu. Loftleiðir haía nú fjórar flug- vélar í millilandaflugi: Eddu Sögu, Heklu og leiguflugvél, og eru þetta allt Skymasterflugvél- ar, sem flytja 54 farþega í ferð hver. Mjög fer í vöxt, að farþegar sem fara heimsálfa milli vilji dveljast hér 1 til 2 daga, jafn- vel lengur, og sjá Loftleiðir fyrir því eftir því sem ástæður leyfa, -að menn geti dokað hér við, án þess að nokkur fargjalds- hækkun komi til gx’eina, en far- þegarnir greiði kostnað af dvöl sinni hér. Gistiliúsvandræðin. En hér koma gistihúsvand- : ræðin til greina, og það verður að segja hverja sögu eins og hún gengur, að það er ekki allt af hægt að sjá öllum, sem hér vilja hafa viðdvöl, fyrir gististað, þótt allt sé gert sem unnt er í því efni. Er knýjandi nauðsyn, leysa þennan vanda. Margar fyrirspurnir berast fá ýmsum löndum um til félagsins og mikil eftirspurn er að þeim ferðapés- um, sem hér hafa verið gefnir Rafveitan vann siökkvi- liðið í bridge. Fyrir skömmu fór fram sveit- arkeppni í bridge milii Eaf- magnsveitu Keykjavíkur og Slökkviliðsins í Evk. Kepptu þrjár sveitir frá livor- um. Keppt var um forkunnar- fagran farandbikar, sem kepp- endur höfðu gefið. Keppt var um hann nú í fyrsta sinn. Keppn- in var mjög hörð og tvísýn. Leikar fóru svo, að Rafmagns- veitan vann á tveim borðum, en ; • .Slökkviliðið á einu. Enginn uppstytfa í regni fónanna. Tónaregn, hinar vinsælu kvöhl- skemmtanir S. I. B. S. í Austur- 'bæjarbíói liafa nú staðið yfir í tæpa viku og alls verið hahliiar 8 sýningar. Jafnan hefur verið húsfyllir og hrifning áheyrenda fyrir hinum innlendu sein er- lendulistamönnum mjög mikil. Nú fer hver að verða síðastur að sjá skemmtun þessa því hin skemmtilega liljómsveit Tony Cromible er á förum eftir örfáa daga. Níunda sýningin er i !, . íjfvöld. út, og er ekki að efa, að áhuginn fyrir því meðal þeirra, sem fljúga um Island, að skoða sig hér um, er mikill. Gera má ráð fyrir, að þessi áhugi fari enn vaxandi rneð tíð- ari ferðum, og er það mikill gjaldeyrir sem þjóðinni tapast, ef ekki er hægt að taka við þeim ferðamönnum, sem hingað vilja koma og staldra hér við. Náæskefð á veg- um Fyirr nokkru er lokið þriggja vikna náraskeiði í gluggaskreyt ingu, sem haldið var hér í bæn- um á vegum félagsins Sölu- tækni. Leiffbeinandi var norskur sérfræðingur, Per Skjönberg að nafni. Námskeiðið var haldið í húsakynnum Handíða- og myndlistaskólans. Þátttakendur voru 46, flestir starfandi við vefnaðarvöruverzlanir. ' Sýndar voru allskonar ný- ungar í gluggaskreytingu og fengin frá útlöndum sýninga- tæki af nýjustu gerðum. Þeir Davíð Haraldsson og Gísli Björnsson affstoðuðu Skjönberg á námskeiðinu. — Nokkur fyrirtæki, t. d. Rafha, Guðrún, Vogue, Herratízkan, Grund, Markaðurinn, O. John- son & Kaaber, Magnús Víg- lundsson og Valborg, lánuðu góðfúslega vörur og tæki til af- nota við kennsluna. Námskeiðið tókst ágætlega og voru þátttakendur mjög árægoit'. Þetta er annað námskeiðið, sem Sölutækni gengst fyrir. Afráffið er nú að þriðja nám- skeið félagisns hefjist um 20. þ. m. Þá er væntanlegur hing- að erlendur sérfræðingur í markaðskönnun og sölustarfi. Mun hann dveljast hér í nokkra daga og halda fyrirlestra á veg- um, félagsins. Stjórn H.Í.P. íer ekki með samninga. í gær var fiuidur í Hinu íslenzka prentarafélagl mn upp- sögn samninganna, sem ganga úr gildi 1. júní. Taldi stjórn prentarfélagsins sig ekki, geta farið með umboð félagsins til samninga við prentsmiðjueigendur og var nið- urstaðan sú, að kosin var þriggja manna nefnd af hálfu félagsins til að fara með um- boðið. þ Kosnir voru í nefr.dina þeir Ingólfur Ólafsson, Ti’yggvi Thorstensen og Geir Herberts- son. Jé'ii |Ds*«Sfess«r líááissss. ■Jó»i Jóhannesson prófessor andaóist í fyrrakvöld et'tir stutta legui 47 ára að aldri. Jón var fæddur að Hrísakoti á Vatnsnesi 6. júní 1009. Hann varð stúdent frá Menntáskólan- um á Akureyri 1932 og magister í íslenzkum fræðum 1937. Síðan kenndi hann tvo vetúr í Mennta- skóíanum í Reykjavík, einn vet- ur í Vei’zlunarskólanum og einn vetur í Menntaskólanum á Akur- evri. Hann varð dr. phil. við Há- skólann í Reykjavik 1942 og fjallaði doktorsritgerð hans um gerðir Landnámubókar. Hann varð prófessor við Háskólann 1943. Úr listiðnaðardeild Sýningarsalarins í Alþýðuhúsinu. Sýningu sjömenningonna, sem þar hefur staðið að undanförnu, lýkur á miðviki».dagskvöld. Misheppnað áróðursbragð: ir í „gðdru". Hrezk o@ bandamk méf- mæli i Prag. ★ Á síðasta ári voru kveðnir upp í Noregi 2123 dómav fyrir þeimabrugg, smygl og önnur áfengislagabrot. í Prag hefur verið birt til- kynning bess efnis, að flug- málaráðunautar sendiráða Breta og Bandaríkjamanna hefðu verið liandteknir á bannsvæði skammt frá Prag, en verið sleppt, er kunnugt var hverjir jieir voru. Átti þetta að hafa gerst s.l. föstudag. Samkvæmt mótmælaor’ð- sendingu, sem Bretar hafa af- hent í Prag áður en nokkur mótmæli komu frá tékknesku stjórninni, segir að hér hafi verið um fyrirfi’am skipulagt bragð að ræða í áróðursskyni, og aðförunum harðlega mót- mælt. Samkvæmt hinni brezku mótmælaorðsendingu gerðist þetta s.l. föstudag: Flugmála- ráðunautarnir óku í bifreið á aðalþjóðvegi skammt frá Prag, er lögregla allt í einu beindi þeim inn á hliðarveg og að flug- velli skammt þar frá, en er þangað var komið voru þeir teknir til yfirheyrslu af ofursta í hernum, og á meðan var ekið að skriðdrekum cg tvær flug- vélar dregnar að, en bifreið flugmálaráðunautanna látin standa fyrir framan — og kvikmyndir teknar. Allt tók þetta um 3 klst. Því næst var flugmálaráðunautuniun sagt að aka aftur sömu leið og þeir komu. En er á aðalþjóðveginn kom var búið að setja þar upp merki um bannsvæði, sem þeir segja, að ekki hafi verið þar áður. Er því haldið fram af Bret- um, að allt hafi þetta verið skipulagt fyrir fram og svið- sett. — Bandaríkjamenn hafa sent tékkneslcu stjóminni sams- konar mótmæli. Ekki er talið neinum vafa bundið, að allt þetta brölt hafi verið í áróðuxsskyni, en meira en hæpið talið, að neitt verði á því að græða — í vestrænum löndum er það talið algerlega misheppnað og einfeldnislegt. Skálar skeanm- ast í elsfl. Um helgina skemmdust tveir braggar af völdum elds, annar mikið lúnn litið. Annar þessara bragga var í Fossvogi og var slökkviliðið kvatt þangað eftir hádegið í gær. Hafði kviknað út frá raf- magnstöflu og logaði í þaki braggans þegar slökkviliðið kom. Eldurinn var fljótt slökktur og skemmdir urðu litlar. 1 fyrrinótt var slökkviliðið einnig kvatt á vettvang vegna elds í bragga, en sá braggi stóð við Varðarhúsið. Hann mun hafa verið notaður fyrir geymslu og brann allt sem í honum var, svo og þiljur. Sjálfur stendur bragg- inn uppi. Hrímfaxi — Framh. af 1. síðu. til Glasgow og London í morgun kl. 8.30. Hann er væntanlegur til Reykjavikur annað kvöld kl. 22.20. Hin Viscountvélin er hér heima og hefur ekki verið hreyfð frá því hún kom til landsins. Hún fer bráðlega utan aftur, þar sem hún verður í æfingaflugi með flugmennina íslenzku fyrst um sinn. Grænlandsflug Sólfaxi var sendur til Græn- lands í gær með vörur til Meist- aravíkur og kom heim aftur kl. 3 í nótt. 1 dag átti hann að fara í aðra ferð til Meistaravíkur, einnig með vörur. Báðar þessar ferðir eru á vegum Nordisk mineselskab. i Boðsferð til Akiu-eyrar. f gær bauð Flugfélag fslands ýmsum gestum I flugferð með Hrímfaxa inn yfir landið og var lent á Akureyri. Þar hafði vélin skamma viðdvöl og flaug þaðan til Reykjavíkur aftur. Veður var gott á Norðurlandi. Ný ski’ifstofa opnuð. Flugfélagið hefur opnað skrif- stofu sína i Khöfn i nýjum húsa- kynnum, en þó í sama húsi og það hafði aðsetur sitt í að Vest- erbrogade 6 C. Áður var skrif- stofan á 3. hæð, en er nú á götu- hæð í vistlegum og skemmtileg- um húsakynnum. Horfur á miklum farþega- fiutningum. Þá tjáði Sigurður Matthiasson Vísi að horfur væru á miklum farþegaflutningum milli út- landa og íslands með vélum fé- lagsins í sumar. Sumar ferðirnar — einkum í júlí — eru þegar fullpantaðar, en mikið pantað í ýmsum öðrum férðum. Heilir hópar — bæði Islendingar og út- lendingar — hafa ; antað far með flugvélunum ýmist til eða frá Islandi. ★ Til framleiðslu á einni smá- I s* af síáli þarf 250 smá- lo »5r af vatni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.