Vísir - 22.11.1957, Side 1
12 síður
47. árg.
Föstudaginn 22. nóvember 1957
275. tbl.
Eyðing refa og minka kostar
ríkið á 2. mitij. kr.
Ríkið greiðir % á móti sýsluféiög-
um - Verðlaunin eru 350 kr. fyrir
ref og 200 fyrir mink.
Á liðmun árum hefir ríkissjóð-
ur greitt einn þriðja á móti
sýslufélögnm fyrir eyðingtt refa
og- mimtka. Árið 1955 vont út-
gjöld ríkLssjöðs í þessu skyni kr.
574.544.00.
Hefur heildarkostnáður við eyð
ingu refa og minnka verið tæpar
tvær miiljónir það ár. Auk þess
sem greidd eru verðlaun fyrir
hvert dýr, gréiða sum sveitafé-
lög háar upphæðir þeim sem
liggja á grenjum á vorin.
Veiðiverðlaun hafa hækkað á
síðasta ári og eru nú greiddar
200 krónur fyrir mink í stað 90
króna og 350 fyrir hvern ref i
stað 180 kr. áður. Ríkissjóður
hefur tekið á sig aukinn kostnað
við útrýmingu refa og minnka,
þannig að í stað þriðjungs, greið-
ir rikið nú 2/3 verðlaunanna en
1/3 er greiddur af sýslufélögun-
um.
Gert er ráð fyrir því að úr
rikissjóði verði greiddar meira
en ein milljón króna fyrir eyð-
ingu refa og minnka í ár. Má
jafnvel gera rðð fvrir því að
þessi uophæð verði hærri en gert
var ráð fvrir i fvrstu, vefrna þess
að verðlaunin hafa hækkað og
Híflary hálfnaður
yfir pótinn.
• Ný-sjálenzkir vísindamenn
eru á leið þvert yfir íshclluna á
suðurheimskautinu.
Fara þeir um 1130 km. leið
undir stjórn Edmunds Hillarys,
og hitta brezkan leiðangur und-
ir stjórn dr. Vivians Fuchs. í
fyrradag var leiðangurinn
hálfnaður, og er gert ráð fyrir,
að hann verði kominn alla leið
í janúar. Er farið hægt yfir, svo
að tóm gefist til vísindastarfa.
Leiðangurinn notast við sleða,
sem traktor er látinn draga.
þátttaka í refaveiðum verður þar
af leiðandi meiri.
Undanfarin ár hefur bæði mink
og ref fjölgað og hefur refurinn
lagst mjög á fé bænda í seinni
tið. Er það tjón, sem refurinn
hefur valdið ómælt, en það er tal-
ið nema tugum jafnvel hundruð-
um þúsunda króna árlega.
Frá aldamótum og fram til
1930 var unnið ötullega að út-
rýmingu villirefsins og bar þá
víða mjög lítið á lionum og í
sumum sveitum landsins sást
hann ekki. Eftir 1940 virðist ref-
um fjölga mikið og er ástæðan
talin sú að fáir gáfu sér tima til
að veiða refi og hann fékk því
að vera svo til óáreittur í nær
tvo áratugi. Hinar eldri refa-
skyttur eru horfnar og fáir ungir
menn kunna nokkuð nokkuð til
refaveiða.
Nokkur breyting er þó á þessu
og margir ungir menn leggja nú
fyrir sig refaveiðar. Verðlaitnin
munu eiga mestan þátt í aukn-
um áhuga manna fyrir refa og
minkaveiðum, en þar að auki
þykir mörgum það hin skemmti-
legasta íþrótt að veiða refi.
Hvar er Zhukov?
„Breinsun^ í
Rauða hernuon.
Fregnir frá Austur-Berlín
herma, að fjölda mörgum rúss-
neskum hersliöfðingjum og liðs-
foringjum hafi verið vikið frá,
einnig tvehnur hersliöfðingjum,
sem voru í A. Þ. og um 20 liðs-
foringjuhi, er þar voru.
Þetta eru þeir menn, sem neit-
uðu að mæla gegn Zhukov. Ekki
hefur frézt um neinar aftökur
eða fangelsanir á slíkum mönn-
um, en þeir skipta orðið tugum,
liðsforingjarnir, sem vikið hefur
verið fr, hafa verið lækkaðir í
tign.
12,000 km.2 svæði í Engfandi
emasgrað vegna húfjárvelki.
1«in- og klaufaveiki liefBfli* orðið
varí nokkrnm siuifluiu.
Bretar hafa nokkrar áhyggj- 'ferkm. svæði í S.-Englandi, þar
ur af því, að gin- og klaufaveiki sem pestarinnar hefir orðið vart
Jbefir gert vart við sig nokkrum á búgarði í grennd við stór-
sinnum í Bretlandi í haust. I borgina Southamptön. Fer
Hefir þetta leitt til þess, að fram athugun á búpeningi á
niðurskurður hefir verið fram- svæði þessu, þar sem gripir af
kvæmdur á nokkrum stöðum, hinu sýkta búi voru fluttir til
jþar sem pestarinnar hefir orðið slátrunar á þrjá staði í byrjun
vart, en aldrei á stóru svæði í vikunnar.
einu. í fyrradag var hinsvegar | Á svæði því, sem er til at-
gefin út skipun um, að enga hugunar eru 700,000 nautgrip-
Skepnu mætti flytja af 12,000 ir, 230,000 fjár og 400,000 svín.
Myndin er tekin á þjájfunarskóla fyrir ijósmyndara brezka flughersins, en hann er í Cosford
-■ í Shropshir e, Englandi.
Einn mesti ailadagur
reknetabáta í vetur.
Á þriðja fssís. tunuur til Kefíavíkur 03 2000
tn. til Akraness. Reknetabátum fjölgar.
Togari tekinn
w
I
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
Mikil síldveiði var í nótt og
fengu einir fjórir bátar yfir 200
tunnux-, en hinir voru flestir
með á annað hundrað tunnur.
Heildarafli Akranesbáta í dag
mun vera um 2000 tunnur og
er þetta mesti afladagur í vet-
ur.
Seytján bátar eru byrjaðir á
reknetum og þrír eru tilbúnir
að byrja. Að líkindum verður
ekki róið í kvöld vegna þess að
spáð er stormi.
Síldin hefur færzt norðar og
er nú mun betri aðstaða til
veiðanna. Akranesbátarnir voru
tvo til tvo og hálfan tíma frá
Skaga og voru því ekki nema
á fimmtu klukkustund heim
af miðunum, en í Skerjadýpi
er 8—9 klukkustunda sigling.
Kefiavík.
Alls bárust á land í Keflavík
í gær 1800 tunnur af 19 bátum
en í nótt voru milli 20 og 30
bátar á sjó. Allflestir bátanna
hafa góða veiði og munu flestir
vera með yfir 100 tunnur, en
fáir með lítinn afla. Búizt er
við að heildarafliim í dag verði
nokkuð á þriðja þúsund tunnur.
Nokkrir aðkomubátár eru að
koma aftur, en þeir héldu allir
heim þegar veiðin brást í haust.
Sandgerði.
Frá Sandgerði róa 14 bátar,
þar af eru 6 aðkomúbátar. Afl-
inn í dag er frá 40 til 100 tunn-
ur á bát. Sandgerðisbátar fengu
afla sinn norður af Eldey og
munu hafa verið sunnar en bát-
ar frá Keflavík og Akranesi. —
Síldin er komin á þær slóðir,
sem hana var að finna undan-
farin ár.
Ekki er útlit fyrir að róið
verði í kvöld vegna óhagstæðr-
ar veðurspár.
Rússar hófa enn með
neitunarvaldi.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð
anna frestaði fundum um Kash
mirdeiluna í gærkveldi eftir
að fulltrúi Ráðstjórnarríkj-
anna hafði boðað beitingu neit-
unarvalds.
Lagðist hann algerlega gegn
því, að dr. Graham yrði falið
að gera nýja tilraun til mála-
miðlunar og kvaðst mundu
beita neitunarvaldi, ef til at-
kvæðagreiðslu kæmi.
Eftir fundinn sagði utanrík-
isráðherra Pakistans, að aug-
ljóst væri, að Ráðstjórnarríkin
vildu hindra friðsamlegt sam-
komulag, og bað hann allar
Asíuþjóðir að veita þessari af-
stöðu athygli
Ekki er kunnugt hvort málið
verður þar með lagt á hilluna
í bili eða hvoft frekari sam-
komulagstilraunir um af-
greiðslu málsins verða reyndar.
í gærmoi'gun var komið hing-
aó inn með togarann Loch Sea-
fortli frá Hull, sem tekinn hafði
verið fyrir meint landlieigisbrot.
Var það flugvél landhelgis-
gæzlunnar, sem tók hann og taldi
hann hafa verið að botnvörpu-
veiðum í fyrrakvöld sjö sjómílur
innan landhelgi í Breiðafirði.
Rannsókn stóð' yfir í gær og
fram á nótt og verður henni
haldið áfram í dag.
Vértir reikur
úr Sæfinni.
Ýmiskonar brak og varning
hefir rekið úr farmi ms. Sæ-
finns, sem sökk í fyrradag utan
Hornafjarðaróss.
Skipið var með allmikið af
timbri til brúargerðar, á þilfari,
og hefir nokkru af því skolað á
land. Fundizt hafa 14 hjólbarð-
ar af 60, sem skipið var með.
Einstaka poka með hveiti og
korni hefir skolað á land og
ýmislegt annað dót hefir flotið
inn fjörðinn. Voru menn þar á
bátum í gær að hirða það sem
nýtilegt var þar á floti.
Sprengíng i skipi viÓ
Kýpur.
Tveir hryðjuverkamenn voru
liandteknir á Kýpur í gær og
skemmdir urðu af völdum
sprengingar í brezku skipi.
Hryðjuverkamennirnir voru
handteknir eftir talsverðan elt-
ingaleika skammt frá Limasol.
Sprengingin varð í kaupskip
inu African Prince. Líklegt er,
að um hermdarverk hafi verið
að ræða. Rannsókn fer fram.