Vísir


Vísir - 22.11.1957, Qupperneq 1

Vísir - 22.11.1957, Qupperneq 1
12 síður 47. árg. Föstudaginn 22. nóvember 1957 275. tbl. Eyðing refa og minka kostar ríkið á 2. mitij. kr. Ríkið greiðir % á móti sýsluféiög- um - Verðlaunin eru 350 kr. fyrir ref og 200 fyrir mink. Á liðmun árum hefir ríkissjóð- ur greitt einn þriðja á móti sýslufélögnm fyrir eyðingtt refa og- mimtka. Árið 1955 vont út- gjöld ríkLssjöðs í þessu skyni kr. 574.544.00. Hefur heildarkostnáður við eyð ingu refa og minnka verið tæpar tvær miiljónir það ár. Auk þess sem greidd eru verðlaun fyrir hvert dýr, gréiða sum sveitafé- lög háar upphæðir þeim sem liggja á grenjum á vorin. Veiðiverðlaun hafa hækkað á síðasta ári og eru nú greiddar 200 krónur fyrir mink í stað 90 króna og 350 fyrir hvern ref i stað 180 kr. áður. Ríkissjóður hefur tekið á sig aukinn kostnað við útrýmingu refa og minnka, þannig að í stað þriðjungs, greið- ir rikið nú 2/3 verðlaunanna en 1/3 er greiddur af sýslufélögun- um. Gert er ráð fyrir því að úr rikissjóði verði greiddar meira en ein milljón króna fyrir eyð- ingu refa og minnka í ár. Má jafnvel gera rðð fvrir því að þessi uophæð verði hærri en gert var ráð fvrir i fvrstu, vefrna þess að verðlaunin hafa hækkað og Híflary hálfnaður yfir pótinn. • Ný-sjálenzkir vísindamenn eru á leið þvert yfir íshclluna á suðurheimskautinu. Fara þeir um 1130 km. leið undir stjórn Edmunds Hillarys, og hitta brezkan leiðangur und- ir stjórn dr. Vivians Fuchs. í fyrradag var leiðangurinn hálfnaður, og er gert ráð fyrir, að hann verði kominn alla leið í janúar. Er farið hægt yfir, svo að tóm gefist til vísindastarfa. Leiðangurinn notast við sleða, sem traktor er látinn draga. þátttaka í refaveiðum verður þar af leiðandi meiri. Undanfarin ár hefur bæði mink og ref fjölgað og hefur refurinn lagst mjög á fé bænda í seinni tið. Er það tjón, sem refurinn hefur valdið ómælt, en það er tal- ið nema tugum jafnvel hundruð- um þúsunda króna árlega. Frá aldamótum og fram til 1930 var unnið ötullega að út- rýmingu villirefsins og bar þá víða mjög lítið á lionum og í sumum sveitum landsins sást hann ekki. Eftir 1940 virðist ref- um fjölga mikið og er ástæðan talin sú að fáir gáfu sér tima til að veiða refi og hann fékk því að vera svo til óáreittur í nær tvo áratugi. Hinar eldri refa- skyttur eru horfnar og fáir ungir menn kunna nokkuð nokkuð til refaveiða. Nokkur breyting er þó á þessu og margir ungir menn leggja nú fyrir sig refaveiðar. Verðlaitnin munu eiga mestan þátt í aukn- um áhuga manna fyrir refa og minkaveiðum, en þar að auki þykir mörgum það hin skemmti- legasta íþrótt að veiða refi. Hvar er Zhukov? „Breinsun^ í Rauða hernuon. Fregnir frá Austur-Berlín herma, að fjölda mörgum rúss- neskum hersliöfðingjum og liðs- foringjum hafi verið vikið frá, einnig tvehnur hersliöfðingjum, sem voru í A. Þ. og um 20 liðs- foringjuhi, er þar voru. Þetta eru þeir menn, sem neit- uðu að mæla gegn Zhukov. Ekki hefur frézt um neinar aftökur eða fangelsanir á slíkum mönn- um, en þeir skipta orðið tugum, liðsforingjarnir, sem vikið hefur verið fr, hafa verið lækkaðir í tign. 12,000 km.2 svæði í Engfandi emasgrað vegna húfjárvelki. 1«in- og klaufaveiki liefBfli* orðið varí nokkrnm siuifluiu. Bretar hafa nokkrar áhyggj- 'ferkm. svæði í S.-Englandi, þar ur af því, að gin- og klaufaveiki sem pestarinnar hefir orðið vart Jbefir gert vart við sig nokkrum á búgarði í grennd við stór- sinnum í Bretlandi í haust. I borgina Southamptön. Fer Hefir þetta leitt til þess, að fram athugun á búpeningi á niðurskurður hefir verið fram- svæði þessu, þar sem gripir af kvæmdur á nokkrum stöðum, hinu sýkta búi voru fluttir til jþar sem pestarinnar hefir orðið slátrunar á þrjá staði í byrjun vart, en aldrei á stóru svæði í vikunnar. einu. í fyrradag var hinsvegar | Á svæði því, sem er til at- gefin út skipun um, að enga hugunar eru 700,000 nautgrip- Skepnu mætti flytja af 12,000 ir, 230,000 fjár og 400,000 svín. Myndin er tekin á þjájfunarskóla fyrir ijósmyndara brezka flughersins, en hann er í Cosford -■ í Shropshir e, Englandi. Einn mesti ailadagur reknetabáta í vetur. Á þriðja fssís. tunuur til Kefíavíkur 03 2000 tn. til Akraness. Reknetabátum fjölgar. Togari tekinn w I Frá fréttaritara Vísis. Akranesi í morgun. Mikil síldveiði var í nótt og fengu einir fjórir bátar yfir 200 tunnux-, en hinir voru flestir með á annað hundrað tunnur. Heildarafli Akranesbáta í dag mun vera um 2000 tunnur og er þetta mesti afladagur í vet- ur. Seytján bátar eru byrjaðir á reknetum og þrír eru tilbúnir að byrja. Að líkindum verður ekki róið í kvöld vegna þess að spáð er stormi. Síldin hefur færzt norðar og er nú mun betri aðstaða til veiðanna. Akranesbátarnir voru tvo til tvo og hálfan tíma frá Skaga og voru því ekki nema á fimmtu klukkustund heim af miðunum, en í Skerjadýpi er 8—9 klukkustunda sigling. Kefiavík. Alls bárust á land í Keflavík í gær 1800 tunnur af 19 bátum en í nótt voru milli 20 og 30 bátar á sjó. Allflestir bátanna hafa góða veiði og munu flestir vera með yfir 100 tunnur, en fáir með lítinn afla. Búizt er við að heildarafliim í dag verði nokkuð á þriðja þúsund tunnur. Nokkrir aðkomubátár eru að koma aftur, en þeir héldu allir heim þegar veiðin brást í haust. Sandgerði. Frá Sandgerði róa 14 bátar, þar af eru 6 aðkomúbátar. Afl- inn í dag er frá 40 til 100 tunn- ur á bát. Sandgerðisbátar fengu afla sinn norður af Eldey og munu hafa verið sunnar en bát- ar frá Keflavík og Akranesi. — Síldin er komin á þær slóðir, sem hana var að finna undan- farin ár. Ekki er útlit fyrir að róið verði í kvöld vegna óhagstæðr- ar veðurspár. Rússar hófa enn með neitunarvaldi. Öryggisráð Sameinuðu þjóð anna frestaði fundum um Kash mirdeiluna í gærkveldi eftir að fulltrúi Ráðstjórnarríkj- anna hafði boðað beitingu neit- unarvalds. Lagðist hann algerlega gegn því, að dr. Graham yrði falið að gera nýja tilraun til mála- miðlunar og kvaðst mundu beita neitunarvaldi, ef til at- kvæðagreiðslu kæmi. Eftir fundinn sagði utanrík- isráðherra Pakistans, að aug- ljóst væri, að Ráðstjórnarríkin vildu hindra friðsamlegt sam- komulag, og bað hann allar Asíuþjóðir að veita þessari af- stöðu athygli Ekki er kunnugt hvort málið verður þar með lagt á hilluna í bili eða hvoft frekari sam- komulagstilraunir um af- greiðslu málsins verða reyndar. í gærmoi'gun var komið hing- aó inn með togarann Loch Sea- fortli frá Hull, sem tekinn hafði verið fyrir meint landlieigisbrot. Var það flugvél landhelgis- gæzlunnar, sem tók hann og taldi hann hafa verið að botnvörpu- veiðum í fyrrakvöld sjö sjómílur innan landhelgi í Breiðafirði. Rannsókn stóð' yfir í gær og fram á nótt og verður henni haldið áfram í dag. Vértir reikur úr Sæfinni. Ýmiskonar brak og varning hefir rekið úr farmi ms. Sæ- finns, sem sökk í fyrradag utan Hornafjarðaróss. Skipið var með allmikið af timbri til brúargerðar, á þilfari, og hefir nokkru af því skolað á land. Fundizt hafa 14 hjólbarð- ar af 60, sem skipið var með. Einstaka poka með hveiti og korni hefir skolað á land og ýmislegt annað dót hefir flotið inn fjörðinn. Voru menn þar á bátum í gær að hirða það sem nýtilegt var þar á floti. Sprengíng i skipi viÓ Kýpur. Tveir hryðjuverkamenn voru liandteknir á Kýpur í gær og skemmdir urðu af völdum sprengingar í brezku skipi. Hryðjuverkamennirnir voru handteknir eftir talsverðan elt- ingaleika skammt frá Limasol. Sprengingin varð í kaupskip inu African Prince. Líklegt er, að um hermdarverk hafi verið að ræða. Rannsókn fer fram.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.