Vísir - 17.12.1957, Blaðsíða 7

Vísir - 17.12.1957, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn 17. desember 1957 VÍSIR 7 Sovétstjömin — Frh. af 1. síðu. Nato í þessum mánuði, þar sem ætlunin sé að ræða tiltækileg ráð til þess að herða enn á víg- foúnaðarkapphlaupinu og gera drög að hernaðaráætlunum. Kveðst hann líta mjög alvarleg- urn augum á fund þennan. Búlganin lýsir auknum vígbún- aði í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum og erfiðleika á að sam ræma það sjónarmiðum og saiu tökum Sameinuðu þjóðanna. Hann lýsir friðarvilja Sovét- ríkjanna og í því sambandi get- nr hann þess, að ákvörðom Alþingis 28. marz 1956 hafi mætt skilningi þar í landi og segir að sú ákvörðun um heim- Bvaðningu erlends hers af ís- lenzku landi, beri þeim áhyggj- nm vitni, sem íslendingar hafa af örlögum lands síns. Hann segir að það mynd'i hafa mikla þýðingu, ef stórveldin féllu frá því að staðsetja hvers konar kjarnorkuvopn í öðrum löndum og þar með að sjálfsgðu talið ísland. En í niðurlagi bréfsins seg- dr orðrétt á þessa leið: Sovétstjórnin er reiðubúin til þess að taka af fyllsta skiln- ingi til athugunar þær tillög- ur, sem önnur lönd kunna að setja fram í því skyni að tryggja alþjóðafrið, einkum friðinn í Norður-Evrópu. Lítur hún með samúð á þær óskir, sem fyrir skemmstu hafa ver- ið fram bornar af nokkrum stjórnmálamönnum Eystrasalts landanna, að Eystrasalts- og Skandínavíulöndin lýsi yfir því, að þau muni ekki revna að leysa þau vandamál, er upp kunna að koma þeirra í milli, með valdbeitingu. Með því að ríkisstjórn Sov- étríkjanna er það mjög í mun að efla friðinn í Norður-Evrcpu,; myndi hún vera reiðubúin til þess að styðja tillögur, er fram kynnu að vera bornar í því skyni að ábyrgjast öryggi ís- lands, til dæmis í formi tryggðs hlutleysis þess, þar sem eink- «m væri gert ráð fyrir því, að í landinu yrðu engar erlendar herstöðvar, heldur ekki flug- bækistöðvar. A3 því er beinlínis varðar samskipti Sovétríkjanna og ís- lands, er mér ánægja að því, herra forsætisráðherra, að taka það fram, að aldrei hefur borið neinn skugga á sambúð landa vorra fyrir sakir misskilnings eða ágreinings. Sovétstjórnin getur fyrir sitt leyti fullvissað íslenzku ríkisstjórnina og ís- lendinga um, að Sovétríkin hafa jafnan stefnt að því að þetta allt mætti rita langt mál, en ég ég vil segja þetta eitt til viðbótar: Höldum jólagjafasiðn- um gamla, en förum ekki út í sömu öfgar og á undangengn- um árum, hinir stórgjöfulu lækki dálítið seglin — og það jafnvel þótt þeir hafi efni á að gefa dýrar gjafir. Þeir gætu nefnilega varið nokkrum hluta þess fjár, sem þeir verja til gjafa í þágu þeirra, sem fálæk- ir eru og bágt eiga. En þeir eru enn margir i þessum bæ, þrátt fvrir alla velgengnina. — „Jólasveinn“. viðhalda vinsamlegum sam- skiptum við ísland. Oss er á- nægja að því, að hagstæð og gagnkvæm viðskiptatengsl milli Sovétrík,janna og íslands hafa orðið tfaustari á undanförnum árum. Viðskiptamagn land- anna hefur aukizt verulega. Hefir Sovétstjórnin jafnan vilj- að mæta íslendingum á miðri leið, að því er varðar þróun verzlunarviðskipta, enda tekið fram af hálfu íslendinga, að þau hafi mikla fjárhagsþyðingu fyrir land yðar. Sovétríkin stefna að frekari þróun vinsamlegra skipta við ísland og önnur lönd á grund- velli jafnréttis, virðingar fyrir fullveldi annarra og íhlutun- arleysis um innanlandsmál. Er það skoðun vor, að sú aukning (veþzlunarskipta milli Sovét- ríkjanna og íslands, sem orð- 'ið hefur á undanförnum árum, skapi hagstæð skilyrði fyrir því, að vel megi takast um sam- skipti þjóðanna á öðrum vett- vangi jafnframt. Teljum vér, að framþróun samskipta vorra á öllum sviðum geti orðið bæði Sovétþjóðunum og íslending- um t:il blessunar, treysti vina- bönd þeirra og efli þar með málstað friðar meðal allra þjóða heims. Eg leyfi mér, herra forsætis- ráðherra, að láta þá von í ljós, að ríkisstjórn íslands muni ger- hugsa þau sjónarmið, sem fram eru sett í þessu bréfi. Það er sannfæring vor, að allar þjóðir, stórar sem smáar, geti með virk um hætt'i lagt sitt af mörkum til þess að lægja þá spennu, er nú ríkir þjóða í milli, og til þess að efla frið. Fyrir sitt leyti mun Sovét- stjórnin reiðubúin til þess að athuga vandlega álit það og til- íögur, sem ríkisstjórn íslands telur sér bera að leggja fyrir stjórn Sovétríkjanna. Yðar einlægur N. Búlganin.“ Herra Hermann Jónasson, forsætisráðherra íslands, Reykjavík. Utanríkisráðuney tið, Reykjavík, 16. des. 1957. GÓÐAR JÓLABAEKUR ,*■< t’.i>*5 tfrMifir, REYKJAVÍKURBÖRN Þetta eru tuttugu sannsögulegar frásagnir um Reykjavíkurbörn, skráðar af Gunnari M. Magnúss., rithöfundi. Sögurnar eru frá ár- unum 1930—1947, þegar Gunnar kenndi við Austurbæjarskólann í Reykjavík. Nöfnum sögufólksins hefur verið breytt til að fyrir- byggja ýmis óþægindi, en ugg- laust munu þeir, sem við sögu koma, minnast flestra þeirra at- burða, sem hér er sagt frá. Þetta er bók um börn og unglinga og rituð lianda þeim, en hún á einnig margvíslegt og tímabært erindi við fullorðið fólk. Verð íb. 35,00. JÓI I ÆVINTYRALEIT Eftir ÖRN KLÓA Hörkuspennandi saga handa drengjum um ævintýradrenginn Jóa Jóns og vin hans, Pétur, um baráttu þeirra við óknyttastrák- ana, þar sem þeir hrósa fullum sigri, um Kiddý Mundu og skáta- stúlkurnar hennar og margt fleira. Þetta er saga að skapi allra röskra stráka. Verð ib. kr. 55.00. I Ð U N N — Skeggjagötu 1. Sími 12923. Jarðarför mannsins míns og föður okkar ÁRNA EINARSSONAR, kaupmanns fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 18 þ.m. kl. 2.00 Athöfninni verður útvarpað. Þeir, sem vildu minnast hins látna eru vinsamlega heðnir að muna styrktar- og sjúkrasjóði verzlunarmanna. Vigdís Kristjánsdóttir, Sigríður B. Árnadóttir, Egill Árnason. LANDIÐ OKKAR Landið okkar, hin ágæta bók Pálma Hannessonar fæst hjá bóksölum og umboðsmönnum Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Aðalútsala Bókabúð Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, Reykjavík, pósthólf 1398, sími 10282. Verð kr. 115.00 ób., 150.00 í skinnlíki, 195.00 í skinnb. [ Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs fá 20% afslátt á útsöluverði. FISKAIHIR Ný og aukin útgáfa hins stórmerka rits Bjarna Sæmunds- sonar um fiskana, fæst hjá bóksölum og umboðsmönnumi vorum um land allt. Aðalútsala Bókabúð Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, Reykjavík, pósthólf 1398, sími 10282. Bók Bjarna Sæmundssonar, Sjór og loft, fæst einnig í Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Fiskarnir eru 600 bls. með 250 myndum og iitprentuðu korti af fiskimiðum við ísland. Verð kr. 145.00 ób., 180.00 í skinn, 230.00 í skinnbandi. Félágsmenn fá 20% afslátt frá því verði. Félagsmenn í Rvík: Félagsbækurnar 1957 eru komnar út, Gjörið svo vel og vitjið heirra á Hverfisgötu 21. Kaupið jólabækurnar hjá eigin íorlagi og njótið þeirra hlunninda, sem það býður. ! BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.