Alþýðublaðið - 16.02.1958, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.02.1958, Blaðsíða 4
4 A 1 Þ ý 5 u b 1 a 3 i 8 Sunnudagur 16. febrúar 193S VtTTV4#6(t& MffS/áfS SPARNAÐAUH.ÍAL er á vör- iim ýmsra um þessar mundir. Reykjavíkurbær hefur sett upp sparnað'arskrifstofu með sparn- aðarséff og' ætla má að ríkið fari eitthvað að brölta í þá átt. Ef að líkum lætur verður höggvið í knérunn þeirra lægst launuðu fyrst og fremst. Það er venjan, Menn sjá þúfur, en koma elcki auga á fjöllin. Það er venjulegt iágkúrusjónarmið. AÐ MINNSTA KOSTI hef ég frétt úr stofnun einni mikilli, sem í raun og veru veltir hundr tiðum milljóna árlega. Einhver sparnaðarviðleitni er þar. Tvær konur hafa skúrað gólf og gar.ga og talað hefur verið um að lækka laun þeirra, en ef þær vilji ekki hlíta því þá geti þaer hætt, það muni vera hægt að fá þetta unnið fyrir lægra kaup. — S>að er rétt að fólk, og þá fyrst og fremst alþýðusamtökin, hafi vakandi auga með slíkri þróun. ÉG HEF HEYRT að eitthvað hik liafi komið a yfirvöldin með að segja konunum upp eða lækka laun þeirra begar þau heyrðu hver það væri, sem væri formaður félags þeirra. Þessan yfírvöldum mun ekki hafa þótt Jóhann Egilsdóttír árennileg, En viðleitnin er sú s?ma og sjón- armiðið fyrir hendi, Það er því hægt að búast við tíðindum úr ýmsum áttum. Sparnaðarhjal er á vörum manna. Lágkúran rís upp á aftur- lappirnar. Milljónastofnunin og þvottakonurnar. Lausnin og öryrkjar og hörn, mæður og gamal- menni. * MENN KÆÐA um lausn efna hagsvandamálanna. að er erg- um blöðum um það að fletta, að það ér lifsnauðsyn fyrir alla þjóðina að þau séu leyst. Ég get ekki séð að nolvkur einn flokkur geti það, heldur ekki tveir eða þrír. Ef nokkur lausn á að fást þó verða allir flokkar að standa að henni. og ekki aðeins þeir, heldur og verkalýðssamtökin. LAUSNIN HLÝTUR að gera kröfu til allra þjóðfélagsþegna. En sumir standa svo höllum fæti að einskis verður af 'þeim kraf ■ izt. Ef nýjar kröfur verða gerð- ar til þjóðarinnar, sem hafá í för með sér vaxandi dýrtíð, þá verður að vernda atvinnuna fyrst og fremst, hækka ellilaun, mæðralaun, örorkubætur og barnalííeyri. Lausnin verður að vera iólgin í auknum jöfnuði. hAÐ ER ALVEG VÍST að þjóðfélagið getur margt sparað og tugir þúsunda einstaklinga geta sparað. En það verður ekki sparað á þeim lægst launuðu, at- vinna þeirra er aðalatriðið -— og það verður ekki sparað á ekkjum, ellihrumum, sjúkum eða munaðarlausum börnum. Öllum ráðstöfunum, sem geröai' kunna að verða, verður að mæta með því að bæta kjör þessa fólks, að minnsta kosti sem kröf unum nemur. Annars verður ekki um neina lausn að ræða. HINS VEGAR verður og að gerast hugarfarsbreyting hjá þjóðinni. Erfitt er að manna vél- bátafloíann og togaraflotann. Hins vegar auglýsa fullfrískir menn eftir atvinnu í landi. Þetta er furðulegt- öfugstreymi. Enginn maður með fullri heiisu þarf að ganga atvinnulaus á ís- landi. Verkefnin eru næg, og þau rnunu aukast. að er .ástæða fyrir alþýðusamtökin til að vera á verði um þessar mundir. Hannes á horninu. - Framliald af 5. síðu. Það, sem g'erzt hefur varð- andi þessa þriggja manna nefnd í tíð núverandi stjórnar, er að hún var í fyrra aidrei koí.in, af því að álþingi vísaði engu máli til utanríkismálanefndar og til- <efni til funda í nefndinni gafst ekkert. Nú er hins vegar búið að vísa m'álum til utanrikismála nsfndar og má vænta þess, að hún stanfi eins og verið hefur undanfarin ár. það, sem vill, að launa ekki Bjarna Benediktssyni fram- komuna með því að gera hann að trúnaðarmanni stjórnar- innar, sem hann hefur mest svívirt. Ríkisstjórnin hefur gert heið- arlegar tilraunir til að bjóða stjórnarandstöðunni eðlileg samráð um utanríkismál, löngu áður en þau komu opinberlega á dagskrá. En þeir Bjarni og Ólafur hafa slegið á útrétta hönd. Þeir vilja heldur hafa frjálsar hendur til rógs , og skemmdastarfsemi í utar.ríkis- málum en taka upp ábyrga samvinnu um mál, þar sem slík samvinna mundi gera þjóðinni mikið gagn. Það ber vissulega að harma það, að stærsti stjórnmálaflokk ur landsins skuli taka slíka af- stöðu. En það hefur verið lær- dómsríkt fyrir þjóðina að sjá framkomu þessa flokks og for- ingja hans í stjórnarandstöðu. Benedikt Gröndal. AF HVERJU HEFUR NÚVEKANDI STJÓRN EKKI BREYTT TIL? Af öllu því, sem hér hefur verið sagt, má ráða, að Bjarni Benediktsson getur ■sízi allra manna kvartað undan viðhorfi ríkisstjórnarinnar til alþingis og' utanríkismálanefndar í ut- anríkismálum. Hann héfur sjálfur skapað fordærnin, sem enn er íarið eftir — vinnu- brögðin eru algerlega hans verk. Meira að segja er Sjálf utanríkisstefna þjóðarinnar í allri framkvæmd þannig, að Sjáifstæðismenn ættu, sam- kvæmt fyrri stefnu sinni, að vera henni í aðalatriðu.m sam- þykkir. í þess stað hafa þeir reynt að rægja ríkisstjórnina utan lands og innan ;þeir hafa rsynt að grafa undan láns- trausti þjóðarinnar og hindra það, að stjórnin. fengi erlend ián; þeir hafa við hvert tæki- færi reynt að rægja og svívirca meðferð þessa viðkvæmasta máls þjóðarinnar; þeir hafa í stuttu méii unnið fyrir Htilfjör- iega fiokkshagsmuni og svalað skapvonzku sinni vegna valda- missis. Það er kjarni málsins: þeir hafa eklfí völdin og þola ekki, að aðrir hafi þau. Þessi framkoma Sjálfstæðis manna undir forustu Bjarna Benediktssonar er höí'uðá- stæða þess, að núverandi ■ stjórn hefur ekkj fíýtt sér að iáta kjósa þriggja nuuina nefndina eða leita meira til utanríkismálanefndar en raun : her vitni. Má hver lá þeim Kirkju Framhald at 7. síðu, að fórnir liðinna kynsíóða. — Menn hafa fórnað viti sínu, kröftum og heilsu og jafnvel lífi vegna fagurra hugsjóna, til ao koma á félagslegum framförum, efla vísindi og þekkingu, finna læknisdóma, vinna kúguðum þjóðum og kúguðum stéttum frelsi og sjálfsforræði, Allar þessar fórnir eigum vér að muna og þakka. En hví skyld- um vér þá gleyma þeirri fórn- inni, sem er dýrust allra, er guðs kærleikur færir sína fóvn méð lífi og dauða guðssonarins sjálfs? Jesús gat valið aðra leið'. Hann gat flúið frá ætlunar- verki sínu, falið sig, komizt.und an, svikið og yfirgefið læri- sveina sína og fyigjenaur og urn leið mannkynið allt. Hann gat líka beitt gáfum sínum og snilli til að kúga mennina, vinna þá til fylgis við sig með ofbeldi, eins og ýmsir aörir haifa gert. Þá hefði hann svikið málstað sinn og orðið einn hinna mörgu, sem þykjast berj- ast fyrir góðum málstað með vopnum hins i.lla. —• En hann valdi leið hins hugrakka kari- mennis, fórnarleiðina, sem er í fyllsta samræmj við málstað hans. Ef hann hefði ekki valið þsssa leið, heföi hann verið eins og stjarna, sem leiftrar um leið og hún hrapar, en ekki heims- ins ljós, eins og hann varð og er. <-«:#* <j|' þáffur Píslarsögunni er ekki lokið. Píslarsögunni lauk ekki á Golgata. Það er ef til vill eitt hið dásamlegasta einkenni pass íusálmanna, hvernig þeir bregða ljósi yfir þau sannihdi, að sagan af þrautagöngu frels- arans heldur áíram, og tiiheyr- ir nútímanum, engu síður en fortíðinni. Allar persónur þessa mikla drama eiga sína fulltrúa enn í dag, — en yfir öllu gnæf- ir krossinn Krists, sem skorar á oss að taka sjálfir afstöðu. Krossinn er hið eilífa spurn- ingarmerki, sem á hvérjum tíma knýr oss til að svara þýð- ingarmestu spurningu lífsins, hvort vér viljum bregðast eða standast, svíkja Jesú eða fylgja honum. Þar blasir við oss þetta, sem eitt sinn var þannig orðað: „Þetta gerði ég fyrir þig. Hvað gerir þú fyrir mig?“ Hvað leg'gur þú á þig vegna kristindómsins? Það er eftirtektarvert, að í þeim löndum, þar sem ýmsar ytri hömlur eru lagðar á kristi- lega starfsemi, virðist kirkju- og trúarlíf oflugra en í þeim löndum, þar sem allir taka kirkju og kristindóm sem sjálf- sagðan hlut. Þetta sýnir. að sannkristiö fólk er snorfið af anda frelsarans og vill fylgja honum á krossferli hans, þótt í veikleika sé. Hér á landi er eng in opinþer andstaða gegn krist- Hafnarfjörðuv. Hafnarfjörður. Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur fund næstkomandi þriðjudagskvöld 18. febrúar kl. 8,30 í Alþýðuhús:nu. Fundarefni: Félagsmál. — Félagsvist. Upplestur. — Kaffidrykkja. Félagskonur, fiölmennið á fundmn. STJÓRNIN. Þórscafé I kvöld kl. 9. Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar. Söngvari: Kagnar Bjarnason. þ' V s s S s s s % \ í Kleppsspítalann vantar duglegan og reglusaman bifreiðarstjóra á bifreið spítalans. Laun sarakvæmt reglum launalaga, Umsækjendur gefi upplýsingar um aldur og fyrri störf, og láti fylgja með meðmæli fyrri húsbænda, ei fyrir hendi eru. Umsóknir sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 22. febrúar næstkomandi. Skrifstofa ríkisspítalaruia. Miðstöðvarkatlar Olíugeymar fyrir húsaupphitun. H/F----------- Sími 24-400. HREYFILSBUÐIN RAKBLOÐ RAKKREM HÁRKREM HÁRSPÍRITUS HREYFILSBUÐIN við Kalkofnsveg Sími 22 420. indómnum. Hér þarf enginn að leggja líf sitt í hættu fyrir það eitt að- kenna sig við Krist, sækja kirkju, taka þátt í kristi legri starfsemi. — Þar með er ekki sagt, að menn þurfi ekki að sýna neina sjálfsafneitun til að lifa kristnu lífi. Kristin trú og líferni á sér aldrei stað án einhverrar baráttu. Þess vegna höfum vér einnig þörf á því að rifja upp fyrir oss, hví- Jíka fórn Jesús Kristur vavð að færa, — og hver fyrir sig hlýt- ur svo að svara spumingu kross ins á sinn hátt. Jakob Jónsson,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.