Alþýðublaðið - 16.02.1958, Qupperneq 12
Sunnudagur l(i. febrúar 1958
VEÐRIÐ: Norðvestan kaldi, stundum stinn-
ingskaldi. Skýjað með köflum.
AlþýímblaDiú
Námsstyrkir í Bandaríkjunum fyrir
Gert er ráS fyrir að a.m.k. 10 nemendur
hljéii styrkina.
EINS og á s. 1. ári mun Íslenzk-Ameríska félagið hafa ni’illi
göngu uiu útvegun námsstyrkja í Bandaríkjununi til gagnfræða
og mcnntáskólanemenda, en sem kunnugt er, eru styrkir þessir
veittir á vegum félagsskápar þar yestra, American Fieid Ser-
vice.
—-----!---------------«
Komu rússneska
menmlamannsins
seinkar um einn
sólarhring
KOMU HINS unga rúss-
neska menntamanns, sem get
ift var í blaðinu í gær, seinkar
um sólarhring. Er hann vænt
anlegur til landsins síðdegis í
dag. Erindi hans fyrir almenn
ing, sem átti að vera í dag,
.verður þess vegna á morgun
kl. 3,30 í Þjóðleikhússkjalíar-
anuni.
Rússinn, sem heitir David
Burg, flúði föðurlandið 1936,
þar sem hann m. a, hafði starf
að við bókmenntatímarit.
Hann hefur nú ferðast um öll
Norðurlönd og flytur erindi
um lifnaðarhætti undir ráð-
stjórn og aðstöðu rússneskra
menntamanna. Annað kvöld
heldur Burg fyrirlestur um
stúdentalíf í Sovétríkj unum
fyrir háskólastúdenta og einn
ig heldur hann stutta ræðu á
ikvöldvöku Stúdentafélags
Reykjavíkur á þriðjudags-
kvöld. — Hann kemur hingað
til lands á vegum Frjálsrar
menningar.
American Field Servjce hef
ur á undanförnum árurn ann-
ast mjög umfangsmikla starf-
semi á þessu sviði, þannig eru
nú um 10000 nemendur frá
rúmlega 30 þióðlöndum við
nám 1 Bandaríkjunum á veg-
um féiagsins.
Umsækjendur um styrki
þessa skulu vera piltar og stúílk
ur á aldrinum 16—18 ára, með
góða námshæfileika, vera vel
hraustir og tala eitthvað í
ensku.
Styrkurinn nemur: Húsnæði,
fæði, skólagjöldum, sjúkra-
kostmaði og nokkrum ferðálög
um innan Bandaríkjanna.
Ætlazt er til þess að nem-
endur greiði sjálíir nauðsynleg
an ferðakostnað frá íslandi og
vestur um haf, og síðan heim
aftur. E'nnig þurfa þeir að sjá
sér sjálfir fyrir vasapeningum.
Ef þess gerist þörf geta nem-
endur fengið að greiða þennan
kostnað smá saman með jöfn-
um afborgunum og í sérstök-
um tilfellum mun AFS-féiagið
veita aðstoð sína við greiðslu
á þessum kostnaði.
Námstíminn stendur yfir í
eitt ár, eða frá því í byrjun
ágústmánaðar til loka júlímán
aðar næsta ár.
BÚA A HEIMILUM.
Nemandinn mun búa hjá
Framhald á 2. síðu.
Bókhlaðan efnir til hókaút-
sölti9 verðið allt niður í 2-3 kr,
Margar íslenzkar bækur og ritsöfn |>jóð
skáfda, svo og eríendar bækur
BÓKHLAÐAN H.F., Lauga-
vegi 47, er í þann veg' að hefja
á neðri hæð verzlunarinnar út-
sölu á ýmsum bókum, við scr-
lega vægu verði. Þar er iim að
Eiríkur Smith opnar
Málverkasýningu
í DAG opnar Eiríkur Smith,
málverkasýningu í Sýningar-
salnum við Ingólfsstræti. Ei-
ríkur er fæddur 1925, hélt sína
íyrstu málverkasýningu í Hafn
arfirði 1948. Síðasta sjálfstæða
sýning Eiríks var í Listamanna
s.kálanum 1952, auk þess hefur
hann tekið þátt í mörgum sam
sýningum bæði hérlendis og er
lendis, Síðast í Sýningarsaln-
nm á sl. vori. A sýningunni eru
8 rípólín og 6 Gauachemálverk
öll máluð á árunum 1957 og'
‘58.
Sýningin verður opnuð
sunnudaginn 16. þ. m. kl. 2 e.
h. fyrir boðsgesti en kl. 4 fyr
ir aðra gesti. Og opin daglega
írá 10—12 fh.
ræða fjölda skemmtibóka, þjóð
sagna, Ijóða, barnahóka, fræði-
bóka og skáldrita íslcnzkra liöf-
unda. Verð bókanna er mjög í
hófi yfirleitt hvergi yfir kr. 50.
00 og allt niður í 2—3 krónur.
Vei’zlunin hefur tekið upp
þann hátt, til að auðvelda mönn
um að eignast stæiTi og veiga-
meiri verk ,að selja gegn afborg
unum. Er hér um að ræða rit-
söfn ýmissa þjóðkunnra manna
og kvenna, má þar nefna rit:
Laxness, Davíðs Stefánssonar,
Einars Benediktssonar, Bene-
dikts Gröndal, Matthíasar Joch
umssonar, Einars H. Kvaran,
Jónasar Hallgrímssonar, Gunn-
ars Gunnarssonar, Tómasar
Guðmundssonar, Steins Stein-
ars, Guðmundar Guðmundsson
ar skólaskálds, Jóns Sveinsson-
ar (Nonna), Jónasar frá Hrafna
gili, Thorfhildar Holm, Krist-
ínar Sigfúsdóttir og rit Sigrid
Unset: Kristín Lafranzdóttir,
ennfremur má fá þannig ein-
stakar bækur þessara höfunda
og annarra. Af safnritum rná
nefna: Merkir íslendingar,
Skriðuföll og snjóflóð, Öldin
Framhald á 2. síðu.
Nokkrir prentnemar sjást við eina al' véliim hins nýja Prcntskóla. Ljósm. O. ÓI.
Fyrsti fagskólinn á Islandi
fék lii sfarfa í gær
Gjöf prentsmiðjueigenda til prentara-
stéttarinnar af tilefni 60 ára afmælis
stéttarfélagsins
FYRSTI verklegi iðnskólinn
á íslandi tók til starfa í gær í
Iðnskólanum í Reykjavík. Það
er Félag íslenzkra prentsmiðju
eigenda, sem stofnuðu þennan
skóla, og afhendi hann íslenzk-
um prentnemum.
Skólinn er í tveimur vistleg-
um stofum í kjallara Iðnskól-
ans og er hann búinn ágæt-
um tækjum: í annarri stofunni
eru tvær prentvélar, en í hinni
eru leturkassar, letur og fleira.
og 2000.00 kr. til fagtólskaupa.
Hafsteinn Guðmundsson, prent
smiðjustjói'i og Helgi Her-
mann Eiríksson, forma'ður bygg
inganefndar Iðnskólans.
í ræðu Baldurs Eyjólfssonar
sagðj meðal annars :
„Ég vil í nafni Félags ís-
lenzkra prentsmiðjueigenda
bjóða ykkur velkomna hingað í
dag. Fyrsti verklegi iðnskólinn
er að taka til starfa. Skólinn
hefur hlotið nafnið Bókiðnaðar
skólinn í Reykjavík, og fyrsta
deild hans, Prentskólinn, er að
taka til starfa.
Við sem að þessu stöndum,
hugsum svo hátt, að eftir nokk
ur ár verði bókbindarar, nrent
myndasmiðir og offsetprentarar
eða alla deildir bókagerðarinn-
ar búnar að eignast sinn fag-
skóla. Saga Prentskólans er
orðin löng innan véhanda FÍP.
Steindór heitinn Gunnarsson
bar fyrstur manna fram tiilögu
um stofnun og starfrækslu sér-
staks fagskóla og var sú tillaga
studd af Gunnari Einarssyni á
Magnús Ástmarsson,
formaður HÍP.
■t !
t !
fundi í FÍP. Frá þessari stundií,
barðist Steindór Gunnarsson
fyrir Prentskólanum og stofn-
aði sjóð, er nota skyldi, þegar
undirbúningur að starfrækslu
Prentskólans hæfist. í þennan.
sjóð gaf Steindór heitinn meira
og minna alla tíð meðan hans
naut við. Sérstök skólanefnd
hefui’ starfað á vegum FÍP, og
skipa hana nú Hafsteinn GuS-
mundsson, Haukur Herbertsson,
og Óli Vestmann Einarsson. —«
Ýmsar prentsmiðjur og forráða
menn þeirra hafa stutt þetta
skólamiál af miklum rausnar-
brag’. Þeim vil ég þakka velvúja
(Frh. a 2. síðu.)
Baldur Eyþórsson,
formaður Prentsmiðjueig-
endafélags íslands.
Baldur Eyjólfsson, prentsmiðju
stjóri, formaður Félags is-
lenzkra prentsmiðjueigenda af-
henti prentarastéttinni skólann
til afnota, en Magnús Ástmars-
son formaður Hins íslenzka
.prentaráfélags þakkaði fyxlr
hönd prentarastéttarinnar. —
Auk þess tóku til máls Þór
Sandholt, skólastjóri Iðnskól-
ans, Hálfdán Steingrímsson,
prentsmiðjustjóri, sem afhenfi
skólanum að gjöf stóra mynd
af Steindóri Gunnarssyni, sem
var upphafsmaður þessa máls
isrek til mikilla lafa vi
ingu inn til Sfykkishc
Línubátar þurfa að brjóta sér íeið gegn
um íshroðann; ísrekið kemur út
af Hvammsfirði
MIKILL ISHROÐI er hér úti
fyrir höfninní til vandræða og
tafa fyrir umferð skipa. Línu-
hátarnir komast þó leiðar sinn
ar, en verða að brjóta sér leið
í gegnum ísrekið.
íshroði þessí er lagnaðar ís,
sem rekið hefur út af Hvamms
firði, en eins og frá hefur verið
skýrt í Alþýðublaðinu, hefur
sjóin lagt allvíða á Breiðafirði
í frostunum og norðaustan átt-
inni að undanförnu. bæði þar
og annars staðar. Það hcfur
verið tii bjargar í þessum efn-
um, að frostlitiS hefur vsriS
undanfarið, svo að íshroðinit
hefur ekki frosið saman í sam-
feildar spangir. Mundi bá úafa
orðið torvelt um skipa'samgöng
ur til Stykkishólms.
Ekki var ísrekið til mikilla
tafar fyrir togarann Þorsteinra
þorskabít, en hann kom nýiega
til Stykkishólms með 185 tonna
afla.