Alþýðublaðið - 25.02.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 25.02.1958, Blaðsíða 6
AlþýSnblaStS Þriðjudagúr 25. febrúar: 1958 abók vikunnar Sunnudagur. — —-----í DAG f órum við að rabba um skatta og skatt- greiðslur yfir kaffibollun- um. Allir hafa þar eitthvað til máls að leggja, enda er sá eldurinn jafnan heitast- ur, sem á sjálfum brennur. Og allir stynja undan skött- um, og ekki síður undan skattsvikum annarra. Samt vilja engir í alvöru missa það, sem með sköttunum er greitt. En skattsvikin eru al- varlegt mál. Öllum finnst sjálfsagt að svíkja undan, ef þeir geta og kunna, Þetta er mesta ómenning. Það er hörmulegt að slæva þannig réttlætiskennd og ábyrgðar- tilfinningu meirihluta þjóð- arinnar. Beinu skattarnir eru að verða vandræðafyrirkomu- lag. Það virðist liggja miklu beiirna við að taka nauðsyn- leg gjöld handa því opinbera með tolium. Áður var þetta ekki hægt. En með trygging um og öðrum félagslegum ráðstöfunum, hlýtur að vera auðvelt að jafna metin. Það gengur ekki til lengdar, að fastlaunamenn greiði stór- fúlgur fyrir þá, sem geta lát ið vera að telja fram til skatts. Mánudagur. ----------Míkið er alltaf fjargviðrast út af blessuð- ,um unglingunum. Ég átti r.ýlega tal um þessi efni við frjálslyndan kunningja minn. Hann sagði ýmislegt skemmtilegt. — Þetta er mest af öfund, sagði hann. Hugsaðu þér, þessir ungling ar á aldrinum 15—18 ára eru svo blessunarlega frjálsir. Við öfundum þennan aldur. Við, sem alltaf erum að hnjáta í þetta unga fólk, erum bundnir í báða skó. Við erum að dragnast með -eignir, heimili og alls konar hl'.iti, sem heimta af okkur mikla ábyrgð, og stundum erum við leiðir á þessu eins og gengur. En gelgjuskeiðs- aldurinn er laus við þetta, og við öfundum ungmennin af því. Þau geta enn valið- og hafnað. ekki aðeins maka og skemmtanir, heidur jafn vel lífsstarf. Ábyrgðin þrúg- ar þau ekki. Við öfundum þau, og þess vegna fjösum við og hnevkslumst á Qllu þei ’-t-p. athæfi. Eitthvað á þessa Ieið fór- ust vini mínum orð. Hvað segia menn svo um þessa speki? Þriðjudagnr. —-. — — Afbrot barna í höfuðstaðnum eru orðin í- skyggileg. Þessi glæpafarald ur hlýtur að vera öllum hugs andi mönnurn áhyggjuefni. Enginn vafi er á því, að pen ingaflóðið á undanförnum árum á sinn. mikla þátt x þessu. Börn og .unglingar þurfa mikla peningá, þau draga dám af þeim eldri. Skemmtanir, bílar, sjoppur, allt ærir betta upp sultinn í að bafa peninga og eyða pen ingum. Innbrot drengja eru ekki framin af glæpahneigð. heldur beinlínis vegna þess að þeim finnst þeir ekki geta verið deginum lengur án peninga. Fullorðnir eiga áreiðan- lega sína sök á þessu. Heilir starfshópar Iifa á því, að börn og unglingar evði pen- ingum. Reglur og bönn eru brotin af fullorðnmn, svo börn og unglingar geti eytt peningum. Æsingin í að eyða peningum grefur um sig og gerir uppvaxandi æsku ó- fróma og óstöðuga í meðferð og öflun fjármuna. Alla má æra með stöðugri brýningu og auglýsingum um sælgæti, glysvarning og skemmtanir. Og drengir taka sig saman til að útvega sér peningana með illu eða góðu. Því fer sem fer. Miðvikudagur. ---------í dag átti ung- lingspiltur erindi við mig. Hann þekkti mig ekki neitt, hafði aldrei talað við mig fyrr. Hann var hinn prúðasti og innti erindið vel af hendi, en honum datt sjáan- lega ekki í hug að þéra mig. Ég veitti þessu ekki athygli fyrr en á eftir, þegar ég fór að hugleiða, hvað þetta hefði annars verið geð'ugur piltur. Út frá þessu fór ég að hugsa um, að þéringar eru mjög að leggjast niður. Bráð ókunnugt fólk í búðum og skrifstofum þúar mann eins og ekkert sé. Kannske er þetta ágætt, ég veit það ekki almennilega, en þróunin er þessi. Maður kann þessu hálf illa fyrst, en svo venst mað- ur þessu. A.m.k. kann mað- ur þessu vel hjá Vestur-ís- lendingum, þeir þúa alla, en maður býst heldur ekki við öðru af þeim. Fimmtudagur. ---------Það eru sannar- lega gefnar út ýmsar skrýtn ar bækur á landi hén. Þetta kom mér í hug, þegar ég handlék hina nýju ljóðabók Jóns Óskars. Myndskreyting in er furðuleg, og svo ný- stárleg hér á landi, að menn munu reka upp stór augu. Og erlendis hef ég ekki séð svona bók. Það er sannar- lega gaman að öllum tilraun um, en er ekki heldur-mik- ið færzt í fang, ef myndir yfirgpæfa alveg efnið?- Mér er ekki grunlaust um, að svo verði í þessu tilfelli. Ljóðin týnast innan um hin hrópandi listaverk á hinni síðunni. Allt ber að varast, og er víða vandratað meðal- hófið, En hver hugsar ann- ars um meðalhóf, þegar nýj- ungar eru annars vegar? Og það ervafalaust eins og vera ber, Sem sagt, hér er á ferð- inni nýstárleg bók. Föstudagur. — -— — Ég labbaði mig niður í Siálfstæðishús í dag og skoðaði skruddumar, sem vinur vor: Sigurður Bene- diktsson var í þann veginn að fara að bjóða upp. Marg- ar vom þær snjáðar og slitn. ar. Þá mínntist ég erindis, S s s s s s V s s s s s s s s s s s V s s V s s S : s s s s FRIMERKJAÞÁTTUR sem ég heyrði einn elzta bókasafnara landsms flytja fyrir skömrnu, Ég hafði á- kaflega gaman að því. Sú fjálgi, sem frarn kom í lýs- ingu hans á sumum gömlum bókum og baráttu hans við að ná í þær, var alveg ein- stök. Enginn skyldi ætlast til meiri ynnileika í rödd trúaðs prédikara né ástfang ins yngispilts að lýsa unn- ustu sinni. Ég hafði áður orðið þessarar innlifunar var hjá einstaka kunningja mín- um, en aldrei fundið eins greinilega, hvað bókasafnar- inn er glaður í sínu hjarta yfir fágæti'i bók. Og þegar ég leit yfir skruddixrnar hjá Sigurði, óskaði ég þess, að einhver góður safnari fengi þar eitt- hvað, sem hann hefði lengi haft augastað á. Það er ótrú- leg upplifun, að mér skilst. Sjálfur er ég ekki safnari. En ef það er eitthvað líkt því að fá allt í einu í hend- ur bók, sem mann hefur lengi langað til að lesa, þá skil ég tilfinningu safnarans. Það er alltaf jafn stórkost- tegt. Laugardagur. --------- Og nú er endur- reisn biskupsstólanna á Hól- um og í Skálholti mjög kom in á dagski’á, enda skilst mér, að búíð sé að byggja í Skálholti heilmiklar bygg- ingar, án þess að nokkur viti í raun og veru, hvað gert skuli við þær. í þessu sam- bandi minnist ég viðtals við einn af kunnustu kirkjunnar mönnum á síðastlðnu sumri, Hann var ekki fylgjandi því, að biskupsstólinn yrði flutt- ur burt frá Reykjavík. Hins vegar vildi hann, að vígslu- biskupar yrðu tveir, en em- bætti beirra yrði fólgið í því, að þeir væru eins konar til- sjónarmenn með guðskristni og kirkjuhaldi nyrðra og og syðra, og sætu þeir þá á Hólum og í Skálholti. Hið nýja setur í Skálholti ætti að verða kirkjulegt mennta- setur. fundarstaður og hvíld- arheimili presta. Undirbisk- upar hefðu með höndum margs konar. störf í þágu kirkiunnar, yrðu eins konar meðalgöngumenn milli henn ar og almennings, undir- byggju og leggðu á ráð um kristilegt starf meðal fólks- ins. Mér þótti margt skynsam legt í tillögum hans, enda verður starf kirkjunnar að aukast að mun, ef hún á að hafa í fullu tré við ýmis önn ur öfi í þjóðfélaginu. Róm- antík er ágæt, en sennilega er affærasælast, að æðsti maður kirkjunnar, biskupinn sitji áfram í höfuðstaðnum. Þar spinnast flestir þræðir, og biskupinn er þar bezt sett ur, engu síður en fræðslu- málastjóri, búnaðarmála- stjóri og Ixvað þeir nú heita allir hinir ýmsu forstöðu- menn bióðnvtiastofnana og starfsemi á landi hér. 22.-2,—58. Vöggiir. A FÓSTUDAGINN var birtist í dagblaðinu Vísi allmerkiíeg fregn. urn. að íslenzkt póstflug með ballon mundi eiga sér stað yfir Njörvasund í. tilefni þess að spánska póststofan i Tangier er að Ioka og bætta starfsémi sinni í lok marzmánaðar. Þetta þóttu mér svo merfc tíðjndi, að 'ég brá mér til manns þess, er fyrír því átti að standa tíl að eiga íal við hann og þó einna helzt til að komast að því hvernig hann hefði fengið: í fyrsta lagi spönsku póststjórnina til að leýfa íslenzkt póstflug af þessu tilefni og að því fengnu, hvernig honum ,þá hefði tekizt að fá þá íslenzku til að taka þátt í íyrir- tækinu. Fyrst honum hafði tek- izt það ,hlaut hann.að þekkja ein hverjar sérstakar aðíerðir, sem reyna mætti seinna við óvitlaus ari tiltæki en þetta, Þegar á staðinn kom, var þar fyrir ungur kollega £rá HoIIandl, sem þó er einn af meiri ævin- týramönnum innan blaðamanna - stéttarinnar, en núna var hann staddur mitt í ævintýri, sem var erfiðara og stórkostlegra en- öll hin samanlagt. Strax eftir hádegið varð hann þess var að eitthvað hafði gerzt í henni Reykjavík og það meira en lítið. Sfminn hjá honum þagn aði ekki eilt augnablik og alltaf var spurningin sama: „Getur þú tékið fyrir mig nokkur bréf til að senda meö loftbelg yfir Njörvasund?“ „Með hvaða merkjum á ég helzt að frímerkja þau?“ „Hvei’su mikið verður burðargjaldið?“ Honurn var allt af tjáð að samkvæmt fregn í Vísi ætti þetta íslenzka (það hefur víst fallið ó framan af orðínu) póstflug að fara fram, og auð- vitað trúði fólkið því sem það sá á prenti, og nú var þess krafizt að eíndir yrðu á og bréf tekin til flutnings. Hafi ballonflugið í sumar verið merkur atburður var hér nokkuð að gerast, sem var enn merkilegra. Fljótlega fór svo dyrabjallan að klingja og nú. var dagurinn það sem eftir var til kl. 8 um kvöldið ekki annað en Maup milli síma og dyrabjöIlu„Reykja vík var' orðin vitlaus.. , Maðurinn var í algeru upp- námi þegar mér tókst að ná fundi hans og vildi fyrst helzt ekkert við mig tala, en þegar ég sagði nánar til mín, þá fékk ég að koma inn og spyrja hann einnar og einnar spurningar á stangli meðan það gekk að Iáta símtólið ekki aftur á gaffalin .eða anza ekki dyrunum. Sagði hann nú upp sina sorg- arsögu. Hún.hefst raunveriilega: á því að hanxi var staddur í.Tari: gier, þegar brezka pósthúsíð þar vár að undirbúa. loknu: síria og var tilkynnt að gefriir yrðu út sérstakir stimplar til síðasta dags stimþlunar; þ. é. a. s. að bréf: þau, er færu í gegnum 'póst húsið á síðasta dégi, yrðu eins konar. minjagripir. Þegar hann sá hvilík eftirspurn varð eftir þessum síðasta dags bréfum. brá hiann skjótt við.og stofnsetti fyr- irtæki, er hann fékk skráð og kallar „Universal Post Ex- change“. Átti fyrirtáeki þétta að aðstoða fríinérkjasáfnára" til áð fá þessU eftirsóttu bréf og tók náttúrlega fyrir það sín þjón- ustulaun. Þar sem á alþjóðasvæð inu eru pósthús rnargra ríkja, þá ákvað hann að hafa fyrirtækið starfandi sem þjónustufyrirtæki fyrir safnara og ér svö enn. Annast það t. d. um sendingu á síðasta dags bréfum fyrir safn- ará í sámbandi 'við lokun spánska pósthússins. Þegar hann svo heyrði um baHonflug það, er fram fór hér í surnar, datt hon- um í hug að þarna væri nokkuð nýtt, sem bæta mætti við þjón- ustuna. Þá yrðu þetta bollonsíð- astadagsbréf. Hann þekkti Boes- man ballonkaptein lítið eitt frá fornu fari og vatt nú bráðan bug að því að £á uppgefið heimilis- fang hans og hríngja til hans. Fókk hann það svára að allt væri í lagi. Boesman með balion var leigður t:il starfans og Bergsma blaðamaður er farínn til Tangier til að urxdirbúa bæði þetta ball- onflug og aöra þjónustu við sax'n ara af þessu tilefoi. : Boesman hafði tjáS hopum. að ekki yrði hægt að senda nema í hæsta lagi 8000 bréf með ballon- fluginu og á að skipta því eftir því sem hægt verður milli i'astra viðskiptamanna fyrirtækisins, en nú gerði Reykjavík heldur betur strik'í reifcninginri. Það hringdu og koxnu fleiri hundruð manns. og mar.gir viidu la nokk- ur hunctrúð • umsiög, riú skyldi géra ,,business“, sem. um rriun- aði, því að flestir vita að ballon- umslögin frá í surnar hafa þegar tífaldazt í: verði. Blað'amaður frá Vísi hafði sem sé komizt að hug- íriynd Bergsrria og 'sennilegá spurt hvort íslendingar gætu ekki fengið .að taka þátt í þessu og verið svarað játandi- Hitt var svó annað mál, hvort rneiningin var að s,etja úpþ’ stórfregn úm íslénzkt!!! póstflug í þessu sam- þandi. Um; tvö hundruð umslög munu sámt lenda í eigi íslend- inga fyrir vikið, en þau kostuðu 30 krónur stykkið. Hvað er þarna á seyði? Hollenzkur blaðamaður stadd ur uppi á íslandi segir frá hug- dettu sinni, sem Ixljómar vel fyr- ir safnara, en hann hefur ekkert í höndunum til að sanna að hér sé um annað að ræða en hans eigin loftkastala. Hann segist eiga fyrirtæki. í Tangier, sem enginn veit hvort satt er eða ei. Hann segist ætla að koma á ball onfiugi á vegum þessa fyrirtæk- is og hafa ráðið mann til starf- ans. Hvorki var til sýnis bré£ eða skeyti þar upp á. En það sem skeði var að eitt af dagblöð- unum gleypt fregixina hráa og birti hana sem „sensatiori* og hún sló í gegn. Hundruð manna hlupu til og voru reiðubúriir að leggja fé, jafnvel stórfé, í fyrir- tækið, án þess að faafa nokkrar sannanir annars vegar. Ef mað- urinn á íxú ekkert fyxúrtæki í Tangier. Hvað þá? . - - Eitt skernmtilegt. upplýsti hann þó í viðtali sínu, en það var, að Boesman kapteinn hefði fengið keypt 100 ballónúmslög þegar hann flaug hér í sumár og selt þau öll í Hollandi á' 60 gyll- ini stykkið = 6000,00 gyllini. Þáð var gott kaup fyrir að skreppa til íslands. Enn fremur upplýsti hann að þessi éitt hundrað umslög ásamt öðru hundraði í eigu einstaklings hér á> landi hefðu- verið stimpluð eftir- á með þríixymdmn. einka- stimpli Bo.esrixari,,'sém, ekki ýar nbtaður á' öririuf rirrislög. Hér er um hrieyksli að ræða, serrrá fáa sína líka, því að í veðri var látið vaka við þennan blaðamemi, að þessi umslög yrðri seld rixuri dýr- ar en þau venjulegUj því að þau yöeru svo_ fá qg_ þyí.-mun verð- mætari. Þegar b.allonpóstflugið átti sér stáð hér í sumar, var úm póst- flug að ræða á vegum íslénzku póststjórnarinnar ög’ með stimpli henriar auk eins. stimþils,. sem hun leyfði að riotaður væri til sérstakrár auðkenningar á því að hér var , -urn ballonflug að ræða. Stimplar, sein settir eru á umslagið éftir þann tíma, hækka þyí á engan hátt verðgildi xun siagsins, nema síður sé, þeir eru folsun ein og notaðir ári vitund- ar eða leyfis íslénzkra póstyfir valdá. Þjóná þeír því aðeins þéirn tilgangi að' ge'ra umslögin verðlaus með öllii, ef þeir hafa noklcur áhrif. Það að kapteinn Boesman .skyldi ,gera þétta og leyfa það, er haixs eínkafraintak og á ekkert skýlt við póstflugið sem slíkt, er reyndar nánast svik á vörunni, þvi að þau umslög, er fóru með balionmum, eiga xaun verulega ekki að bera þenrian FranihaM á 8. sitfu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.