Alþýðublaðið - 15.03.1958, Side 4
4
AlþýBublaðlS
Laugardagur 15. marz 1958
FYRIR NOKKRUM ÁRUM
sagöi einn af leiðtogum Alþýðu-
ílokksins, sem var óánægður
með flest, við mig: „Við eigum
að taka upp sömu baráttumálin
og viö höfðum efst á baugi
1930. Við eigum að berjast af
sömu grimmd og við gerðum á
fyrstu árum verkalýðshreyfing-
urinnar. Ef við gerum þetta, þá
mun fylgi flokksins vaxa hrað-
íara. Þá verður sú sókn, sem
kommúnistar hafa verið í, stöðv
uð.“
ÉG SVARAÐI: „Eigum við að
fara að skrifa um atvinnurek-
endur eins og við gerðum begar
þeir neituðu að viðurkenna
verkalýðsfélögin? Eigum við að
hefja að nýju fimm aura bar-
áttuna? Eigum við að heirnta
kosningarrétt fyrir þá, sem
njóta sveitarstyrks? Eigum við
sð krefjast sjóveðs í skipum svo
að sjómenn hafi tryggingu fyrir
kaupi sínu? Eigum við að
heimta 21 árs kosningarrétt?
Æigum við að heimta húsaleigu-
iög eins og þau voru í gamla
daga?“
ÉG SPURÐI hann margra
fleiri álíka spurninga og við
deildum fast. Ég hélt því fram
að þjóðfélagið hefði tekið gagn-
gerðum breytingum svo að ekki
væri hægt að bera það saman
"við það, sem áður var. Ég hélt
því fram, að meðan atvinnan
sjálf væri örugg, þá hlytu aðal-
baráttumál okkar að verða
.hærri elli- og örorkutryggingar,
betri sjúkrasamlög og hækkaður
barnalífeyrir til einstæðra
mæðra og ekkna með börn á
framfæri sínu.“
SÍÐAN FÖR ÞESSI leiðtogi
burt úr Alþýðuflokknum, því
miður, hann átti ekki samleið
með flokknum. Hann lifði í róm
antískri trú á gamla tímann.
Hann gat ekki viðurkennt að
þjóðfélagið hefði breytzt, vildi
ékki horfast í augu við síað-
reyndirnar. Hann vildi íá að
beita sömu málum og sömu bar-
áttuaöferðum og efst var á baugi
fyrir aldarfjórðungi.
Dæmi um gjörbreytingar
Mennimir, sem átta sig
ekki á hraðanum
A að taka upp gamla
bardagaaðferð
Gjörbreyttur hugsunar-
háttur
EN ÞAÐ ER ekki hægt að
ganga fram hjá þeirri stað-
reynd, að þjóðfélagið hefur
breytzt stórkostlega. Svo gagn-
gerðum breytingum hefur það
tekið, að slíks eru engin dæmi
um þjóðfélag á svo stuttuin
tíma. ’ Þessar breytingar hafa
orðið svo örar, að jafnvel menn
irnir, sem hafa átt þátt í þeim,
hafa ekki getað haft við að
fylgjast með þeim, þeir hafa
staðið kyrrir og horft undrandi
á eftir þeim, án þess i raun og
veru að hafa áttað sig á því,
hvað gerzt hefur.
VIÐ, SKULUM TAKA aðeins
eitt dæmi: Árið 1930, eða um
líkt leyti og hafizt var fy.rst
handa um byggingu verka-
mannabústaða, dreymdi verka-
menn, biíreiðastjóra, sjómenn
og annað lágtekjufólk alls ekki
um það, að þeir gætu nokkurn
tíma eignazt íbúð. Þeir hírðust
í einu herbergi og hálfu eld-
húsi o. s. frv. Leigðu þetta hjá
öðrum.
HVERNIG ER ÞETTA NÚ?
Fullyrt er, að 13 600 íbúða-
eigendur séu í Reykjavík.
Venjulega er miðað við fimrn
manna fjölskyldur í skýrslum,
og þá lætur nærri að ailir fjöl-
skyldufeður eigi íbúð. Svo er
þó ekki, því að nokkrir menn
eiga nokkrar íbúðir og leigja
þær, en sannleikurinn er sá, að
veniei
verður í Silfurtungiinu þriðjudaginn 18. marz
og hefst með sameiginlegri kaffidrykkju kl. 8.
Konur mega táka með sér gesti.
SKEMMTIATRIÐI:
Eii'söngur : ÁRNI JÓNSSON.
Upplestur.
Dans.
Upplýsrngar í símum: 13 293 14 457 22 573.
, Skemmtinefndin.
fæsí í Verzluninni Varmá, Langholtsvegi 103.
Kaupið Alþýðublaðið.
AfgrelSsla
þessir rnenn éru ekki margir.
Einn maður mun þó eiga um 25
íbúðir, og er hann víst stærsti
íbúðaeigandinn, nokkrir menn
eiga tvö til þrjú hús með liltölu
lega fáum íbúðum.
HVAÐA MUNUR er á hugs-
unarhætti fólksins, sem leigir
og lætur sig ekki einu sinni
dreyma urn þao að eignast íbúð
eða hins fólksins, sem annað-
hvort á íbúð, litla eða stóva, en
það skiptir ekki svo miklu máli
í þessu sambandi, eða ræðst í að
byggja, jafnvel þó að það eigi
ekki grænan eyri til að byrja
með, en um það eru mýmörg
dæmi?
ÞAK YFIR HÖFUÐIÐ er að-
alatriðið í lífi allra manna. Að-
staða manns, sem á þak yfir
höfuðið, jafnvel þó að hann
standi í basli með afborganir,
er allt önnur en hins, sem leigir
og veit aldrei hve lengi hann
fær að halda íbúðinni. — Hugs-
unarháttur fólksins gjörbreytist
við breyttar aðstæður. Örýggis-
laus maður hugsar allt öðru vísi
en sá, sem býr við öryggi. At-
vinna og íbúð færir mönnunum
öryggi. Atvinnuleysi og íbúðar-
skortur færir fóikinu öryggis-
leysi.
ÞAÐ ER FÁSINNA að viður-
kenna ekki staðreyndir. Það er
út í hött að fylgjast ekki með
tímanum, hvort sem um er að
ræða einstaklinga, félög eða
flokka. íslenzkt þjóðfélag hefur
gjörbreytzt. Beinir skattar voru
sjálfsagðir fyrir aldarfjórðungi.
Óbeinir skattar eru líklegir til
að skapa meira þjóðfélagslegt
réttlæti nú. En þess verður að
gæta að um leið og breytingin
verður gerð, séu hliðarráðstaf-
anir gerðar gagnvart garnal-
mennum, öryrkjum og barn-
mörgum fjölskyldum.
ÞAÐ ER UNDARLEGT hvað
við íslendingar erum seimr að
átta okkur á breyttum aðstæð-
um. Það er undarlegt vegna
þess, að við erum í raun og veru
nýjungagjarnir.
Hannes á liorninu.
€
SKIPAUTGCRÐ rikísins
vestur til Flateyjar á Breiða-
firði hinn 19. þ. m.
Tekið á móti flutningi til Ó1
afsvíkur, Grundarfjarðar,
Stykkishólms og Flateyjar ár
degis í dag og á máríudagin'n.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
Hekla
Iðiu, félaýs verksmiðjufólks verður haldinn í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 17. marz
1958 kl. 8,30 e h.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aoalfundarstcrf.
2. 'Lagabreytingar.
Fjö’mennið og rnætið stundvíslega.
Stjórnin.
í I Ð N O í kvöld kluklcan 9.
=3 Valin feyursta stúlka kvöidsins.
* Óskalög.
-3 Kl. 10.30. Dægurlagasöngkeppni.
'3 RAGNAR BJARNASON og
ELLY VILHJÁLMS.
;3 KK-sextettinn leikur nýjustu calypsó, rock
og dægurlögin.
Aðgcngumiðasala frá kl. 4—6. — Komið tímanlega og
tryggið vkkur miða og borð. — Síðast seldist upp.
IÐNÖ
SÐNÓ
v
V
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s ■
s
s
\
V
s
s
V
V
s
s
s
V
V
s1
s
s
s
s
s
s
s
Á.
s'
V
s!
s'
s1
s'
s'
s'
s'
s!
s1
s!
s'
s'
s!
s
s'
s
S-
s
s
V
s!
s'
s'
L S!
austur um land í hringferð
hinn 20. þ. m.
Tekið á móti flutningi til
F áskrúðsf j ar ðar, Reyðarf j arð-
ar, Eskifjarðar, Noröfjarðar,
Seyðisfjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar Kópaskers,
Húsavíkur op: Akureyrar árdeg
is í dag og á mánudag. Farseðl-
ar seldir árdegis á miðvikudag.
&'trtrfr1*-Cr-Cti>-Cr’Cr’Cr-Cr’Cr'Cr'Crii
C TBREIÐIÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐI
4ú***h**ftítöH«*ft*
Ingólfscafé
IrsgéSfscafé
Gömli
dansamir
í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5 sama dag.
Sími 12826 Sími 12826