Alþýðublaðið - 29.03.1958, Side 4
AlþýBublaSU
Laugardagur 29. w.arz 195S
4
l/ErTVA#6tíft VAGS/MS
ÉG HEF OFT MINNZT Á þá
liörmulegu staðreynd, að tizku-
kóngar og tízkuhús leika sér að
kvenfólki eins og köttur að mús.
Sífelldar breytingar á tízkunni
reka kvenfólk í búðirnar til
þess að kaupa, og skiptir þá
engu hvort flík sé falleg, úr
'vönduðu efni eða vel gerð, að-
eins ef hún er samkvæmt nýju
íízkunni. Það virðast ekki vera
nein takmörk fyrir því hve langt
er hægt að leiða kveníólk i
þessu efni. Og það er blettúr á
allri hinni dásamlegu kvenþjóð.
NÝLEGA KOM pokatízkan á
markaðinn. Ég man að ég starði
á kunningjastúlku mína í þess-
ari „munderingu“ — og var það
í fyrsta skipti, sem ég sá þessa
nýju tízku. Ég hélt að stelpan
væri orðin eitthvað miður sín.
Fyrst hélt ég að hún væri orðin
ólétt og fór að vorkenna henni í
Jhuganum, en svo kom sannleik-
urinn í ljós.
NÚ VIRÐIST uppreisn hafin
xneðal kvenþjóðarinnar sjálfrar
{jegn pokatízkunni og jafnvei
kvikmyndadísir hafa forustuna.
Pá er kannski hægt að vænta
einhvers árangurs.
PÁSKAEGGIN komu á mark
aðinn að þessu sinni allmiklu
Uppreisn hafin gegn poka-
tízkunni.
Kvikmyndadísir hafa for-
ystuna.
Páskaeggin og framleiðsla
þeirra.
Vond á bragðið og rándýr.
fyrr en venjulega síðan hin und
arlega páskaeggjatízka liófst.
Þótti þetta svo miklum tíðindum
sæta, að framleiðendurnir köll-
uðu á blaðamenn til þess að til-
kynna það og mun það vera ein-
dæma tilefni til blaðamanna-
fundar. Finnst mér að hvað úr
hverju verði blaðamenn að
spyrja fyrirfram um erindi áður
en þeir gera sér ferð á hendur
til þeirra, sem óska eftir fundi
við þá.
UM PÁSKAEGGIN fékk ég
í gær eftirfarandi bréf frá „Sár-
reiðum“: „Páskaeggjaframleið-
endur flýttu framleiðslunni að
þessu sinni og dengdu henni á
markaðinn. Munu þeir hafa gert
það til hagsbóta fyrir neytend-
ur, því að öðru er varla til að
dreifa. En sleppum því, ég ætl-
aði að ræða um annað,
ÉG ER E-INN ÞEIRRA, sem
þykir gaman að því að gleðja
barn mitt. í dag, þegar ég gekk
heim úr vinnunni, sá ég mik-
inn fjölda páskaeggja í búðar-
glugga og ég stóðst ekki mátið,
fór inn í búðina og keypti eitt
minnsta eggið til þess að fæi’a
dóttur minni við heimkomur.a,
aðeins til þess að gefa henni for-
smekk að stærra páskaeggi á
páskunum.
LITLA TELPAN varð glöð við
gjöfina, en er hún fór að smakka
á því hvarf ánægjusvipurinn.
Við hjónin smökkuðum því líka
á egginu og brá þá í brún.
„Súkkulaðið“ var ósætt hrat,
vont á bragðið og ekki aldeilis
neitt góðgæti. Þetta tel ég svik
við almenning. Eru páskaegg
undir verðlagseftirliti? Er ekk-
ert -eftirlit með þessari fram -
leiðslu?“
Hannes á horninu.
Fermingar í Hafnarfirði
Fermingarbörn í Hafnar-
f jarðarkirkju á pálmasunnu-
dag kl. 2.
D r e n g i r :
Auðunn Níels Óskarsson,
Hringbraut 23
Baldvin Halldórsson,
Álfaskeiði 51
Egill Svanur Egilsson,
Austurgötu 29 B
Einar Ágústsson,
.'Köldukinn 1
Gissur Vignir Kristjánsson,
Álfaskeiði 40
Gylfi Ingvarsson,
Garðavegi 5
Gunnar Ingi Ragnarsson,
Hringbraut 33
Hafsteinn Óskarsson,
Öldugötu 24
Ingólfur Vignir Guðmundsson,
Brekkugölu 13
Ingvar Björnsson,
fíunnuvegi 11
Jón Ragnar Gunnarsson,
Brekku, Garðahreppi
Rcgnvaldur Karl Hjörleifsson,
Hraunsholti, Garðahreppi
fíigurður Kristlnn Hermunds-
son, Norðurbraut 21
Stefán Jónsson,
Brunnstíg 7
'Vilhjálmur Kjartan Jónsson,
Suðurgötu 56
Óorbjörn Stefán Brynjólfsson,
'Mánastíg 2
S t ú 1 k u r :
Aðalheiður Fanney Sigurðar-
dóttir, Kækjarkinn 20
Ásdís Símonardóttir,
Reykjavíkurvegi 17
Auður Biarnadóttir,
Btrandgötu 50
Bára Guðmundsdóttir.
Hringbraut 3
Dröfn Steinþórsdóttir,
Ölduslóð 3
Edda Björk Bogadóttir,
Hraunstíg 1
Ema Einarsdóttir,
Hólabraut 8
Guðlaug Gréta Þórðardóttir,
Strandgötu 81
Guðrún Sigurðardóttir,
Haunkambi 8
Guðrún Sæunn Valdimars-
dóttir, Selvogsgötu 16
Halldóra Jóhannsdóttir,
Túnhvammi 1
Helga Þóranna Helgadóttir,
■ Skúlaskeiði 24
Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
Vesturgötu 32
Margrét Dóra Jónsdóttir,
Öldugctu 2
Margrét Sigurgeirs Halldórs-
dóttir, Norðurbraut 13
Sigrún Gísladóttir,
Hátúni, Garðahreppi
Svala Ó. Lárusdóttir,
Öldugötu 18
Sigríður PáMna Guðbergsdóttir,
Álfaskeiði 29
Þjóðbjörg Þórðardóttir,
Sunnuhlíð, Hvaleyri
Heildsalar
Framhald af 6. síðu.
skiptum við sig til að skapa
sem mest bönd og lama mót-
stöðuafl þjóðarinnar gegn kom-
múnismanum. Er það eitt ó-
skemmtilegasta fyrirbrigði í ís-
lenzkum stjórnmálum á seinni
árum, hvernig málgögn ís-
lenzkra heildsala og stóriðju-
hölda hafa þótzt vegsama frels-
ið og fordæma kommúnisma, en
þessir sömu menn hafa keppzt
við að ná sér í umboð og sam-
bönd austan við tjald, streymt
þangað í stórum hópum til að
verzla og haldið dýrar veizlur,
þegar verzlunarfulltrúar kom-
múnistaríkjanna hafa komið
hingað.
Það er líka næsta einkenni-
legt, að íslenzk yfirvöld skuli
veita siíkum stórhópum g.jald-
eyrisleyfi að því er virðist tak-
markalaust. Þessir hundrað
verzlunar- og iðnaðarmenn
(einn fulltrúi fyrir hverja 1600
landsmenn) hafa vafalaust feng
ið um 500 000 krónur í erlend-
um gjaldeyri til gróðaleitarinn
ar. Þetta gerist á sama tímá,
sem bankarnir geta ekki staðið
í skilum á greiðslum fyrir
fiskibáta, sem búið er að panta
í Austur-Þýzkalandi, og liggur
við stöðvun og atvinnuleysi í
iðnaðinum vegna gjaldeyris-
skorts til hráefniskaupa. Hvað
segir viðskiptamálaráðherrann,
Lúðvík Jósefsson, um sMka með
ferð þess litla gjaldeyris, sem
til er?
Kjamorkutilraunir
Framhald af 3. siðu.
Libby, segir, að teoristískt sé
hægt að halda tilraunum með
kjarnorkuvopn leyndum, en
það sé varla framkvæman-
legt í raun. Hann er því and-
vígur, að samþyk'kt verði bann
við tilraunum, en viM að þær
verði mjög takmarkaðar.
Bandaríkjastjórn hefur ekki
tekið endanlega afstöðu í mál-
inu. Helzt virðist hún haHast
að tímabundnu bannj undir
eftirliti Sameinuðu þjóðanna.
. Sv.
Siarfsmaiinafélag ríkissiofnana
áðalfundur
félagsins verður haldinn í Iðnó uppi mánudaginn 31.
marz 1958 kl. 20,30.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Aðalfundarstörf skv. félagslögum.
■ 3. Önnur mál.
Félagar fjöisækið fundinn réttstundis.
Félagsstjórnin.
Það er vor í loftinu
Yorfízkan
M
Marztheftið
er komiS út
Hvernig er sement
framleitt?
Á slóðum væringja
— ferðasaga —
Spennandi framhalds-
saga, þýdd af Gunnari
Gunnarssyni.
Sniásaga og
fleira efni.
MUNIÐ AÐ SKILA
SMÁSÖGUM í KEPPN-
INA FYRIR 15. APRÍL
Fyrsta sending
CRAYSON CRAYSON
KÁPUR DRA6TIR
Goit úrval - Takmarkaðar birgð|i
MÁRliÐURINM
Hafnarstræti 5 - Laugaveg 89