Alþýðublaðið - 29.03.1958, Page 9
Laugardagur 29. marz 1958
AlþýSnblaSl*
( ÍÞréttir )
!KF og ÍR Islandsmeisfarar í körfuknattleik 1958
ing
MEISTARAMÓTI íslands í
körfuknattleik lauk á Háloga-
landi s.l. fimmtudagskvöld og
var keppt til úrslita í 3 flokk-
um, þ.e. 2. flokki karla og
meistaraflokki karla og kvenna.
ÁRMANN SIGRAÐI í 2. FL.
Armann lék til úrslita við
Körfuknattleiksfélag Rey-kja-
víkur í 2. flokki karla. Evrri
hálfleikur var jafn og allvel
leikinn. í hléi var staðan 1:10
fvrir KFR. Eftir hlé tóku Ár-
menningar leikinn alveg í sín-
■ar hendur og er liðið mjög jafnt
og ,vel leikandi, sigraði Ármann
örugglega og verðskuldað með
28:20 st. Ármann mun með tím
anum eignast mjög goft lið í
körfuknattleik, ef þessir piltar
halda áfram æfingum. Félagið
vann bikarinn, sem um var
keppt til eignar.
ÍR—iKR 23:13 í MFL.
KVENNA.
Körfuknattleikur kvenna hef
ur mjög lítið verið æfður hér
á landi enn sem komið er, en
þegar kvenfólkið kynnist þess-
um leik nánar, er enginn vafi
á því, að hann mun verða vin-
sæll meðal þeirra. Leikurinn
stúlknanna bar þess ljóslega
vott, að þær hafa ekki náð fullu
valdi á tækninni, sérstaklega
voru kröfuskotin yfirleitt lé-
leg, en þar sem margar af stúlk
unum. keppa í handknattleik,
var samspilið stundum gott. ÍR
sigraði með töluverðum vfir-
burðum og sýndi allgóðan leik,
en í báðum liðum eru stúlkur,
sem geta náð langt með meiri
æfingu og örvggi í körfuskot-
um. ÍR sigraði einnig í kvenna
flokki í fyrra.
ÍS—ÍR 54:53 i MFL. KARLA.
Áður en þessi leikur hófst
var vitað að stúdentar þurfa
að sigra IR með töluverðum
yfirburðum til að sigra í mót-
inu, þar sem ÍKF hafði hlotið
8 stig og mjög hagstæða stiga-
tölu. ÍS og ÍR höfðu hlotið 6
stig bæði félögin, stigatala ÍR
inga var það óhagstæð, að ekki
vgr möguleiki fyrir þá að sigra,
þótt þeir sigruðu í leiknum, en
þegar vifað var að báðir Helg-
arnir í ÍR vpru forfallaðir, en
þeir hafa löngum verið örugg-
ustu menn liðsins, bjuggust
margir við töluvert sfórum
sigri ÍS, jafnvel það miklum, að
d.ygði til sigurs. En allt getur
skeð í körfuknattleik eins og í
knattspyrnu, IR-ingarnir léku
mjög vel og skemmtilega og
Fjöibreyit afmælisrit Víkings komið út
stúdentar máttu hrósa happi að
tapa ekki leiknum. í hálfleik'
stóð 29:27 fyrir ÍR, en leiknum
lauk með sigri ÍS 54:53. Úrslit
hafa því orðið sem hér segir í
meistaraflokki karla:
1. ÍKF ........ 8 stig
2. ÍS ......... 8 —
3. ÍR.......... 6 —
Framhald á 2. síðu.
43. Víððvangshlaup ÍR
á sumardaginn
fyrsía, 24. apríl.
HIÐ árlega Yíðavangshlaup
ÍR verður háð ó sunnudaginn
fyrsta eins og venjulega, að
þessu sinni 24. apríl n.k. Þetta
er 43 hlaupið í röðinni og verð
ur keppt í 3 og 5 manna sveit-
um. í fyrra sigraði sveit UMSE
í 3 manna sveitakeppni, en ekk
ert félag sendi fimm menn í
hlaupið og er það óvenjuléleg
þáttaka. Sigurvegari í fyrra
var Kristján Jóhannsson IR.
Þar sem meiri áhugi virðist
fyrir langhlaupum nú en oft
áður, má búast við mikilli þátt-
töku í hlaupinu, en þátttökutil-
kynningar á að senda til ÍR í
pósthólf 13, Reykjavík, í síð-
asta lagi viku fyrir hlaupið.
í TILEFNI 50 ára afmælis
Knattspyrnufélagsins Víkings,
sem er stofnað 21. dag apríl-
mánaðar 1908, hefur félagið gef
ið út mjög vandað, fjölbreytt
og fróðlegt afmælisrit. Ritstjóri
er Axei Einarsson.
I ritinu eru fjölmargar grein-
ar um starfsemi Víkings að
fornu og nýju, auk þess er
fjöldi mynda í þessu smekk-
lega afmælisriti.
Víkingur hefur oít áti í erf-
iðleikum, eins og títt er um
íþróttafélög, en ánægjulegt er
að vita til þess, að á þessu
merkisári í sögu félagsins er
Víkingur í uppgangi íþrótta-
lega, sérstaklega yngri flokkarn
ir. Auk þess er félagið að reisa
glæsilegt félagsheimili i smá-
íbúðarhverfi. Afmælisins mun
verða minnst nánar hér á í-
þróttasíðunni síðar. Afmælisrit
ið er til sölu í Bókabúð Lárusar
Blöndal í Vesturveri.
Ha ii d knatlleiksmótið :
Skemmtilegir leikir um helgina
MEISTARAMÓTIÐ í hand-
knattleik heldur áfram um helg
ina, verða háðir fjórir leikir í
meistaraflokki karla. í kvöld.
keppa Víkingur—Þróttur og
Afturelding—Ármann, geta báð
ir leikirnir orðið jafnir. Einnig
leika FH og Fram í I. flokki
karla, en þau félög eru bæði
taplaus og getur leikur þessi
því orðið harður og tvísýnn.
FRAM—ÍR ANNAÐ KVÖLD.
Annað kvöld er aðalleikur-
ínn milli Fram og ÍR í meist-
araflokki karla, getur það orðið
skemmtilegur leikur, því liðin
eru jöfn og eiga bæði góðum
leikmönnum á að skipa. Einnig
leika KR og Valur í meistara-
flokki karla og úrslitaleikurinn
í 3. flokki karla B verður milli
Víkings og Ármanns.
I meistaraflokki kvenna er
•aðeins^ einn leikur eftir, þ.e.
KR—Ármann, en KR-stúlkun-
um nægir jafntefij tii sigurs.
Úrslit eru kunn í eftirtöldum
flokkum mótsins.
2. flokkur karla B: Sigurveg-
ari Fram.
3. flokkur karla C: Sigurveg-
ari Víkingur.
Til úrslita í hinum ýmsu
lokkum leika eftirtalin félög:
2. flokkur karla A:
Fram—Þróttur
3, - flokkur karla A:
Ármann—FH
3. flokkur karla B:
Ármann—Víkingur
1. flokkur kvenna:
KR—Þróttur
2. flokkur kvenna A:
Ármann—Víkingur
2. flokkur kvenna B:
Valur B og Ármann C.
Staðan í meistaraflokki lcarla:
L U J T M F St.
1. FH 4 4 0 0 100 54 8
2. KR 4 4 0 0 77 64 8
3. ÍR 3 3 0 0 86 49 6
4. Fram 4 2 1 1 89 77 5
5. Ármann 4 2 1 1 72 69 5
6. Valur 5 2 0 3 114 124 4
7. Aftureld. 5 1 1 3 114 124 3
8. Víkingur 5 0 1 4 83 118 1
9. Þróttur 5 0 0 5 77 111 0
Staðan í meistaraflokki kvenna:
LU J T M FSt.
KR 2 2 0 0 28 21 4
Ármann 2 1 1 0 20 12 3
Fram 3 0 2 1 23 28 2
Þróttur 3 0 1 2 26 36 1
Kristján Jóhannsson hefur oft
sigrað í Víðavangshlaupinu.
Rátffaka íslendinga í
Holmenkollen.
iEINB og skýrt hefur verið
frá hér ó síðunni, fóru fjórir ís-
lendingar til Noregs í byrjun
þessa mánaðar til þáttiöku í
Holmenkollenmótinu. Þrír ís-
lendinganna tóku þátt, en sá
fjórði hætti við á síðustu
stundu.
í brunkeppninni varð Magn-
ús Guðmundsson frá Akureyri
33. í röðinni af 60 keppendum.
en Svanberg Þórðarson nr. 37.
Jóhann Vilbergsson var dæmd
ur úr leik.
Keppninni var þannig hagað
í svigkeppninni, að aðeins þeir
sem voru meðal 25 beztu í fyrri
umferð, fengu að halda áfram
keppni. Enginn af íslendingun-
um var svo framarlega, svo að i
þar með voru þeir úr leik..
Sýning á málverkum eftir Magnús Jónsson fyrrv.
prófessor verður onnuð í Boyasal Þjóðminjasafns
ins í dag, laugardaginn 29. b. m. kl. 2 e .h.
Sýningin verður onin daglega næstu viku frá kl.
1—10 e. h.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur aðalfund sinn, þriðjud. 1. apríl, 1958 kl.
8,30 e. h. í Félagsheimili prentara, Hverfisg. 21.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kvikmyndasýning.
Félagskonur mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Sport
Opnum í dag nýja verzlun
Höfum gott úrval af hverskonar sportvörum í
Páskaferðalagið.
Skemmtilegan amerískan barnafatnað.
Ennfremur flest til lax og silungsveiði. Veiðistöng
eða hjól cr einhver bezta fermingargjöfin handa
hinum upprennandi veiðimanni.
Verzlunin Sporf
Austurstræti 7.
Ufsalan, Laugavegi 66
Sófaborð, Bókahillur, Stofuskápar,
Skrifborð og m. fl.
Mjög mikiil afsláttur.
Húsgagnaverzlun
Gunriars Mekkinóssonar
Laugav. 66. — Sími 16975.