Forvitin rauð - 01.05.1973, Page 12
GUNNAR GUTTORMSSON:
ÁKVÆÐI5VINNA
KVENNANNA ER
OORUVÍSI MÆLD
EN KARLA
KlOKKRiR PUM KTA.1? UM L Al) N AKERFl
1 marz mánuði s.l. kom ég á fund hjá náms-
hópi norræna sumarháskólans í þeim tilgangi-
að spjalla við þátttakendurna um hin ýmsu
launkerfi, sem notuð eru í atvinnulífi okkar.
Mér vannstekki tími til að setja neina punkta
á blað fyrir fundinn og kannski var það ein-
mitt þess vegna sem hann varð liflegri, en
oft vill verða þegar fluttar eru langar skrif-
borðsræður. Þetta varð sem sagt skemmtilegur
umræðufundur og helzta niðurstaða hans var sú,
að mjög, skorti á fræðslu meðal launafolks,
ekki sizt kvenna, um þau launakerfi sem unnið
er eftir, og á þetta ekki sizt við um ákvæðis-
launakerfin.
Ritnefnd þessa blaðs bað mig að rifja upp
nokkur helztu atriðin sem ég vék að i spjalli
minu.
Samningsatriði
Launaupphæðir eru samningsatriði milli verka-
lýðsfélaga og atvinnurekenda. Launagreiðslu-
formið, t.d. það hvort laun skuli á einhvern
hátt miðuð við afköst, er lika samningsatriði.
Þannig eru ákvæðislaunakerfin, hverju nafni sem
nefnast orðin til mað samkomulagi milli aðilja.
Verkalýðsfélögin bera þannig til jafns við
atvinnurekendur ábyrgð á framkvæmd launakerfa,
sem hér eru i notkun. Flest hin stærri verka-
lýðsfélög munu hafa i samningum sinum ákvæði
um helztu leikreglur varðandi notkun ákvæðis-
vinnu. Einnig hefur Alþýðusamband Islands gert
rammasamning við atvinnurekendasamtökin um
vinnurannsóknir og þar er kveðið á um þau
atriði, sem gengið skal frá áður en ákvæðis-S
vinna, sem byggð er á vinnurannsóknum, getur
hafizt.
Með hliðsjón af þessu er ljóst, að annar samn-
ingsaðilinn getur ekki einhliða knúið neitt fram
i þessum efnum: Það verður að koma til samþykki
hins.
Vanþekking
Ein meginforsenda þess að notkun ákvæðis-
launakerfa sé verjandi er sú, að fólkið, sem
eftir þeim vinnur, kunni skil á uppbyggingu
þeirra og sé fært um að sannprófa útreikning
launa sinna. -Á þessu er þvi miður mikill
misbrestur. Þannig eru hér til dæmi um
vinnustaði sem nota ákvæðislaunakerfi þar
sem enginn úr hópi starfsmanna er fær um að
útskýra hvernig reikna beri út launin. -
-Launakerfin eru oft æði flókin og til þess
1Z