Forvitin rauð - 01.05.1973, Qupperneq 17
Bezt gæti
ég trúað að fóstrurnar haldi að konan
mih sé eitthvað ónáttúruleg, en ég veit
að henni þykir ekki síður vænt um börn sin
en öðrum mæðrum og nýtur þess að vera með
þeim þegar hún er heima. Það verður víst
ekki mikil von um þetta leikskólarými i
bráð - mitt tilfelli er ekki forgangs-
tilfelli.
Það hefur líka alltaf farið dálitið i mig
þó að ég láti ekki á neinu bera þegar
félagar minir eru að striða mér á því að
ég láti konuna mina vinna fyrir mér.
Þeir athuga ekki að hún fær helmingsfrádrátt
á launum til tekjuskatts, sem ég mundi ekki
fá ef ég væri útivinnandi.
Segið mér - hvaða stefnu á ég að taka?
Svarið mér fljótt ef þið getið.
Ykkar einlægur Sveinn Garibaldason.
P.S. Ritari konunnar
minnar vélritaði
bréfið fyrir mig.
Sami.
BLAÐIÐ sendir hér með vandamál hins
aðþrengda heimáhúsföður áleiðis til
leeenda sinna og biður þá að ráðleggj
hvað til bragðs skuli taka.
HVEpNIS EISA (
^ÞAGHElMlLlN |
VERA
Nú þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar um
dagheimili hefur verið afgreitt sem lög frá
Alþingi kemur vonandi að því, að umræður
fari að snúast um hverskonar dagheimili við
viljum, um reksturinn og uppeldisstörfin
þar.
Furðulegt er hve áhugalitlir foreldrar,
virðast vera um hvað fer fram á dagheimil-
unum og leikskólunum, sem börn þeirra
dveljast á.
Eitt af því sem margir velta fyrir sér
í þessum efnum er, hvort byggja eigi dag-
vistunarheimili í grennd við vinnustaði
foreldranna eða í íbúðarhverfunum.
öhætt er að fulljtrða, að sú skoðun að
dagheimili beri að reisa í íbúðarhverfum
hefur orðið ofan á, t.d. í Skandinavíu.
Ef dagheimili eru starfrækt í sambandi við
vinnustaði er hætt við að börn frá sömu
þjóðfélagsstétt safnist á eitt dagheimili
og er það miður heppilegt fyrir félagslegt
uppeldi barnanna.
Við höfum sameiginlega barnaskóla fyrir öll
börn í sama hverfi, hið sama verður að
gilda um dagheimili.
Það væri vel hugsanlegt að tengja þessar
tvær stofnanir, skóla og dagheimili saman,
slikt hefur verið reynt annarsstaðar.
1 Noregi eru t.d. gerðar ýmsar tilraunir í
þessum efnum, sem spennandi verður að heyra
um þegar reynsla hefur fengizt.
Vöggustofur hafa kannski dálitla sérstöðu.
Það hefur marga kosti fyrir barn og móður
að vöggustofan sé rekin í sambandi við vinnu-
stað. Þá getur móðirin t.d. komið í matar-
hléi og gefið barninu brjóst, eða verið hjá
því ofurlitla stund.
Fyrir nokkrun árum vissi ég um vöggustofu
í verksmiðjuhverfi í Kaupmannahöfn, sem var
rekin með þessu sniði og gekk mjög vel og
þótti til mikillar fyrirnyndar.
1 Svíþjóð hafa nýlega verið gerðar miklar
rannsóknir á dagvistunarheimilum og gerðar
tillögur um framtíðarskipulag þeirra af
ríkisskipaðri nefnd sérfræðinga (uppeldis-
fræðinga, sálfræðinga, félagsfræðinga,
fóstra o.fl.).
Tillögur þeirra eru þess efnis að dag-
vistunarheimili verði byggð í hverju
íbúðarhverfi.
Heimilin eiga að rúma 42-48 börn á aldrinum
frá 6 mánaða til 7 1/2 árs.
'a
Si'ou
4?