Forvitin rauð - 01.05.1973, Page 23

Forvitin rauð - 01.05.1973, Page 23
Undanfarið hafa „rauðsokkar heimsótt félög, hagsmuna- hópa og skóla með það að markmiði m.a. að kynna viðhorf sín og efna til umræðna um þau. Þáttaka kvenna á vinnu- markaðinum verður oft að umtalsefni og því þá gjarnan slegið fram að þær séu lakari starfskraftur en karlar. HeXztu rökin fyrir því eru að þær hafi fleiri veikinda- daga, mæti seint til vinnu eða séu fjarverandi af öðrum orsökum. Erfitt er að hrekja þessar staðhæfingar vegna þess að lítið fer fyrir könnunum á þessu sviði. Þó rak ' eina slíka á fjörur blaðsins og birtist hún hér í von um að fleiri komi í kjölfarið. Svona könnun er auðvelt að gera ef aðstaða eða innhlaup fæst hjá fyrirtækjum. i Þetta er tilvalið verkefni fyrir starfshópa að snúa sér að. Könnunin, sem hér liggur fyrir nær til veikindadaga starfsfólks, þar sem að jafnaði voru um 105 manns á launaskrá. yenjulega var fjöldi karla 92 eða 84% en ■fjöldi kvenna 18 eða 16%. Tímabilið, sem hér um ræðir, er síðastliðin þrjú ár. Heildarfjöldi veikindadaga alls starfsfólksins, á umræddu tímabili, reyndist vera 2005 dagar og skiptust þannig milli kynja: karlar höfðu sam- tals 1715 veikindadaga.en konur 290. Til jafnaðar koma þá 18,6 veikindadagar á karl á þriggja ára timabili og 16,1 veikindadagur á konu á sama tima. 1 töfluformi lita niðurstöðurnar þannig út: Karlar: Konur Fjöldi 92 18 " i hundraðshluta 84% 16% Veikindadagar 1715 290 " til jafnaðar í 3 ár 18,6 16,1 Upplýsingar frá þessum vinnustað báru ekki með sér fjarvistir starfsmanna af öðrum orsökum en veikind- um og vanræktar vinnustundir komu ekki. fram. Til þess að gera könnun ýtarlegri væri æskilegt að þau atriði kæmu einnig inn i myndina. Ennfremur hvort konur, sem eru með börn á sinum vegum hafi meiri fjarvistir en aðrir. Timabilið, sem upplýsingar næðu yfir, þyrfti ekki að vera eins langt og i ofangreindri könnun en fjöldi starfsfólks (frá fleiri fyrirtækjum) að sjálf- sögðu mun meiri. April-starfshópurinn. ITIL LESENDAI A baráttudegi verkalýðsins, l.mai 1973, kemur út annað blaðið af Forvitin Rauð. (Fyrsta blaðið kom út i nóvember s.l.) Það var einmitt l.mai 197o, sem rauðsokkar létu fyrst að sér kveða hér á landi, er þeir tóku Þátt i kröfugöngu verkalýðsfélaganna undir ein- kunnarorðunum „Manneskja ekki markaðsvara". I þessu blaði er m.a. rætt um kjaramál og lífsbaráttu fjölmennustu hópa útivinnandi kvenna á lslandi, þ.e.a.s. ófaglærðra kvenna. Rauðsokkar hafa áður vakið athygli á hinum mikla launamismun karla og kvenna við skrifstofu- °g verzlunarstörf og hafa stuðzt við kannanir sin- ar á þeim málum. Samvinnan birti margar greinar eftir rauðsokka r °9 tileinkaði 5•tölubl.1971 hinni nýju mannréttinda- hreyfingu. 1 byrjun árs 1972 voru fluttir i Rikisútvarpinu ‘ 10 Þ*ttir undir nafninu „Ég er forvitin - rauð". 1 þáttum þessum voru rædd ýmis mál, sem rauðsokkar lata sig miklu varða, en þættirnir voru unnir af mis4 munandi starfshópum. Segja má að blaðið Forvitin Rauð sé eins konar framhald útvarpsþáttanna. Rauðsokkar hafa nokkrum sinnum tekið þátt i umræðum i sjónvarpi og útvarpi og túlkað þar skoðanir sínar.Þeir sem skrifa i þetta blað, eru ýmist virkir félagar i Rauðsokkahreyfingunni eða fólk, sem hefur verið á fundum með rauðsokkum eða kynnzt hreyfingunni a annan hátt. Greinarnar frá Akranesi og Egilsstöðum eru til dæmis skrifaðar af konum, sem kynntust rauð- sokkum á fundum þeirra úti á landi. A Isafirði er starfandi rauðsokkahópur og á Akureyri hafa rauðsokkar emnig íátið að sér kveða, en viðar úti á landi er ahugi fyrir hreyfingunni, þótt bein starfsemi hafin- Rauðsokkar hafa viða farið til funda; ýmist verið boðið tii félaga eða haldið sjálfstæða fundi. 1 marz s.l. bauð Eiðaskóli rauðsokkum austur á land til þess að kynna nemendum skólans hreyfinguna og baráttumál hennar. Sannarlega þyrftu langtum fleiri að vera virkir. Starfandi rauðsokkar hafa komið úr hinum ólikustu starfs- greinum og þeir eru á öllum aldri — frá fermingu til sjötugs. Það er von okkar, að rauðsokkastarfshópar verði stofnaðir sem viðast á landinu. Næg eru verkefnin, sem alls staðar blasa við óleyst. Fyrstu verkefni starfs- Viópa eru venjulega öflun upplýsinga, sem siðan er unnið úr, þvi að rauðsokkar vilja hafa sem traustastan grund— völl til þess að byggja baráttu sina á. Með könnunum þessum erum við að smíða okkar sterkustu vopn i barátt- unni fyrir réttlátara þjóðfélagi. Ef þið hafið áhuga fyrir að stofna starfshópa eða kynnast starfsemi Rauðsokkahreyfingarinnar nánar, þá skrifið eða hringið i Miðstöð og ykkur verða veittar allar þær upplýsingar og aðstoð, sem unnt er. Skrifið blaðinu Forvitin Rauð. Hvað finnst ykkur um efni blaðsins? Segið frá ykkar reynslu i sambandi við jafnréttismálin. Það gæti ef til vill orðið öðrum hvatning. Hvað hafið þið til málanna að leggja? Munum að enginn sigur vinnst án baráttu. R.J. Uteefandi: Rauðsokkáhreyfingin Ásvallagötu 8 Reykjavik. -y. & if9 aí6' •&**#*.«*- « A° CX&. Z<sp* "a Otlit og uppsetning: Edda Óskarsdóttir —tI. Prent un: Of f se tmynd ir sf.

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.