Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 24

Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 24
(SULlKoPM u* w\?\ /ir piwafiwwi éfiir K T- LiNDW í ÞýÐOfcu BjoRNS Mtm. Iþróttakennari hér í Reykjavík benti biaðinu "Forvitin rauð" á eitt og annað, sem hlýtur að kallast "viðhorfa- mótandi innihald" í Fimleikafræðinni, sem hann laerði í íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni fyrir nokkrum árum. Þessi bók var kennd í Iþróttakennaraskólanum um langt árabil, og af þessum viskubrunni hafa flestir starf- andi íþróttakennarar hér á landi teygað. En skyldu ekki víðar leynast gullkorn af svipuðum toga í kennslubókum hér á landit "Leikar hafa sama gildi fyrir börn eins og dans fyrir kvenmenn og íþróttir fyrir karlmenn". bls. 3* "Venjulegur fimleikakennari þarf um fram allt að vera uppeldisfræðlngur. Hann þarf að skilja til hlítar til- gang fimleika, geta notað sér æfingasöfn og leiðbeiningar. En ekki er honum bein þörf líffærafræði né lífeðlisfræði". bls. 12. " Mestu skiptir aldur nemenda og aðgreining stúlkna og pilta, sem er gagnger flokkan. 1 mörgum skólum veldur þó æska, að hennar er ekki brýn þörf. En þegar nemendur eru þroskaðir, er sjálfsagt að hlíta henni, svo að stúlkur bíði ekki baga." bls. 16. "En frá upphafi gelgjuskeiðs er sjálfsagður eðlismunur á fimleikum stúlkna og pilta. 1 fyrsta lagi vegna þess að meiri munur er á gerð líffasra þeirra og starfi en almennt er vitað, og í öðru lagi breytist uppeldi þeirra að sama skapi, stefnir að því að veita stúlkum kvenlegan þroska en drengjum karlmennsku. " bls. 17. "í fimleikum koma kynfæri sjálf lítt við sögu nema stöku sinnum." bls. 17. "Hér, sem oftar, líkist konan barni en karlmaðurinn sumum apategundum." bls. 18. "Mjúkur búkveggur, úr tengivef og vöðvum, heldur líffærum kviðarhols í skorðum. Sé hann stór og vöðvar hans þrótt- litlir eins og gerist á konum, er auðsætt að þasr eru verr settar en karlmenn." bls. 18. "Konan er "eðlilega refbeinótt", og dregur það úr vissu og öryggi fótahreyfinga." bls. 19. "Að jafnaði er vinnuhraði karlmanns miklu meiri. (Skyldu þeir vera sammála í frystlhúsunum?) Ef kona á að vinna með sama hraða, þreytist hún fljótar, skortir bæði afl og þol á við hann". bls. 20. "Einstakar hreyfingar karlmanns lýsa festu og vissu, en hreyfingar kvenna eru líðandi og ekki jafn ákveðnar." bls. 21 "Sú skoðun ríkir, að taugakerfi konu sé að jafnaði við- kvæmara en karlmanns. Leikur naumast á tveim tungum, að það sé rétt. Geðshrasringar, sem svo eru kallaðar, eru auðvaktari meðal kvenna en karla, og ber meira á þeim. Sérstaklega kemur þetta fram á hreyfingum þeirra, sem spegla geðshræringar og eiga rætur í vitundarlífi og hreyfistöðvum taugakerfis. Konum gengur miður en körlum að stilla þær. Viðkvæmni taugakerfis lýsir sér einnig í því, að þeim hættir til þess að gleyma sér við störf sín.” bls. 23. "1 samrami við viðkvæmt taugakerfi konu, er umhugsunar- 4V

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.