Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 6

Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 6
byggist á þeirri forsendu að báðir aðilar séu jafnréttháir aðilar, hafi sömu skyldum að gegna og njóti sömu réttinda. Hins vegar sé önnur iöggjöf, svo sem skattalöggjöf og trygginga- löggjöf að mörgu leyti í andstöðu við grundallar- stefnu hjúskaparlöggjafarinnar. En niðurstaða flutningsmanna er sú, að breyta þurfi hjúskapar- löggjöfinni engu síður en annarri löggjöf sem feli í sér beint misrétti. Flutningsmenn lögðu því til, að afnumin yrði hin gagnkvæma framfærslu- skylda hjóna í hjónabandslöggjöfinni, en í stað- inn yrði hvor aðili um sig fjárhagslega sjálfstæður og ekki framfærsluskyldur gagnvart öðrum en börnum sínum. Tvenn rök voru aðallega færð fyrir þessari róttæku breytingu: annars vegar var bent á, að þrátt fyrir jafnréttisákvæði hjónabandslöggjafar- innar, hefði hlutverkaskipting kynjanna áhrif á afstöðu yfirvalda, sem lýsti sér t.d. í þeim venjum og reglum sem giltu eftir hjónaskilnað, en þá er farið að líta á konuna sem væri hún á framfæri, og hins vegar var bent á, að nú, er konan hefði sömu réttindi og karlmaðurinn með tilliti til náms og starfs, gæti framfærsluvernd ást er . . . .að vinna bœði fyrir út borguninni í íbúðinni. TM ■*« U.S. OH —AN ri«fci> mmU 1' 1*74 by 1« Am**I*> T>m*r ást er... ... að hlusta á málœðið í henni athugasemdalaust í hjónabandi ekki lengur staðist. Til stuðnings þessum málflutningi sínum, vitnuðu flutningsmenn til samþykktar sem gerð var af hálfu Sambands norrænna kvenréttindafélaga á fundi sem haldinn var hér á íslandi árið 1968 og birtu hana í heild með tillögu sinni. Pessi samþykkt Sambands norrænu kvenróttindafélaganna fer fram á endur- skoðun fyrirvinnuhugtaksins í norrænni löggjöf með það fyrir augum, að stefnt verði að því að hverjum fullvaxta manni veitist tækifæri til sjálfstæðrar tilveru með eigin fjárhagslega ábyrgð. Framfærsluskylda nái þá eingöngu til barnanna. Efni þessarar tillögu var tilefni mikilla umræðna á ráðstefnu Norðurlandaráðs sem haldin var um fyrirvinnuhugtakið í apríl 1972. Önnur tillagan fjallaði um tryggingagreiðslur til húsmæðra, þeirra sem afla sér ekki sjálfstæðra 6 tekna. Þar er farið fram á, að Norðurlandaráð beiti sér fyrir því að staða húsmæðra innan trygg- ingakerfisins só könnuð og á grundvelli slíkrar könnunar verði gerðar breytingar og úrbætur til að tryggja afkomuöryggi þeirra. Tekið er fram í greinargerð, að húsmæður sóu verr settar en aðrir í ýmsu því er varði lengd vinnutíma, orlof, laun fyrir vinnu sína og eftirlaun. Ekki gerðu flutningsmenn tillögunnar neina grein fyri hvernig þeir hugsuðu sér framkvæmd þessara atriða, eins og við sjáum af hinni endanlegu samþykkt ráðsins, þa'var lagt til að þeir aðilar sem annast börn eða aðra sem þurfa umsjár við njóti róttinda í tryggingakerfinu. Þriðja tillagan sem fyrir félagsmálanefndinni lá, gekk nokkuð í aðra átt. Þar var þess farið á leit að Norðulöndin endurskoðuðulöggjöf sína með tilliti til fjölskylduhugtaksins, á þann veg að ýmiskonar félagsleg og fjárhagsleg aðstoð sem bundin væri hinni hefðbundnu fjölskyldu, þ.e.a.s fóreldrum eða foreldri og börnum þeirra, næði einnig til annarra heimila þar sem börn væru fyrir þ.e.a.s. þeirra sem væru á framfæri fóstur- foreldra, ömmu og afa, eða eldri systkina. Um þessa tillögu er ástæðulaust að fara mörgum orðum hér á þessum vettvangi, þar eð íslensk löggjöf gerir ekki upp á milli barna á þann veg sem tillagan gerir ráð fyrir. Það er einmitt skýrt tekið fram í tryggingarlöggjöf okkar, bæði um barnalífeyri og fjölskyldubætur, að þær skulu greiddar þeim sem annast framfærslu barnanna. Grundava.llarmunur er á fyrri tillögunum tveim og hinn þriðju og síðustu. í hinum tveim fyrri - um fyrirvinnuhugtakið og um auknar tryggingabætur til húsmæðra er forsenda sú, að einstaklingurinn sé grunneiningin, sem ráðiafstöðu löggjafans. Gengið er út frá því að fjölskyldan sé einstaklingnum ekki lengur sá fjárhagslegi bakhjarl sem hún var forðum og ekki nægileg trygging fyrir fjárhags- legri afkomu. 1 tillögunni um fyrirvinnuhugtakið er beinlínis gert ráð fyrir, að svo eigi heldur ekki að vera. Allar tillögur um bætta réttarstöðu húsmæðra innan tryggingakerfisins - að þær eigi sama rétt til bóta og aðrir, og sú krafa að þeirra nánustu eigi rétt til bóta eftir þær, byggjast einnig á þeim skilningi, að húsmæður séu sjálf- stæðar fyrirvinnur, en ekki á framfæri eiginmanns. Flutningsmenn þriðju tillögunnar halda sig hins vegar lnnan vébanda fJölskyldunnar og vllja rýmka það hugtak í lögum, en fólagsmálanefndin sneri þeirri tillögu í hina áttina, því að í hinni endanlegu samþykkt Norðulandaráðs er lagt til að bætur trygginganna skuli veitast þeim er annast barn eða aðra, án tillits til hjúskaparstéttar eða kynferðis. Félagsmálanefndin lagði mikla vinnu í þessar tillögur, og þrjú ár liðu áður en hún komst að niðurstöðu um í hvaða formi hennar eigin tillaga

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.